Morgunblaðið - 18.03.1941, Síða 4
4
Þriðjudagur 18. mars 1941.
HESSI AN
BINDIGARN — SAUMGARN — MERKIBLEK
GOTUPOKAR
fyrirliggjandi.
Sími 3642. HEILDVERSL. L. ANDERSEN.
Hafnarhúsinu.
Far, veröld,
þinn veg
(Barbara)
Verulega gúð bók
| og skemtileg.
Ákaflega
spennandi
Flutoingur til íslands
Reglnletrar hálfsmánaðar ferðir frá vesturströnd Bret-
land.' til fieykjavíkur. 3—4 skip í förum. Sjerstaklega
hagkvsem flutningsgjöld ef um stærri vörusendingar et
að ræða.
Tilkynningar um vörur sendist
Culliford & Clark Ltd.
Bradleys Chambers,
London Street, Fleetwood,
i eða
Geir H. Zoega
er gefur frekari upplýsingar.
Símar 1964 og 4017,
Enskt
I i
unntóbak.
Smásöluverð má eigi vera hærra en hjer segir:
WILLS’ BOGIE TWIST í 1 lbs. blikkdósum (hvítum)
kr. 20.40 dósin.
Utan Reykjavíkur og Hafnarfjarðar má verðið vera
Z% hærra vegna flutningskostnaðar.
Tóbakseinkasala rikisins.
Glcrvörur
MIKIÐ ÚRVAL NÝKOMIÐ.
K. Einarsson & Björnsson
FYR IRLIGGJANDI
Kokosmjöl — Matarlím
Tomat ketchup — Borðsalt
Cacao — Te, 2 oz. og 4 oz. pk.
Síróp, 1 Lbs. og 2 Lbs. dósir.
EjJiíerl Krlvffánsson & €o. h.f.
MORGUNBLAÐIÐ
Dreifibrjefsmálið dsmt I Hæstarjetti
Refsing fjögurra
ijett nokkuö
Aðalatriði undirrjettar-
dómsins staðfest
HÆSTIRJETTUR kvað í gær upp dóm í máli
hinna 10 kommúnista, sem voru ákærðir í
dreifibrjefsmálinu svonefnda.
Niðurstaða Hæstarjettar var þessi:
Refsing Eggerts Þorbjarnarsonar og Hallgríms Hallgríms-
sonar var lækkuð í 15 mán. fangelsi úr 18 mán. samkv. undir-
rjettardómnum. Eðvarð Sigurðsson og Ásgeir Pjetursson halda
sínum borgaralegu rjettindum. Að öðru leyti var undirrjettar-
dómurinn staðfestur.
I forsendum dóms Hæsta-
rjettar segir svo:
„Þegar bresbur her steig á lancl á
íslandi þann 10. maí síðastliðiö ár, var
lýst yfir því, af hálfu bresba ríbisins,
flð ebbí mundi verða hlutast til um
stjórn landsins af hálfu Breta um
fram það, sem nauðsyn bæri til vegna
hernámsins. Þrátt fyrir þessa yfirlýs-
ingu var það ljóst, að hætta ó afsbift-
um erlends valds af íslensbum mál-
efnum jóbst mjög vegna hemámsins.
Og var af þeim söhum þá þegar og
oft síðar af opinberri hálfu brýnt fyr-
ir íslenshum þegnum að gæta allrar
varúðar í umgengni við hemámsliðið,
svo að Islendingar veittu engin efni tii
frebari íhlutunar þess um íslensb mál.
Tahmarbið með útgáfu dreifibrjefsins
og útbýtingu þess meðal bresbra her-
manna var það að afstýra, því, að her-
mennirnir ynnu þau verb í þarfir her-
liðsins, er íslensbir verbamenn höfðu
áður innt af hendi. Til þess að ná þessu
marhmiði er í dreifibréfinu sborað á
breshu hermennina að neita allir sem
einn (refuse in a body) að hlýða sbip-
unum yfirmanna sinna um frambvæmd
elíbra verha. Upphafsmenn dreifi-
hrjefsins gáfu það út fjölritað og nafn
laust og reyndu að dylja eftir mætti,
hvar það var vélritað og fjölritaS og
nieð hvaSa, tæbjum, og bveðast hinir
áhærðu Eggert Halldór og Hallgrímur
Baldi, sem lengi þrættu fyrir verkn-
að sinn, hafa gert það til þess að tor-
velda rannsókn á uppruna hrjefsins,
með því aö þeir hafi taliS, að „setuliðá
stjórnin mundi taka miðann illa upp
og mundi reyna aS komast fyrir, hverj-
ir væru höfundair hans og jafnvel beita
fangelsunum í sambandi við það, einsj
og raun varð á“. Þeim hefir því verið
Ijóst, jeins og hverjum manni hlaut að
vera, að verknaður þeirra gæti leitt
til þess, aS bresku heryfirvöldin tækju
fastan ótiltekinn fjölda manna, þar á
meðal saklausa menn, meðan verið væri
að rannsaba málið. Einnig hlaut þeim
að vera ljóst, að skapast gæti aga-
leysi í hemum, ef einhverjir hermann-
anna yrðu við áskorun þeirra um ó-
hlýðni við yfirmenn sína. En agalaus
her í landinu stofnar bæSi einkahags-
munum og opinberum í brýna hættu.
