Morgunblaðið - 04.02.1941, Side 3
Þriðjudagur 4. febr. 1941.
MORGUNBLAÐIÐ
3
Alþingi
kvatt saman
15. febrúar
Aráðuneytisfundi í gœr var
gefið út opið brjef þess
efnis, að Alþingi skuli koma
saman til reglulegs fundar
laugardaginn 15. febrúar næst-
komandi.
Verður Alþingi þá sett, að
aflokinni guðsþjónustu í Dóm-
kirkjunni.
Verkfall yfirvofandi
tijá loftskeytamonnum
á togurum
Sáttasemjari hafði í gær
fund með veitingamönn-
um og fulltrúum starfsstúlkna
á veitingahúsum, en fundurinn
bar engan árangur. Verkfallið
heldur því áfram.
Sömuleiðis heldur áfrari
verkfall hárg”eiðslustúlkna
Þar hafa engar víðræð" farið
fram ur.rtanfanð. Sáttasemjari
atti í gær íal við framkvæmda-
stjóra Vinnuve:tendaf ielagsins
og Alþýðusambandsins, tíl þess
að heyra hvemig hugur þeirra
stæði. Niönrstaðan varð sú, að
sáttasemjari taldi ekkí til
neins, að kveðja samni igsaðilja
á fund.
Líkur benda til, að verkfall
standi fyrir dyrum hjá loft-
skeytamönnum á togurum. Fje-
lág loftskeytamanna auglýsti á
dögunum nýjan taxta og boðaði
verkfalLfrá hádegi 6. þ. m., ef
útgerðarmenn hefðu ekki fyrir
þann tíma gengið að taxtanum.
Samkv. upplýsingum, sem Mbl.
hefir fengið, munu útgerðar-
menn ekki vilja ganga að taxt-
anum. Eru því allar líkur til, að
verkfall verði hjá loftskeyta-
mönnum.
Breska þinghúsiO skemmlst i loftárás
4 menn fórust
með m.b. .Baldri*
Vjelbáturinn „Baldur" frá Bol-
ungarvík, sem sagt var frá í
sunnudagsblaðinu, er nú talinn af;
A bátnnm voru fjórir menn,
allir frá sömu fjölskyldu. Þeir
voru;
Guðmundur Pjetursson formað-
ur og bróðir hans Ólafur Pjeturs-
son, Óskar Halldórsson og Runólf-
ur Hjálmarsson. Voru tveir hinir
síðarnefndu í tengdum við bræð-
urna.
Br mikill harmur kveðinn og
sár missir fyrir sömu fjölskylduna
að sjá á bak fjórum karhnönnum
k á besta aldri og fyrirvinnu f jöl-
skyldunnar.
Prestar
Sprengja kom nýlega á þinghúsbygginguna í London og
skemdi þann hluta af húsinu, sem nefnist Cloister Court.
Þjóðræknisfjelagið
hefir mörg verkefni
Samtökin um fjelagið þurfa
að verða almennari
Míkíll kvef
faraldor
í bæntim
Hlutfallskosning-
ar í verkalýðsfje-
lagi Stokkseyrar
Fjelag Sjálfstæðisverkamanna á
Stokkseyri, Málfundafjelagið
„Freyr“, sem stofnað var fyrir
rúmri viku, hefir nú þegar náð
þeim athyglisverða árangri í starfi
sínu, að koma á hlutfallskosningu
í Verkálýðsfjelagf Stokkseyrar. Og
nú í kosningu í stjórn og trúnað-
armannaráð Verkalýðsfjelágsins
komið að einum manni stjórnina.
Ásmundi Hannessyni, með 'svo á-
gætum meirihluta, að ekki vantaði
nema tvö atkvæði, að fjelagið
kæmi að tveimur.
í trúnaðarmannaráð, sem skip-
að er 15 mönnum, voru kosnir 5
Sjálfstæðisverkamenn. Þessi sigur
Sjálfstæðisverkamanna á Stokks-
eyri gefur góðar vonir um starf-
semi Málfundafjelagsins „Freys“.
Formaður fjelagsins er Svamu’
Karlsson.
IÁRDEGISVEISLU, sem vestur-íslenskum gestum
var haldin hjer í sumar, mintist Ásmundur P.
Jóhannsson á stofnun Þjóðræknisfjelagsins
hjer í Reykjavík og komst að orði á þá leið, að það væri
sjer óblandið gleðiefni, að við skyldum hafa vaknað og
tekið til starfa hjer heima áður en þjóðræknisstarfið var
úti og búið vestan hafs.
Ekki mátti skilja orð hans þannig, að hann liti svo á, að þjóðleg
samtök Vestur-íslendinga væri i andarslitrunum. Bn hann gaf í skyn,
— og það mun öllum, sem á hann hlýddu, hafa fundist með rjettu,—
að þegar Þjóðræknisfjelagið vestra hefir starfað í 20 ár, þá er kom-
tun tími til, að þau fjelagssamtök landa vorra fái stuðning og sam-
ú.ðarvott hjeðan að heiman.
Kveffaraldur mikill gengur nú
hjer í bænum og legst hann
þungt á víða.
