Morgunblaðið - 23.04.1941, Page 3

Morgunblaðið - 23.04.1941, Page 3
MORGPNBLAÐIÐ ■ ' _i___L—l___; 3 Mijðvikudagur 23. apríl 1941. Mesti ávinningur síð- an stjórnarsamvinn- an byrjaði Ólafur Thors atvinnumálaráðh. gerir grein fyrir ýmsum stjórnmálum á Varðarfundi FUNDUR y,ar haidinn í landsmálafjelaginu Verði í gærkvöldi. Frummælandi var þar Óiaf- ur Thors atvinnumálaráðherra. ílann flutti rúmiega klukkustundar erindi, og hóf máls á því að gera grein fvrir frumvarpi því jí skattamálunum, sem samkomulag hefir náðst um milli stjórnarflokkanna, en áður hefir verið gerð ítar- Jeg grein fyrir þessu máli’. hjer í blaðinu. Lokað fyrir vatnið i 9 hús- um ibænum vegna óhóts- vatnseyðslu dþarfa vatnsrensli I 6? húsum I fyrrinött Akveðið hefir verið að loka fyrir vatnsæðar í níu hús- um hjer í bænum í dag vegna óhófs vatnseyðslu fólks í þess- um húsum. Hefir verið gengið úr skugga um, að vatn hefir ver- ið látið renna í húsum þessum að næturlagi að óþörfu. Vatnsveitan hafði þrjá menn í fyrrinótt til að athuga hvort fólk ljeti renna vatn að óþörfu yfir nóttina. Þó þessir menn kæmust ekki yfir nema lítinn hluta af bænum kom í ljós, að í 62 húsum var vatn látið renna. 1 níu húsum sáu eftirlitsmenn- irnir vatnið renna og á hinum stöðunum hlustuðu þeir eftir vatnsrensli oft um nóttina og komust að raun um að vatn var látið renna þar stöðugt. Sumstaðar rann vatn beint á gólf eða í vatnsrensli, á öðrum stöðum var látið renna á fisk eða kjöt og á nokkrum stöðum á þvott, þó aldimt væri í hús- inu og enginn maður sjáanleg- ur. Sumstaðar þar sem vatn rann í fyrrinótt að óþörfu, hafði fólk- ið verið aðvarað fyr í vtetur, þeg- ar vatnsskorturinn var mestur. Verður nú lokað fyrir vatnið í 9 húsum í þrjá daga, frá deginum í dag og verður haldið áfram að loka fyrir vatnið, þar sem óhófseyðsla á sjer stað, þar tií „tekið hefir verið fyrir lekann“. Verður birt opinberlega hvaða hús þetta eru. Hinir, sem Iátið hafa renna að óþörfu, en ekki hafa fengið áminningu, verða settir á „svart- an lista“ og lokað hjá þeim næst þegar þeir láta vatn renna til ónýtis. Eftirlitsmenn hjeldu áfram að athuga í nótt hvar vatn er látið renna að óþörfu og var lögreglan í fylgd með eftirlits- mönnunum. Verður eftirliti þessu haldið áfram þar til kom- ist hefir verið fyrir alla þá staði þar sem vatn er látið renna til ónýtis. Ræðumaður rakti m. a. þá hlið málsins, sem að útgerðinni veit, mintist á. að vart hefir orðið nokk nrs ágreinings iit af heimild Al- þingis tíl áð rifta fyrii-heiti um skattfrelsi til útgerðarinnar um ákveðið árabil. En hann sagði, að innan Sjálfstæðisflokksins hlytu merin að vera á eirni rnáli um það, að rjett væri að breyta þeim lögum, þareð útgerðinni liefði fallið meiri gróði í skaut ’ á skömmum tíma, en áður hefðu ver- ið dæmi til og nokkurn óraði fyr- ir. Þá lýsti ræðumaður þeim á- kvæðum frumvarpsins, sem sneru að skuldugum og ekki skuldugum titgerðarf jelögum og benti á,' að frani hefðu komið falsrök um það, að hið nýja frumvarp væri sjer- staklega hagkvæmt skuldugu fje- lögunum. Nefndi hann dæmi þess, hve mikið efnuð útgerðarfjelög ættu eftir af gróða sínum að frá- dregnum sköttum öllum, samkv. hinu nýja frumvarpi, og hvernig frumvarpið miðaði að því að tryggia það þjóðþrifamál, að