Morgunblaðið - 07.01.1941, Side 3
Þriðjudagur 7. janúar 1941.
MORGUNBLAÐIÐ
3
Allsherjar atkvæðagreiðsla
í Dagsbrún nauðsynleg
Samþykt á fámennum æsinga-
fundi má ekki stofna atvinnu
fjölda manna í voða
Kommúnistar dreifa ðróðursbrjefl
meðal breskra bermanna
Sainnifloatillðgurnar fela í sjer margskonar
hlunnindi fyrir verkamenn
MEÐ degi hverjum verður það fleiri og fleiri
mönnum ljóst, að ekki er við það unandi,
að samþykt, sem 1/5 af fjelagsmönnum
Dagsbrúnar gerir á æsingafundi, eigi að stöðva atvinnu
3000 manna og stofna atvinnumöguleikum þeirra í bein-
an voða.
Verkamenn geta ekki þolað, að hinar stórfeldu kjarabætur, sem
voru í samningsuppkastinu, verði að engu gerðar. Þeir mqga hvorugt
eiga á hættu: Að missa á ný fulla dýrtíðaruppbót. Nje að vera sviftir
Bretavinnunni. En þetta vilja kommúnistar.
Það hefir sannast, að rökin fyrir samþyktinni á Dagsbrúnarfund-
inum voru alveg úr lausu lofti gripin, að það, sem kommúnistar höfðu
þar fram að færa, máli sínn til stuðnings, voru ósannindi og blekk-
ingar.
Aftur á móti hefir það ekki komið fram sem skyldi, hvaða tillög-
ur það voru, sem samninganefnd fjelagsins og vinnuveitendur höfðu
komið sjer saman um, en sem fundurinn hafnaði.
Aukin hlunnindi.
Tillögur þær, sem samninga-
nefnd Dagsbrúnar hafði fengið
vinnuveitendur til að fallast á,
fela í sjer ýmiskonar aukin hlunn-
indi bg kjarabætur fyrir verka-
menn, ef að þeim er gengið. Var
því eðlilegt að samninganefndin
gerði sjer A'onir um, að þær yrðu
samþyktar á fundinum. Væri það
illa farið, ef samningalipurð vinnu
veitenda, sem kom fram í samn-
ingunum við Dagsbrún að þessu
sinni, bæri engan árangur, eða
yrði til þess að kommúnistum tæk-
ist að espa verkamenn til þess að
heimta þær breytingar sem ófram-
kvæmanlegar eru, og yrði þetta
þá til þess að vinnuveitendur yrði
í framtíðinni tregari en ella til
þess að sýna samningalipurð.
Breytingar þær, sem fólust í til-
lögunum að gera skyldi á fyrri
samningi milli Dagsbrimar og
Vinnuveitendafjelagsins, voru all-
ar gerðar ^fyrir tilmæli og sam-
kvæmt óskum Dagsbrúarmanna.
í 3. grein samningsuppkastsins,
sem Dagsbrúnarnefndin og vinnu-
veitendur höfðu komið sjer saman
um, er bætt við einum kaffitíma
frá því sem áður var, kl. 6%—7,
fyrir þá sem leyft er að vinna í
næturvinnu. Auk þess eru ákvæð-
in gerð skýrari en þau voru áður
um kaupgjald í kaffitímum, ef í
þeim er unnið.
í kötlum og:
kolahólfum.
í 4. grein er tekið fram, að
grunntaxti kaupsins sje óbreyttur
í almennri vinnu. Undanfarið hef-
ir það verið venja að greiða
nokkru hærra kaup fyrir vinnu
við ketilhreinsun og í kolaboxum
skipa. f nýju tillögunum er á-
kveðið lágmarkskaup fyrir slíka
vinnu. Skal í dagvinnu vera kr.
2.50 á tímann og í eftirvinnu kr.
3.70 og í nætur- og helgidagavinnu
skal grunntaxtinn vera kr. 4.65.
Ejinfremur segir svo í samn-
ingsuppkastinu:
„Grúnntaxti kaupsins greiðist.
með fullri dýrtíðaruppbót, sam-
kvæmt aukningu dýrtíðarinnar
frá 1. janúar 1940, og sje dýr-
tíðarvísitala kauplagsnefndar lögð
til grundvallar mánaðarlega frá
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.
Enskukensla
í Háskólanum
Enski sendikennarinn, dr. Cyr-
il Jackson, sem fyrir
skemstu er kominn hingað til
lands, byrjar nú kenslu í háskól-
anum, bæði fyrir stúdenta og al-
meuning.
Fyrir stúdenta er 'sjerstaklega
kensla i engilsaxnesku á fimtu-
dögum kl. 10—11, og hefst hún
9. janúar. Ennfremur kensla í
enskri bókmentasögu, annan hvern
mánudag kl. /l—3, er hefst 13.
/
januar. '
Fyrir stúdenta og þá aðra, er
hafa svipaða kunnáttu í ensku,
hefir dr. Jackson talæfingar í
ensku á miðvikudögum og föstu-
dögum kl. 6—7, og hefst sú
kensla 8. janúar. Þeir, sem vilja
taka þátt ííþessu námskeiði, gefi
sig fram við háskólaritara.
Loks flytur dr. Jackson fyrir-
lestra fyrir almenning um enska
menning á þriðjudögum kl. 8—9,
og verður fyrsti fyrirlesturinn 4.
febrúar.
Orfar þá til óhlýðni við
herstjórn og íhlutunar
um íslensk mál
Fjórir koiiiniúnislar
leknir fasfir
KOMMÚNISTAR hafa sent út áróðursbrjef og
látið lauma því til hermanna, þar sem þeir
m. a. bera svartasta níð á íslenska at-
vinnurekendur, rægja verslunarstjettina fyrir að hún okri
á hermönnunum, og biðja herjnennina að óhlýðnast fyrir-
skipunum yfirmanna sinna, ef svo ber undir.
Um klukkan 8 á sunnudagskvöldið gerðu breskir hermenn
herlögreglunni aðvart um það, að tveir menn hefðu með höndum
dreifingu fjölritaðra áróðursbrjefa, er þeir laumuðu til hermann-
anna, þar sem þeir voru á gangi á götunum.
Herlögreglan tók þessa menn höndum, þar sem þeir voru
staðnir að þessu verki.
Menn þessir eru Haraldur Bjarnason og Helgi Guðlaugsson.
Þeir eru báðir kunnir kommúnistar.
Var fyrst farið með þá á upplýsingastöð breska hersins á
Laugaveg 67. En síðan voru þeir fluttir á lögreglustöðina og
þar voru þeir í haldi og gættu þeirra tveir breskir lögreglu-
þjónar.
í gærmorgun tók breska upplýsingastöðin þá til yfirheyrslu.
Voru þeir að því spurðir, hvaðan brjef þessi væru runnin, hver
hefði beðið þá um að dreifa þeim. En þeir vörðust allra frjetta
um það í gær, sögðu að einhverjir menn, sem þeir ekki þektu,
hefðu hitt þá á götu og beðið þá um að dreifa brjefum þessu
fyrir sig.
Vitanlega getur enginn tekið mark á slíkum fyrirslætti.
Séinna í gær tók breska lögreglan fasta tvo aðra kommún-
ista, þá Edvard Sigurðsson og Eggert Þor-bjarnarson, grunaða
um að vera eitthvað við þetta mál riðna.
En ekki er blaðinu kunnugt um hvort þeir hafa verið yfir-
heyrðir eða hvaða árangur sú yfirheyrsla kann að hafa borið.
Islenska lögreglan hefir engin afskifti haft af þessu máli,
enda engin kæra komin í hennar hendur út af því.
Breska lögreglan lítur svo á, að hún hafi ekki enn náð í
upphafsmennina a. m. k. ekki þann, sem samdi hið enska brjef.
í því eru einar tvær setningar, sem eru þannig orðaðar, að þær
geta ekki verið eftir Englending.
I dag munu fara fram viðræður milli ríkisstjórnarinnar og
bresku herstjómarinnar um það, hvernig rannsókn þessá máls
skuli fara fram. Margt bendir til þess, að hún muni verða allvíð-
tæk.
