Morgunblaðið - 04.02.1941, Qupperneq 6
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 4. febr. 1941
Tveir menn, sem
fórust með
v.b. „Eggert"
Jón Ragnar Einarsson.
T Morgunblaðinu 29. nóv. s.L
var getið um þá sjómenn,
éir fórust með mótorbátnúm Egg-
ert, er lagði í síðasta róðurinn,
sem átti að verða, frá Keflavík
22. nóv., en koni aldrei aftur.
Meðal þessára manna voru tveir
ungir efnismenn, Jón Ragnar Ein-
arsson og Arnar Eyjólfur Árna-
son, sem þessar myndir eru af.
Þeir höfðu unnið saman alla ævi
og var með þeim fögur og óslítandi
vinátta. Þeir voru báðir mjög
harmdauða ættingjum sínum, sem
Hafa beðið mig að koma á fram-
færi eftirfarandi fáum minningar-
orðum um þá, sem jeg hefi eftir
áreiðanlegum heimildum, því að þá
Sjálfa þekti jeg ekki,„ en foreldra
þeirra vel, vandað sæmdarfólk á
Miðnesi, sem liggur vestan á
Reyk j anesska ga milli Garðskaga
þg Hafna.
'j Jón Ragnar var fæddur í Báru-
gerði 15. okt, 1917. Foreldrar Ein-
ár Jónsson bóndi þar og kona
hans Vilhelmína Vilhjálmsdóttir
frá Smiðshúsum á Miðnesi. Voru
þau fiutt að Sæbóli (í Sandgerði)
Og þar andaðist faðir hans 1934.
Hann var frábærlega góður og
ræktarsamur sonur og einkastoð
hióður sinnar og einnar systur
jfcftir lát föður síns. Sjó liafði
hann stundað frá æsku $g hafði
hrð á sjer fyrir dugnað, snarræði
. Og skyidurækni. í þeásá síðustu
ferð sína fór hann fyrir atvik í
stað annars manns.
| Hinn pilturinn og vinur hans,
Arnar Eyjólfur Árnason, var fædd
úr 21. nóv. 1918. Foreldrar hans
voru Ámi Magnússon frá Króks-
koti, nú bóndi í Landakoti á Mið-
tiesi, og feona hans Arudís G-uð-
mundsdóttir frá Bóli í Biskups-
tungum, en Guðmundur var bróð-
ir Jóns föður Einars frá Galta-
felli myndhöggvara. ITún ándaðisí.
þá er Arnar fæddist, en faðir
þans kvongaðist síðar Sigríði
Magnúsdóttur, sem gengið hefir
honum í bestu móður stað. Það
|ná sama segja um hann og Ragn-
þr, að hann var hið besta mann-
ýal um atgerfi, dugnað og hátt-
prýði og ekki síður harmdauði for-
eldrum sínum. Þessir tveir ungu
vinir voru óaðskiljanlegir, og
hvar sem þeir fóru hin mestu
prúðmenni og reglupiltar sem mik-
ill mannskaði er að fyrir hvert
Arnar Eyjólfur Árnason.
bygðarlag. Eftirfarandi fagurt
Ijóð um þá hefir ort Þórður Ein-
arsson, sem mörgum er kunnur
fyrir laglega ljóðagerð.
Kristinn Daníelsson.
Brimið svall á flúð og flesjum,
feigðin leynda undir söng,
sorgarský á Suðurnesjum,
svífur yfir dægrin löng.
Vöskum drengjum vota gröfin
var hjer búin enn-eitt sinn,
bylgjufalda björtu tröfin
breiddust yfir legstaðinn.
Sonarmissir sár er móður,
sorgar hníga brennheit tár;
fetar götu faðir hljóður,
fengið hefir viðkvæmt sár.
Sakna vinir dáðadrengja,
drúpir þögul sveitin öll,
sorgarómar stiltra strengja
stíga hátt, sem boðaföll.
Lifir minning, lífs þó brautin
löng ei yrði meðal vor, —•
ungra drengja’ er enduð þrautin,
engum duldust manndómsspor, ,
hann öll verndar börnin sín.
handleiðslunni hans má trúa,
er þeir sveinar glæstir gengu,
góðvild prýddi hreina lund,
Gott er frjáls hjá guði’ að búa,
gæska’ og náð hans aldrei dvín,
velþóknun og virðing fengu
vaskra manna’, að hinstu stund.
Ykkar mun í æðri heimi
andinn halda þroskans braut,
starfa fáið guðs í geimi,
gæðin æðstu falla’ í skaut.
^Nýárshugleiðingar
FRAMH. AF FIMTU SÍÐU.
leiðslunnar, sem hefir verið stór
þrándur í götu framleiðslunnar.
T. d. hefi jeg orðið að greiða af
2000 kr. láni á fyrsta ári kr.
