Morgunblaðið - 12.10.1941, Blaðsíða 3
Sunmidagur 12. okt. 1941.
MORGUNBLAÐIÐ
3
110 sfmar teknir
úr sambandi
I gær vegna
bilunar
600 manns á biðtista
nýrra simanotenda
Vegna óhapps, sem kom fyr-
ir við skurðgröft í Thor-
valdsensstraeti i gærdag, varð
að taka úr sambandi 110 síma
Njarðargötu og Laufásveg um
tíma í gær. Unnið var að við-
gerðum í allan gærdag og fram
á nótt og var búist við að við-
gerð yrði lokið.
Við skurðgröftinn var
höggvið í símalínukerfi, sem
um 500 símar í suðurbænum eru
í sambandi við. Komst vatn inn
á linuna. Af þessum ástæðum
urðu margir símar sambands-
lausir í gær á tímabilinu 12—2
síðd., en það lagaðist aftur er
búið var að taka, hina 110 síina
úr sambandi.
Morgunblaðið hat'ði í gær tal
af Bjarna Forberg bæjarsíma-
stjóra í tilefni af þessari bilun.
Sagði hann áð símstjórnin hefði
allmiklar áhvggjur ut af því,
hve eftirspurn er mikil eftir nýj-
um símum. Eru nú um 600
*
manns á biðlista hjá bæjarsím-
anum, en litlar eða engar líkur
eru til þess að hægt sje að
stækka sjálfvirku stöðina í ná-
inni framtíð.
Sjálfvirka stöðin hjer er sem
kunnugt er smíðuð í Svíþjóð og
er ekkert hægt að fá þaðan af
vörum vegna ófriðarins og því
ekki hægt að fá nauðsynlegt
efni til stækkunar á stöðinni frá
Englandi eða Ameríku vegna
þess að sjálfvirkar stöðvar í
þessum löndum eru að ýmsu
leyti frábrugðnar þeim sænsku.
Gat Bjarni Forberg þess tií
dæmis, að skrúfgangur væri öf-
ugur í stöðinni hjer við það, er
tíðkaðist í enskum og amerísk-
um stöðvum.
Loks kemur það fyrir, vegna
þess hve mörg númer eru núna
íögð á sjálfvirku stöðina til af-
greiðslu, að stöðin er yfirhlaðin
en það ætti þó ekki að valda
teljandi örðugleikum og verður
þess vegna nokkur bið á því
stundum, að ,,sónninn“ komi.
;Mr. Kunibolm farinn
al landi burt
Mr. Kuniholm, fyrsti aðal-
ræðismaður Bandaríkj-
anna hjer á landi, er nú farinn
hjeðan alfarinn og mun, að því
er frjest hefir, taká upp starf
nokkurt í utanríkismálaráðu-
neytinu í Washington.
Kuniholm dvaldi hjer rúm-
lega ár, frá því á miðju ári 1940.
Franiióknarmenn skemla:
Einsöngur og „púað“ undir
En á undan: Tvísöngur-
þrísöngur -- fjórsöngur
- og milliraddir
Engir júla-
ávextii!
Strandar á
verslunarfull-
trúa Breía
i-x ess var nýlega getið hjer í
*• blaðinu, að Gjaldeyris-
nefnd hefði mælt með því, að
leyft yrði að kaupa 600 tonn af
nýjum og þurkum ávöxtum frá
Ameríku nú fyrir jólin.
Stóð þá aðeins á svari frá
tveggja manna nefndinni svo-
nefndu, en þar ræður mestu
verslunarfulltrúi Breta hjer á
landi.
Nú hefir formaður Gjaldeyr-
isnefndar, Einvarður Hallvarðs-
son upplýst, að verslunarfulltrúi
Breta hafi lagt á móti því, að
þessi ávaxtakaup yrðu leyfð. —
Meðan svo er, koma engir
ávextir til landsins.
Þessi framkoma verslunar-
fulltrúa Breta er furðuleg. —
Þegar gerð var áætlun um heild-
arinnflutning til landsins á
þessu ári, sem fulltrúi Breta
amþykti, var gert ráð fyrir 850
tonnum af ávöxtum. Gjaldeyr-
isnefnd áætlar, að eftir sje af
því magni að minsta kosti 600
tonn. —- En þegar nefndin vill
ieyfa þau ávaxtakaup, kemur
neitun frá verslunarfulltrúa
Breta.
Hvernig á að skilja þetta?
Ekki getur ástæðan verið skort-
ur á gjaldeyri, a. m. k. ekki
hvað snertir ávextina (eplin),
sem kaupa átti í Kanada. Láta
mun nærri, að íslendinga eigi
nú inni í bönkum í London um
160 milj. kr., svo að allir sjá, ao
hjer skortir ekki gjaldeyri.
