Morgunblaðið - 12.08.1941, Blaðsíða 2
MORítUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 12. ágúst 1941.
rjar tefla fram ógrynni
á tveim vígstöðvum
Innikróunarorusta um Odessa
Rússar viðurkenna
undamhald i Ukrainu
IH ERST JÓRN ARTILKYNNIN GU Þjóðverja í
gærkvöldi er lögð áhersla á sókn þýska hersins
á Leningrad- og Ukrainu-vígstöðvunum. Segja
þeir sóknina ganga þar eftir áætiun.
Á Ukrainu-vígstöðvunum sje hinum flýjandi óvini
veitt eftirför og sjeu fremstu vjelahersveitir Þjóðverja
komnar austur til Nikolayev, sem er um 80 mílur austur
af Odessa. Stendur borg þessi við Bug-fljótið og er skamt
írá henni til Svartahafsstrandarinnar. Nefna Þjóðverjar
orustur sínar á þessum slóðum innikróunarorustur og er
auðsætt, að þeir stefna að því að umlykja Odessa.
Eftir hina miklu gereyðingaorustu við Urnen, segja Þjóð-
verjar að viðnámsþróttur Róssa á þessum stöðum sjé mjög
lamaður.
Á Leningrad vígstöðvunum
og í Eistlandi segja Þjóðverjar
sókn sína og ganga samkvæmt
áætlun.
Rússar segja hinsvegar að í
Eístlandi berjist rússneski her-
inn af meíra kappi og engin
merki uppgjafar sje að sjá af
baráttu hans. T.d. sje unnið dag
og nótt i hergagnaverksmiðjum
höfuðborgarinnar, Tallin. — Á
miðvígstöðvunum við Smolensk
greina Rússar ennþá frá hörð-
um bardögum þýsks og rúss-
nesks fótgönguliðs og ljett-
vopnaðra hersveita.
Rússar játa að þeir láti und-
an síga á Ukrainu vígstöðvun-
Um, en undanhaldið sje full-
komlega skipulegt og kaupi
Þjóðverjar framsókn sína um
hverja mílu vegar dýru verði.
Þó telja Rússar, að við Uman,
þar sem Þjóðverjar lýstu fyrir
tveim dögum endalokum „ger-
eyðingarorustu", sje enn þá
barist af kappi.
Annars segja Rússar að Þjóð-
Verjar tefli nú fram meiri her-
afla á Ukrainu og Leningrad
vígstöðvunum en nokkru sinni
fyr. Nýjar hersveitir streymi
stöðugt fram 1 skörð þeira, sem
týnt hafi tölunni í hinum tryltu
áhlaupum þar sem ekkert sje
skeytt um mannfall. Lofthern-
aður sje og að færast algleym-
ing.
Þjóðverjar leggi nú alt kapp
á það p,ð ná árangri, er geti orð-
ið áróðursmatur fyrir dr. Göbb-
els,. sem farinn sje að finna til
þess, að þýska þjóðin sje orðin
langþreytt á að heyra um ger-
eyðingu rússneska hersins en
verði þó hinsvegar að sætta sig
við þá staðreynd að þýski her-
inn eigi öflugri mótspyrnu að
mæta. Taka Odessa eigi að
koma til uppbótar á það, að
Þjóðverjar hafi orðið að fresta
innreið sinni í Kiev, Leningrad
og Moskvá.
í London er látið í ljós, að ef
til vill kunni svo að fara að
Odessa falli fyrir þessari miklu
sókn þýska hersins.
Það er og álitið, að Kiev sje
hætta búin, ef fregmrnar Um sigra
Þjóðverja á orustusvæðinu suð-
austur af borginu — á svæðinu
milli Dniester og Dnieur reyníst
sannar.
Engin staðfestiug hefir ennþá
fengist á því í Moskva, að Þjóð-
verjar sjeu komnir með vjelaher-
sveitir sínar til Nikolayev. En ef
svo reyndist, væri Odessa í mik
illi hættu, þar eð hringur væri
þá sleginn 'um borgina.
Líkur eru og til, að mikið rúss-
neskt herlið væri þá innikróað,
því vitað er, að Rússar höfðu mjög
öflugan her til varnar í Ukrainu.
Seint í gærkvöldi var frá því
skýrt, að Rússar hefðu gert, mik-
inn usla í finskum og þýskum
hersveitum á Murmansk-vígstöðv-
unum. Beittu Rússar þar fyrir sig
flugliðinu, sem barðist, þar af
mikilli hreysti.
