Morgunblaðið - 08.01.1941, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 08.01.1941, Blaðsíða 7
I Miðvikudagur 8. jan. 1941. MORGUNBLAÐIÐ •:rivv j Veítmg prests- embættana FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU fjögra dálka blaðagrein og Ijet Tímann birta í viðtalsformi. Er svo Tíminn borinn út um bæinn svo að segja samtímis veitinga- brjefinu, til biskups. Það er bersýnilegt af gfein ráðherrans í Tímanum, að hann er sjer þess meðvitandi, að veiting síra Jakobs Jónssonar er gerræði. Með henni er brotin viðurkend regla við veitingu prestsembætta og traðkað á öli- um reglum lýðræðisins. Afsakanir ráðherrans, sem fram koma í grein hans, eru líka einskisvirði. Það hefir aldrei verið dregið í efa, að ráðherrann hefði vald til að fremja slíkt gerræði, en í þessu eina er hans afsökun fólgin. En þótt ráðherra hafi lögum sam- kvæmt haft vald til að skipa hvern af umsækjendum, er hon um sýndist, þar sem kosningin var-„ólögmæt*', er hitt augljóst mál, að einhverjar alveg sjer- stakar ástæður urðu að vera til staðar til þess að ráðherra mætti við veitingu embættanna traðka þeirri ófrávíkjanlegu venju, sem gilt hefir og hirða ekkert um vilja safnaðanna. En hjer voru engar slíkar ástæður fyrir hendi, sem gerði það nauðsynlegt, að þannig væri farið að. Þvert á móti. Alt bendir til þess, að málefnum kirkjunnar hjer í bænum sje einmitt gert mikið ógagn með þessari veitingu. Síra Jakob Jónsson er sjálfsagt góður og gegn maður, og má enginn skilja andmælin gegn veitingu hans svo, að þau beinist gegn honum persónulega. Síra Jón Auðuns er einnig góður og gegn maður, enda hefir kirkjumála- ráðherrann ekkert fram að færa gegn honum. En síra Jón hafði einmitt hjer þá ■ sjerstöðu, að í þjóðkirkjusöfnuðinum hjer í Reykjavík er fjölmennur hópur manna, sem fylgdi mjög ákveð- ið og eindregið kenningum hans. Þessi fjölmenni söfnuður hefir nú verið löðrungaður, en það getuf ekki verið heillavæn- legt fyrir framtíðarstarfsemi Jjjóðkirkjunnar. ★ Úti 1 heimi eru nú átök upp á líf og dauða um tvær lífs- stefnur: Annarsvegar er ein- ræðis- og ofbeldisstefnan, sem vill drotna yfir öllu mannkyni. Hinsvegar er frelsis- og lýðræð- isstefnan, sem viðurkennir and- lega og veraldlega tilveru allra manna og jafnrjetti þeirra. Hinir svokölluðu leiðtogar ís- lensku þjóðarinnar láta ekkert tækifæri ónotað til þess að lýsa yfir því, að þeir fylgi frelsinu og lýðræðinu. En hvernig fara þessir herrar að, þegar það er lagt á vald þeirra, að velja á milli þessara tveggja stefna? Yeiting annars prestsetnbættis- ins í Hallgrímssókn sýnir aðfar- irnar. Yfirdrotnunar-stefnan er valiri. Það er ekki nýtt, að Framsóknarflokkurinn velji þessa stefnu. Og það er heldur ekki nýtt að Alþýðuflokkurinn leggi blessun sína yfir hana. Þorsteinn Einarsson skipaður íþrútta- fulltrúi Loksins í gær ákvað forsætis- ráðherra að gefa út tilkynn- ingu um að hann væri búinn að skipa mann í embætti