Morgunblaðið - 05.01.1941, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 05.01.1941, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ Sunnudagur 5. janúar 1941 Astralska herliðið sagt vera í Bardía: 8 þús. fangar teknir Þjóðverjar ætla að gefa Irska sendlherranum „skýr og ðkveð- la“ svðr U ulltrúi jjýska utanríkis- málaráðuneytisins skýrði amerískum blaðamönnum i Ber lín frá því um miðjan dag í gær, að írski sendiherrann hefði þá enn ekki komið í utanríkis- málaráðuneytið til þess að leggja fram mótmæli gegn loft- árásunum á írland, en mót- mæli þessi höfðu verið boðuð í fregnum frá London. Fulltrúinn sagði, að ef svo íæri, að írski sendiherrann kæmi til að leggja fram ein- hver mótmæli, þá myndi hann fá „skýr og ákveðin“ svör. En á þessu ^tigi hvað fulltrúinn ekki ástæðu til að rifja upp þetta mál frekar. En í þýskum blöðum er því haldið fram fullum fetum, að engar þýskar loftárásir hafi verið gerðar á írland undan- farið. Er því haldið fram, að annaðhvort hafi Bretar gert loftárásina sem hjer um ræðir, eða að engar loftárásir hafi verið gerðar. Obinber írsk tilkynning Iopinberri tilkynningu, sem birt var í Dublin í gær, segir að brot úr tveim segulmögnuðum tundurduflum, sem varpað var nið ur fyrir framan höfnina í Ennis- skerry í vikunni, hafi verið an þýskum uppruna. Einnig er skýrt frá því, að sprengjurnar, sem varpað var yf- ir "Wexford-hjeraðinu, hafi verið þýskar. En það er áftur á móti borið til baka, að nolckur loftárás hafi verið gerð á Dublin. 7 af hverjam 10 Könnun, sem farið hefir fram á almenningsálitinu 1 Banda ríkjunum nú um áramótin, hefií' leitt í ljós, að 68 af hverjum 100 Bandaríkjamönnum telja að það sje hagsmunamál Bandaríkjanna að Bretar vinni sigur. 7 af hverjum 10 eru fylgjandi því, að hjálpin t.il Breta verði auk- iu. Ahlaupið á borgina kom Itölum á óvart Samvínna Hítlers og Stalíns 24 klst. árái á borg- ina af landl, sjó og úr loffi HERMÁLARÁÐHERRA Ástralíumanna, sem nú er staddur í Kairo, var í gærkvöldi sagð- ur hafa símað til ríkisstjórnarinnar í Syd- ney, að ástralski hershöfðinginn, sem stjórnaði áhlaupinu á Bardia, væri nú kominn inn í borgina og hefði tekið 8 þús. ítalska fanga. I tilkynningu bresku herstjórnarinnar, sem birt var fyr í gær, var skýrt frá því, að áströlsku hersveitirnar hefðu brotist 3 km. inn í miðbik varnarlínu ítala hjá Bar- dia á 14 km. breiðri víglínu. Samkvæmt þessari tilkynn- ingu áttu Bretar aðeins 2—3 km. ófarna til sjálfrar borg- arinnar. í tilkynningu herstjórnarinnar var skýrt frá því, að hernaðarað- gerðir hjeldu áfram með góðum árangri. í fyrrakvöld hafði herstjórnin tilkynt að á fyrsta -degi áhlaupsins hefðu 5 þús. fangar verið teknir, eða þriðji hlutinn af setuliðinu í Bardia. Aströlsku hersveitimar komu Itölum á óvart með því að hefja áhlaup sitt að suð-vestan við borgina. En ítölsku fallbyssurnar böfðu allar verið settar þannig upp, að þeim var miðað í aðra átt. Á undan ástralska fótgöngulið- inu fóru brynvarðar bifreiðar og skriðdrekar slitu í sundur gadda- vírsgirðingarnar, sem Italir höfðu reist til vamar. Það