147.80, og voru okkar góðu þjóð-
arfulltrúar búnir að eyða löng-
um tíma til að koma þessari láns-
stofnun á fót fyrir landbúnaðinn.
Nýársdag 1941.
Jón Guðmundsson,
Brúsastöðum.
Bæjarráð hefir samþykt fyrir
sitt leyti að sóknarnefnd Hall-
grímsprestakalls fái afnot af
kenslustofu í Austurbæjarskólan-
um til barnaspurninga, svo og
kvikmyndasal skólans fyrir barna-
guðsþjónustur.
Tugir sklpa
Oana, ÞjóDverja
og Itala afhentir
Bretum?
Frá Ameriku
New York blaðið „World
Telegram" skýrði frá
því í gær, að vænta mætti, að
stjórnin í Washington legði þá
og þegar löghald á dönsk skip,
sem liggja í höfnum í Banda-
ríkjunum, óg séldi þau til Bret-
lands.
Samkvæmt sömu heimild er
gert ráð fyrir, að ríkin í Suð-
ur-Ameríku kunni að fara að
dæmi Bandaríkjanna í þessu
efni, en þar liggja í höfnum 58
þýsk, ítölsk og dönsk skip.
Bandaríkjaþing samþykti í
gær frumvarp það, sem lagt var
fram að tilhlutan Roosevelts,
um að smíðuð verði 200 kaup-
skip. Frumvarpið fer nú til
hvíta hússins til undirskriftar
og er þá orðið að lögum.
Svar til Eggerts
Claessen
FRAMH. AF FJÓRÐU Sfi)U.
sem yið vöktuðum stofu frú Kragh
og reyndum að koma í veg fyrir
að hún gæti haldið áfram að vinna,
að okkar áliti ólöglega,
Þarna snýr Claessen hlutunum
alveg við, því það vorum við
stúlkurnar sem urðum fyrir of-
beldisárás, barsmíð og hrindingum
af hálfu þessara tveggja „geð-
prúðu göfugmenna“, sem að fram-
an greinir.
Á glapstigu telur Claessen hvern
þann ganga sem ekki í auðmýkt
tekur því sem að honum er rjett,
svo fáir verða samferða honum og
frú Kragh á dygða brautinni, ef
dæma á eftir atburðum síðasta
mánaðar, því margir hafa fyrir
einbeitta framkomu og góð sam-
tök fengið rjettmætar kjarabætur.
Jeg þakka svo að síðustu hr.
Claessen fyrir þá „nærgætni“ og
„umhyggjusemi" er hann hefir
sýnt okkur stúlkunum með því að
opinbera ekki fyr en þetta okkar
„hneykslanlegu" framkomu, en
það get jeg sagt honum í fullri
einlægni, að í áliti almennings mun
hann og meistarar fá ómildari
dóma heldur en við fyrir alla
þeirra framkomu í þessum málum.
Sveina Vigfúsdóttir.
★
Ut af ofanritaðri grein hefir
Eggert Claessen óskað að taká
fram eftirfarandi;
Lögreglustjórinn hafði úrskurð-
atS, að meistararnir hafi _ fullan
rjett til að láta nemendur vinna
með sjer, en verkfallsstúlkurnar
sögðust vera á annari skoðun og
þeirri skoðun sinni vildu þær
framfylgja með ofbeldi.
Að öðru leyti virðist mjer for-
maður fjelags hárgreiðslukvenna
viðurkenna, að jeg hafi skýrt rjett
frá um ofbeldisverkin.
Þjóðrsknisfjelagið
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU.
Var Thor Thors, núverandi aðal-
ræðismaður íslands í New York,
aðal forgöngumaður fjelagsstofn-
unarinnar.
Samkvæmt lögum þeim, er þá
voru samþykt fyrir fjelagið, er
tilgangur þess að efla samhug og
samvinnu milli heimaþjóðarinnar
og Vestur-íslendinga, og taka upp
samvinnu við Þjóðræknisfjelagið
vestra. Var svo til ætlast, að fje-
lagið gangist fyrir því, að Vestur-
íslendingar komi hingað og menn
fari hjeðan vestur, og verði ferð-
ir þessar til þess að auka kynni
heimaþjóðarinnar á högum landa
vorra vestra.
Rnnfremur er svo ákyeðið í lög-
unum, að fjelagið standi fyrir ár-
legum Vestmannadegi.
Vestmannadagur hafði þá einn
verið haldinn á Þingvöllum sum-
arið 1939, og var annar haldinn
hjer í bænum síðastliðið sumar.
Ýmsar tillögur hafa komið fram
viðvíkjandi verkefnum fjelagsins.
