Morgunblaðið - 18.03.1941, Síða 3
3
Þriðjudagur 18. raars 1941.
MORGUN BLAÐIÐ
Björgunarfleki af b.v. „Revkja-
borg“ finst mannlaus í hafi
Togarinn hefir ekki komið
fram á ákvörðunarstað
Skolið hefir verið
á björgunarflekaiin
með hríðskotabyssu
TOGARINN „VÖRÐUR“ frá Patreksfirði kom
hingað um hádegisbilið í gær. Höfðu skip-
verjar fundið björgunarfleka frá togaranum
„Reykjaborg“, í hafi, um 170 sjómflur norður af St.
Kilda á Hebridaeyjum. Flekinn var mannlaus, en á hon-
um var ullarteppi og björgunarbelti.
Áður en „Vörður“ kom, og vitað var, að hann hafði
fundið flekann, hafði útgerðarstjórn Reykjaborgar borist,
skeyti frá umboðsmanni skipsins í Englandi, þar sem
hann segir, að skipið hafi ekki komið á ákvörðunarstað
og ekkert til þess spurst. Búist var við Reykjaborg til
Fleetwood fimtudaginn 13. þ. m., því hjeðan fór skipið
laugardaginn 8. þ. m. kl. 6 e. h. *
Þó talið sje nokkurnveginn yíst að Reykjaborg hafi verið sökt,
eða að skipið hafi farist, þá er ekki vitað með neinni vissu uin afdrif
skipshafnarinnar. Voha tnenn í lengstu lög, að henni hafi verið bjarg-
að af flekanum eða ef til vill björgunarbátum skipsins á hafi. en að
einhverra hluta vegna hafi ekki fregnast um það ennþá.
Á togaranum var 14 manna áhöfn og einn farþegi, Runólfur Sig-
urðsson, skrifstofustjóri Piskimálanefndar.
VirOuleg minn
ingarathðfn
föllnu
sjómannanna
Minningarathöfn um hina 5
föllnu sjómenn af línuveið-
aranum. Fróða fór fram í Dóm-
kirkjunni í gær og hófst kl. 6 e. h.
Þegar líkvögnunum var ekið til
kirkjunnar hafði mannfjöldi safn-
ast þar saman. Kistunum var ek-
ið á þremur bifréiðum og vortt
þær þaktar blónnim.
Inn í kirkjuna báru nemendur
og kennarar Stýrimannaskólans.
Kirkjan var þjettskipuð fólki.
Hófst athöfnin á því að sunginn
var sálmurirm „Jeg horfi yfir haf-
ið“. Síðan flutti biskupinn, herra
Sigurgeir Sigurðsson, minningar-
ræðu. Var ræða hans hin hjart-
næmasta. Að henni lokinni v;u:
sunginn sálmurinn „Jeg lifi’ og
jeg veit, hve löng er mín bið“.
Þá íjek Björn Ólafsson fiðlu-
leikari sorgarlag.
Að lokum var svo snnginn sálm-
urinn „Faðir andanna“.
Úr kirkjunni háru meðlimir úr
Skipstjórafjelaginu „Aldan“, en
af bifreiðunum og síðasta áfang-
ann til skips (en líkin voru send
vestur og norðnr með Esju) nem-
endur Stýrimannaskólans.
Öll fór athöfnin mjög virðulega
fram.
Einar Þorvaldsson
skákmeistari
Reykjavíkur
Urslitakeppnin um fyrsta
sætið á skákþingi Reyk-
víkinga lauk á sunnudaginn
var með því að Einar vann
Sturlu og þar með skákmeist-
aratitil Reykvíkinga.
Vann hann 3 skákir af 4 í
úrslitakepninni. Nr. 2 varð
Sturla Pjetursson með 2 vinn-
inga og nr. 4 Guðmundur S.
Guðmundsson með 1 vinning.
Einar Þórvaldsson varð skák-
meistari Reykvíkinga 1938. —■
Hann er einnig skákmeistari ís-
lendinga.