hefir verið opinberlega til- kynt, að mannfall í liði Astralíu- manna hafi verið iltölulega lítið. LÁTLAUS SKOTHRÍÐ. Áður eu áhlaupið hófst hafði staðið látlaus skothríð á Bardia af landi, sjó og úr lofti. í 24 klst. hiifðu fallbyssur í landi látið stór- skotum rigna yfir borgina, hresk iierskij) höfðu skotið á hana af sjó, og breskar sprengjuflugvjel- ar höfðu varpað yfif hana þús- undum kílógramma af sprengj- um. Breskur flugmaður hefir skýrt frá því, að þetta hafi ver- ið mesta skothríðin, sem gerð hef- ir verið frá því að hernaðarað gerðirnar í Norður-Afríku hófust. í tilkynningu ítölsku herstjórn- arinnar í gær er skýrt frá áköf- um orustum við Bardia, óg loft- árásum ítalskra flugvjela á bresk lierskip við strendur Libyu. Arnljótur Guðmundsson lög- fræðingur hefir verið ráðinn sem fulltrúi á bæjarskrifstofunum. Bæjarráð samþykti þessa stöðu- veitingu á fundi sínum í fyrra- dag. Einnig samþyktj bæjarráð, að ráða Skúla Tómasson sem um- sjónarmann með innheimtu fram- færsluskulda. Kristinn Kristjáns- son var skipaður aðstoðarmaður 1. flokks, Ólafur Halldórsson bókari og Jakobína Jósefsdóttir 1. flokks kvenskrifari. Athygli ÞjóB- lerja beinist að Balkanskaga Ifregnum, sem borist hafa frá Berlín til New York segir, að höfuðathyglin í þýsku höfuðborginni beinist pú jhð hinu stjórnmálalega og hern- aðarlega viðhor'fi á Balkan skaga. Almenningur í Þýska- landi virðist búast við tíðind- um þaðan á næstunni. Tilkynningin um að þýskt fluglið sje komið til Ítalíu hefir orðið til þess að örf'a þessa trú manna. Sögusagnir ganga stöðugt um þa,ð, að meira her- lið heldur en aðeins flugliðið, hafi vei’- ið f'lutt frá Þýskalandi t.il Ítalíu, en enga opinbera staðfestingu hefir tek- ist að fá á þessum fregnum. Fregnir ganga einnig um það, að Þ.jóöver jaj' hafi liðsamdrátt á stöðum í suður- og suðausturhluta Þýskalands, og að það- an sje auðvelt að flytja. það, hvert sem vera skal til vígstöðva á Balkanskaga. Heimsókn búlgarska forsætisráð- herrans til Vínarborgar hefir glætt á- liugajm fyrir Balkanmálunum. Það er þó ekki vitað hvort hann og Pliiloff' Ribbentrop hafi ræðst við, en von Ribbentrop hefir ekki verið í Berlín undanfarna daga. En það er þó tal- in fullnægjandi skýring á fjarveru FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU. vor« tveggfa ára gömtcí T71 regnir hafa komist á loft um sundrung milli Þjóð- verja og Rússa. Fulltrúi utan- ríkismálaráðuneytisins þýska sagði í gær, að fregnir þessar hefðu verið bygðar á ummæl- um Stalins, sem birt voru í Eng- landi og sem sögð voru höfð eftir rússneska blaðinu Pravda. 1 ummælum þeim, sem vitnað er í, talar Stalin um misklíð milli Rússa og Þjóðverja. En fulltrúi þýska utanríkismála- ráðuneytisins upplýsti að um- mæli þessi hefðu verið tekin úr ,,Pravda“ frá árinu 1938, er sundrung var með Þjóðverjum og Rússum. Þessi sundrung hefði horfið með þýsk-russ- neska vináttusáttmálanum. Fulltrúinn sagði, að sambúð Þjóðverja og Rússa væri góð og trygg. Hann sagði, að þýski viðskiftafulltrúinn Schnurre stæði í samningum í Moskva, og að þess væri að vænta, að