Hefir m. a. veríð talað um hvern-
ig heppilegast yrði að auka bóka-
viðskifti hjeðan við íslendinga
vestra. Hafa þau viðskifti oft
gengið skrykkjótt, enda eru nokk
ur vandkvæði þar á, vegna þess
hve mikill inriflutningstollur er á
bókum þar.
Vel má vænta þess, að hjer finn-
ist hagkvæm og fær leið. Hefir
nefnd innan fulltrúaráðs fjelags-
ins haft þetta mál til athugunar.
En Zófónías Þorkelsson verk-
smiðjueigandi frá Winnipeg ætlar
að tala um þetta mál sjerstaklega
á aðalfundinum á morgun.
Þá hefir verið talað um að vest-
ur-íslenskir námsmenn og kenn-
arar fengju kenslupláss hjer við
skóla. Ætti það að geta komið að
góðu gagni fyrir kynning Vestur-
íslendinga og samband við heima-
þjóðina. Var samþykt áskorun til
Alþingis' á fyrsta aðalfundinum
um að það beitti sjer fyrir því,
að 2 kennarar, 1 lækna- og 1 guð-
fræðinemandi fengju hjer kenslu-
pláss eitt ár hver.
Ýmislegt annað hefir verið
rætt í stjórn og fulltrúaráði fje-
lagsins.
Þeir sem hafa áhuga fyrir þess-
um málum ættu að koma á aðal-
fund fjelagsins annað kvöld í
Kaupþingssalnum kl. 8V2. Þar
geta menn, sem ekki hafa enn
gerst fjelagar, gengið í fjelagið.
Fjelagsgjaldið er 2 kr. á ári, en
ef hægt verður að koma því við að
fjelagsmenn fái Tímarit Þjóð-
ræknisf j elags V estur-í slendinga,
má gera ráð fyrir að ársgjaldið
hækbi í 5 krónur.
Libyaj
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU.
búi nú um sig í fjöllunum fyrir
austan Benghazi, en um þessi fjöll
liggi hin fræga bifreiðabraut
Mussolinis, með vegarmerkjunum,
sem skráð eru á ýms ummæli, sem
boða fyrirætlun Mussolinis um að
leggja undir sig Egyptaland.
Breski flugherinn er farinn að
undirbúa sóknina vestur á bóginn
með loftárásum á veginn og á
bifreiðasveitir og herflokka ítala
þar.
Símon I Vatnskoti
sextugur
sveinn í hrímaðri baðstofu á
Brúsastöðum í Þingvallasveit.
Sveinninn var skírður Simon
Daníel, eftir síra Símoni Bech á
Þingvöllum. Símon í Vatnskoti er
því áreiðanlega sextugur. enda
þótt lítt verði það á honum sjeð
nje heyrt.
Símon hefir auk þess dvalið
lengst allra núlifandi manna í
næsta nágrenni Þingvalla og á
staðnum sjálfum, eða. nánar til-
tekið alla sína ævi, að undantekn-
um 6—7 árum, er hann var við
trjesmíðanám og atvinnu í Reykja-
vík.
Og nú í vor eru 30 ár liðin síð-
an hin ramma taug átthagaástar-
innar dró ungu hjónin, Símon og
Jónínu, austur yfir Mosfellsheiði.
Fátæk að fje, en rík af bjart-
sýni og trú á lífið, réistu þau sjer
lítinn bæ í Vatnskoti við Þing-
vailavatn.
Nú eru 5 efnileg börn flogin úr
hreiðrinu og orðin sjálfstætt fólk,.
litli bærinn horfinn fyrir vistlegu
og rúmgóðu íbúðarhúsi; alt ber
vott uiri dugnað og reglusémi
hjónanna, sem alt þetta^ hafa unn-
ið ein með hjálp barna sinna.
Símon er að mörgu leyti óvenju-
legur maður, völundur á alt efni,
tveggja maki til vinnu, gulltrúr í
öllum sörfum, enda lÖngum hjálp-
arhella sveitunga sinna í hverskon-
ar vandræðum.
Munu margir vinirnir frá fyrrí
og seinni árum senda hinum vin-
sælu merkishjónum í Vatnskoti
hlýjar kveðjur og góðar óskir.
Sveitungi. 1
★
Ofanrituð grein barst Mbl. á
laugardag og var ætlunin að birta
hana á sunnudag, afmælisdag Sím-
onar, en af vangá fórst það fyrir.
Frakkland
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU.
Lyons-útvarpið vitnaði m.
a. í svissneskt blað í gær,
sem skrifað hefði á þá
leið, að Petain hefði stuðn-
ing allra Frakka og það
vœri þess vegna heimska
af Þjóðverjum að vekja
deilur við hann.
Það hefir vakið athygli, að
Petain ræddi margsinnis við
Baudouin, fyrverandi utanríkis-
málaráðherra sinn í Vichy í
gær, en Baudouin hefir undan-
farið sætt hörðum árásum í
Parísarblöðunum.