Morgunblaðið - 05.01.1941, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 05.01.1941, Blaðsíða 3
Sunnudagur 5. janúar 1941. MORGUNBLAÐIÐ 3 Samtal wflð Alexander Jóliannesson prófessor Fjöldi merkra háskólafyrirlestra Hvers vegna sinnir út- varpið ekki þessu efni? ERU nokkrar nýjungar í aðsigi í Háskólanum? spurðum vjer háskólarektor í gær, dr. Alex- ander Jóhannesson prófessor. — Þar eru altaf nýjungar, svarar prófessor Alexander. Háskól- inn er í stöðugri þróun. Þar er aldrei kyrstaða. Þjer vitið, að opin- berir fyrirlestrar hafa verið óvenju margir í vetur og aðsókn að þeim með mesta móti. Þessum fyrirlestrum verður haldið áfram. — Hvaða fyrirlestra eigum við von á á næstupni ? Sunnudagafyrirlestrar háskólakennara. — Það eru fyrst sunnudagafyr- irlestrar háskólakennara, sem hafa verið mjög vinsælir. Þeir eru þrír eftir. í þessum mánuði mun pró- fessor dr. Magnús Jónsson flytja fyrirlestur og er efnið: Prá upp- tökum kristninnar. Fyrirlesturinn verður fluttur 19. þ. m. Ilinn 2. febrúar flytur prófessor Ólafur Lárusson fyrirlestur um hefnd; mun efnið verða tekið úr fornsögum og fornri löggjöf. Loks kemur Sigurður Nordal prófessor 23. febrúar. Hann nefnir sinn fyrirlestur: Gunnhildur kongamóðir. Allir þessir fyrirlestrar vei’ða fluttir í hátíðarsal Háskólans, kh 2—3 á sunnudögum. Úr sögu Dana — Frönsk málaralist. En auk þessara sunnudagafyrir- lestra hefir þegar verið ákveðið um marga opinbera háskólafyrir lestra, segir prófessor Alexander ennfremur. Legationsráð Brun flytur í þessum mánuði 3 fyrirlestra um „Danmarks udenrigspolitik 1865— 1870“. Þessir fyrirlestrar verða fluttir 21., 24. og 28. þ. m. og verða á dönsku: Þeir verða flutt ir í 1. kenslustofu Háskólans kl. 6—7 síðd. Voillery, ræðismaður Prakka, flytur einnig 3 fyrirlestra í febrú- armánuði, 6., 13. og 20. febr, kl. 8—9 síðd. Efni fyrirlestranna verður um málaralist í Frakklandi frá 1800 til vorra daga. Skugga- myndir verða einnig sýndar. Pyr- irlestrarnir verða á frönsku. Tónlist. - Þá hefir verið ákveðið í sam- vinnu við Tónlistarfjelagið, að Hallgrímur Helgason tónskáld flytji alls 8 fyrirlestra um tónlist. Munu þeir hefjast bráðlega. Efni fyrirlestranna verður: 1. Menningarlegt gildi tónræns uppeldis. 2. Uppruni og eðli íslenskra þjóðlaga, tóntegund þeirra og hreimfall. Verða tveir fyrirlestr- ar um þetta efni. 4. Upphaf fjölraddaðs söngs á meginlandi Evrópu, með sjerstöku tilliti til íslenska tvísöngsins. FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU. 80.000 krónur tll skálda 09 lislamanna Úthlutun Menta- málaráðs lVyf" entamálaráð Islands út- hlutaði á gamlársdag þeim 80.000 krónum, sem veittar eru á fjárlögum 1941 til rithöfunda, listamanna og fræði manna. Kr. 3000.00 hlutu: Ásgrímur Jónsson, Ásmund- ur Sveinsson, Davíð Stefánsson, Guðmundur Friðjónsöon, Guð- mundur Hagalín, Gunnar Gunn arsson, Jóhannes Kjarval. Jón Stefánsson, Ríkarður Jónsson. Kr. 2400.00 hlutu: Guðmundur Kamban, Hall- dór Kiljan Laxness, Jón Leifs, Kristmann Guðmundsson, Magnús Ásgeirsson. Kr. 1800.00 hlutu: Jakob Thorarensen, Jóhann- es úr Kötlum, Magnús Stef- ánsson, Tómas Guðmundsson, Þórbergur Þórðarson, Þorkell Jóhannesson. Kr. 1600.00 hlaut: Skúli Þórðarson. Kr. 1200 00 hlutu: Finnur Jónsson, Gunnlaugur Blöndal, Steinn Dofri. Kr. 1000.00 hlutu: Elinborg Lárusdóttir, Guð- brandur Jónsson, Guðmundur Daníelsson, Hallgrímur Helga- son, Indriði Þorkelsson, Jón Magnússon, Kristín Sigfúsdótt- ir, Kristján Albertson, Leifur Ásgeirsson, Pjetur Á. Jónsson, Sigurður Jónsson Árnar\Tatni, Theodór Friðriksson, Unnur B. Bjarklind, Þorkell