Morgunblaðið - 02.11.1940, Side 3
Laugardagur 2. nóv. 1940.
MORGUNBLAÐIÐ
3
„Braga“ hvolfdi við áreksturinn
og skipið sökk á svipstundu
400 króna sekt
fyrlr að selja
„dúndur"
T T æstirjettur kvað í gær
*--*■ upp dóm í málinu:
Valdstjórnin gegn Ásgeiri Ingi
mar Ásgeirssyni.
Málsatvik eru þau, að hinn
9. júní s. 1. fór Loftur G. Jóns-
son Lindargötu 8 heim til
kærða, Ásgeirs I. Ásgeirsson-
ar kaupmanns á LaugaVeg 55
og bað hann um brennivín. Ás-
geir kvaðst ekkert hafa og
spurði þá jLoftur hvort hann
hefði ekki eitthvað annað.
Kvaðst Ásgeir hafa „dúndur“,
sem Loftur bað að láta sig
hafa. Fór þá Ásgeir í sölubúð
sína og ljet 100 gr. af brenslu-
spritti á pela og fylti síðan
pelann af „póló“. Þetta seldi
hann Georg fyrir 3 krónur.
Lögreglan náði í pelann og við
rannsókn kom í Ijós, að
blanda þessi hafði inni að
halda 25% af alkohol.
Var nú höfðað mál gegn
Ásgeiri og dæmdi lögreglu-
rjettur Rvíkur hann í 5 daga
varðhald og 400 kr. sekt.
Dómi þessum var áfrýjað.
Hæstirjettur tók varðhalds-
refsinguna út. í forsendum
Hsastarjettar segir m. a.:
. „Samkvæmt málavöxtum þeim, sem
greindir em í hinum áfrýjaSa dómi,
hefir kærði gerst sekur um brot á á-
kvæðum 15. gr. áfengislaga nr. 33
frá 1935. Hann hefir einu sinni á'ður
sætt refsingu fyrir ólöglega. áfengis-
sölu, og varðar því brot hans nú við
síðari málslið fyrri málsgreinar 33.
gr. nefndra laga. Varðhaldsrefsing
verður hinsvegar ekki dæmd, þar sem
nefnda 33. gr. þykir verða að skýra
með hliðsjón af tilorðningu 15. gr.
laga nr. 91 frá 1917, sem hefir að
þessu leyti samskonar ákvæði að
geyma, á þá leið, að varðhaldsrefs-
ingu beri ekki að beita fyr en við
þriðja brot, >ef sajla hefir ekki farið
fram í atvinnuskyni.
Refsing kærða þykir hæfilega á-
kveðin 400 króna sekt til menningar-
sjóðs, og komi í stað sektarinnar 20
daga varðhald, verði hún ekki greidd
innan 4 vikna frá birtingj^ dóms
þessa.
Ákvæði hins áfrýjaða dóms um
greiðslu sakarkostnaðar í hjeraði eiga
að vera, óröskuð.
Kærða ber að greiða allan áfrýjun-
arkostnað sakarinnar, þar meö talin
málflutningslaun skipaðs sækjanda og
verjanda fyrir hæstarjetti, 50 krónur
til hvors“.
Sækjandi málsins var Jón
Ásbjörnsson hrm. og verjandi
Lárus Jóhannesson hrm.
Togarinn lá við akkeri
utan við Fleetwood' -
Fyrsti vjelstjóri fórst. Lik skipstjórans
náðist OQ verður flutt hingað
SVARSKEYTI barst árdegis í gær við fyrirspurn
þeirri, er Geir Thorsteinsson sendi viðvíkj-
andi mönnunum er björguðust af Braga. Kom
þá í ljós, að Guðmundur Einarsson 1. vjelstjóri hafði far-
ist, en Stefán Einarsson kyndari bjargaðist.
í þessu sama skeyti var einnig sagt frá því, að lík skipstjórans,
Ingvars Ágústs Bjarnasonar, hefði náðst og yrði það sent lieini með
togaranum Haukanesi, sem væri í þann veginn að leggja af stáð. Með
sama togara koma einnig mennirnir þrír, sem björguðust.
