Morgunblaðið - 05.10.1941, Síða 3

Morgunblaðið - 05.10.1941, Síða 3
Sunnudagur 5. október 1941 MORGUN BLAÐIÐ Merkileö fornmanns- . . n__________ ;f t'fcj i9d«j gröf fundin Fanst í kartöflugarði í Kelduhverfi Frásögn Kristjáns Eidjárns FYRIR skömmu var bóndinn á Fjöllum í Keldu- hverfi að grafa gryfju til þess að geyma í kartöflur yfir veturinn. Hafði hann fengið stað til þess í landi Grásíðu við Víkingavatn, þar sem hann hefir kartöflugarð. Við gröftinn kom hann niður á merki- lega forngröf frá heiðnum sið. Morg’nnblaðið hefir hitt Kristján Eldjárn að máli um þetta efni, en hann rannsakaði dysina fyrir fornminjavörð. Per frásögif hans hjer á eftir: Sunnudaginn 14. sept. 1941 var Hjeðinn Ólafsson á Pjöllum að vinliu í kartöflugarði sem bóndinn á Pjöllum á í landi Grásíðn i Kelduhverfi. Bærinn Grásíða er einn af Yatnsbæjunum, er svo nefnist hverfi það, sem stendur sunnan við Yíkingavatn. Á Grá- síðú er jarðvegur sendinn og þyk- ir Vel til kartöfluræktar fallinn og fá því bændur af öðrum bæj- um rúm þar fyrir garða síná. Hjeðinn á Pjöllum ætlaði sjer að grafa kartöflur sínar í einu horlii garðsins og tók að gera gryf juna. Kom hann þá oían á spjótsodd, sem hrökk í tvent um fjöður miðja við rekuhögg. Upp frá faln- um sá Hjeðinn svartá rönd í rnold- inni, þar sem spjótskaftið hafði verið. Við hliðina á spjótinu fann hann fótleggi og ristarbein af manni. Stöðvaði hann nú vinnuna og hreyfði ekki beinin meira. Þór- arinn Björnsson á Víkingavatni, mentaskólakennari, gerði mjer að- vart um fundinn en jeg aftttr þjóðminjaverði, sem fól mjer að rannsaka dysina. ★ Þriðjud. 23. sept. grófum við Þ. Bj. dysina út. Nákvæmlega til teþið, liggur hún um 50 m. suður af suðvesturhorni gamla vallar- garðsins á Grásíðu, s^m enn sjer á köflum, en um 60—70 m. suður frá nýbýlinu Vogar, sem bygt var árið 1938 úr Grásíðulandi. Liggja þar suður frá bænum kartöflu- garðar margir í sandöldu, sem þar er og er dysin þar sem hæst ber eða austast á öldunni. Uppblástur er þarna að verki og er uppblást- ursferð sunnan í öldunni. Það sýndi sig, að kartöflugröfin hafði tekið af norðurenda grafarinnar, en alt það, sem óbreytt var, var grafið af í lögum. Bfst er þykt foksandslag um 50, cm. og mun það hafa fokið á síðan gröfin var gerð, en er nú sem sagt að blása burt. Undir þessu lagi kom leir- bland og sáust. í því steinar nokkr ir. Lágu þrír í röð frá norðri til suðurs og einn stakur, 1,15 m. vestar. Það sýndi sig, að stein- arnir þrír mörkuðu austurbrún grafarinnar og ■ staki steinninn vestri brún. Hafa þeir verið lagðir að leiðinu ofanjarðar á sínum FBAMH. Á SJÖTTU SÍÐU, Athafnaííf í Eyftim Mikið athafnalíf er í Vest- mannaeyjum um þessar mundir, sagði Jóhann Jósefsson alþm. Morgunblaðinu í gær, en hann er nýkominn úr Eyjum. í smíðum eru nú í Eyjum 13 ioúðarhús og er þar óvenjumik- 11 eftirspurn eftir byggingar- lóðum. Þá eru og nokkrir vjel- bátar í smíðum og einnig eru menn að kaupa báta. Uppskera úr görðum er meiri í Eyjum nú en nokkru sinni áð- ur. Heyskapur var og