íþróttafull- trúa. Fyrir valinu varð Þorsteinn Einarsson, íþróttakennari í Vest- mannaeyjum. Umsækjendur um embættið voru alls 9. Fjárhagsáætlunin FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU. þeim, sem bæjarbúar verða að bera. Af þessari lausn málsins mun það leiða, að útsvör á bæjarbú- um alment þurfi ekki að hækka vegna verðlagsupþbótar þeirr- ar, sem menn hafa fengið á ár- inn. En vegna mjög bættrar af- komu fjölmargra gjaldenda annara en útgerðarmanna mun vafalaust mega lækka útsvars- stigann frá því sem hann hef- ir verið undanfarin ár. Eins og fyr segir, hefir bæj- arstjórn ekki vald til þess að skipa þessum málum eftir sinni vild. En þar sem hjer er um mjög hagkvæma lausn að ræða, ætti hún að ná fram að ganga. Herstjórnartilkynning Þjóðverja FRAMH. AF ANNARI SÍÐU. unarflugferðir og rjeðust þýskar flug- vjelar á hernaðarlega mikilvægar stöðvar í Suður- og Mið-Englandi. Þrátt fyrir óhagstætt veður voru árás- imar að nokkru leyti gerðar af flug- vjelum, sem flugu mjög lágt. Á flug- velli einuni voru margar breskar sprengjuflugvjelar laskaðar á jörð- unni. Þýskar sprengjuflugvjelar rjeð- ust einnig úr lítilli hæð á jámbrautar- stöðvar, og var varpað á þær sprengj- um og skotið á þær af vjélbyssum. Margar sprengjur hæfðu kemiska verksmiðju og einnig skotfæraverk- smiðju. Þýskar flugvjelar gerðu ítrekaðar árásir á London. 7 loftbelgir voru skotni miður í björtu báli yfir borg- inni. Langdrægar þýskar fallbyssur skutu á óvinaskip sem nálgaðist frönsku ströndina og néyddn þ»í til að snúa við. Breskar flugvjelar flugu heldur ekki í nótt yfir Þýskaland. Einnar þýskrar flugvjelar er saknað úr flugleiðöngr- unum í gær. Dagbók •ooooooooooo OOOOOOOOOOOO : □ Edda 59411105. — Jólatrje. Aðgöngumiðar sækist í dag til 'S.\ M.\ Næturlæknir er í nótt Theodór Skúlason, Vesturvallagötu 6. Sími 3374. Næturvörður er í Reykjavíkur Apóteki og Lyfjabúðinni Iðunni. Næturakstur annast næstu nótt Bæjarbílastöðin. Sími 1395. Hjúskapur. Nýlega voru gefin saman í hjónaband Sigríðnr Guð- mundsdóttir frá Kolviðarnesi og Sveinn Magnússon fyrv. verslimar- maður. Heimili þeirra er á Loka- stíg 23. Hjónaefni'. Á gamlárskvöld op- inberuðu trúlofun sína ungfrú Una Kjartansdóttir, Sjafnargötu 4, og Jón R. Kjartansson verslunarm., Urðarstíg 4. Hjónaefni. Nýlega hafa opin- berað trúlofun sína á Akranesi Sigúrborg Þorleifsdóttir og Magn- ús Jóhannesson. Hafnarstjórn hefir samþykt að leigja Skipaútgerð ríkisins 300 ferm. lóð til vörugeymslú milli Tryggvagötu og Geirsgötu fyrir vestan hús S. í. S. Skagfirðingafjelagið efnir til skemtikvölds í Oddfellowhúsinu í kvöld kl. 8y2- Ræður, söngur og dans. Aðgöngumiðar þeir, sem óseldir eru að árshátíð Heimdallar, verða seldir á afgreiðslu Morgunblaðs- ins frá kl. 5—7 í dag. Ungbarnavernd Líknar, Templ- arastitidi 3: Bólusetning gegn barnaveiki fer fram á börnum á mánudögum og fimtudögum klukk an 5—6. Útvarpið í dag: 12.00 Hádegisútvarp. 