Síðar í gær- barst Geir Thor-
steinsson annað skeyti, þar sem
skýrt var nokkuð nánar frá slys-
inu.
Það var kl. 6 árdegis á mið-
vikudag sem slysið varð. Bragi lá
við akkeri, utan við Fleetwood.
Var að bíða eftir að birti, til þess
að komast inn í höfnina.
Áreksturinn skeði þannig, að
flutningaskipið „Duke of Yoií1í“
sigldi á Braga stjórnborðsmegin,
nálægt framsiglu. Svo stórfeldur
var áreksturinn, að Braga hvolfdi
á svipstundu og sökk samstundis.
Mennirnir þrír, sem björguðust,
hafa þegar gefið skýrslu um slys-
ið. Binnig hafa skipstjórar á tveim
skipum, sem lágu nálægt Bragá,
er slysið varð, gefið skýrslu. Þess
er ekki getið, hvðrt hjer er um
að ræða íslenska skipstjóra.
Stúdentar þeir, sem hafa í
hyggju að taka þátt í mötuneyti
í Háskólanum í vetur, eru beðnir
að koma á fund í Háskólanum, í
kenslustofu I., í dag, laugardag,
kl. iy2 e. hád.
Guðmundur Einarsson, 1. vjel-
stjóri, átti heima á Bergþórugötu
53. Hann var 37 ára; kvæntur og
3 börn í ómegð.
Landvarnalán Svía
760 milj. kr.
gær var lokið að safna í
-*■ landvarnalán Svía. Höfðu
þá alls safnast 760 jniljónir
króna.
Jafnmikið bættist við lánið
síðustu vikuna og þá síðustu.
Sænska stjórnin hefir ákveð-
ið að hefjast handa um verk-
legar framkvæmdir í stórum
stíl. Einkum verða lagðir nýir
vegir og gamlir vegir bættir.
Þá hefir stjórnin veitt mikið
fje til brúasmíði á næstunni.
Leikfjelag Reykjavíkur sýnir
leikritið „Loginn helgi“, eftir W.
Somerset Mangham, annað kvöld.
Mentaskólinn
settur í gær
Mentaskólinn var settur í
gær í hátíðasal Háskól-
ans. Þar flutti Pálmi Hannesson
rektor ræðu, en karlakórinn
Fóstbræður söng á undan; og
þjóðsönginn á eftir ræðunni.
Rektorinn lýsti þeim vandræð-
um, sem skólinn væri í, við það
að 'missa húsnæði sitt, en þakk-
aði Háskólanráði fyrir að það
vildi hýsa lærdómsdeild skól-
ans. Gagnfræðadeildin verður í
Alþingishúsinu, og sagði ræðu-
maður að sjer væri ekki sjer-
lega ógeðfelt að slíta skólan-
um þannig í sundur, því eðlilegt
væri að losa Mentaskólann í
framtíðinni við gagnfræðadeild-
ina.
Er hann hafði lýst ýmsu því,
er að daglegum störfum skól-
ans lýtur, 'sneri hann sjer að
þeim áhrifum, sem hernámið
hefði á þjóðina og þjóðlífið og
hvaða hættur æskulýðnum væri
af því búnar. Kom hann víða
við í því sambandi.
Skíða-og Skautafjelag
Hafnarfjarðar 5 ðra
Skíða- og Skautafjelag Hafn-
arfjarðar hjelt aðalfund sinn
í fyrrakvöld, við fjölmenni að
Hótel Birninum. Fundurinn var
fjörugur og áhugamál fjelagsins
rædd af kappi. Þessir menn voru
kjörnir í stjórn fjelagsins: Krist-
inn Gúðjónsson, formaður (endur-
kosinn), og meðstjórnendur þeir
Gnðmundur Guðmundsson og
Ólafur Gíslason, báðir endurkosn-
ir. Ennfremur voru kjörnir í
stjórnina þeir Magnús Guðlaugs-
son og Gúnnlaugur Guðmnndsson.
S.l. laugardagskvöld hjelt fje-
lagið hátíðlegt fimm ára afmæli
sitt, Sigurjón Vilhjálmsson, for-
maður skemtinefndar, setti skemt
FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU.