Þorkelsson, dr. Kr. 800.00 hlutu: Björn Guðfinnsson, Eiríkur Albertsson, Hesti, Guðmundur Böðvarsson, Guðni Jónsson, FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU. ÚTGERÐIN 1940 1 Whisky- flaska — 3 stolnir bílar rír unglingar drukku sam- an eina flösku af whisky í fyrrakvöld. Þeir stálu þrem- ur bílum og stórskemdu tvo þeirra, en óku þeim þriðja á ljósastaur. Enginn þeirra hefir bílstjórarjettindi. Þeir eru á aldrinum 17, 18 og 20 ára. Klukkan um 10 í fyrrakvöld var leigubifreiðinni R. 902 stolið, þar sém hún stóð fyrir utan Bifreiðastöðina Geysir. Skömmu síðar fanst bíllinn í hitaveituskurði lengst inn á Hverfisgötu. Bíllinn var stór- skemdur. Hafði honum verið ekið utan í húsið Hverfisgata 100 B. Nokkru seinna sama kvöld var leigubifreiðinni R. 454 frá B. S. R. stolið á Lækjartorgi. Bifreiðin fanst síðar um kvöld- ið hjá Vatnsendaveginum, fyr- ir utan bæinn. Hafði henni verið ekið út af veginum og sat hún þar föst. Stýrisútbún- aður og ,,gear“-kassi var úr lagi, talsvert skemt. Klukkan 2 s.l. nótt var þriðju bifreiðinni stolið í Templara- sundi. Var það R. 1221, eign Steindórs. Þessari bifreið hafði verið ekið aftur á bak og á ljósastaur. Skemdist bæði bif- reiðin og ljósastaurinn. Henni var síðan ekið á sama stað sem hún var á áður. Rannsóknarlögreglan hafði strax í gær upp á piltum þeim, sem valdir voru að þessum þjófnuðum og spellvirkjum. — Það voru þrír unglingar. Höfðu þeir drukkið saman eina flösku af Whisky áður en þeir lögðu í herferðina. Tvent má læra af þessum at- vikum og ættu hlutaðeigendur að láta sjer að kenningu verða: I fyrsta lagi: Það er ó- siður að kenna unglingum að stýra bíl fyr en þeir hafa aldur til að taka bíl- stjórapróf, en það er al- gengt að bílstjórar og bíla- eigendur leyfi unglingum að ,,taka í bíl“ hjá sjer. í öðru lagi: Bílstjórar ættu aldrei að ganga frá bílum sínum án þess að loka vjelinni og hafa lykil- inn með sjer. Hver ein- asta bifreið er þannig út- búin að auðvelt er að loka vjelinni fyrir óviðkomandi. Sje það gert er engin hætta á að bílnum verði stolið. Bæjarráð samþykti á fundi sín- um í fyrradag, að leggja til að bifreiðum verði bannað að nema staðar í Ingólfsstræti, milli Banka- strætis og Hverfisgötu, nema á meðan afgreiðsla fer fram. Eftir Richard Thors RICHARD THORS framkvæmdastjóri hefir nú um þessi áramót, sem á undanförnum árum, samið stuttort yfirlit fyrir blaðið yfir rekst- ur útgerðarinnar árið sem leið, og er frásögn hans svo- hljóðandi: Árið 1940 verður að telja fimta aflarýra árið fyrir þorskveiðar, nú í röð, enda þótt fiskimiðin hafi verið að mestu leyti friðuð fyrir veiðum erlendra skipa. Á þetta sjerstaklega við um vetrarvertíðina fyrir Suður- og Vesturlandi, svo og haustvertíðina við Faxaflóa. Hagnýting .aflans var að all- verulegu leyti með öðrum hætti en tíðkast hefir áður, og var kapp kostað að flytja út alt sem unt var alstaðar frá á landinu af ferskum fiski ísvörðum. Togara- flotinn, allur að heita má óskift- ur, hefir flutt allan sinn afla ís- varinn til Stóra-Bretlands, alt ár ið, að undanskildum fáum togur- um, sem stunduðu síldveiðar um tveggja mánaða tíma, og eins hafa öll stærri línuveiðaskip verið á siglingum með ísvarinn fisk alt árið, nema þau sem þátt tóku í síldveiðunum. Ýmist hafa skipin aflað sjálf eða sumpart stundað veiðar og keypt til viðbótar, þeg- ar með hefir þurft, eða þau hafa eingöngu keypt nýjan fisk af heimabátum og siglt með hann ís varinn til Stóra-Bretlands. Þannig hafa öll íslensku veiði- skipin, sem til þess hafa verið nothæf, siglt með ísvarinn fisk, en