skipaflotinn yrði endurnýjaður. Þvúnæst lýsti ræðumaður lækk- un skattstigans gagnvart almenn- ingi, hækkun persónufrádráttar og þeim ákvæðúm frumvarpsins að miða skattskyldar tekjur við vísitölu, þannig að meðan vísital- an er há, þá eru skattskyldu tekj- urnar færðar niður í hlutfalli við það, svo að t. d. þegar vísitalan er 150. þá verða 9000 kr. skatt- skyldar tekjur færðar niður í kr. 6000. Nefndi hann nokkur dæmi til samanburðar á gamla skattstig- anum og þeim, sem frv. ákveður, þar sem t. d. að fjölskyldumaður, sem hafði 5000 kr. tekjur og greiddi kr. 62 í skatt, greiddi eft- ir frumvarpinu kr. 8, en einhleyp- ur maður með 9000 króna tekjur, er greiddi kr. 1100 í skatt á eftir frv. að greiða kr. 329, o. s. frv. Ræðumaður lauk máli sínu um skattafrumvarpið á þá leið, að liann hikaði ekki við að halda því fram, að þegar frumvarp þetta væri borið saman við þau skatta- lög, sem hjer væru nú, þá væri hjer svo stórt spor stigið í þá átt, sem Sjálfstæðisflokkurinn hefði PRAMH. Á SJÖUNDU SlÐU. Til ágóða fyrir sumardvöl barna: Sarnadagsblaðið setdist 15000 nintðkum t gær SA.LA Barnadagsblaðsins í gær __ gekk með afbrigðum vel. Seldust um 50(K> eintök af blað- inu fyrir samt.als kr. 4363.50. Það er vel að bæjarbúar sýna svona góðan skilning á söfnun- inni fyrir sveitadvöl barnanna. Skemtanirnar í gær voru einn- ig vel sóttar. í Sundhöllinni var yfirfult og skemtu menn sjer hið besta. í DA6 kemur ..Sólskin“ út og . hvernig sem veðrið annars verð- ur er trevst á það, að bæjarbúar bregðist vel við og- kaupi bók- ina. Hún kostar kr. 2.00. 10 UNGAR stúlkur munu einnig í dag ganga til þeirra manna, sem þegar hefir verið skrifað til og farið fram á frjáls framlög. Þær gefa kvittanir fyrir því, sem menn kunna að gefa. Á MORGUN er svo aðalsöfnunar- dagurinn. Meðal skemtana er, að leikið verður leikritið „Á út- leið“. Hefst sala aðgöngumiða í Iðnó í dag kl. 4—7. Útsvörin á ísafirði Utsvarsskrá Isafjarðar var lögð fram í gær. Alls var niðurjafnað um 593 þúsund krónum. Gjaldendur eru 831. Hæstu gjaldendur eru: Val- ur, 105 þúsund krónur. Kaup- fjelagið, 34 þúsund kr. Sam- vinnufjelagið 25 þúsund kr. Hlutafjelagið Huginn 19 þús- und. Jóhann Eyfirðingur, 12 þúsund kr. H.f. Shell 11900 kr. Olíuverslun íislands 10700 kr, Uhúsfjelag Isafjarðar 9 þúsund krónuv. Auknar loftvarnaráðstafanir: 61 hverfisstjórar hafa lokið námskeiði og taka tii starfa ^ ÞÝÐINGARMIKIÐ SPOR hefir verið stigið til að tryggja öryggi bæjarbúa, ef til loftárása skyldi koma. En það er, að skipaðir hafa ver- ið 61 loftvarnahverfisstjórar, sem eiga að aðstoða almenn- ing við að búa sig sem best undir alvarlega atburði. Ef vel er á haldið, ætti þetta, ásamt fleiru, sem loftvarna- nefnd hefir á döfinni, að vera til mikilla bóta, en til þess að svo verði, þarf almenningur að sína skilning á því, sem verið er að gera. Færeyskir skipstjðrar hafa fengið vjelbyssur sjer til varnar Páll Jónsson útgerðarmaður í Vestmannaeyjum kom inn á skrifstofu blaðsins í gær og ræddi m. a. um vertíðina í Eyjum. Páll er nýkoniinn hingað til bæjarins, en hann þarf sem kunn- ugt er, altaf að koma hingað nokkrum sinnum á ári, til þess að rifja upp hvernig Reykjavík er, og hans mörgu kunningjar þurfa að rifja það upp, hvernig hann er. En það er hægur