Mafði Mbi. heyrt, að sumir
læknar teldu að hjer væri inflú-
eiisa á ferðinni. En hjeraðslæknir
sagði, að svo væri ekki, heldur
væri þetta kveffaraldur. En far-
aldur þessi væri slæmur og mjög
útbreiddur í bænum. Honum
fylgdi kveflungnabólga og væri
því nauðsynlegt, að fólk færi vel
með sig.
Kveffaraldur þessi hefir verið
hjer síðan fyrir áramót, en færst
mjög í vöxt síðustu viku.
Hallgrímskirkju
settir i embættin
T 7 iðhöfn mikil var við síðdegis-
* messuna í Dómkirkjunni á
sunnudaginn var, en þá voru þeir
síra Sigurbjörn Einarsson og síra
Jakob Jónsson settir inn í embætti
sín í Hallgrímssókn.
Dómprófastur, síra Friðrik Hal-1-
grímsson setti prestana inn í em-
bættin, en þvínæst flnttu þeir
stutta ræðu hvor. Að lokum á-
varpaði biskupinn, herra Sigur-
geir Sigurðsson, prestana og söfn-
uðinn.
Kirkjan var þjettskipuð fólki,
og fór athöfnin virðulega fram.
Er þá búið að setja alla hina *
nýju presta inn í embættin, nema
síra, Jón Thorarensen, sem þjónar
í Nessókn.
Því verður ekki neitað, að tóm-
læti hefir verið altof mikið lijer
heima gagnvart Vestur-Islending-
um og öllu sem þeirra er. Það er
eins og ýmsir líti svo á enn í dag,
að íslendingar, sem lifa og starfa
úti í fjarlægum löndum, komi
heimaþjóðinni lítið sem ekkert
við. En þetta er hinn mesti mis-
skilningur. Með því að halda líf-
rænu sambandi vif5 íslendinga, er-
lendis, stuðla menn að því, að
þjóðin verði raunverulega stærri,
áhrifá hönnar gæti víðar. Meðan
Vestur-íslendingar eru eins ís-
lenskir og þeir eru enn í dag,
leggja þeir sinn skerf til íslenskr-
ar menningar. Hver vill missa af
sambandi við bestu menn Vestnr-
íslendinga? Og hver veit nema
þjóð vor eigi eftir að eignast þar
annað stórskáld á við Stephan G.
Stephánsson.
En nú á tímum er okkur dýr-
mætast að vita og skilja hve lengi
og vel Vestur-íslendingar hafa
getað lialdið íslenskri tungu og
menningu vestur í þjóðahafinu.
Er þetta okkur hjer heima hiu
mesta uppörfun í því, að íslensk
menning og þjóðarkend eru ekki
yfirborðs látalæti, er þurkast burt
við hvaða erlend áhrif sem eru.
Þegar við horfum fram á það hjer
heima, að við verðum í okkár
eigin landi að standast meiri á-
sókn erlendra áhrifa en nokkru
sinni fyr, og nokkurn hefði órað
fyrir, þá er gott að hafa í huga
hve vel hið íslenska þjóðarbrot
véstra hefir staðið sig, og það er
ástæða fyrir okkur að leggja fram
nokkra fyrirhöfn til þess að
styðja landa okkar vestra í því,
áð efla samtök sín og hinn þjóð-
lega viðnámsþrótt þar.
★
Þjóðræknisf jelagið hjer í Reykja
vík var stofnað 1. desember 1939.
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.
Togarar fara
ekki á salt-
fiskveiðar
T7X ngar líkur eru til þess, að
togarar fari á saltfisks-
veiðar á þessari vertíð.
Verðið á ísfiski helst stöðugt
mjög hátt í Englandi, og með-
an jsvo er, munu togaraeigend-
ur ekki hugsa til saltfisksveiða
með skip sín.
Hjer í Reykjavík stendur og
þannig á, að ekki er auðgert að
taka hjer saltfisk í land, til
verkunar, þar -sem allar fisk-
verkunarstöðvar eru í vörslu
breska setuliðsins.
Pylsuvagnaeigendur eru ekki
ánægðir með úthlutun pylsuvagna-
stæðanna í Kolasundi, og hafa
tveir þeirra kvartað til bæjarráðs.
Reykjavíkurmót
í sundknattleik
Reykjavíkurmót í sundknatt-
leik stendur yfir um
þessar mundir í Sundhöllinni og
er þegar búið að keppa í tvö
kvöld, en úrslitaleikir fara fram
n. k. föstudagskvöld.
Þátttakendur í mótinu eru
sveit frá Ármanni, K.R. og tvær
sveitir, A og B frá Ægi.
Úrslit hafa orðið þessi:
Fyrst keptu A-sveit Ægis og
K.R. og vann Ægir með 9 mörk
um gegn 0. Sama kvöld kepti
Ármann og B-sveit Ægis og
unnu Ármenningar með 10:1.
I gærkvöldi vann Ármann
K.R. með 8:0 og A-sveit Ægis
vann B-sveit Ægis með 9:1.
Á föstudaginn kemur keppa
því B-sveit Ægis og K.R. um
þriðja og fjórða sætið og Ár-
mann og A-sveit Ægis um
fyrsta og annað sætið.
Kept er um silfurbikar, sem
er í smíðum.
Næturakstur; Aðalstöðin. Sími
1383.