Þá var og skýrt á loftárás
Rússa á Berlín í fyrrinót.t. Margar
rússneskar flugvjelar tóku þátt í
árásarleiðangrinum og komu allar
heim aftur nema ein.
Varpað var niður þúsunduin
íkveikjusprengja og tundur-
sprengja. og urðu miklar spreng-
ingar.
Engar þýskar tlug-
vjelar yfir Englandi
Itilkynningu breska flugmála
ráðuneytisins í gærkvöldi
er sagt, aS engar þýskar flug-
vjelar hafi veriS yfir Bretlandi
s.L sólarhring.
Upp á síðkastið hefir svipuð
tilkynning stundum heyrst. —
Stundum hefir hinsvegar ver-
ið frá því skýrt, að einstaka
þýskar flugvjelar hafi komið til
árása. Er af þessu auðsætt að
mjög hefir dregið úr loftsókn
Þjóðverja á Bretland.
Örlagarik
ákvörðun
væntanleg
I Vichy
Vichystjómm sat á fundi
megin hluta dagsins í gær.
Eru getur leiddar aS því, að
kröfur Þjóðverja um ítök í Af-
ríku nýlendum Frakka muni
hafa verið til umræðu og ef til
vill kröfur um franska flotann.
Petain skipaði forsæti á fund-
inum. Auk þess hefir hann átt
viðræður við ýmsa franska
stjórnmálamenn.
Af þeim örðugleikum, sem
stjórnin sýnist eiga í um niður-
stöðu umræðna sinna, þykir það
auðsætt að um mjög örlagarík-
ar ákvarðanir sje að ræða, — í
London er talið að hinir þýsk-
lunduðu ráðherrar í stjórn Pe-
tains, sjeu þess fýsandi að geng-
ið sje að öllum kröfum Þjóð-
verja.
Orðrómur hefir komist á
kreik um að Bonnet stæði í trún-
aðarsambandi við Þjóðverja og
að þeir vildu nú efla áhrif hans
til þess að ljetta sjer róðurinn
gegn Petain, sem talinn er halda
nokkuð í hemilinn á Darlan,
sem í öllu er sagður vilja þókn-
ast Þjóðve'rjum.
í Vichy var það látið í veðri
vaka í gær, að opinber tilkynn-
ing yrði gefin út seint um kvöld-
ið um viðræður stjórnarinnar.
Eri engin slík tilkynning kom
þó.
Kanadamenn
by^Síja skip
raeðju, sem f lotamálaráðh.
| *■ Kanada, Mr. McDonald
flutti í gær, ræddi hann skipa-
hyggingar Kanadamanna og
þá aðstoð sem Bretar ættu í
vændum frá Kanada í orust-
unni um Atlantshafið.
Þegar að stríðið braust út,
sagði ráðhertann, átti Kanada
aðeins 13 skip í sjóher sínum.
Nú er floti vor 245 skip. Og í
skipabyggingaverksmiðjum
Kanada er unnið með feyki
hraða. Á næstu árum mun
verða bygður flutningaskipa-
floti sem nemur 1 miljón smá-
lesti. Verða þau aðallega af 2
stærðum, 3 þúsund smálesta og
10 þúsund smálesta. Sum þess-
ara skipa verða tilbúin á þessu
ári, mörg árið 1942 og árið 1943
verður flutningadkipaflotinn
aukinn risaskrefum.
Er nú þegar unnið bæði dag
og nótt í skipasmíðastöðvum
Kanada.
|iuunnninimiiu)immHifflnimnmiinuniaiiaiiniiinmniimiimiiimnimumiuiimHHiiiiiiHinimiuiNUUiHUiuuuittuiii
I Japanar stefna út \
I í nýja styrjöld j
[ við Kyrrahaf [
| Singapore iykillinn að öryggi |
| Bretaveldis í Asiu (
I — Menzles I
si i
iimimniimmfflmiimnmHutitiimic iffliimuiifflfflfflnimimiimiffliimim
VIÐHORFIN í Austur-Asíu máhinum benda enn-
þá til þess, að til störtíðinda kunni að draga
jþar eystra í náinni framtíð.