15.30 Miðdegisútvarp. 19.25 Hljómplötur; Lög úr óper- um. 20.00 Pr.jettir. 20.30 Kvöldvaka: Alfreð And- rjesson — Friðfinnur Guðjóns- son — Pjetur Jónsson söngvari. Árni Jónsson frá Múla kynnir. AUOAÐ hvflwt með gleraugum frá THIELE Delicioos Epli. vuin Laugaveg 1. Fjolnisveg 2. Jélagleði Mentaskólans 1041 verður haldin í Oddfeilowhúsinu í dag, mið- vikudaginn 8. janúar klukkan 10 e. h. Aðgöngumiðar seldir í Oddfellow frá kl. 4 til 7 e. h. í dag. Tllkynnftng tftl ijómanna. . 'Ct :/' j p'•! Meðlimir Sjóinannafjelags Reykjavíkur, Hafúarfjárðar og Pat- r'eksfjarðar mega ekki láta lögskrá sig 4 togara, eða fara út á veiðar eftir ki. 24 þann 7. þ. m.. fyr en samkomulag hefir náðst í kaup- deilunni. , F. h. Sjómannafjelags Reykjavíkur: Sigurjón Á. Ólafsson, Sig. Ólafsson. Ólafur Friðriksson. Sveinn Sveinsson. . , F. h. Sjómannafjelags Hafnarfjarðar: Þórarinn Guðmundsson. Pálmi Jónsson. Jóngeir D. Eyrbekk. F. h. Sjómannafjelags Patreksfjarðar: Davíð Davíðsson. Bólusitning gegn barnaveiki. Að tilhlutan heilbrigðisstjórnarinnar verðiir börinmi í Reyk.ja- I vík framvegis gefinn kostur já úkéypis bólusetningú gegn bafna- I veiki og fer bólusetningin fram 4 mánudögum og flmtudögtnaákl.1 1 í húsnæði ungbarnaverndár Líknar, Templarasundi 3. f Auk þeirra barna, sem aldrei hafa verið bólusett, er og tatið aiski- legt að endurbólusetja þau börn, smn voru bólnsett árið 1935 og voru • þá innan skólaaldurs. Heilsuverndarstöð Reykjavíkur (Líkn). LtTLA •ILSTOBH Jarðarför okkar kæru móður, tengdamóður og ömmu, MARÍU JÓNSDÓTTUR, fer fram föstudaginn 10. þ. mán. frá Hafnarfjarðarkirkju. Hefst með bæn að heimili hennar, Lækjargötu 10 í Hafnar- firði, kl. iy2. Ágústa, Þorbjörn Klemensson og börn. Jarðarför okkar hjartkæra sonar og bróður, ÞORSTEINS GUÐLAUGS GUÐJÓNSSONAR, frá Hellusandi, sem andaðist 1. janúar, fer fram fimtudaginn 9. janúar og hefst með bæn í líkhúsi Landspítalans kl. 1. Jarðað verður frá Þjóðkirkjujnni. Dagbjört Þorsteinsdóttir. Kristjana Guðjónsdóttir. Maðurinn minn, WILHELM JAKOBSSON cand. phil., verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni fimtudaginn 9. janúar kl. 2.30 e. h. Ólöf Jakobsson. Jarðarför móður okkar, tengdamóður og ömmú, HERDÍSAR NIKULÁSARDÓTTUR, fer fram frá heimili hennar í Keflavík fimtudaginn 9. janúar. Húskveðja hefst kl. 10.30 f. h. jarðsett sama dag í Höfnum. Aðstandendur. Jarðarför föður okkar og tengdaföður, JÓNS ÓLAFSSON AR, fer fram frá Fríkirkjunni þann 9. þ. m. og hefst með bæn frá heimili hans, Bergþórugötu 16 A, kl 1 e. h. Athöfninni verður útvarpað. Eydís Jónsdóttir. Jón Tómasson. Ástríður Jónsdóttir. Sigurður Kjartansson. Anna Jónsdóttir. Gunnar Jónasson. Helga og Gunnar Rocksén. Guðjón Jónsson. Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför móður, tengdamóður, og ömmu okkar. GUÐRÚNAR KORTSDÓTTUR. Ágústa Hannesdóttir, Valdimar Jónssön og dætur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.