Morgunblaðið - 02.09.1941, Side 2
2
MORfMJNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 2. sept. 1941.
Rússar hörfa á Kirjálaeiðinu
Aftur fyrir gömlu finsk-rússnesku landamærin
Fregnir um friðar-
umleitanir Finna
bornar til baka
Gagnáhlaup Rússa
í Ukrainu
Fregnir frá Stokkhólmi, sem birtar voru í London
í gærkveldi, hermdu, að Rússar hefðu hörfað
með herlið sitt á Kirjálaeiðinu, til Rajajoki,
að baki gömlu finsk-rússnesku landamæranna. Með því
hafi varnarlína Rússa að norðan færst mjög í áttina til
Leningrad.
Fyr í gær höfðu borist fregnir frá Helsingfors um
að Finnar hefðu tekið Summaa og Terijoki á suð-vestan-
verðu Kirjálaeiðinu, við járnhrautina frá Viborg til Lenin-
grad.
Báðar þessar borgir, Summaa og Terijoki, komu mjög við
sögu í síðustu styrjöld Finna og Rússa. Vörn Finna við Summaa
varð víðfræg í síðasta þætti þessarar styrjaldar árið 1940.
Fregnir hafa gengið um helgina í Washington og London á
þá leið, að Finnar væru að leita fyrir sjer um friðarsamn-
inga vfð Breta og Rússa, eftir að þeir væru búnir að ná aft-
ur landamærum sínum frá því árið 1940, og hafa flutning-
ar Rússa á liði sínu til Rajajoki verið settar í samband við
þessar fregnir.
En í gærkvöldi birti hin opinbera finska frjettastofa yfirlýs-
ingu, þar sem fregnir þessar eru afdráttarlaust bornar til baka og
ságðar vera áróðursfregnir bornar fram í ákveðnum tilgangi.
Kirjálaeiðið.
Roosevelt
livetur tll auk-
innar fram-
leidslu
TIl aÖ slgra
Hftller
FRANKLIN D. Roosevelt
Bandaríkjaforseti flutti
útvarpsávarp í gærkvöldi í
tilefni af degi vinnunnar, sem
haldinn var hátíðlegur vestra.
í ræðu sinni hvatti 'forsetinn
verkamenn í Bandaríkjuniifn
til þess að auka afköst sín í*ú,
er herir Þjóðverja hefðu í
fyrsta skifti verið stöðvaðir
og hann vísaði á bug ötlum
tillögum um að saminn yrði
friður við Hitler.
ROOSEVELT sagði, að ábyrgð-
in væri mikil, sem hvíldi á
herðum ’ amerískra verka-
manna í þessari rudda-
legustu og hræðilegustu styrj-
. öld, sem nokkru sinni hefði
verið háð — það hlutverk að
gy rsigra Hitler.
HÁNN sagði, að óvinirnir vissu,
P að Tamleiðslan hefði aukist
mikíö vestra, og að vörurnar
^væru fluttar til vígstöðv-
anna gegn Hitlerismanum.
En hann sagði, að ef fram-
leiðslan yrði ekki enn aukin
og auknar ráðstafanir gerðar
til þess ða tryggja það, að hún
kæmist til vígstöðvanna, þá
kynnu óvinirnir að nota tæki-
færið til þess að sækja áfram
á gömlum og nýjum víg-
stöðvum.
EINMITT nú, er dregið hefði úr
sókn Þjóðverja, væri ástæða
til að efla framleiðsluna, og
sleppa allri umhugsun um að
semja frið. Jeg hefi verið beð-
ínn af mönnum, sem vilja
umfram alt frið og af áhang-
endum nazismans, að hefja
friðarsamninga við Hitler,
vegna þess, að við getum ekki
sigrað. Jeg hefi neitað þessu
og jeg neita því enn.
JEG veit, að jeg tala í nafni
allrar amerísku þjóðarinnar
er jeg segi, að við munum
leggja fram okkar fulla skerf
til að sigra Hitler.
Mannfall
Þjóðverja
MDskvaútvarpið sagði í gær-
kveldi, að Þjóðverjar hefðu
í 10 vikna styrjöld í Rússlandi
mist 2.500.000 manns, þar af
1.000.000 fallna.
Sókn Breta
I loftl, er þrlðja
árið hefst
Mesti dagurinn í lofthern-
aði Breta frá því stríð-
ið hófst“ — þannig skrifuðu
bresk Vlöð um hernaðaraðgerð-
irnar í lofti í fyrradag og fyrri-
nótt. Þannig lauk öðru ári
styrjaldarinnar um það er lýtur
að bardögum í Vestur-Evrópu.
Frá því á fyrsta afmælisdegi
styrjaldarinnar í fyrra, hef;r
blaðinu verið snúið við. Þá var
,,orustan um Bretland" *— sókn
þýska hersins á London og alt
England á hámarki, en til þess
að sýna breytinguna frá því þá
nægir að benda á, að loftvarna-
merki var ekki gefið í eitt ein-
asta skifti í London allan ágúst-
mánuð nú.
í fyrradag voru ( að því er
fregnir frá London herma)
breskar flugvjelar í árásarleið-
öngrum yfir Ermarsund látlaust
allan daginn. Auk árása á her-
stöðvar í Norður-Frakklandi,
gerði fljúgandi virki árás í birtu
á Bremen.
