Morgunblaðið - 22.08.1941, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagrar 22, ágúst 1941,
Manntfón ék aasturvigstöðvanam: 5 mtlfónir Rússa
(seg)a Þféðverfar) 2 milfónir Þjóðverja (segja Rússar)
Rússar viðurkenna fall Gomel
Harðir bardagar á
unum 1
ARÐAR ORUSTUR standa yfír á öllum aust-
urví^stöðvunuin, en heiftarlegastir virðast
bardagamir vera á Leningrad-vígstöðvun-
um, við Novgorod og við Odessa Þjáðverjar tilkynna, að
þeir hafi hertekið borgimar Narva og Kingisepp við Finn-1
landsflóa, um 100 km. suðvestur af Leningrad, og herða
sóknina í áttina til borgarinnar.
Rússar hafa ekki staðfest þessar sigurfregnir, en við-
urkenna hinsvegar að þeir hafi flutt her sinn frá Gomel.
Þá tilkynna Þjóðverjar fall Novgorod, eh Rússar segja,
að grimmilegir bardagar standi yfif á þeim vígstöðvum.
MARKMIÐIÐ
Talið er, að markmiðið með sókn Þjóðverja á þessum slóðum
sje einkum það, að rjúfa sambandið milli herja Voroshilöffs á
Leningrad-vígstöðvunum og Timoshenkos á mið-vígstöðvunúm.
Þjóðverjar tilkynna, að þeir hafi tekið borgina Kherson her-
skildi, en sú borg er skamt suðaustur af Nikolayeff.
í Lundúnafregnum er á það bent, að sú borg sje á vestur-
bakka Dniepr og að engar líkur bendi til þess að hersveitum Þjóö-
verja hafi tekist að komast yfir ána fyrir norðan Kiev.
Þjóðverjar halda því fram, að Rússar geri tilraunir til þess
að flytja her sinn á brott frá Odessa.
MANNTJÖNít)
Lozovosky, talsmaður rússnesku stjórnarinnar Ijet svo um
mælt í tilefni af þessari fregn, að Odessa vasri hvorki Dunkirk
nje Tobruk, heldur Odessa. Við staðhæfingu Þjóðverja um mann-
tjón Rússa og hergagna, en það telja þeir 5 miljónir óvirkra her-
manna, þar af 1 milj. 200 þús. fanga, 14 þús. skriðdreka, 14 þús.
fallby^sur og 11 J)ús. flugvjelar, sagði hann að manntjón Þjóð-
verja væri 2 miljónir, þar af 1 miljón fallnir. Kvað hann það eiris-
dæmi í sögunni að her biði slíkt tjón á svo skömmum tíma.
Það væri að vísu rjett að Þjóð-
verjar hefðu á valdi sínu all-víð-
áttumikil rússnesk Iandflæmi', eu
hins bæri að geta, að þeir fyndi
ekki annað fyrir í sókn sinni en
brunnar borgir, eyðilögð mann-
virki og engin matvæli, og hvar-
vetna eigi' þeir að búa við hatur
fólksins og skemdarstarfsemi smá-
skæruflokka.
f fregnum frá London seint í
gærkvöldi var frá því greint, að
Rússar neituðu að hafa sprengt
Dnjepropetrovsk, orkuverið mikla,
í loft upp.
Ávarp Voroshiloffs.
Voroshiloff marskálkur hefír
gefið út ávarþ til Leningradbúa,
þar sem hann skorar á þá að verj-
ast til hins ítrasta og hvetur
verkamenn til þess að auka her-
gagnaframleiðsluna og mynda
hjálparsveitir, er temji sjer með-
ferð vjelbyssna og riffla.
Ukraina.
Fregnir frá vígstöðvunum í
Ukrainu eru óljósar, en alt bend
ir til þess, að undanhald hers
Budjennys markskálks sje skipu-
lagt og að honum hafi tekist að
koma meginher 3Ínum í öruggari
varnarstöðvar á eystri bakka
Dnjeper-fljóts. Hersveitir þær, er
verja undanhald meginhersins,
eiga í grimmilegum bardögum við
framvarðasveitir Þjóðverja og
verjast af hinni mestu hreysti.
Rússar tilkynna, að þeir hafí
sprengt í loft upp tvö stór her-
skip, er vorn í smíðum í Nikolay-
eff, áður en Þjóðverjar náðu horg-
inni á sitt vald, en Þjóðverjar
höfðu tilkynt, að þeir hefðu náð
skipum þessum óskemdum.
Mac Kenzie
King er é móti
samveldis-
strfósstjórn
70 þúsund flugmanna-
ðfoi i Kanada
ForsaetlsráSherra Kaoada,
Mac Kenzie Xing er
önnum kafinn., í:. .Lon4<>». þessa
dagana. í gær sat hann fijnd
með stríðsstjórninni bresku.
Síðar á.ttj hann tal .við blaða-
menn í upplýs.ingamáljaíáðu-
neytinu í London.
