Morgunblaðið - 01.05.1941, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 01.05.1941, Qupperneq 2
2 14 O E G U N K L A Ð I Ð Fimtui aí 1941. Herferðin i Grikklandi „aðeins hlufi af baráttunni um yfirráðin I MiQ|arflarhafiM Bretar komu undan 45 þús af 60 þús. manna her Allur Atlants- hafsfloti Banda- rlkjanna á sftir lltssvæðinu Samkomulag milli Breta og Grikkja um MR. CHURCHILL upplýsti í breska þinginu í gær, að fram til þess tíma, er ekki varð lengur komist hjá brottflutningi breska herliðsins frá Grikklandi, hefði verið búið að flytja þangað 60 þús. manna lið, þar af eitt herfylki Ástralíumanna og annað herfylki Nýsjálendinga. „Að minsta kosti 3/4 hlut- ar af þessu liði, eða 45 þús. manns, hafa nú verið fluttir burtu frá Grikklandi aftur“, sagði Churchill. Churchill var spurður að því, hvort skilja bæri orð hans á þá leið, að þessi 45 þús. manns hefðu komist til bækistöðva sinna, og svaraði hann þá: „Jeg held að svo sje“. Hann var einnig spurður að því, hvort 45 þús. væri hámarkið, sem hægt myndi vera að koma burtu frá Grikklandi. Churchill svaraði með því að benda á, að hann hefði sagt ,,að minsta kosti 45 þús. manns“." Loks var Churchill spurður um hergögnin og svaraði hann þá, að ,,að sjálfsögðu hefði ekki verið hægt að flytja þungaher- gögn í burtu“. FIMM ÞÚSUND FANGAR Þjóðverjar hafa ekki haldið fram, að þeir hafi tekið nema 5 þús. breska fanga í Grikklandi. I tilkynningu þýsku her stjórnarinnar í gær var skýrt frá því, að þýsku hersveit- irnar á Pelopenneskaga væru nú komnar til suðurstrandar skagans og hefðu þar með getað stöðvað frekari brott- flutning breska herliðsins. „Fram til þessa hafa 5 þús. breskir fangar verið teknir, þar af einn hershöfðingi“, segir í tilkynningunni, ,,en auk þess magr- ir serbneskir hermenn, þ. á m. 4 hershöfðingjar og 300 aðrir liðs- foringjar“. Þrátt fyrir ,að þýska herstjórnin hafi tilkynt í gær, að brott- flutningur breska herliðsins í Grikklandi hefði ve'rið stöðvaður, var því haldið fram í Kairo í gær, ,,að brottflutningurinn hjeldi áfram með góðum árangri“. HLUTI AF MIÐJARÐARHAFSSTRÍÐINU í Berlín var sú skoðun látin í ljós í gærkvöldi, að grísku her- ferðinni væri nú að verða lokið, en henni myndi þó ekki verða lok- ið fyr en Þjóðverjar hefðu lagt undir sig alt Grikkland. En sjerstök áhersla var lögð á það í Berlín, að herferðin í Grikklandi væri ekki nema hluti af baráttunni um yfirráðin á Miðjarðarhafi. Breska verslunarmálaráðuneytið tilkynti í gær, að Grikkland teldist nú meðal þeirra landa, sem hernumið væri af óvinaher, og því myndu bresk lög varðandi slík lönd ganga í gildi, þ. á m. hafn- bannslögin. _________ brottfiutninginn 12 þús. manna þýskt herlið til Finnlands „Á leið til Norður- Noregs“ Pravda, aðalmálgagn komm únistaflokksins í Moskva skýrði frá því í gær, að 4 þýsk flutningaskip væru komin til Ábá í Finnlandi með 12 þús. þýska hermenn, búna hvers- konar hergögnum. Hermenn- irnir hjeldu áfram frá Ábá til Tammerfors (aðaliðnaðarborg- ar Finnlands), segir Pravda. Hin opinbera finska frjetta- stofa, gefur þá skýringu á ferða lagi þýsku hermannanna, að þeir sjeu á leiðinni til Norður- Noregs og fari um Finnland, samkvæmt samningi þeim, sem þýska stjórnin og finska stjórn- in gerðu um herflutninga