vandinn. Því síðustn 20 árin hefir ,,Púlli“ ekk- ert breyst. að sjeð verði. Hami segir netaveiði nú vera að enda. Hefir saltleysi lítið kom- ið að sök í Eyjum, m. a. vegna þess, hve stutt stöðvun varð á fisk- flutningum þaðan til Englands. Hann segir, að færeysku skipin, sem þangað hafa sótt fisk, hafi stöðvast vikutíma. Færeyskir skipstjórar hafa sagt honum, að þeir hafi meiri geig af flugvjelum en kafbátnm, og því hafi þeir fengið vjelbyssur á skút- urnar. En með þeim er hægt að bægja flugvjelum frá að fljúga mjög lágt yfir skipin. Skipstjórarnir hafa fengið þessi vopn til afnota á sína ábyrgð, og hefir skipshöfnum verið kent. að fara með þan um leið og þau hafa verið afhent. Bresk nefnd sem- ur um fiskkaup Um síðustu helgi kom hing- að nefnd manna frá Lond- on til þess að semja við ríkis- stjórnina um kaup á fiski. Formaður nefndarinnar, Mr. Lousado að nafni, er’starfsmað- ur hafnbannsráðuneytsins. Rit- ari nefndarinnar er Mr. Fraser, en meðstarfsmenn eru þeir Mr. Owen Helyer og Mr. Geo. Cop- land, sem báðir eru kunnir hjer á landi. Ríkisstiórnin hefir falið við- skiftanefndinni að taka upp samninga við sendinefnd þessa. Byrjuðu samningafundir á mánudag. Blaðamaður frá Morgunbl. átti í gær tal við Svein Einars- son verkfræðing, en hann er sem kunnugt er ráðunautur loft- varnanefndar. Sveinn sagði svo um hlutverk hverfisstjóranna: 1) Þeir eiga nú á meðan alt er rólegt, að skipuleggja loft- varnirnar hver í sínu hverfi. — Þeir fara í þessum tilgangi í öll hús í sínu hverfi, tala við fólk- ið, sem þar býr og kynna sjer hvað gert hefir verið til öryggis og leiðbeina þeim, sem enn hafa ekki gert neitt til öryggis í hús- um sínum. Til dæmis munu þeir leiðbeina fólki um helstu varn- arráðstafanir ef eldsvoða ber að höndum, kenna mönnum að gera eldsprengjur óskaðlegar. 2) Ef til loftárása kemur, er hlutverk hverfisstjóranna einn- ig að leiðbeina fólki og að- stoða. Hver hverfisstjóri verður á ákveðnum stað með aðstoðar- mönnum sínum og getur fólk, sem þarf á hjálp að halda, jafnan snúið sjer til þessarar miðstöðva. Gæti þetta komið sjer vel t. d. ef símasamband rofnaði, en mjög mikil hætta er á slíku, ef alvarleg loftárás er gerð. Hverfisstjórarnír hafa und- anfarið verið á námskeiði og hafa þeir þar lært störf sín. — Þeim hefir verið kent hvað þeir eiga að gera ef til skipulegrar loftárásar kemur á bæinn. Þeir vita um hvar loftvamabyrgi eru, hvar hjálpar er að leita o. s. frv. Þeim hefir verið kent að þekkja helstu tegundir sprengja og hvernig þær virka. Þeir eiga að vita hvaða útbún- aður þarf að vera í loftvarna- byrgjum, hvernig best er að byrgja glugga og hvaða efni er hentugast til þess. Þeim hefir verið skýrt ítarlega frá með- ferð eldsprengja og hvemig best er að slökkva eld. Skipaður verður varamaður fyrir hvern hverfisstjóra og einnig tveir menn aðrir, sem verða sendiboðar hverfisstjóra. Varahverfisstjórar sækja sams- lconar námskeið og aðalhverfis- stjórarnir og hefst það undir eins og búið er að skipa menn- ina, það mun verða á næstunni. I stöður hverfisstjóra hefir verið reynt að velja ábyggilega menn, sem hægt er að reiða sig á og sem að jafnaði dvelja ! bænum. Munu þeir þegar vera hyrjaðir á starfi sínu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.