samningunum yrði brátt lokið með góðum árangri. Rússar bera einnig til baka Iopinberri tilkynningu sem Tassfrjettastofan birti í gær, segir að frjettastofunni hafi verið heimilað að lýsa yfir því, að ummæli, sem birt hafa verið erlendis og sem sögð væru höfð eftir Stalin, sem einhvers- konar nýársboðskapur frá hon- um, væru fölsuð. Ágreiningurinn I Vichy Það var viðurkent í Berlín í gær að ágreiningur væri á milli „áhrifamikilla stjórn- arklíku“ í Vidcy og manna, sem vildu taka upp samvinmi við Þjóðverja á grundvelli þeirra tillagna sem Laval hefði gert. Fulltrúi þýska utanríkismála- ráðuneytisins sagði að þýska stjórnin ætlaði að sjá hverju fram vindur, áður en hún tek- ur ákvörðun um nýjar ráðstaf- Ægílegar loftárásír á Bremen og Brístol Bretar gerðu loftárás á Bremen í fyrrakvöld, þrðija kvöldið í röð og segja, að þegar bresku flugvjelarnar hjeldu burtu, hafi iðnaðar- hverfi borgarinnar verið í einu eldhafi. Bresku flugmennirnir töldu 18 rauða elda en köstuðu ekki tölu á hina mörgu „hvítu“ elda í borginni. Þjóðverjar ein- beindu árásum sínum að Bristol íí fyrrinótt. I breskum fregnum er skýrt frá því, að hlutfallið milli tundursprengja og eld- sprengja sem varpað var yfir borgina, hafi verið jafnara en 1 fyrri árásum á Bristol. Tjónið í borginni var mikið, í einni götu fór fólk úr loft- varnabyrgjum sínum til þess að gera óskaðlegar eldsprengj- ur sem rigndi niður yfir húsin þar. Tilkynning þýsku herstjórn- arinnar í gær var á þessa leið: Þrátt fyrir slæm veðurskilyrði fór þýski flugherinn könnunarflugferöir í dagsbirtu í gær. f suð-austur Englaudi var varpað sprengjum á flugvöll, með góðum árangri. í g&rkvöldi gerðu öflugar þýskar sprengjuf lugv j elasveitir loftárás á Bristol. Margar sprengjur af öllum stærðum ollu sprengingum og kveiktu mikla elda, sem sáust greini- Jega úr mikilli fjarlægð. Sprengjuá- rásir voru einnig gerðar á aðra mik- ilvæga staði í Suður-Englandi. Breskar flugvjelar flugu yfir Norð- ur-Þýskaland í gærkvöldi og vörpuðu sprengjum á fjórum stöðum. Eld- sprengjum var varpað aðallega á í- búðarhverfi, og kveiktu þær marga elda. En aðeins lítilvægt tjón hlaust á stöðum, sem hafa hernaöarlega eða iönaðarlega þýðingu. Tvær breskar flugvjelar voru skotnar niður. Einn- ar þýskrar flugvjelar er saknaö. Tjðnið af 18 daga leifturstrfði i Belgíu Tölur, sem birtar voru í London í gær og sem bygðar eru á skýrslum útgefn- um í Brússel, leiða í ljós næsta ótrúlegt tjón, sem varð í Belgíu í lefiturstríðinu í maí síðastliðnum. Samkvæmt þessum tölum voru á 18 dögum, á meðan leift urstríðið stóð yfir, 34 þús. hús löskuð eða eyðilögð. En auk þess varð minniháttar tjón á 116 þús. húsum. Margar hinna minni borga í Belgíu eru að meira eða minna leyti í rústum, einkum borgir eins og Tournai, Louvain, Ostend o. fl. f styrjöldinni varð tjón á 6 þús. mílum þjóðvega og eru mörg hjeruð þess vegna enn að nokkru leyti einangruð. Um 100 járnbrautarstöðvar voru eyðilagðar. Hjer við bætist, að 1455 brýr og neðanjarðargöng voru eyði- lögð. an-ir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.