Þá var og mikil hætta á íhlutun her-
yfirvaldanna um íslensk málefni og ó-
þægilegum takmörkunum þeirra á at-
hafnafrelsi almennings, einkanlega ef
ekki hefði náðst til upphafsmanna
dreifibrjefsins. Yerbnaður hinna á-,
kærðu Eggerts Halldórs og Hallgríms
Balda varSar því við 88. gr. hinna al-
mennu hegningariaga nr. 19 frá 1940,
og þykir refsjng þeirra hvors um sig
hæfilega ákveðin 15 mánaSa fangelsi
auk rjettinda sviptingar svo sem í
hjeraðsdómi segir.
Þá hafa hinir ákærðu Eðvarð Ivrist-
inn og Ásgeir, sem vissu um efni
brjefsins og áttu þann þátt í dreifingu
þess, sem lýst er í hjeraSsdóminum,
bakað sjer með því refsingu sam-
kvæmt nefndri 88. gr. hegningarlag-
anna, og er refsing þeirra hæfilega á-
kveðin í hjeraðsdómi, en ekki er næg
astæða til þess aS svipta þá, rjettind-
um samkvænlt 68. gr. sömu laga.
MeS skírskotun til forsendna hjer-
aðsdómsins má staðfesta ákvæði hans
um refsingu hinna ákærðu Einars
Baldvins og Sigfúsar Annesar, svo og
ákvæði hans um sýknu hinna ákærSu
Haralds, Helga, Guðbrands og Guð-
mundar.
Ákvæði hjeraðsdómsins um frádrátt
gæsluvarShaldstíma og greiðslu sakar-
kostnaSar í hjeraði staðfestist'.
Sækjandi málsins í Hæsta-
rjetti var Sigurgeir Sigurjóns-
on cand. jur., en verjendur
Pjetur Magnússon hrm. (Egg-
erts og Ásgeirs) og Egill Sigur-
geirsson cand. jur. hinna átta.
Viðskiftaskráin 1941
er komin úf.
Fæst i bókaverslunum.
Vfelritunarstúlku,
með góðri enskukunnáttu, vantar nú þegar, hálfan eða
allan daginn. Tilboð, ásamt mynd, meðmælum og upplýs-
ingum um aldur, sendist blaðinu, merkt „1234“.
Fimtugur: Dr. Arni
Helgason, Chícago
Hinn 16. mars varð dr. Árni
Helgason verksmiðjueigandi
í Chicago fimtngur.
Hann er einn þeirra mörgu fs-
lendinga í Vesturheimi, sem hafa
brotið sjer braut með reglusemi,
dugnaði og þrautseigju. Árni er
fæddur og upphalínu í Hafnar-
firði. Foreldrar hans voru hjónin
Helgi Sigurðsson og kona hans
Sigríður Jónsdóttir frá Setbergi,
sem enn er búandi í Hafnarfirði.
Árni stundaði nám um tíma við
Flensborgarskólann, en nam síðan
skósmíði hjá Oddi ívarssyni, seni
nú er póstmeistari í Hafnarfirði,
og fjekk sveinsbrjef í þeirri iðn.
Árið 1912 fór Árni til Vestur-
heims og f jekst þar við ýms störí,
þar til hann byrjaði nám í versl-
unarfræði. Hann sýndi slíkan
dugnað við námið, að honum var
veitt leyfi til háskólanáms. Þar
lagði hann stund á rafmagnsverk-
fræði og lauk prófi í þeirri grein.
Frá þeim tíma hefir Árni unnið
stöðugt við rafvjelaframleiðslu,.
fyrst hjá dr. Hirti Þórðarsyni í
Chicago. En árið 1928 stofnaði
hann raftækjaverksmiðjuna „Chiea
go Tronsformer Corporation“, á-
samt þrem amerískum verkfræð-
ingum. Þetta fyrirtæki hefir stöð-
ugt vaxið, þrátt fyrir kreppuna og
harðvítuga samkepni, svo nú
starfa þar alt að eitt þúsund
manns. Árni Helgason hefir frá
upphafi verið framkvæmdastjóri
þessa fjelags.
f fyrra varð Árni fyrir þeim
mikla heiðri að vera kjörinn heið-
ursdoktor í vísindum við háskóla
einn í Norður-Dakota.
Vesturrfslendingar eru, eins og
kunnugt er, með afbrigðnm þjóð-
ræknir og má hiklaiist telja Áma
Ilelgason framarlega í þeirra hópi.
Hann er ósár á tíma, fyrirhöfn
og kostnað, e£ hann álítur það
geta orðið fslandi eða íslending-
um til gagns og sóma. Árni er
kvæntur ágætiskonunni Kristínu
Johanson, ættaðri úr Skagafirði.
Þrátt fyrir, að frú Kristín er fædd
og uppalin í Bandaríkjunum, tat-
ar hún íslensku mætavel og er
með afbrigðum ræktarsöm við alt,
sem íslenskt er eins og margar
bestu konur meðal Vestur-íslend-
inga. Ileimili þeirra er ávalt opið
hinum mörgu íslendingum, semt
leggja leið sína um Chicago, og er
þeim veitt þar af hinni mestu
rausn og prýði
Jeg veit að jeg er einn af mörg-
um, sem minnast þessara hjóna
með hlýjum hug og óska að þeirra
niegi lengi njóta.
Ófeigur J. Ófeigsson.