í Japan fer fram gífurlegur þernaðarviðbúnaður. Er
nú áformað að allur iðnaður Japana og hverskonar fram-
leiðsla verði skipulögð í þágu hernaðarins. Japönsk hlöð
tala ura, að hið mikla hlutverk, sem Japan hafi tekist á
hendur leggi þjóðinni þungar skyldur á herðar, en sem
henni sje Ijúft að uppfylla, því að framtíð hennar sjálfrar
og allrar Austur-Asíu sje nú „undir framtakssemi Japana
komin“, eins og blaðið Niehi Nichi í Tokio kemst að orði.
Jafnhliða umræðum í þessum dúr ráðast blöðin ákaft á Breta,
En tim leið og Japanir færast
stöðugt í aukana treysta samveld-
isþjóðir Breta stöðugt varnir sín-
ar og svara Japönum fullum hálsi.
Ástralska, stjórnin sat á fund-
um fram á nótt í fyrradag og all-
an daginn í gær voru stöðugir
fúndir. Sátu æðstu yfirmenn land-
hers, flughers og flota Ástralíu-
manna þessar ráðstefnur og tóku
þar þátt í umræðum. Er talið, að
stjórnin hafi með þessu verið að
treysta sainbandið milli hinna
pólitísku forvstu og fulltrúa land-
varnanna
Mr. Menzies, forsætisráðherra
Ástralíu, sagði í gær, að Ástralíu-
menn stæðu þess albúnir að berj-
ast fyrir örvggi lands síns og
Bretaveldis. „En lykillinu að Ör-
vggi voru er Singapore, hin mikla
flotastöð Bretaveldis“.
Her Ástralíumanna nemur nú
fiOO |)úsuiid manna, sagði Mr.
Menzies. Þar af eru 200 þús. full
lijálfaðar heimsveldis hersveitir,
sem munu berjast þar sem þeirra
er þörf.
í fregnum frá Bankok er skýrt
frá því, að stjórnin í Thailand
hafi í engu hvikað frá stefnu sinni
og hafi því enn á ný verið lýst
yfir, að þjóðin myndi svara árás
á landamæri sín með öllum hugs-
anlegum varnarráðstöfunum. Hef-
ir stjórnin í Thailand sent her
sveitir til landamæra Indo-Kína.
t Singapore var því lýst yfir í
gærdag, að Bretar og Bandaríkja
menn ljetu ekkert koma, sjer á ó-
vart í þessum málum og allar ráð-
stafanir væru miðaðar við það, að
vera viðbúinn hverju sem að hönd
um hæri.
í Singapore er engin dul dreg-
in á það. að afstaða Bandavíkj-
anna hafi úrslitaþýðingu. ef til
átaka komi á Kyrrahafi. En stefna
Bandaríkjanna virðist vera full
mörkuð.
í ræðu, sem Cordeil Hull, utan-
ríkismálaráðherra Bandar^kjanna
flutti í gær, gerði hann að um-
talsefni þá tálvon, sem suniir lítt
framsýnir stjórnmálamenn ælu í
brjósti um að Bandaríkin Ijetu
bugast fyrir hótunum og semdu
við Japana á þeim grundvelli, sem
þeir nú þegar hefðu valið s.jer.
En ef vjer gerðum það, sagði
Hull, brytum vjer þvert. ofan í
yfirlýsta tefnu vora síðastliðin 2
ár.
Þióðhátíð Vest-
• mannaeyja
Vestmannaeyjum í gær:
jóðhátíðin hepnaðist ekki
sem skyldi, þareð fresta
varð öllum hátíðahöldunum
fyrri daginn, til sunnudagsins.
Inni í Herjólfsdal stóð vindur-
inn beint upp í dalinn og var
það hvast, að ekki þótti gerlegt
að halda áfram með hátíðahöld-
in. Var því aðeins dansleikuh 1
samkomuhúsinu um kvöldið.
Seinni daginn (sunnud.) var
veður hið besta, sjerstaklega
var fagurt veður um kvöldið.
Öll hátíðahöldin fóru því þann
dag fram í dalnum. Var þar
margt til skemtunar; allskonar
íþróttir, ' söngur (blandaður
kór), lúðrablástur, ræðuhöld,
flugeldar og brenna. Um kvöld-
ið var dansað á tveimur pöliuin
þar til lýsti af degi. Um 400
manns var gestkomandi 1 bæn-
um. Fór margt af því í dag með
e.s. Þór. Bj. Guðm.