Morgunblaðið - 27.02.1941, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 27.02.1941, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ Fimtudagur 27. febrúar 1941 Duke Ellington, Count Baise, Atti Shaw, Jimmy Lunceford, Louis Armstrong, Benny Goodmann, London Piano Accordian Band, Ronald Frankau (piano), George Formby (Ukulele), Dorothy La- ntour, Bix Beiderbeck (piano swing), Joe Loss, Colemann, Glenn Miller, Gracie Field (Sally),. Jimmy Dorsy, Woody Herman, Earl Hénes (piano swing), Ed Lang (Guitar), Lög úr Walt Disneys film, Poul Robeson og Richard Tauber o. fl. plötu-nýungar. Hljóðfærahúsið. Athygli fjelagsmanna skal vakin á því, að samkv. fjelagslögum hafa þeir meðlimir ekki atkvæðisrjett í kosningu til trúnaðarstarfa í fjelaginu, sem skulda meira en 2 ársfjórðungsgjöld. Þeim fjelagsmönnum, sem hafa hug á því að neyta atkvæðisrjettar síns á aðalfundi fjelagsins, sem verður haldinn á næstunni, er hjer með tilkynt, að gjaldkeri fjelagsins mun veita fjelagsgjöldum móttöku í dag (fimtud.), föstu- dag og laugardag á skrifstofu fjelagsins, Laugavegi 34, á tímanum 6—8 alla dagana. Tilkynnin^ frá útflutnlngsnefnd um hækkun á lágmarkskaupverði á ísvörðum fiski til útflutnings. Fyrst um sinn, þar til öðruvísi verður ákveðið, er það skilyrði sett fyrir útflutningsleyfi á ísfiski, sem keyptur er til útflutnings, að kaupverð hans sje ekki lægra en hjer segir: Þorskur, slægður kr. 0.50 pr. Þorskur, slægður og hausaður — 0.62 — Ýsa, slægð — 0.50 — Ýsa, slægð og hausuð — 0.62 — Rauðspetta 250 gr. og þar yfir — 1.50 — Þykkvalúra (Lemon-sole) 250 gr. og þar yfir — 1.50 — Sandkoli 250 gr. og þar yfir — 0.50 — Bannaður er útflutningur á kola, sem vegur undir 250 gr. Framangreint lágmarksverð nær bæði til fiskkaupa í íslensk og útlend skip. Reykjavík, 27. febrúar 1941. Fasteignaskattar - Oráttarvextir. Fasteignagjöld til bæjarsjóðs Reykjavíkur árið 1941, húsaskatt, lóðarskatt, vatnsskatt, svo og lóðarleigu, er fjellu í gjalddaga 2. jan- úar þ. á., verður að greiða til bæjargjaldkera fyrir 3. mars. Að öðrum kosti falla DRÁTT- ARVEXTIR á gjöldin. BORG A RRIT ARINN. Verkfall hárgreiðslu §(úlkaia Greinargerð varaform. sveinafjelagsins Síðan verkfall okkar hár- greiðslustúlkna hófst 15. jan. s.l., hafa samningatilraunir farið fram aðeins tvisvar sínnum, en það var 23. jan. og svo nú í fyrra- <lag. Vegna þeirra sögusagna, sem mynast hafa í bænum um það, að það sje vegna ósanngirni okkar stúlknanna og Alþýðusambandsins að ekki hafa tekist samningar, þykir mjer rjett að segja sögu þess eins og hún er frá byrjun. ★ Kaup það, sem við höfum sam- kvæmt þeim samningi sem áður gilti, var: Fyrir heilsdagsstúlkur lágmarkskaup kr. 150.00 á mánuði. Fyrir hálfsdagsstúlkur lágmarks- kaup kr. 100.00 á mánuði. Þær fyrnefndu þurftu að skila fyrir þetta kaup 8 stunda vinnu á dag, en þær síðarnefndu 5 klst. Kröfur þar, sem við gerðum til kaups, voru, að heilsdagsstíilkur fengju kr. 200.