sæmileg- ur. Ótíð hin mesta hefir verið undanfarið og gæftalaust. Úti gerðarmenn og sjómenn í Eyj- um eru mjög óánægðir með það verð á ýsunni, sem áskilið er í samningnum við Breta. Telja, að til vandræða horfi, ef ekki fæst leiðrjetting á þessu. Nýr islenskur doktor við Hafnarháskóla Óli P Hjaltested læknir Nýja Bíó: Pramvegis verða að- göngumiðar seldir á sunnudögum frá kl. 11 f. h., að öllum sýning- um. Aðra daga verða miðarnir seldir eins og venjulega, frá kl. 1 e. h. Fyrir nokkru barst fregn um það »frá Danmörku, að Kaupmannahafnarháskóli hefði tekið gilda doktorsritgerð frá ís- lenskum lækni, Óla P. Hjaltested. í tilefni þessa leitaði blaðið frjetta hjá hinum nýkjörna dokt- or um ritgerð hans, efni hennar og upphaf. Doktorsritgerð mín, segir Óli P. Hjaltested, heitir Diagnostisk og prognostisk Betydning af Tubercel bacilpaavisning i Ven- trikelskyllvandet hos Voksne. Rannsóknaraðferð sú, sem rit- gerðin byggist á, felst í aðferð, sem fyrst var upp tekin í Frakk- landi, en fljótlega var tekið að nota í Danmörku, einkum á Öre- sundsspítalanum, þar sem hún var endurbætt að mun. Aðferð þessi er fólgin í að rannsaka magainnihald breklasjúklinga, sem ekki hefir fundist hjá berkla smit með venjulegum aðferðum. Og fjallar ritgerðin um gildi þess arar aðferðar við sjúkdómsgrein ingar og horfur um gang sjúk- dómsins. — Hvenær byrjuðuð þjer að vinna að ritgerð yðar? — Jeg sigldi til Hafnar haust- ið 1934 og dvaldist þar við fram- haldsnám á sjúkrahúsum til vors ins 1939. Á þeim tíma vann jeg að henni. Þegar jég kom hingað heim vorið 1939 hafði jeg viðað að mjer efni í ritgerðina og skrifaði hana síðan að mestu hjer heima. Sendi jeg hana síðan til Hafn- arháskóla í marsmánuði 1940 og fjekk tilkynningu um það í sept- ember sama ár, að háskólinn hefði tekið hana gilda. Vegna styrjaldarinrtar fjell há- skólinn nokkru síðar, eða nánar til tekið í apríl s.l., frá munnlegri vörn hennar, en frjettir um það bárust eigi hingað fyrr en þiú ný- lega. Dr. Óli P. Hjaltested læknir er Reykvíkingur að ætt, 32 ára gam- all. Hann lauk stúdentsprófi vor- ið 1928, en embættisprófi í lækn- isfræði hér við háskólann vorið 1934. 1 framhaldsnámi sínu hefir hann kynt sjer lungnasjúk'dóma FBAMH. Á SJÖTTU SlÐU Mesta listsýning sem hjer hefir sjest Opnuð í skálanum víð Garðastræti í dag Idag kl. 2 verður opnuð sýning myndlistardeildar Bandalags íslenskra listamanna í sýningarskál- anum við Garðastræti. Verður þar alveg ein- stakt tækifæri fyrir bæjarbúa, til að fá yfirlit yfir íslenska myndlistarstarfsemi, eins og hún er í dag, og kynnast verkum einstakrg, listanjanna. Skálinn er hin hentugustu salarkynni, sem listamenn hafa nokkru sinni haft völ á hjer í Reykjavík til sýningar á verkum sínum. Þar er vítt til veggja, og birta góð, svo listaverkin njóta sín prýðilega. Þarna verða á annað hundrað málverk og um 30 högg- myndir. Mlnningar- athöfn sklpverja i „Jarlinum" Mmningarathöfn um skipverj- ana á 1. v. „Jarlinn" fer fram í Dómkirkjunni á morgun (mánudag) og hefst hún