Viðhorfið hjer hjá almenn-
ingi er í augnablikinu þanriig,
að egg og smjör er lítt eða ófá-
ar.Ieg vara, mjólk er til af skorn-
:im skamti, grænmeti einnig
rándýi"'. .
Eiiia úrræðið til að bæta upp
þá tilfinnanlegu yöntun, sem er
a þessari hollu fæðu var eiri-
mitt það, að flytja inn ávexti,
En þá kemur svar verslunarfull-
trúa Breta: — Þið fáið ekki
ávexti!
Almenningur skilur ekki þessa
ráðsmensku.
Hjónaband. í gær voru gefiu
saman í hjóriaband af síra Sigur-
birni Einarssyni, ungfrú Lovísa
Rut Bjargniundsdóttir, Njálsgötu
64 og Grínnir Aðalbjörnsson
verslunarmaður, Skólavörðustíg 24
Heimili brúðhjónanna er í Auðar-
stræti' 13.
Kvikmynda-
sýningar I dreif-
býlinu
Starfssemi náms-
flokka Reykjavíkur
Igær lögðu þeir fjelagar
Ágúst SigurSsson magister
og dr. Símon Jóh. Ágústsson af
stað í fyrirlestraferðalag austur
fyrir fjall. Þeir sýna kvikmynd-
ir með fyrirlestrum sinum, og fá
nauðsynlegt rafmagn til sýning-
anna úr bifreið. Með þessum
hætti geta þeir sýnt kvikmyndir
víða um landið, þar sem þær
hafa aldrei sjest áður.
Kvikmyndirnar, sem sýndar
verða, eru fræðslukvikmyndir,
sem nýlega eru fengnar frá Eng-
landi. Hafa námsflokkar Reykja
víkur aflað sjer þessara kvik-
mynda, og einnig fræðslumála-
skrifstofan.
Ferðaiag þeirra Ágústs mag.
og dr. Símons, er farið á vegum
námsflokka Reykjavíkur, og er
það nokkurs konar framhald
þeirrar starfsemi, sem hófst með
fræðsluvikunni á Akureyri i
fyrra. Þeir ætla að þessu sinni
að koma við í Fljótshlíðinni,
I-ykkvabæ, Stórólfshvoli og Vík
í Mýrdal og e. t. v. víðar.
Vetrarstarfsemi námsflokka
Reykjavíkur er nú að hefjast.
Það er full ástæða til að veita
þessari starfsemi mikla athygli,
því að hjer er um mjög þarfa al-
þýðufræðslu að ræða.Og fræðsia
þessi.er ókeypis.
Námsflokkarnir eru stöðugt
að færa út starfssvið sitt; í ár
verður t. d. tekinn upp sjer-
stakur námsflokkur fyrir full-
orðið fólk. Þessi nýlunda er
narkverð, því hjer gefst alþýðu
fclki tækifæri til að vei'ja tóm-
stundum sínum á kvöldin til
þarfra fræðsluiðkana. Önnur
nýjung er sú, að tékin er upp
kensla í barnasálarfræði fyrir
foreldra.
Enn er sú nýbreytni að tekin
hefir verið upp kensla í garð-
rækt. Að öðru leyti fer fram
kensla í öllum almennum náms-
greinum.
Námsflokkarnir hafa ágætu
kennaraliði á að skipa, en for-
stöðumaður þeirra, og lyfti-
stöng er Ágúst Sigurðsson mag-
ister.
Fjelag hjeraðs-
dómara stofnað
ÞAÐ er víðar en á flokkssamkomum, sem Tíma-
menn hafa sín föstu skemtiatriði, en þar trón-
ar „framsóknarvistin“ jafnan sem fastur dag-
skrárliður. Skemtiatriðin, sem snúa að þjóðinni í umræð-
unum um hin stærri mál eru með öðrum hætti, en þau eru
ekki síður brosleg en „vistin“ og hafa fengið á sig alveg
fastan svip.
Oftast hefst skemtunin með t.vísöng, en stundmn með. þrí- eða
fjórsöng, eftir því hve margir af forrráðamönnuin flokksins láta til
sín hevra. En jafnan endar skemtunin með einsöng og púi allra flokks-
manna nndir.
_________________________________ Skal þessu lýst ofurlítið nánar
með dæmum.
