Morgunblaðið - 02.09.1941, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 02.09.1941, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 2. sept. 1941. MORGUNBLAÐIÐ 3 r ■ Atta þúsund mal og yfir 7400 tunnur Mentaskólinn i brakningl Óþoiandi ástand yfir helgina Uppgripa sildveiði síðustu dagana Frjettaritari Morgunblaðsins á Siglufirði símar í gær, að mikil síld hefði borist til Siglufjarðar yfir helgina. Hefir síldin veiðst á Grímseyjar- sundi og enn virðist ekkert lát á veiðinni. Alt er enn í óvissu um það, hvenær kensla geti haf- ist í Mentaskólanum að þessu sinni. Mentaskólinn er á hrakn- ingi með húsnæði og óvíst enn hvernig úr rætist. Fiskiskipin hafa komið inn á hverju kvöldi og notað dimmuna til að losa í bræðslu og salt. Um helgina hafa komið 27 skip með tæp 8 þúsund mál. Söltun yfir helgina á Siglufirði hefir numið 7412 tunnum. Mesta söltun höfðu þessar stöðvar: Ingvar Guðjónsson 2200 tunnur, Sunna h.f.; 1504 tunnur. Um 35 skip stunda nú veiðar með herpinót og mörg norðlensku skipin, sem hætt voru veiðum, eru byrjuð aftur. Tvö ísfirsk skip, sem hætt voru, eru komin aftur og byrjuð veiðar á ný. Rauðka og S. R. N. settu af stað vjelar sínar í fyrrakvöld og S. R. P. fer af stað í dag. Sama blíðviðrið helst nyrðra. Þessar upplýsingar fjekk Morgunblaðið í gær hjá rektor Mentaskólans, Pálma Hannes- syni. Hann sagðist því ekki að svo stöddu geta sagt neitt urn það, hvenær kensla gæti hafist í skólanum í haust. Ef úr ræt- ist með húsnæði, myndi kensla sennilega byrja seinnipart þessa mánaðar. En alt væri þetta í ó- vissu og kvaðst rektor mundu ræða málið við kenslumálaráð- herra þessa dagana. Óttast um Isigu- skip Eimskipa- tjelagsins að er farið að óttast um eitt af leiguskipum Eim- skipafjelagsins, því ekkert hef- ir spurst til skipsins síðan það ljet úr amerískri höfn 8. f. m. Skip þetta var með fullfermi af allskonar vörum hingað, alls um 2200 tonn. í því var m. a. 400 tonn af sykri, talsvert af mjölvöru, stór sending af gúmmívöru, bíladekkum og þess háttar, en þessa vöru vant- ar nú mjög tilfinnanlega. Sjó- klæðagerð íslands átti og vjela- sendingu með skipinu. Sjerstak- lega var ein vjelin, sem beðið var eftir, því að ýmiskonar vinnu er ekki unt að framkvæma, án þess að hafa þá vjel. En Sjó- klæðagerðin pantaði tvær slík- ar vjelar og á von á hinni með öðru skipi áður en langt líður. Þá mun mikið af allskonar vörum til iðnaðar, svo sem saum ur o. fl. hafa verið með skipinu, og kemur það sjer mjög illa að fá ekki þær vörur. Þó ekki verði sagt með neinpi vissu enn þá, hvað orðið hafi um } etta leiguskip, óttast menn hjer, að því hafi 'hlekst á. Ekki er vitað, að neinn ís- lenskur maður ,hafi verið á skipinu. Knattspyrnumót 4. fl. hjelt á- fraip í gær, Keptu Valur og K. R. Valut vann með 2 mörkum gegn 0. Ríkisstjóri tekur á móti skipshafninni aí „Esju“ Ríkisstjóri mun í dag kl. 11 taka á móti skipshöfninni á „Esju“, í sjerstöku tilefni, sem gerð verður nánar grein fyrir við móttöku skipshafnarinnar. 