Áróðursbrjefið hefir komist mjög víða um bæinn. Allan
daginn í gær var breska lögreglan að fá eintök af því í hendur
frá mismunandi stöðum í bænum.
*
Brjefið er birt á öðrum stað hjer í blaðinu. Þarf það engra
skýringa við. Það dæmir sig sjálft og mennina sem að því standa.
0 »
Aróðursbrjef kommúnista
Hjer fer á eftir orðrjett þýðing á áróðursbrjefi því,
sem kommúnistar dreifðu út á meðal breskra
hermanna s. 1. sunnudagskvöld.
BRESKIR HERMENN. Þrjú af
aðalverklýðsfjelögttm íslands hafa gert
verkfall. Fjelög þessi eru Iðja, fjelag
verksmiðjufólks, múrarafjelagið og
Dagsbrún, stærsta verklýðsfjelag okk-
ar, á borð við enska sambandið
Transport & General Workers, sem
Mr. Bevin er fyrir .
Yið höfnina, í verksmiðjunum og á
bresku vinnustöðvnnum er verkfallið
FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU.
Kaupgjaldsniálin :
Verkfall I ðllum
brauðgerðarhús-
um bæjarlns
Fleflri werkföll
yfflrwofandfl
A.
ist við nýtt verkfall. Voru
það bakarasveinar, sem nú
gerðu verkfall og hefir síðan
legið niðri vinna í öllum brauð-
gerðarhúsum bæjarins.
Viðræður hafa átt sjor stað
undanfarið milli samninga-
nefnda sveina og meistara, en
samkomulag náðist ekki. Ber
hjer mikið á milli. Meistarar
hafa boðið fulla dýrtíðarupp-
bót á gömlu grunnlaunin. En
sveinar vilja fá ýmsar breyt-
ingar á eldri samningi, svo sem
styttingu vinnudags,, lenging
sumarleyfis, hækkun grunn-
launa og kvaðir viðvíkjandi
nýsveinum.
Sveinar sátu á fundi mikinn
hluta sunnudags og tóku þar
samstundis ákvarðanir um til-
boð meistara, en á þann veg, að
öllum tilboðum var hafnað.
Tókst því ekki að afstýra verk-
falli. Var ekkert unnið í brauð-
gerðarhúsunum í gær.
Verkfall þetta nær til allra
brauðgerðarhúsa bæjarins, þ. á
m. Alþýðubrauðgerðarinnar. En
eins og kunnugt er, eru það
ýmsir ráðamenn Alþýðuflokks-
ins og Alþýðusambandsins, sem
eiga Alþýðubrauðgerðina.
Allar líkur benda til þess, að
sáttasemjari fái þessa deilu til
meðferðar.
AÐRAR DEILUR.
Verkfall Iðju stendur við það
sama. öll vinna í verksmiðjum
liggur því niðri. Sáttasemjari
hefir það mál, en ekki hefir
hann enn lagt fram neina sátta-
tillögu.
Svo sem kunnugt er, var
kaupgjaldsmál togaramanna
hið fyrsta sem sáttasemjari
fekk í hendur. Nú er þetta mál
að komast í eindaga, þvt sam-
kvæmt þeim skilningi, sem Sjó-
mannafjelögin hafa lagt í frest
þann, sem gefinn var, er frest-
urinn útrunninn kl. 12 í kvöld
og verkfall á togurum boðað
frá þeim tíma. Útgerðarmenn
munu hinsvegar telja, að þéssi
frestur sje ekki löglegur.
Sáttasemjari hefir hinsvegar
ekki enn boðað aðilja þessar-
ar deilu á sinn fund. Nokkrir
togarar liggja nú í höfn.vegna
verkfalls Dagsbrúnar og bæt-
ast daglega fleiri skip í þann
hóp.
Samþykt var í bílstjórafje-
laginu /„Hreyfli“ með 80:15
atkv. að hefja vinnustöðvun frá
15. þ. m., ef ekki hefir náðst
samkomulag við leigubílastöðv-
arnar fyrir þann tíma. Munu
nú hefjast samningaumleitanir
milli aðiljanna.
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.