★
Sjáifstæðismálið — langstærsta
og mikilvægasta málið, sem a dag-
skrá hefir kömið. Þar skemta með
tvísöng þeir -Jónas Jórisson, for-
maður Pranlsóknarflokksins og
Ilermann Jónasson forsætisráð-
herra. Jónas hyrjaði með langri’
áramótahugvekju. Sagði þar, að
aðeips væri pm tvær leiðir að riéða
í sjálfstæðismálinu. Aðra leiðina
nefndi hann „hraðfai'a“, þ. e. að
slíta strax öllum tengslum við
Dani og ganga endanlega frá þess-
um málum. Hina leiðina nefndí
hann „hægfara“, þ. e. að láta alt
dankast og láta Sambaridslögin
vera í gildi. Jónas mælti ákaft
með fyrnefndu leiðinni og hvatti
menn til dirfsku og áræðis ’á loka-
stigi sjálfstæðisbaráttunnar.
Litlu síðar kom forsætisráðhérr-
ann fram á sviðið og byrjaði’ að
kvrja sinn söng. Hann skrifaði
hálft Tíma-blað og stefndi öllu að
sama marki, að hrekja það, sem
Jónas hafði uni málið skrifað.
Hann kallaði leiðirnar, sém Jónas
nefndi ,,áhættuleiðina“ og „áhættu
lausu leiðina“, og mælti ákaft með
himii síðarnefndu. Hanri sagði m.
Síjórn kosin
C' tofnfundur samtaka hjer-
^ áðsdómara hófst s.l. föstu-
dag í Háskólanum.
Gísli Sveinsson setti íundinn
fyrir hönd undirbúningsnefnd-
ar og stjórnaði honum, en fund-
arritari var Torfi Hjai'tarson.
I gær var fundinum haldið
áfram og hefir verið samþykt
að fjelagið skuli stofnað. Jafn-
íramt hefir fundurinn samþykt
lóg fyrir það og kosið því stjórn.
Heitir fjelagið Fjelag hjer-
aðsdómara og skipa þessir menn
stjórn þess: Gísli Sveinsson, Jón
Steingrímsson, Bergur Jónsson,
T'orfi Hjartarson og Jónatan
Hallvarðsson.
Fundurinn heldur áfram á
mánudag. Sitjá haim 15 hjer-
aðsdómarar. Auk' þess hafa þrír
skrifstofustjórar stjórnarráðs-
ins setið hann.
Guðmundur Björnsson fyrv.
sýslumaður kom og á fyrsta
fundinn, en hann var þátttak-
andi í samtmökum, sem sýslu-
menn landsins eitt sinn höfðu
með sjer.
Ágæt skemtun
Heimdallar í'gær-
kvöldi
Hjúskapur. f gær votu gefiti
saman hjá lögmanni Sigríður Páls-
dóttir, Skólavörðustíg 8 og Bene-
dikt Ái'nason endurskoðandi.
Hjónaefni. í gær opinberuðu trú
lofun sína nngfrú Guðrún Ófeigs-
dóttir, Brávallagötu 6 og Pjetur
Hjaltested málari, Bergstaðastr, 24
Húsfyllir var á skemtikvöldi
Heimdallar, fjelags ungra
Sjálfstæðismanna, í gærkvöldi.
Jóhann Hafstein lögfræðingur,
formaður Heimdallar, setti' skemt-
unina með stuttri ræðu.
Sigurður Eggerz bæjarfógeti
flutti afburða snjalla ræðu um
þjóðræknis og sjálfstæðismál, við
ágætar undirtektir.
Þá voru sungnar gamanvísnr og
að lokum var dansað.
Em þessi skemtikvöld Heim-
dallar og ungra Sjálfstæðismanna
hinar hestu skemtanir.
a.:
„Með því að slíta samningunum ViS
Dani teflum við mjög í tvísýnu . . . og
eigum á hættu- og reyndar vitum, að við
bókum okkur vantraust sem þjóð, er
ttflir í 'tvísýnu um að halda gerða
samninga“.
Forsætisráðherrann fór all kald-
hæðnislegum orðum nm hvatning-
ar og áeggjan Jónasar. Hann
sagði:
„En hitt er fremur ógeðfelt, að upp-
fylla sjólfan sig vígamóði til að glíma
við þessi sli'tur Samhandstaganna og
telja sjer trú um.að hjer sje um að'ræða
einhverskön'ar hétjildóð í SÖgu landp-
ins“.
Upp úr þessu hófst svo tvísöng-
urinn. Hjer eru fáein sýnishorn af
honum:
IIERMANN: „Gagnvart Dönum vek-
ur þessi leið, (þ- e. leið Jónasar) óþarf-
an sársaubá".
JÓNAS: „Grundvöllurinn undir þess-
ari hugarsmíð er veikur“.
HERMANN um rökræður Jónasar:
„Jeg held, að Jón Sigurðsson hefði
ekki notað lagamálstaðinn með þessum
h;ctti‘‘.
FRAMH. Á SJÖUNDU 8ÍÐU.