kl. 2 e. h. Sjera Bjarni' Jónsson vígslu- hiskup flytur minningarræðuna. Athöfninni verður útvarpað. Kveðjusamsæti á Þórshöfn Af Þórshöfn er blaðinu skrifað: O unnudaginn 21. þ. m. var Egg ert Binarssyni hjeraðslækni á Þórshöfn og fjölskyldu hans haldið fjölment kveðjusamsæti í samkomuhúsi staðarins. En lækn- irinn er nú á förum úr hjeraðinu, þar sem hann hefir verið skipað- nr hjeraðslæknir í Borgarnesi. Þrátt fyrir yfirstandandi fjall- göngnr og aðrar haustannir var samsæti þetta afar fjölment, komu menn að úr öllum þremur hrepp- um umdæmisins, til að kveðja hinn vinsæla lækni sinn. Samsætinu stjórnaði' Jón Björnsson kaupmað- ur af mikilli rausn. Pjölda marg- ir menn hjeldu ræður, þar á meðal oddvitar allra hreppanna og sókn- arpresturinn að Sauðanesi. Eitt virtist það aðallega, sern auðkendi samsæti þetta, en það var söknuður og hrygð hjeraðs- búa yfir því að hinn ágæti og vinsæli læknir skyfdi nú vera að flytja burf frá þeim. Eggert Einarsson og fjölskylda, við viljum öll taka undir orð ræðú mannsins Jóns Guðmundssonar, þar sem hann mælti til ykkar þessum látlausn og innihaldsríku orðum: „Verið þið hlessnð og sæi, gifta og gæfa fylgi ykkur“. í málarar sýna þarna myndir sjnar, og fjórir myndhöggv arar. Tilhögun skálans hefir mikið verið breytt frá því garðyrkjusýn- ingin var þar. Settir hafa verið þar upp miliveggir, sent hólfa hann að nokkru leyti' í sundur. Eru málverkin bæði á milliveggjum þessum og útveggjum skálans. En höggmyndir settar upp á stalla miðsvæðis. Þegar inn í skálann kemur, er til annarar handar sýningardeild Gunnlaugs Blöndal og Snorra Ar- inbjarnar, en til hinnar frú Krist- ínar Jónsdóttur. En í miðjum skál- anum beint gegnt innganginum, eru höggmyndir Ásmundar Sveins- sonar, Marteins Gjtðmundssonar og Ríkarðs Jónssonar. Gunnlaugur sýnir þarna myndir af skipum, síldarstúlkum, laúds- lagi, o. fl. xog myndir Snorra eru flestar frá sjávarsíðunni. Frú Kristín sýnir þarna nokkrar f jalla- og kyrralífsmyndir sínar. Fyrir miðjum skálanum á millí- vegg, sem blasir við er inn kem- ur, eru þr.jár stórar myndir eftir Kjarval, en hann er heiðursgestur sýningarinnar. Meðfram langvegg til hægri, ern málverk Jóhanns Briem og Jóns Þorleifssonar. Eru margar myndir Jóhanns teknar úr ýmsum atburð- um daglega lífsins. Jón Þorleifsson sýnir landslags- og kyrralífsmynd- ir. Á vestur langvegg eru myndir Þorvaldar Skúlasonar og Gunn- laugs Schevings, myndir Þorvald- ar glæstar í lit og „kompósition“, eins og áður, myndir Gunnlaugs sumar gríðarstórar, af heyvinnu- fólki í tnnhverfi íslenskrar nátt- úru. í miðjurn skálanum, á milli- veggjum, eru rnyndir nokkurra gesta, sent eigi hafa . áður tekið þátt í sýningum myndlistardeildar Bandalagsins. Þar eru m. a. mvnd- ir eftir Baldvin Björnsson gull- srnið og Magnús Jónsson prófessor á öðrum veggnum. En gegnt þeim eru hiuir ungu málarar, Jón Gnð- mundsson og Benedikt Guðmunds- son. í insta hluta skálans eru á milli- FBAMH. Á BJÖTTU SlÐU

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.