auk þess hefir e. s. Hekla ver- ið útbúin fyrir siglingar með laus an ísvarinn fisk, og hefir hún siglt alls fimm ferðir til Hull. En auk íslensku skipanna hafa út- lend skip verið leigð til þessa sem einnig í ríkum mæli hafa fengið heimild til kaupa á nýjum fiski fyrir milligöngu Islendinga, sjerstaklega fyrir Austur- og Norðurlandi, og siglt með hann til Stóra-Bretlands. Er leitt til þess að vita, að íslendingar skuli ekki hafa kosið heldur að leigja Færeyingana ‘ og taka áhættuna1 af sölunni, sem'hingað til myndi hafa fært þeim álitlegan hagnað. Engu skal þó spáð um, hvernig þau viðskifti verða hjeðan í frá, og engin eggjaður á að hefja á- hætturekstur, en ekki sýnist það óheilbrigt fyrir útgerðarmenn að greiða eðlilega leigu fyrir hentug skip til skamms tíma í senn, og senda afla sinn á erlendan mark- að. Skal ekki farið frekar út í þær sakir hjer. Heyrst hafa raddir um að minni skipin hafi sótt siglingarn ar til útlanda full djarflega, og víst er um það, að mikið lán hef- ir fylgt íslenskum skipum á þess- um hættutímum, þar sem engin óhöpp, svo að teljandi sje, hafa komið fyrir, að undanskildu hinu sorglega Braga-slysi, sem þó staf aði af ásiglingu, og nú nýverið loftárásin á Arinbjörn hersi, sem þó olli ekki manntjóni, en meiðsl- um á fimm skipverjum. Vonandi fylgir sama gifta ís- lenskum sjómönnum í siglingum þessum á þessu ári, en óhug nokk urn hefir slegið í sjófarendur út af fregnum, sem nýlega hafa bor ist um rekdufl nálægt fiskimið- unum. AFRAKSTURINN Afrakstur framangreinds at vinnureksturs hefir verið mjög sæmilegur fyrir alla að- standendur enn sem komið er, en eins og að líkum lætur hefir at- vinna við fiskverkun í landi þorr ið að miklum mun. Frá ófriðarbyrjun hafa veiði- skip og flutningaskip farið með ísvarin fisk til Stóra-Bretlands tæpar 900 ferðir, og fiskurinn verið seldur fyrir 75 til 80 milj. króna brúttó, en frá því dregst auðvitað allur erlendur kostnað- ur, svo sem veiðarfæri, vistir, ið- gjöld fyrir sjó- og stríðstrygg- ingar o. fl. Atvinnuvegur þessi er oss hinn þýðingarmesti eins og nú standa sakir, og væri það al- varlegur hnekkir allri afkomu landsmanna, ef siglingar með ís- varinn fisk torvelduðust, eða úr þeim drægi að verulegu leyti. SALTFISKFRAMLEIÐSLA Saltfiskframleiðsla hefir þó orðið nokkur í landinu, og hefir alls verið saltað um 16000 smál., miðað við þurkaðan fisk, en 1939 voru söltuð 37.500 tonn og 37.000 tonn árið 1938. Fisk- birgðir l./l. ’40 voru 10,680 smál. og hafa því verið rúmar 26.000 smál. til útflutnings á liðna árinu. Helstu markaðslöndin hafa verið Ítalía, Spánn, Portúgal og Eng- land, en til Mið- og Suður-Amer- íku hafa verið fluttar um 3000 smál., sem er talsvert minna en árið áður. Birgðir eru um 3400 smál., en sem nær allar seldar. Saltfisksverðið hefir verið smá hækkandi, og hefir Sölusamband ið greitt nú síðast fyrir saltfisk 55 aura pr. kg. og pressufisk 68 aura, verkaðan Labrador kr. 130.00 skpd., stórfisk kr. 150,00 til kr. 170,00 skpd Frosinn fiskur, aðallega flök, hefir verið fluttur út meir en nokkru sinni fyr, eða alls um 7500 smál., að verðmæti um kr. 11 miljónir, og hefir hann alllur ver ið seldur til Englands. Atvinnugrein þessi er mjög mikilsvárðandi, og væri óskandi að hún ykist, og að ófriðará- standið greiddi götu nýs fiskjar tilhafðan á þennan hátt, því sje þess gætt, að nota aðeins nýjan fisk til frystingar, er hæpið að fundin verði önnur leið betri til þess að tryggja Ineytendum í fjarlægð, að þeir fái fiskinn svo að segja nýjan upp úr sjónum. FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.