þessa til Norður-Noregs í fyrrahaust. Frjettastofan vekur athygli á því, að Tammerfors sje á þeirri leið, sem samið var um að þýsku herflutningamir til iNorður- Noregs skyldu’ íara fram um. Frjettastofan segir, að ,,Pravda“ hafi ýkt mjög um herstyrk þannf sem blaðið segir að nýlega hafi komið til Ábá; herstyrkur þessi hafi ekki verið nema örlítið bröt af þeirri tölu, sem Pravda nefnir . HVER ER TILGANGURINN? Ba,nn það, sem Mikoyjan fulltrúi utanríkisverslunariiMiar í Sov- jet-stjórninni birti í fvrradag, við flutn ingum yfir Rússland á bverskonar skot- færum, vjelum til framleiðslu á skot- fæfrum, ipprengiefnum, eitur-efmun, flugvjelahlutum o. fl. hefir vakið nokkra at.hygli. I London hafa komið fram einkum tvær skoðanir iu:n tilgang Rússa með þessu banni: Önnur er sú, að í því felist nokkurs- konar sáttaboð til Þjóðverja, með því að bannið snerti aðallega flutninga á ýmiskonar vörum, sem Tyrkir hafa pantað í Svíþjóð, og einnig flutninga á hergögnum til Kína. Hin skoðunin er sú, að bannið eigi fyrst og fremst að hindra flutninga á hergögnum milli Þvskalands og Jap- ans, en slíkir flutningar yfir Rússland, FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU í breska þinginu í gaer fór Mr. Churchill mjög. lofsamlegum órð um um frammmistöðu alríkishers- ins í Grikklandi. Churehill sagði, að Bretar hefðu ekki getað teflt fram nema tiltölulega litlu flug- liði, til að verja undanhaldið til strandar. Þarna hefði í fyrsta: skifti mistekist að evða hernaðar- legum aga með látlausum loftárás- um. Churchill sagði, að bresku aft- ursveitiruar, sem vörðu undan- haldið, hafi hafl á móti sjer 3 brvnjaðar hersveitir óvinanna, aúlc þess allar vjelahersveitir, sem Þjóð verjar gátu teflt fram. Bresku her- sveitirnar hefðu stundum getað stöðvað sókn 5 sinnum iiflugri þýskra hersveita í tvo daga í senn. Churchill sagði, að manntjón Breta í bardögunum við Olympos- fjall, Grevesa og Laugaskarð hefði verið 3000 manns, fallnir og særð- ir. Hann sagði, að manntjón þetta væri lítið samanborið við hið mikla tjón Þjóðverja. Að lokum sagði Churchill, að nánari upplýsingar kynnu að liggja fyrir, þegar umræðurnar fara fram í þing- inu í næstu viku. En hann kvaðst þó með upplýsingum þe.ssum hafa sagt nóg til að eyða ýktum fregnum Þjóð- verj.a, og til að leiða í ljós, að Bretar hefðu ýmislegt til að* vern þakklátir fyrir. í’agnaðaróp kváðu við hvað eftir annaö undir ræðu Churehills. Eftir ræðu Churchills upplýsti Eden FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU Breskur kaf- bátur i 9 klst. I óvinahðfn Slapp í burtu með ítalskan gisl um borð Breska flotamálaráðuneytið birti. í gærkvöldi tilkynningu um tilraun bresks kafbáts, „Regents“, til að bjarga breska sendiherran- um, Sir Ronald Campbell, og starfsliði hans frá Júgóslafíu, eft- ir að Júgóslafar höfðu gefist upp. I tilkynningunni er skýrt frá því að kafbáturinn ,,Regent“ hafi í dögun þess 26. apríl komið til borgarinnar Cattaro (Kotor) við Adriahafsströnd Júgóslafíu, en kafbátsstjórinn hefði brátt komist að raun um að borgin og alt hjeraðið umhverfis var þá á valdi ítala. Kafbátsstjórinn hafi þó ó- trauður siglt inn í höfnina og sent breskan iiðsforingja á fund yfirflotaforingja ítala í borginni. Niðurstaðan