(X) á mánuði, en hálfsdagsstúlkur kr. 125.00. Vinnu- tími skyldi vera sá sami og áður var. Kröfur okkar sendum við til meistara 2. nóv. s.l., en svar feng- um við loks 9. des. með tilboði um að alt skyldi óbreytt frá því sem í gamla samningnum var, og dýr- tíðaruppbót skyldi verða eftir þeim reglum sem gilt hefðu, þ. e. dýrtíðina áttum við að fá bætta að 3/4 hlutum. Af okkar hálfu var þessu boði neitað. Þegar sýnt þótti að ekki ætluðu að takast samningar án vinnu- stöðvunar var sú ákvörðun tekin, að láta fara fram allsherjarat- Fvæðagreiðslu «m heimild fyrir stjórn fjelagsins til þess að ákveða vinnustöðvun ef samningar hefðu ekki tekist fyrir 15. jan. Vinnu- stöðvunarheimildin var samþykt svo að segja mótatkvæðalaust. Einu sinni 'áður en til vinnu- stöðvunar kæmi fóru fram samn- ingatilraunir og mætti Jón Sig- urðsson framkvæmastjóri Alþýðu- sambandsins þá hjá Eggert Claes- sen og meisturum fyrir ' okkar hönd. Það sem þá var boðið fram af hálfu meistara var, að alt skyldi óbreytt frá því sem áður var að öðru leyti en því að full dýrtíð- aruppbót skyldi fást. Þessu var einnig neitað af okkar hálfu. Kvöldið áðúr en vinnustöðvunin skyldi hefjast, hjeldum við stúlk- urnar fund og fundur var einnig hjá nokkrum meisturum um sama leyti. Á fundi hjá okkur’var Jón Sigurðsson, en Claessen hjá hinum. Á fund til okkar kom símleiðis það tilboð frá meisturum, að þær væru reiðubúnar til að semja upp á það, að sveinar fengju 40% af andvirði þeirrar vinnu sem við- komandi sveinn afgreiddi, og var tilboð þetta borið undir atkvæði á fundi hjá okkur og var sam- þykt með atkvæði hverrar einustu stúlku, sem á fundinum var, að hafna því. Meisturum var þetta tilkynt, og kom þá það svar frá þeim, að þær hefðu ekkert við okkur að ræða, nema við fjellum frá öllum kröf- um um grunnkaupshækkun. Var )á borið undir atkvæði á fundinc um hvort fjelagið vildi falla frá kröfunum nm grunnkaupshækkun, og var það felt með öllum atkvæð- um, en hinsvegar um það rætt, að sjálfsagt væri að víkja í einhverju frá þeim kröfuin, sem upphaflega voru gerðar, ef ske kynni að meist- arar vildu koma eitthvað á móti, en því fór fjarri að þær fengjust til þess, eins og að framan greinir. ★ Vinnustöðvun var óumflýjanleg og kom til framkvæmda á hádegi þ. 15. janúar s.l. Um framkvæmd vinnustöðvun- arinnar og þá baráttu sem við háðum í sambandi þar við er bæj- arbúum kunnugt af þeim blaða- deilum er við höfum átt í, hr. Eggert Claessen og jeg, svo óþarft er að rifja það )ipp, og kem jeg þá að því, að fundur var haldinn í fjelagi okkar þann 20. þ. m., og var þar samþykt að senda meist- urum tilboð er fæli í sjer lækkun á kröfunum, vegna þess að sýnt þótti að deilan mundi ekki leyst nema að fyrsta sporið til sam- komulags yrði stigið af okkur. Það sem við sendum til meistara í gegnum sáttasemjara, hafði að innihalda eftirfarandi tilslakanir: 1. Að kaupgjald sveinanna skyldi vera: a. Heilsdagsvinna, lágmarkfe- kaup nýsveina, fyrstu 12 mánuði að loknu námi, kr. 175.00 á mánuði. Eftir það teljist sveinar fullgildir og fái í lágmarkskaup kr. 200 - 00 á mánuði. b. Hálfsdagsvinna, lágmarks- kaup nýsveina kr. 110.00 á mánuði. Lágmarkskaup full- gildra sveina kr. 125.00 á mánuði. 2. Að kaffihlje skyldi vera sem áður var, þ. e. hæfilegt kaffi- hlje tvisvar á dag. 3. Að síðasta virkan dag fyrir aðfangadag verði opið til kl. 23.00. 