12 erlendir blaða- menn í heimsókn til íslanns Anæstunni er von á 12 erlend- um blaðamönnum hingað tii bæjarins. Koma þeir til að afla sjer heimilda í greinar um land og þjóð og dvöl setuliðsins hjer. I hópnum munu einnig vera nokkrir ljósmynda- og kvikmynda tökumenn. Blaðamennirnir eru frá ýmsum stórblöðum, þar á meðal „Times“ og einnig frá heimskunnum frjetta stofum, t. d. Associated Press. Ekki er kunnugt hve lengi blaða mennirni'r dvelja hjer á landi, en þeir munu ferðast eitthvað um landið. Áhugi fyrir íslandi hefir aldrei verið jafnmikill og nú hjá blöðum og almenningi ei’lendis. fslensku blaðamennirnir í Lon- don. Hingað er komin frjetta- kvikmynd frá London, sem meðal annars sýnir íslensku blaðamenn- ina, sem fóru til Bretlands í sum- ar í boði hjá upplýsingamálaráðu- neytinu í London. Kvikmynd þessi mun verða sýnd sem aukamynd í Nýja Bíó innan skams. ★ Svo sem kunnugt er, hefir Mentaskólinn verið á hrakningi með húsnæði síðan setuliðið kom hingað. Það tók strax Menta- skólann til umráða, en lofaði því jafnframt, að skólinn skyldi rýmdur áður en kensla byrjaði haustið 1940. En úr þessu varð þó ekki, og s. 1. vetur varð Mentaskólinn að kúldrast inni á tveim stöðum, í Háskólanum og Alþingishúsinu. Miklir erfið- ieikar eru á því, að Mentaskól- mn geti fengið þetta húsnæði aftur í vetur, því að húsnæðið á báðum þessum stöðum þarf að nota til annars. Það er ákaflega bagalegt, að setuliðið skuii halda Mentaskól- anum. Var því og yfirlýst, þegar setuliðið tók húsið, að þetta yrði aðeins til bráðabirgða, eða þar til ynnist tími til að koma upp byggingum fyrir setuliðið. Síð- an eru liðin tvö sumur og einn vetur, en alt stendur við það sama. Setuliðið er kyrt í Menta- skólanum og ekki sjáanlegt neitt fararsnið á því þaðan. Úr þessu er ekki unt að skoða það annað en meinbug af hálfu setuliðsins, að halda Menta- skólanum. Ekkert er vitaskuld auðveldara fyrir setuliðið en að koma upp húsnæði fyrir þá til- lölulega fáu menn, sem dvelja i húsi skólans. En með því að halda skólanum, er þessi elsta og virðulegasta mentastofnun landsins komin á hrakning. Slíkt er með öllu óþolandi. íplensk stjórnarvöld verða að ganga fast eftir því, að setu- liðið efni áður gefin loforð, bæði um jpetta og annað. Það er brýn nauðsyn, að Mentaskólinn fái aftur sitt eig- ið húsnæði í haust. Sbýrsla Húsaleigunefndar Yfir 2500 manns í fjölskyldunum sem vanta húsnæði Fjölskyldur og einhleypir komu enn til skráningar í gær HÚSALEIGUNEFND hefir nú unnið úr skýrsl- um þeim um húsnæðislaust fólk í bænum, sem safnað var dagana 28.—31. ágúst. í þeim 664 fjölskyldum, sem gáfu sig fram, er 2532 einstaklingar, þar af 927 börn og 35 gamalmenni. Samkvæmt upplýsingum, sem Mbl fjekk í gær hjá ritara Húsaleigunefndar, eru líkur til, að talsvert fleiri sjeu hús- næðislausir en skráðir voru, því að í gær komu enn margar fjölskyldur og einhleypir til skráningar. Hjer fer á eftir skýrsla Húsalc'gunefndar um fólkið, er kom til skráningar dagana 28.—31. ágú t: „AUs komu til nefndarinnar 664 fjölskyldur, sem í eru 2532 ein- staklingar og auk þess 207 ein- hleypingar, Hafa þessar fjölskyldur 927 börn á framfæri sínu, 1570 upp- komna einstaklinga og 35 gamal- menni. Af.þessum 664 fjölskyldum telja sig 430 verða húsnæðislausar hinn 1. okt. n. k. Hinn 14. maí s. 1. telja sig 217 hafa orðið húsviltir og 17 telja sig á götunni’ síðan 1. okt. s. 1. Ástæður til þess að tjeðar fjöl- skyldur eru húsnæðislausar, eða verða það, telja 399 vera af því að húseigendur, eða leigutakar, sem leigja þeim út af ibúð sinni, þurfi sjálfir að nota húsnæði sitt, eða nánustu vandamenn, sbr. 2. gr. húsaleigulaganna. 47 fjölskyldur hafa sagt sjálfar upp. Hinn 14. maí s. 1. fóru 8 fjölskyldur úr bænum í atvinnuleit, sögðu upp íbúðum sínum, en eru nú komnar aftur í bæinn og eru húsnæðis- lausar. Húsin hafa verið rifin ofan af 8 fjölskyldum. Vegna giftingar eða nýbyrjaðs búskapar telja sig 70 fjölskyldur vanta íbúðir. Ný- fluttar eru í bæinn 31 fjölskylda og 96 eru húsviltar af ýmsum á- stæðum, t. d. megnu ósamkomulagi leigusala og leigutaka, ómöguleg- um leiguskilyrðum eða ástæðum, sem nefndin mun fjalla um á sín- um tíma, svo og breytingum, er nefndin hefir fallist á að gjörð- ar hafi verið eða verði gjörðar á íbúðarhíisnæði, 5 f jöldkyldur hafa selt ofan af sjer húsin og standa því á götunni. 205 fjölskyldur höfðu til íbúð- ar 1 herbergi og eldhús (eldhús- aðgang eða jafnvel 1 herbergi, sem eldað var inni í). 224 höfðu 2 herbergi og eldhús, eða aðgang að eldhúsi. 116 höfðu 3 herbergi og eldhús og 24 höfðu meira. Ekkert húsnæði, eða einstök her- bergi, hö-fðu 95, og er það fólk, sem nýflutt er í bæinn, nýbyrjað að búa o. s. frv. Það, sem þessar fjölskyldur teljfi sig kómast af með minnst húsnæði, er: 221 vantar 1 her- bergi og eldhús, 344 vantar 2 herbergi og eldhús, 86 vantar 3 herbergi og eldhús og 13 vantar meira. Þó munu nokkrar fjöl- skyldur geta komist af með eld- húsaðgang. Af þessum fjölskyldum eru 83 ekkjur, eða konur með börn á framfæri. Nokkrar fjölskyldur búa nú í Austurbæjarbarnaskólanum, Franskaspítalanum o. .v 1 býr í Hljómskálanum, 1 í Bretabragga, 4 eða 5 í tjöldum og að minsta kosti ein í Málleysingjaskólan- um“. Þrlr kapplelkir ll.flokksmðtsins Ufanbæjar- menn löpnðu Asunnudaginn var voru háði’r 3 fyrstu kappleikirnir í haustmóti II. aldursflokks í knattspyrnu. Sex fjelög taka þátt í mótinu, og er kepninni hagað þannig, að það fjelag, sem tapar leik, er þarmeð úr mótinu. Fyrsti leikurinn var milli Hauka úr Hafnarfirði’ og Víkings. Unnu Víkingar hann með einu marki gegn engu. Leikurinn var frekar daufur, en þó að ýmsu sæmilega leikinn. Hafnfirðingarnir voru mjög litlar skyttur og raunar Vík- ingarnir líka. Settu þeir mark sitt úr vítaspyrnu, Samleikur Víkinga van betri en Hauka. — Sigurgeir Kristjánsson dæmdi þenna leik. — Skástur í liði Hauka virtist mjer hægri framvörður, en hjá Víking miðframvörður og vinstri innfram- herji. Annar leikurinn var milli Fram og K. R. og vann K. K. hann með 4 mörkum gegn engu. Var lið K. FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.