hefði orðið sú, að ítalskur herforingjaráðsforingi hafi verið séndur mn borð í kaf- bátinn sem gisl á meðan breski liðsforinginn fór að leita að Sir Ronald Campbéli og starfsliði hans. Þarna lá kafbáturinn í höfn- inni í 9 klst., með stóran hvítan fána við hún, og óvinaliðsafla á alla vegu. En þá gerðu tvær ít- aiskar flugvjelar steypiárás á kaf- bátinn og fjellu sprengjum og vjelbyssukúlur nálægt bátnum og særðu þrjá menn um borð, þ. á. m. kafbátsstjórann. Kafbátsstjórinn leit nú svo á (þannig heldur tilkynning flota- málaráðuneytisins áfram, að tími væri til kominn að halda burtu, ef svo skyldi fara að fleiri árásir yrðu gerðar á bátinn. Hann fór því í kaf með kafbátinn og sigldi honum út úr höfninni í kafi. FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU. HAILE SELASSIE KEMUR AFTUR EFTIR 5 ÁR að er búist við, að Haile Selassie, konungur kon- unganna, haldi innreið sína í Addis Abeba á morgun (föstu- dag) 2. maí, en þá eru rjett 5 -• liðin frá því að hann varð að flýja höfuðborg sína fyrir ítöl- um. Japanar „aðvara" I gær voru birtar athuga- semdir bæði í Þýskalandi og Japan við hið aukna eftirlits- svæði Bandaríkjanna í Atlants- hafi. Nýjustu fregnirnar í sam- bandi við þetta eftirlitssvæði eru þær, skv. upplýsingum Knox flotamálaráðherra, að allur Atlantshafsfloti Banda- ríkjanna heldur nú uppi eftirliti á svæðinu. Meðal stjórnmálamanna í Þýskalandi var í gærkvöldi lát- in í ljós sú skoðun, að ameríski Atlantshafsflotinn ætt iað reka njósnir fyrir breska flotann, og Atlantshafsflotinn ætti að reka slíkar njósnir, og að taka raun- verulega þátt í sjóorustum. í sambandi við þá yfirlýsingu Roosevelts, að amerísk herskip muni hiklaust fara inn á ófrið- arsvæði ef það telst nauðsyn- legt, vegna öryggis vesturálfu heims, er látin í ljós sú skoðun í Berlín, að Þjóðverjar geti látið sjer í Ijettu rúmi liggja hvað Bandaríkin geri í þessu efni. Stefna Þjóðverja hafi Verið skýrt mörkuð í ræðu Hitlers, er hann sagði að hvert það skip, sem kemur í skotfæri við þýsk tundurskeytarör innan hins yf- irlýsta ófriðarsvæðis, muni verða skotið í kaf, án tillits til þjóðernis. Japönsk stjórnarvöld ljetu í ljós þá skoðun í gær, að líta yrði á hið aukna eftirlitssvæði Banda ríkjánna sem viðjeitni til árás- ar. Fulltrúi japönsku stjórnar- innar sagði í gær, að ,,að svo stöddu væri þó ekki ástæða til þess fyrir Japana, að hefja eft- irlitsferðir um Kyrrahaf, en þeir myndu fylgjast nákvæmlgea með þi'óuninni á Atlantshafi á næstunni“. Hvert þessi þróun stefnir verður m. a. sjeð af atkvæða- greiðslu í utanríkismálanefnd öldungadeildarinnar í gær, en nefndin feldi með 13 atkv. gegn 10 að mæla með frumvarpi sem lagt hafði verið fram í þinginu um að banna Roosevelt að láta herskip fylgja skipaflotum, nema leita til þess áður sjer- staks levfis þingsins. Kjörorð Rússa Mðal helsta kjöroröa Rússa i sam- bandi við 1. maí hátíðahöldin i dag eru (skv. fregn frá Stokkhóhui): F.fling rauða hersins, en einnig er lögð mikil áhersla á „friðar- og hlutleysis- stefnu sovjetríkjamna". „Pravda’ lagði í gær höfuðáherslu á hið „alþjóðlega sjereinkenni sovjet- anna“. Blaðiö talaði um að kommún- isminn myndi leggja undir sig allan heiminnn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.