í fyrrinótt gerðu breskar flug-
vjelar loftárás á Essen og Köln.
FRAMH. Á SJÖTJNDU 8ÍÐU
Fyrstu fregnirnar um þessar
væntanlegu friðarumleitanir
Finna bárust. frá sendiherra
Finna í Washington. Finskur
embættismaður í Stokkhólmi er
sagður hafa látið svo um mælt
við frjettaritara -,,Daily Tele-
graph“ þar, að Finnar kynnu að
leita aðstoðar sendiherra Banda
ríkjanna í London, Mr. Win-
stons, ef þeir reyndu að ná samn
ingum við Breta og Rússa.
Fulltrúi þýsku stjórnarinnar
sagði við blaðamenn í Berlín í
gær, að sjerfriður Finna við
Rússa kæmi ekki til mála, nú er
Finnar væru á sigurgöngu inn í
Rússland. Hann vakti einnig at-
hygli á því, í þessu sambandi, að
Mannerheim marskálkur hefði
fyrir aðeins nokkrum dögum
tekið á móti riddarakrossi
þýska járnkrossins frá Hitler.
SÓKN AÐ SUNNAN.
Samtímis fregnunum um
sókn Finna að Len’ngrad
að norðan, hafa borist
fregnir frá Berlín, um
væntanlegan ósigur rúss-
neskra hersveita, sem um-
luktar eru hjá Novogorod,
á vígstöðvunum fyrir sunn-
an Leningrad.
Þjóðverjar segja, að veður-
skilyrði á þessum vígstöðvum
sjeu mjög slæm um þessar mund
ir, látlausar rigningar, en þeir
segja, ða horfur rússneska hers-
ins þarna, sjeu þó mjög slæmar.
FRAMH Á 8JÖUNDU SÍÐU
„Tyrkneski
herinn síend-
ur vörð“
Aðstaða Tyrkja
ótrygg
Tyrkneska þjóðin mintist
þess hátíðlega í síðast-
liðinn sunnudag, að þá voru lið-
in 19 ár frá því að viðrersn þjóð-
arinnar hófst undir forystu Ata-
túrks. Dagurinn var hátíðlega
haldinn með því að tyrkneski
herinn var hyltur, sem vörður
hinnar nýju tyrknesku menn-
ingar.
í Ankara var haldin mikil
hersýning með þátttöku land-
hers og sjóhers.
Hin mikla áhersla, sem Tyrk-
ir lögðu á það þenna dag, að
auglýsa herveldi sitt, þykir ótví-
íætt benda til þess, hve þeim
þykir aðstaða sín ótrygg, nú er
þeir eru umsetnir af ófriðar-
þjóðum á alla vegu. Fyrir nokkr
um mánuðum lágu landamæri
þeirra aðeins á einum stað að
löndum ófriðaraðila, að vestan
(Búlgaría og Grikkland). Með
þátttöku Rússa í stríðinu, og
með innrás Breta í Sýrland og
Iran, hafa ófriðaraðilarnir sótc
fram til landamæra þeirra á all-
ar hliðar.
Loftárás Rússa
á Berlín
Utvarpið í Moskva skýrði frá
því í gærkveldi, að rúss-
neskar flugvjelar hefðu í fyrri
nótt gert loftárás á Berlín, og
auk þess á Danzig og aðrar
borgir í norð-austur Þýskalandi
Látlatísar
íoftárásír
í Norðttr-
Afríkti
riðja ár stríðsins hefst á
suðurvígstöðvunum (eins
og kalla má Miðjarðarhafs- og
Austurlandavígstöðvarnar) með
hörðum loftárásum á báða bóga
og með herjunum í vígstöðu.
Fregnir frá herstöðvum Breta
við Miðjarðarhaf herma, að
oreskar flugvjelar hafi í fyrra-
kvöld á sama hátt og næstum
hvert einasta kvöld allan ágúst-
mánuð. gert harða árás á höf-
uðborg Libyu, Tripoli. í yfirlits-
skýrslu um lofthernaðaraðgerð-
ir í ágúst, segir herstjórn Breta
við Miðjarðarhaf, að auk næst-
um látlausra næturárása á her-
stöðvar óvinanna í Libyu, Ítalíu,
Grikklandi og Tólfeyanna,
hefðu dagárásir breskra flug-
hersins farið jafnt og þjett vax-
andi.
Óvinir Breta hafa á sama hátt
haldið uppi loftárásum á bresk-
ar herstöðvar, einkum í Alex-
andriu og við Suezskurð. Til-
kynt var í London í gær, að lít-
ilsháttar eignartjón hefði orð-
íð í Alexandríu og við Suez í
loftárás, sem gerð var á þessa
staði í fyrrinótt.
Á landi hafa litlar hernaðar-
aðgerðir át tsjer stað þar syðra,
frá því að Þjóðverjar hrundu a-
l laupi Breta hjá Sollum 1 júlí. í
þýskum frjettum í gær var þó
skýrt frá því, að útrásartilraun
Breta frá Tobruk hefði verið
hrundið.
í fregnum frá London var
skýrt frá því, að fallbyssu-
skothríð Þjóðverja hjá Tobruk
hefði verið minni í gær heldur
FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU.