Morgunblaðið - 07.01.1941, Síða 2

Morgunblaðið - 07.01.1941, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 7. janúar 1941. Loforð Roosevelts um stöðugt fleflri skflp, fleflri flugvfelar og fleflrfl byssur tfll lýðræðisþfóðanna „Við munum ekki láta ógnanir einræðisherranna aftra okkur“ Þeir kunna að telja hjálp okkar hernað- araðgerðir — en hún er það ekki ROOSEVELT lýsti yfir því í gær, er hann setti 77. þing Bandaríkjanna, að Bandaríkin myndu láta í tje, þjóðunum, sem veita ágengni ein- ræðisþjóðanna, „skip, flugvjelar og byssur í stöðugt aukn- um mæli, þetta er tilætlun okkar og loforð okkar“, sagði forsetinn og um leið kváðu við fagnaðaróp um þingsalinn. Roosevelt hjelt síðan áfram: „Við munum ekki láta einræðisherrana hræða okkur út af þessari braut, þótt þeir lýsi yfir því, að hjálp okkar til lýðræðisþjóðanna sje hernaðaraðgerð. Þessi hjálp okkar er ekki hernaðarað- gerð. EINHLIÐA TÚLKUN En það er einmitt þessari einhliða túlkun á alþjóðalögum sem við viljum ekki hlíta. Þið getið verið vissir um, að þegar einræðisþjóðirnar ætla að fara með hernað á hendur okkur, þá munu þær ekki bíða eftjr því, að við fremjum einhverja hernað- araðgerð. Þær voru ekki að bíða eftir að Norðmenn, Belgir eða Hollendingar fremdu einhverjar hernaðaraðgerðir. Um þöf lýðræðisþjóðanna fyrir hjálp Bandaríkjanna, sagði Roosevelt: „BILLIONIR VOPNA“ „Þær vantar ekki menn, heldur billionir vopna. Sá tími kann nú að vera kominn, að þær hafa ekki reiðu fje, tii þess að greiða með þessi vopn. Eigum við þá að segja við þær: ,,Þið verðið að gefast upp vegna þess að þið eruð í bili ekki færir um að greiða úttekt ykkar“. . , ÞAÐ SEM ÞEIR ÞURFA Yið verðum að láta þær hafa það sem þær þurfa. Jeg á ekki við, að við veitum þeim dollara-lán, sem endurgreiðist í doll- urum. Jeg á við, að þær verða að geta haldið áfram að fá þau hergögn, sem þær þurfa frá Bandaríkjunum, til þess að geta haldið áfram að berjast gegn ofbeldinu. Við Ameríkumenn skulum segja við þessar þjóðir: Við lát- um okkur miklu skifta baráttu ykkar og munum tefla fram öll- um kröftum okkar og auðlindum til þess að gefa ykkur styrk. Innrás Þjóðvcrja í Bttígaríti á morgtm? Herflutningar Þjóð- verja tíl Balkan- landanna og Itaííú Hugleiðingar um framtíð Balk- anríkjanna eru nú á ný forsíðuefni heimsblaðanna. Hafa frjettir um herflutninga Þjóðverja til Rúmeníu valdið þessum heila- brotum blaða og frjettastofnana. \ fregn frá New York segir, að Þjóðverjar hafi þegar undirbúið innrás í Búlg'aríu og eigi sú inn- rás að, hef jast á morgun (8. jan.). Aðrir frjettamenn þykjast vita, að Búlgarár hafi ]>egar gefist upp fvrir Þjóðverjum og ætli að láta þá fá sömu fríðiudi og Rúmenar hafa veit þeim. Frjettaritari Reuters í Búlgaríu skýrir frá því, að kommúnistar ;þar hafi nýlega breytt út flugrit meðal almennings í Búlgaríu, þar sem þeir skýra frá því, að Sovjet- Rússlandi muni. aldrei leyfa, að Þjóðverjar nái fótfestu í Búlgaríu. Ffá RÚsstandi hafa ekki horist ’nein ummæli um ástandið á Balk- 'an, en það þykir allmerkilegt, að allir séhdiherrar Rússa í höfuð horgum Balkanríkjanna hafa ver- ið kallaðii* heim til að gefa stjórn simii skýrslur um ástandið á Balkan. Engar staðfestar frjettir hafa borist um ferðalag Pliiloffs, utan- ríkismálaráðherra Búlgaríu. Á sunyindag var sagt, að hann hefð: farið til Salzburg til að hitta þar von Ribbentrop, en þær fregnir voru bornar til baka í Berlín í gær. í London er sagt að Búlgarar sjeu mjög á báðum áttum um hvort þeir eigi að láta undan kröfum þýsku stjórnarinnar. Þeit' muni of vel ófarirnar í heims- stvrjöldinni til a.8 óska eftir að þær endurtaki sig. Um liðssamdrátt Þjóðverja í Suðaustur-Evrópu er það