„Vörður“
finnur flekann.
Blaðamaður frá Morgunblaðinu
átti í gær tal af Guðmundi Jó-
hannssyni skipstjóra á togaranum
„Verði“, sem fann flekann frá
Reykjaborg. Hann sagði svo frá:
— Það var klukkau 7.30 f. h.
laugardaginn 15. þ. m., að við sá-
um björgunarfleka á sjónum. Við
vorum þá staddir á 59°, 25’ norð-
lægrar breiddar og 10°, 22’ vest-
lægrar lengdar. eða um 170 sjó-
mílur norður af St,. Kilda á He-
bridaeyjum við Skotland.
Á flekan fundum við ullarteppi,
björgunarbelti og vatnskút, en í
sjónnm umhverfisflekann voru á
floti lestarborð og borð úr dekk-
stínm. Við tókum flekann með
okkur og svipuðumst um eftir
rnönnum, en sáum ekkert, sem gef-
ið gat til kynna að annað væri að
fínna frá skipinu á þessnrn slóð-
um, Iljeldum við svo áfram leið
okkar til íslands og urðum ekki
varið vift lieitt óvenjnlegt á leið
okkar eftir þetta.
B.jörgunarflekinn.
Björgunarflekinn frá Reykja-
borg er sömu tegundar og björg
unarflekar þeir, sem íslensk skip
hafá haft. síðan ófriðurinn hófst.
Plekammn er haldið uppi á 6 blikk-
tunnnm. eii sjálfur er flekinn eins
og kassi í laginu, rúmlega 2 metr-
ar S annan veginn og ca. 1%
meter á hinn veginn. Niðri í miðj-
um flekannm er ferhyrnt opið
hólf. senniiega gert til að get.i
skorðað sig, i slæmum sjó. í þéssu
hólfi voru teppið og björgunar-
heltið.
í flekanum voru matvæli og
vatn í þartilgerðum kassa og
vatnskúturinn, sem að framan
greinir, en hann hafið losnað úr
skorðum sínum, en af hverju er
þó ekki ljóst.
Skotin í flekanum.
Björgunarflekinn ber þess
merki, að á hann hefir verið skot-
ið úr hríðskotabyssu. Hefir verið
skotið að öðrum enda flekans og
eru alt að 18 göt á einni tunnunni
eftir byssukiilur. Aðeins tvær
tnnnur ern í flekanum, sem ekki
hafa ofðið fyrir skotum.
Teppið á flekanum var einnig
sundurskotið, en ekki þótti fuli-
víst. í gær hvort það er tætt sund-
ur af kúlnm úr hrískotabysu eða
sprengjubroti. Á hjörgunarheltmu
sást hinsvegar ekki neitt, og reim-
arnar á því voru óslitnar. Benda
líkur helst til þess að það hafi
aldrei verið notað.
Þegar flekinn fanst, flaut hann
vel upp úr sjó, en þó hærri í ann-
an endann, þeim megin, sem heilu
tunnurnar voru. Þegar flekinn var
hafinn um borð í „Vörð“ fór tapp-
inn úr vatnskútnum og verðnr því
ekki sagt um hvort búið var að
drekka af vatninu, sem í honnm
var. Skot hafði lent í matvæla-
kassanum og sjór komist að mat-
vælunum. Það var heldur ekki
upplýst í gærkvöldí hvort nokkuð
hafði verið snert við matvælunum.
FRAMH Á SJÖTTU SÍÐII
Samþyktir
Fjelags matvðru
kaupmanna
I Raykjavik
Fufldur íjelagsins
síðastl. íöstudag
Stjórnarkosning, sem fram
fór á aðalfundi Fjelags
matvörukaupmanna í Reykja-
vík síðastliðinn föstudag, fór
þánnig, að fráfarandi form.
fjelagsins, Guðm. Guðjónsson
var endurkosinn. Úr stjórninni
áttu að ganga að þessu sinni
þeir kaupmennirnir Símon Jóns
son og Tómas Jónsson, en þeir
voru báðir endurkosnir. Fyrir
voru í stjórninni þeir: Sigur-
liði kaupm. Kristjánsson og
Sigurbjörn kaupm. Þorkelsson.