4. Að stúlkum verði greitt kaup í veikindatilfellum alt að 4 vik- um í stað 8 vikna, sem upp- haflega voru gerðar kröfur til. Tilboð þetta var sent 21. þ. m., og vorum við kallaðar til fundar við sáttasemjara í fyrradag ásamt meisturum, og var þar fyrir okkur lagt af þeirra hálfu úrslitatilboð það sem hjer fer á eftir: Kaupgjald sveina skal vera -. Heilsdagsstúlkur fyrsta ár að loknu námi kr. 150.00 á mánuði. Annað ár að loknu námi 165.00 á mánuði. Þriðja ár að foknu námí 180.00 á mánuði. F.jórða ár að loknu námi kr. 200.00 á mánuði. Hálfsdagsstúlkur fyrst.a ár að loknu námi kr. 100.00 á mánuði. Annað ár að loknu námi 110.00 á mánuði. Þriðja ár að loknu námi 120.00 á mánuði. Fjórða ár að loknu námi kr. 133.00 á mánuði. Ennfremur komi ný grein í samn inginn svohl jóðandi: Sveinum skal heimilt að ráða sig fyrir kaup er sje hluti and- virðis þeirrar viunu sem viðkom- andi sveinn afgreiðir, enda sje sá hluti ekki lægri en 40%. En sje um slíkt fyrirkoníulag að ræða, njóta sveinar ekki dýrtíðaruppbót- ar eða annara hlunninda. Um kaupstigann er það a& segja, að ekki mun þekkjast hjá nokkru sveinafjelagi að kaupgjald sje nema aðeins tvískift, þ. e. líti& eitt lægra fyrsta ár að loknu námL og svo fult kaup iir því. Enda ætti það að sýnast óþarft, þar sem 3 ár tekur að læra þessa iðn og ættu stúlkurnar að vera að öllu Jtiúnar eftir fjögra ára starf að ná þeirri æfingu, sem þær koma til með, að fá. Sú nýja grein, sem meistarar vilja koma í samninginn um heim iid fyrir sveina til að ráða sig fyr- ir prósentur, er grímuklædd tií- raun til að koma prósentukjörum- á, því eftir fyrri framkomu meist- ara í deilunni höfum við stúlk- urnar fylstu ástæðu til að ætla, að ef heimild þessi væri til, myndu eigendur hárgreiðslustofanna a& deilunni lokinni segja hverri ein- stakri stúlku, að hún geti að vísu fengið vinnu, en þá aðeins me& prósentukjörum. Það þarf ekki a& taka það fram, að þessu tilbo&» meistaranna var einrómá hafnað af okkur, sem í samninganefnd erum, en að sjálfsögðu mun af hinum nýkjörna formanni fje- lags okkar verða kallað saman til fundar til þess þar að ræða þetta. tilboð. En jeg er þess fullviss, a& meginþorri stúlknanna vill heldur standa áfram í verkfalli en ganga að þeim afarkostum, sem í úrslita- tilboði meistaranna felast. ★ Hjer hefir saga þessarar bar- áttu okkar stúlknanna verið sÖgð afdráttarlaust eins og hún er, alt það látið koma fram, sem milli fjelaganna hefir farið, og þori jeg óhrædd að láta það undir dóm almennings, hvorar hafi betri eða rjettari málstað, við eða meistar- ar. Vænti jeg þess, að hver einasta stúlka, sem í fjelaginu er, sýni það mikinn stjettarlegan þroska, að standa einhuga um þær sam- þyktir, sem kunna að verða gerð- ar í fjelagi okkar, því ef svo verður, er jeg sannfærð um að við munum fá kjör okkar allvern- lega. bætt. Reykjavík 27. febrúar 1941. Sveina Vigfúsdóttir. oooooooooooooooooo ! Píanó 1 II. fl., sem nýtt. til sölu. — V Sömul. annað af eldri, vand- X aðri gerð, lítið notað. Uppl. 0 í símum 4964, 2802 eða 3702. ^ OOOOOOOOOOOOOOOOOC I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.