Morgunblaðið - 12.10.1941, Page 7
Sunnudagur 12. okt. 1941.
M0R6UNBLAÐIB
7
70 ára: Frú Sigriður Þorláks-
dóttir frá Áifsnesi
Idag á sjötugsafmæli SigríSur
Þorláksdóttir húsfrú frá Álfs-
nesi á Kjalarnesi.
Hún er fædd í Varmadal á
Kjalarnesi 12. okt. 1871, dóttir
valinkunnra hjóna, þeirra Þorláks
Jónssonar bónda í Varmadal og
konu hans, Geirlaugar Gunnars-
dóttur. 5. okt. 1895 giftist hún
Kristjáni Þorkelssyni, síðar hrepp-
stjóri Kjalnesinga, hinum ágæt-
asta manni, sem um langt árabil
yar jarðnesk forsjá sveitar sinnar
óg forvígismaður í öllum fram-
faramálum hennar. Hm aldamótin
reistu þau hjónin bú í Álfsnesi
og bjuggu þar í aldarfjórðung og
eftir það 7 ár í Víðinesi', næsta
Kæ við. Báðar þessar jarðir bygðu
þau upp og sátu svo, að þær munu
um langan tíma bera merki far-
sæls samstarfs þeirra hjóna, fram-
takssemi, elju og atorku. Þeim
varð 15 barna auðið og lifa nú
7 dætur og 7 svnir, sannkallað
mannval. Kristjáns hreppstjóra
nauf aðéihs stutt við eftir áð þau
hjónin höfðu brugðið búi og voru
flutt til Reykjavíkur, en hann
varð bráðkvaddur 10. jan. 1934
og hefir Sigríður eftir það dval-
ið ýmist í Revkjavík eða á heim-
ili sonar óg tengdadóttur í Álfs-
nesi.
Og það er á allra vitorði, að þar
efra unir hún sjer best. Hún fest-
ir ólíkt betur yndi í friðsælli
kyrða sveitarinnar en í ýái og
þysi borgarlífsins. Enda er hún
rjettnefnd dóttir íslenskrar mold-
ar, sem af hug og sál ann gró-
andi túnum og grösugum högum
þar sem búsmalinn dreifir sjer
um græna bala. f slíku umhverfi
hefir hún þá líká unnið sitt frá-
bæra æfistarf, sem dugmikil og
iðjusöm húsmóðir, umkringd af
fjölmennum hóp barna. Og það er
víst, að ágætri móður gefur ekki,
en segja mætti mjer hinsvegar
víst, að ágætari móður gefur ekki,
síður standa í þakkarskuld við
börnin, en þau við hana, því að
svo er Srgríður skapi farin, að
hún metur lífsgleðina öllum and-
legum verðrnsétum meir, en hefir
vísast hvergi mætt henni í ríkari
mæli eða unaðslegri mynd en í
margra ára samvistum við börniu
sín. Á aðdáanlegan hátt hefir
henni tekist að verða hvorttveggja
í senn, móðir og vinur barnai
sinna, f jelaginn í æskugleði þeirra
á öllum tímum. