Morgunblaðið - 02.09.1941, Síða 6
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 2. sept. 1941
ÚR
DAGLEGA LÍFINU
Stofan lians Jónasar Hallgrímsson-
ar er vafalaust alveg meó sömu um-
merkjum og fyrir hundrað árum, er
liann átti þar heima. Jeg kom þangað á
dögunum og drakk þar kaffi hjá Sig-
ríði Thorarensen. en hún hefir einmitt á
þessu ári átt þar heima í 80 ár. Hún
kom þangaS sumarið 1861 með fóstru
sinni Ingileif Melsted, ekkju Páls Mel-
sted eldra, föður sagnfræðingsins.
Hann var amtmaður í Stykkishólmi
síðustu ár æfinnar. Og þaðan flutti
ekkja hans hingað og keypti Dillons
hús.
Konsúll Smith þurfti að sækja
um það fyrir hana til Englands, að
selja mætti húsið. Því Dillonsfólkið
varð að gefa sitt leyfi til þesss. Með
henni var sonur hehnar, Hallgrímur
Melsted, sem seinna var landsbókavörð-
ur og uppeldisdætur tvær, Anna og Sig-
ríður, en Sigríður, sem nú hefir átt
þama heima í öll þessi ár, er dóttir
Ragnheiðar, dóttur Páls Melsted eldra,
en afi hennar tók hana í fóstur, er faðir
tíermar Vigfús Thorarensen sýslumaður
dó.
Sigríður er kát og skrafhreifin, en
fólkið, sem hún talar rmpt um. er flest
löngu horfið, og er einkennilegt að
heyra hana tala um svo löngu liðna
daga.
Sigríður segir svo frá:
Það kom til orða, að fóstra mín
keypti húsið hjema við Tjömina af
henni frú Thorgrímsen, en hún vildi |
það ekki, því hún sagði að þar væri svo!
mikill rottugangur. Hún þekti það. þær
vom þar stallsystur í mörg ár hún og
Ingibjörg, konan hans Jóns forseta, og
þótti svo vænt um frú Thorgrímsen,
en hún var dóttir Jóns Vídalíns bróður
Geirs bfskups Hann var kapteinn og
fór víða um höf. Hann fór til Austur-
Indíu. Hann hafði lifað mörg æfintýri
og skrifað um þau langa ferðasögu.
Dóttir hans fór með honum í langferð-
ir. Hún átti apakött á sínum ungu dög-
um, sem einu sinni beit hana 1 vörina.
Hún kunni tungumál. Það var víst þess
vegna, sem útlendir komu oft og heim-
sóttu hana, Rosenöm og fleiri.
Ingibjörg og Jón komu altaf til
okkar þegar hann var á þingi.
Og hann í sínum ljósu buxum. Hann
gekk altaf á sumrin í ljqsum buxum.
Hann var yndæll. Einu sinni þegar
Ingibjörg kom, var hún í brúnni
„dragt“. Þá sagði mamma við hana,
þegar hún kom: „Þú ert ekki búin að
gleyma brúna litnum“. Hún mamma
vissi sem var, að Ingibjörg beið eftir
honum Jóni sínum í 12 ár. En brúni
liturínn táknar trygðina.
Já. Það var öðmvísi hjer í þá daga
en nú Þá gat maður sjeð tunglið hjema
úr glugganum koma upp undan Esj-
unni, og Stiftamtmannshúsið eða Stjóm
arráðið sem nú er kallað, sá maður
blasa við hjeðan, rjett eins og það stæði
undir hæðunum í Mosfellssveitinni.
Þetta útsýni hefir Jónas Hallgríms-
son haft, þegar hann var hjema. Það
var ekki undarlegt, þó hann gæti orkt
hjer falleg kvæði eins og þá var. Jeg
er oft að hugsa hvemig hjema hafi
verið í stofunni á kvöldin, þegar fólk-
ið sat í rökkrinu og sagði sögur. Þá
voru engin þessi háu hús. Þá sá maður
hjer loftið, og bæði himin og jörð.
En hjerna í stóra stofunni í norður-
endanum hjelt maddama Ottesen sín
fínu böll.
Er gamla konan hafði þetta mælt,
fómm við að skoða húsakynnin, litla
herbergið inn af stofunni, þar sem
Jónas Hallgrímsson hefir haft fyrir
svefnherbergi og Þórður vinur hans.
Þar er gamall homskápur. Alt með
kyrram kjörum. En gegnt honum er
gömul Borgundarhólmsklukka.
Þetta er einn dýrgripurinn minn, seg-
ir gamla konan- Þessi klukka hefir far-
ið margar ferðir til Hafnar. Því þegar
embættismenn fluttu sig milli lands-
fjórðunga í gamla daga, þá urðu þeir
að senda farangur sinn til Hafnar að
haufStinu og fá hann svo frá Höfn
á nýja staðinn næsta vor.
Hún sigldi í síðasta sinn þeg-
ar fóstri minn fluttist austan úr Múla-
sýslu til Stykkishólms. En við voram
svo heppin, er við fluttum hingað, að
við fengum spekúlant^skip til að taka
dótið okkar beina leið til Reykjavík-
ur. Svo nú siglir klukkan mín líklega
aldrei oftar.
Mjer þykir vænt um klukkuna, og
mjer þykir vænt um stofuna mína.
Svona verður maður, þegar maður fer
að eldast. Oft hefir mjer verið boðið að
láta setja á hana nýtt veggfóður. En
jeg vil það ekki. Því þá er jeg svo
hrædd um að jeg þekki ekki stofuna
mína aftur, finst hún ekki vera eins og
hún á að vera, eins og sólskinsblettur í
heiði.
Mjer þykir vænt um þetta hús, segir
gamla konan enn, þó háu húsin byrgi
loftið og himininn.
Og þegar Sigríður fylgdi mjer til
dyra. alla leið út á hinar fomfálegu
tröppur, varð mjer litið á lágan sessu-
ptól úti í garðinum hennar.
Já, garðurinn minn er góður, sagði
hún og jeg er svo heppin, að menn
hafa boðist til að hirða um hann fyrir
mig. Jeg hef alla tíð verið svo lán-
söm, jeg held það fylgi húsinu hans
Dillons, hennar maddömu Ottesen og
Jónasar Hallgrímssonar. Þarna á stóln-
um sit jeg á morgnana og læt sólina
skína á mig. Hún er altaf eins, hvað
Sem öðru Iíður, blessuð sólin, þó alt sje
hjer að verða öðruvísi en það var, og
ísland nærri því eins og komið út í
heiminn.
B. S. í<
Sfmar 1540, þrjár SÍUKr,
í}6Cir bflar. Fljót sfjfreilífc s
Minning frú
Lárettu
T dag er frú Láretta Hagan þor-
in til moidar. Hún var dótth-
hjónanna Eiríks Þorkelssonar og
Margrjetar Guðmundsdóttur, sem
margir Reykvíkingar kannast við.
Systkini frú Lárettu voru frú Guð-
rún og Jón, búsett bjer í bænum,
og Sigtryggur Kaldan, læknir í
Danmörku. Árið 1919 giftist Lá-
retta eftirlifandi manni sínum,
Haraldi Hagan. Eignuðust þau
hjónin fimm mannvænleg börn. —
Vagga hennar stóð í Reykjavík,
þar var starfssviðið að mestu
leyti, og þar verður líkami henn-
ar lagður til hinstu hvíldar.
Ilagan
„Þá eik í stormi hrynur háa
því hamrabeltin skýra frá,
en þegar fjólan fellur smáa,
það fallið enginn heyra má.
En ylmur horfinn innir fyrst
hvers urtabygíin hefir mist.
Víst segja fáir hauðrið hrapa
húsmóður góðrar viður lát,
en hverju venslavinir tapa
má vottinn sjá á þeirra grát.
Af döggu slíkri á gröfum grær
góðra minninga rósin skær“.
Þannig er saga flestra hús-
mæðra. Störf þeirra láta ekki mik-
ið yfir sjer og gnæfa ekki hátt
í þjóðfjelaginu. En þegar þær
hafa verið kvaddar frá störfum,
kemur fyrst í ljós, hverja þjón-
ustu þær hafa veitt lífinu. Líf
þeirra flestra er óslitið fórnar-
starf. Þótt þær finni kraftana
svella til stórra dáða, þá verða
þær óumflýjanlega að draga sig
í hlje og vinna störf sín innan
vjehanda heimilisins. Þær verða
að fórna sjálfum sjer.
Þannig er einnig saga Lárettu
Hagan. Hún ól í brjósti stóra
drauma, og fann hjá sjer hæfi-
leika og getu til að láta þá ræt-
ast. En kjör hennar urðu þau að
veita forsjá mannmörgu heimili,
sem krafðist athafna hennar og
lífsorku óskiftrar. Og þann sess
skipaði hún á þann veg, að seint
mun fyrnast.
Frú Láretta var á ýmsa lund
óvenjuleg kona. Hún var fríð sýn-
um og aðsópsmikil, ör í lund og
athafnasöm. Greindin var skörp
og víðfeðma, og öll störf ljeku í
höndum hennar. Drengskapur og
höfðingslund voru henni svo í blóð
borin, að hún mátti' ekkert aumt
sjá, enda ljet hún engan synjandi
frá sjer fara. Heimili hennar stóð
öllum opið, og þar mátti hver
koma og fara eftir eigin geðþótta.
Láretta var gædd þeim samúðar-
fulla næmleika og víðsýni, að öll-
um þótti gott að leita ásjár henn
ar og ræða við hana um hugðar-
efni sín. Hún hrygðist með hrygg-
um og gladdist með glöðum. Þess
vegna fóru allir ríkari frá henni
en þeir komu. -
Yinir Lárettu sakna hennar, en
sárari harmur er þó kveðinn að
ástvinum hennar. Þeir sakna um-
hyggjusamrar húsmóður, sem
veitti heimilinu birtu og yJ, og
þeir sakna móðurinnar, sem strauk
burtu tárin með hlýrri hönd, þeg-
ar eitthvað ámaði að. Skarð henn-
ar verður aldrei fylt. En það eru
þó harmabætur, að lífið deyr al*dr
e-i. Láretta mún lifa áfram í hug-
*m barna sinna og annarít ástviná.
Hún mun vaka yfir hverju spori
þeirra eins og áður og ljetta þeim
gönguna, hvar sem leiðin kann að
liggja. Andi hennar mun svífa um
vegu barnanna og hlúa að gróand-
anum eins og milt vorregn. Og
þannig kunna draumar hennar og
hugsjónir að eiga eftir að rætast.
Axel Guðmundsson.
II. flokks mótíð
FR.AMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU.
R. yfirleitt allmikið sterkara en
Fram og samleikur þeirra stórum
mun betri. Skoruðu þeir eitt mark
í fyrra hálfleik, en 3 í þeim seinni.
Bestir virtust í liði' þeirra, sem
annars var mjög jafnt, miðfram-
herji og hægri innframherji (Ósk-
ar og Jón), en hjá Fram vinstri
innframherji (Kristján).
Þriðji leikurinn og sá hesti' var
milli Vals og Vestmannaeying-
anna og vann Válur hann með 3
mörkum gegn 2, eftir mjög jafn-
an, hraðan og skemtilegan leik.
Bæði liðin ijeku vel og drengi-
lega, og vann Valur leikinn á
meiri tækni. Vestmannaeyjapilt-
arnir ljeku mjög hratt og fjör-
lega og eru bæði vel fylgnir sjer
og harðfengir. Kröftugir eru þeir
mjög og stæltir. Átta þeirra eru
sjómenn, sem ekki hafa of mik
inn tíma aflögum til æfinga, en
4 af þessum 8 eru þar að auki ný-
komnir af síldveiðum. Hjá liðinu
var ekkert sem minti á uppgjöf,
baráttukjarkur þeirra og sigur-
vilji var óskertur leikinn á enda,
og hið sama mátti segja um Vals-
liðið. Hjá báðum liðum sáust
mörg góð skot.
Samleikur Valsmanna var tíð-
um mjög góðui* og liðið vel sam-
æft. Bestu menn liðsins voru
hægri innframherji (Albert),
vinstri útframherji, miðframvörð-
ur o,g markvörður. Annars var
enginn ljelegur maður í þessum
liðum. Af Vestmannaeyingunum
virtust mjer bera af hægri útfram-
herji, sem skoraði fallegt mark
og hefir prýðilega knattmeðferð,
svo og miðframvðrður, sem bæði
er fljótur og viss.
Þessi leikur skemti áhorfend-
um hið besta. Haukur Óskarsson
var dómari.
Árangur leikjanna er því sá,
að Víkingur, K. R. og Valur halda
velli, en Haukar, Fram og K. V.
eru úr mótinu
Mótið heldur áfram í kvöld kl.
7. Fyrst keppa Valur og Víking-
ur. Kl. 8 keppa Ilaukar og Vest-!
mánnaeyingar. J. Bn..
Baðhúsið
FRAMH. AF FIMTU SÍÐU.
þurftu að komast að, það þótti
mjer verst“.
Þegar vatnsveitan kom til sög-
unnar, hurfu þessir erfiðleikar.
Sumarið 1917 var ekki hægt að
starfrækja húsið vegna kolaskorts,
veturinn 1917—18 (frostavetur-
inn) ekki heldur. Annars hefir
baðhúsið starfað óslitið öll þessi
ár.
★
Þegar litið er um öxl, og starfið
athugað, sjest að Baðhús Reykja-
víkur hefir átt sinn drjúga þátt
í daglegu lífi' manna. Oft margt
um manninn, allir fara þaðan.
„betri menn“ en þeir koma, oft
er fólkinu ljett í skapi í biðstof-
unni, þ. e. þegar útlit er fyrir
að greiðlega gangi að komast að,
stundum fara menn „bölvandi og
ragnandi"; er þá fult fyrir f
biðstofunni, setið og staðið, og
ekkert útlit fyrir neina sálubót
næsta klukkutímann eða lengur.
Gegnir furðu þolinmæði bæjarbúa,
að þeir skuli endast til að bíða,
nærri því tímum saman, eftir baði.
Sýnir þar gjörla hina brýnu þöri'
á miklu stærra baðhúsi.
Þakkarávarp
Með línum þessum langar okk-
ur, blinda fólkið, sem vinn-
ur í Ingólfsstræti 16, að færa þeim
hjónum, frú Guðrún Geirsdóttur
og herra Þorsteini Þorsteinssyni,,
ITagstofustjóra og frú Áslaugu
Geirsdóttur og herra Hallgrími
Benediktssyni, stórkaupmanni, á-
samt ungfrú Ingileifu Brindísi
Hallgrímsdóttur, okkar innil'eg-
ustu hjartans þakkir fyrir þeirra
mikla höfðingsskap og hugulsemi,.
sem birtist okkur blinda fólkinu,,
á þann hátt, að einn yndislegasta
dag þessa sumars tóku þau okkur
með sjer út í sumarblíðuna, tií
þess að ferðast með okkur austur
fyrir Þingvöll í unaðslegt berja-
land, sem okkur verður óblandin
ánægja að minnast, og veittu okk-
ur af rausn mikilli.
í ferð þessari' lögðu þær frú
Guðrún Geirsdóttir og ungfrú Ingi
leif B. Hallgrímsdóttir fram krafta
sína til að gjöra ferðina sem á-
nægjulegasta af svo fölskvalausri
alúð og nærgætni, að það mun
seint líða qkkur úr minni. Frú
Guðrún Geirsdóttir og maður henn
ar, hr. Þorsteinn Þorsteinsson,
hafa margoft áður sýnt okkur hug
ulsemi og kærleika með heimboð-
um, sem óhjákvæmlega hafa snert
okkur, sökum þeirrar innilegu
hlýju og vilvildar, sem hjá þeim
er að finna í svo ríkxim mæli.
Fyrir allar þessar velgjörðir, fyr
og síðar, okkur til handa, þökkum
við af hrærðum hjörtum, og ósk
okkar og von er að þetta vel-
gjörðarfólk okkar verði æfilangt
umvafið kærleika Hans, sem sagði':
Það sem þjer gjörið einum af mín
um minstu bræðrum, það hafið
þjer mjer gjört.
Guð blessi ykkur 611.
Föðurnafn Bertels Sigurgeirsson
ar, sem ritaði greinina um hrein-
dýrin í síðustu Lesbók, misprent-
aðist í fyrirsögn greínarinnar, gig
urðsson í stað Sigurgeirsson.