Hann skýrði frá því, að hann
væri ekki hlyntur því, að sett
yrði á stofn sjerstök samveldis-
stríðsstjórn í Londón með full-
trúum frá öllum nýlendum
Breta. Hann sagði, að slíkt yrði
of vafstursamt. T. d. hefði hanii
ekki á fyrsta fundi sínum með
bresku stríðsstjórninni, verið
reiðubúinn að taka ákvarðanir í
ýmsum málum, sem í'yrir lágu,
án þess að ráðfæra sig fyrst við
meðráðherra sinn í Kanada.
Hefði þá fyrst þurft að senda
þeim skeyti og síðan kalla þá
saman og loks bíða eftir svari
frá þeim.
Mac Kenzie King kvaðst vera
kominn til London til að skýra
frá því að Kanadamenn myndi
berjast með Bretum þar til yf-ir
lyki. Það hefði aldrei verið neinn
vafi á því, að Kanada myndi
fylgja Bretum,
Þá ræddj forsætisráðherrann
Við loftvarnabyssurnar
Mikið getur olt.ið á því, að loftvarnabyssurnar sjen í lagi,
ef óvinaflugvjelar skyldu aít í einu steypa sjer yfir skipið. —
Þessir breskn sjoxnenn, setn á Hiyndiuui sjást, er.u að athuga
skotfæriu; bak. við þá er loftvarnabyssu samstæða, af svo-
nefndri „Pom-Pom“-gerð
FRAMH. Á SJÖTTU SlÐB
Bretar aðvara
stjórnina í Iran
FRÁ ÞVÍ var skýrt í London í gærkvöldi, að ekkert svar hei'ði
borist til bresku stjórnarinnar ennþá við orðsendingu, sem
send var s.I. l&ugardag til stjórnarinnar í Iran.
í ORÐSENDINGUNNI benti breska stjórnin á, og baðst skýr-
ingar á því, að óeðlilegur fjöldi Þjóðverja væri í Iran og
sumir Þjóðverjar væru í ábyrgðarmiklum embættum.
BENT ER Á í orðsendingunni, að þetta geti illa samræmst við
hlutleysisstefnu landsins og að Bretar muni ekki þola, að
Iran falli í hendur óvinum þeirra vegna legu landsins, sem
sje svo hernaðarlegá þýðingarmikil. '
I LONDON er ekki búist við að svar við þessari orðsendingu verði
Bretum í vil.
ÞESSI HARÐORÐÁ orðsending hefir valdið heilabrotum um, áð
Bretar og jafnvel Rússar í sameiningú, hyggist að trygga
aðstöðu sína í Iran með harðri hendi, ef samningaleiðin dug-
ar ekki.
Fulltrúadeildin
fær boðskap fri
Roosevelt urn
Atlantshafs-
fundinn
Roosevelt forseti hefir nú sent
fulltrúadeilcí Bandaríkja-
þings boðskap, þar sem hann skýr-
ir frá viðræðufundi þeirra Cbur-
chills á Atlantshafi.
Segir þar meðal annars, að sá
friður er fengist með samningum
við nazista, yrði aðeins til þess að
gefa þeim tóm til þess að undir-
búa nýja árásarstyrjöld, og þá
kæmi röðin að ríkjum vesturálfu.
Allir vissu, hve mikið mætti
byggja á loforðum árásarríkjanna
og því myndu Bandaríkin halda
áfram að styrkja lýðræðisríkin til
sigurs.
Þá kvað hann einnig hafa verið
rætt, nm stuðning Bandaríkjanna
og Bretlands við Sovjet-Rússland.
Japanar
jjleggja undir
sig eyjaklasa
í Kyrrahafi
OKUR
Breskxa stjórnin birti í gær tii-
kynningu um ráðstafanir,
sem gerðar verða til að koma í
veg fyrir okur á matvælum.
Eru ráðstafanir þessar all-víð-
tækar og hegning fyirr okur á
lífsnauðsynjum mjög þyngd.
ordell Hull utanríkismála-
^ ráðherra Bandaríkjanna
skýrði frá því, að Bandaríkja-
stjóm litii alvariegum augum á
það, að Japanar væru að leggja
Undir sig eyjaklasa einn, sem
er um 100 km. frá Filipseyjum.
í fyrra lögðu .Japanar undir
sig nokkrar eyjar á þessum
slóðum og var þvi tekið heldur
illa í Bandaríkjunum þá, en nú
sjest á nýjum japönskum
landabrjefum, að Japanar hafa
enn bætt við yfirráðasvæði sitt
á þessum slóðum.
Hull skýrði frá því, að enn
hefði ekkert nýtt gerst í sam-
bandi við þá 100 Bandaríkja-
þegna, sem ekki fá leyfi til að
fara frá Japan. en verið
væri að athuga það mál gaum-
gæfilega og bjða átekta.
Hótun við Japana,
Japanska frjettastofan Domei
skýrir frá grein í japönsku blaði
sem skrifar, að samkomulag
Churchills og Roosevelts væri
bein hótun við Japana.
Næturvörðor er í Reykjavíkur
Apóteki og Lyfjabúðinni Iðunn.