sagt, að þeir hafi nú um 45 herfylki, eði rúma hálfa miljón hermanna. í •Rúmeníu. Hafi her þessi tekið sjer stöðn á landamærum RússlandS' og Rúmenín, oog lijá landamærum Búlgaríu og Júgóslafíu. Þrálátur orðrómur gengur enn um liðssendingar Þjóðverja til ftalíu. FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU. Tvsr konur dsmdar til daufia í París Fyrir að dreifa áróðursritum Lundúnablaðið „Daily Express“ segir frá því að þýskur her- rjettur í París hafi dæmt tvær breskar konur til dauða. Konum þessum var gefið að sök, að þær he.fðu dreift áróðursriturn meðal Frakka í Párís. Komirnar heita Winifred HarJ og Florenee Frickard. Sendisveit Bandaríkjanna í Par- ís hefir unnið að því að fá dóm inum breytt og er talið sennilegt, að honum verði ekki framfylgt. Roosevelt lauk máli sínu með því að segja, að Bandaríkja- menn yrðu að vera við því bún- ir, að færa fórnir. Hann kvaðst vilja að vígbúnaðurinn yrði greiddur að sem mestu leyti með sköttum, en ekki með lán- um. En Bandaríkjamenn væru fúsir til að færa þessar fórnir, fyrir frelsið, málfrelsi og skoð- anafrelsi, frelsi til þess að til- biðja guð, hver eftir sínum vilja, frelsi frá neyð og frelsi frá ótta. Styrkleiki okkar felst í því, að við stefnum allir að einu og hinu sama. Roosevelt hafði hafið mál sitt, eftir að hinni venjulegu athöfri, sem fer fram þegar nýkjÖrnir for- Þjúðverjar orðnir úþol inmóðir gagnvart ViGhy-stjórninni Fregnir frá Vichy herma, að enn sje mótstaðan gegn Þjóðverjum allhörð hjá mörgum ráðherrum Vichy-stjórnarinnar. Er sagt að þýska st.jórnin sje oi'ðin óþolinmóð og finnist sarnn iugarnir við Vichy-stjórnina ganga of seint. Hefir heyrst, að Þjóðverjar hafi hótað Vichy-stjórninni að taka upp harðari afstöðu gagnvarc Frakklandi ef bráðlega dragi ekki sanian í samningunum milii Þjóðverja og Frakka. Martinique verður varin. Landstjórinn á frönsku eynni Martinique, við st.rendur Ameríku, hefir skýrt frá því, að Vichy- ■stjórnin hafi gefið hopum fytir- skipanir um að verja eyna með yopnavaldi, ef nokkur erlend þjóð geri tilraun til að gera þar inn- íýs. Hefir landstjórinn lýst yfir þA’í, að hann muni því verja evna ef til innrásar erlends valds kæmi. Frá því var skýrt í gær í hernaðartilkynningu hresku herstjórnarinnar x Kairo, að Bretar hjeldu áfram sókn sinni vestur frá Bardia og að framvarðasveitir væru komn- ar í námunda við Tobruk, sem er um 90 km. fyrir vest- an Bardia. Bardia-borg er í rústum éftir skothríð Breta á hana og er sagt, að þar standi ekki eitt einasta hus óskemt nemá bænahús mú- haméðstrúarmanna, sem er við að- algötn borgárinnar. Mikið herfang. Með falli borgarinnar fjell ó- hemju míkið af hergögnum í hend- UJ’ Bretum. Meðal herfangsins eru um 50 skriðdrekar, fallbyssur og loftvarnabyssur í hundraða tali, herbílar, hermannaútbúnaður og vistir. Á það er bent, að ítalir hafi grafið mikið niður af birgð- úm sínum, sem því falli óskemd- ar í hendur Bretum. Þótt Bardia s.je í rústum hefir hún mikla hernaðárlega þýðingu fyrir Breta. Þeir geta nú flutt vistir til herliðs síns sjóleiðina, því höfn er góð í Bardia. FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU. Bardía falflin 30 þú§. fang- ar teknir Breskar framvarða- sveítir komnar að Tobruk HAFNARBORGIN BARDIA í Libyu fjell í hendur Bretum á sunnudaginn var, eftir 36 klukkustunda látlausa bardaga og 20 daga umsátur. Bretar haf a tekið, um 30 þúsund ítalska fanga í borginni. Með fálli Bardiá er’talið að afstýrt hafi verið með öllu hættunni á að Italir gerðn innrás í Egyptaland, og er fall borgarinnar því eínu þýðingarmesti siguriilti, sem Bretar hafa unnið í þessari styrjöld. FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.