í varastjórn voru kosnir þeir
Kristján kaupm. Jónsson, Sig-
urður kaupm. Halldórsson og
Sigurjón kaupm. Jónsson. End-
urskoðendur voru kosnir: Sig.
Þ. Jónsson, kaupm. og Gústav
Kristjánsson, kaupm.
Að loknum kosningum fóru
fram umræður og borfiar fram
eftirfarandi tillögur:
1. Aðalfundur F.M.R. felur stjóm
f jelagsins að bera tafarlaust fram mót-,
mæli til atvinnu- og verslunarmálaráðu
neytisins út af auglýsingu gjaldejrris-
og innflutningsnefndar, en í þeim var
tekið fram, að framvegis verði aðeins
veitt leyfi á nafn þess firma, er kaupir
vöruna inn frá útlöndum. En það úti-
lokar í mörgum tilfellum smákaupmenn
frá að njóta bestu imjkaupa, þar eð
oftast hefir verið lægra verð hjá heild-
verslunum ef innflutningsleyfi hafa
fylgt pöntunum smásala.
2. Þar sem mikill hörgull hefir verið
undanfama. mánuði á smjöri og feit-
um ostum, skorar fundurinn á stjóm
F.M.R, að rannsaka hvort. ekkert tillit
sje tekið til neysluþarfa bæjarbúa við
framleiðsln þessara vömtegunda.
3. Fundur í Fjelagi matvörukaup-
FRAMH. Á SJÖUTSTDU SÍÐU
RafmagnsverðiO
hækkar enn
A síðasta fundi bæjarráðs
var eftirfarandi samþykt
gerð um rafmagnsverðið:
Samkvæmt síðari mgr. H-liðs
gjaldskrár Rafmagnsveitunnar
samþykkir bæjarráð að leggja
5% álag á rafmagnsverð frá
og með álestri í apríimánuði
næstk.
Skíðamót
Aktcreyrar
Kept í svígí
Akureyri í gær.
kíðamót Akureyrar 1941 hófst
hjer kl. 2 á sunnudaginn var.
Mótið var háð í fjallinu sunnan
við Fálkafell.
Kept var í svigi karla, A, B og
C-flokki, einmennis og flokka-
kepni. Brautin var 40 metra löng
með 130 metra falli.
Logn var og sólskin og færi
ágætt. Áhorfendur höfðu gott út-
sýni yfir alla brautina.
ITrslit urðu þessi.-
A-flokkur: I. Magnús Árnason
(M. A.), tími 81.0 sek. 2. Björgvin
Júníusson (K. A.), 82.8. 3. Júlíus
Magnússon (Þór), 84.4.
B-flokkur: 1. Karl Hjaltason5
(Þór). 84.0 sek. 2. Einar Þ. Guð-
johnsen (M. A.j', 88.2. .3. Ingvald-
ur Ilólm (K. A.), 96.4.
C-flokkur: 1. Hörðnr Björnsson
(M. A.), 84.7 sek. 2. Magnús Brynj
ólfsson (K. A.), 88.1. 3. Þorsteimr
J. Halldórsson (M. A.), 93.6 sek.
Bestu 4 mannasveit átfi Menta^
skólinn og hlaut að launum fagr-
an hikar sem K. E. A. hefir gefið
og nú var kept um í fýrfeta sinn.
I sveitinni voru: í. Magnús Árúa-
son; 2. Ilörður J. Árnason; 3. Ein-
ár Þ. Guðjohnsen ■ 4. Þorsteinn J.
Halldórsson.
Þátttakendúf í skíðamóti Akur-
eyrar eru 82Í alls.
Næsta simnudag fer fram ganga
óg brun. Hallgr^