—
V ichy-sl jórniii
Þetta er franska stjórnin í Yichv, eða „Vichy-mennirnir“ eins-og
stjórnin er venjulega nefnd þegar minst er á hana í Englandi. Talið
frá vinstri : M. Mireanx (fræðslu- og listamál), Jean Darlan flotafor-
ingi (flotamál), Poul Baudoin, Albert (dómsmál), Pierre l.ava! (ut-
anríkismál og forsætisráðherra), Adrien Marquet (innanríkfsmál),
Y'ves Bouthillier (fjármálj, Petain marskálkur (forseti ríkisins), M.
Caziot (bún'aðarmál),' Wevgand hershöfðingi (landvarnðmál), Jean
Ybarnégaray (æsku- og fjölskyldumál), Leméry (nýlendumál), Pujo
hershöfðingi (flngmál) og Colson hershöfðingi (hermál).
Loftvarnabelgir
á sveimi yfir
landinu
Valda spjöllu
A símalínum
UNDANFARNA DAGf^. hefir loftvarnabelgi
rekið hjer inn yfir landið. Hafa þeir kom-
ið frá norðri, að því er virðist. Loftvarna-
belgir þessir eru notaðir til þess að halda uppi skjólgirð-
ingum gegn flugárásum. En þegar þeir slitna af sínum
stað rekur þá oft langar leiðir, eins og raun ber vitni um.
Hefir blaðið alls frjett um að vart hafi orðið við sex þessara
belgja, og hafa menn liandsamað þrjá þeirra, en þrír liafa farið leið
sína á haf út.
I fyrradag kom einn þessara
belgja svífandi yfir Langanes, og
virðist hafa, eftir þeim frjettum
sem fjrnir liggja, sigið til jarðar
hjá bænum Hóli á Langanési.
Belgnr þessi var 20 m. á lengd
og voru í honum margir kaðlar,
sem síðan voru festir í vírtaug
er hjekk niður úr belgnum.
.Ekki er þess getið að belgur
þessi hafi valdið neinum spjöllum.
Símaslit.
En á vestanverðu landinu hafa
belgi-rnir, eða kaðaldræsurnar sem
niður úr þeim lafa, slitið símalín-
ur á mörgum stöðum.
Á miðvikudaginn var sást loft-
varnabelgur við ísafjarðardjúp>
m. a. frá Arngerðareyri. Ekki er
getið um að hann hafi gert þar
nein spjöll. En það mun hafa ver-
ið sami belgurinn er seinna sást
nálægt Eyri í Gufudalssveit. Þar
skemdi hann síma, sleit síma-
þræði af staurunum á 200 metra
svæði.
Á fimtudag sást aftur belgur
frá Arngerðareyri. Og hann' fór
sömu leið suður yfir Gufudals-
sveit og enn varð hans vart á
Snæfellsnesi. Hann mnn hafa ver-
ið valdur að símaslitum milli
Stykkishólms og Ólafsvíkur. Hanu
sást frá Kvíabryggju. Hann var
ekki hátt á lofti og drógst kaðal-
dræsan úr honum eftir jörðiuni
langan veg.
í Dölum.
í gærmorgun sást loftvarna-
belgur frá Guðlaugsvík á Strönd-
um. Var reynt að handsama hann
þar, en tókst ekki. Hann var á
suðurleið. Um hádegi mun hann
hafa verið kominn suður á Laxár-
dalsheiði, því þá slitnaði símihn
milli Borðeyrar og Búðardals.
Skömmu seinna varð fólk vart
við hann að Sauðafelli í Dölum.
Þar rjeðst Finnbogi bóndi með
menn sína í það að handsama belg-
inn. Logn var á, og fór helgur-
inn því hægt yfir. Þrír vírar
hjengu úr honum. Náðist í þá. Og
vegna þess hve lygnt var tókst
að draga belginn niður, og rista
á hann gat. Svo þungir vírar voru
við hann festir, að hann sleit alt
niður, sem varð á vegi hans með-
an hann var á ferðinni.
Frá Tjörn á Vatnsnesi sást einn
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU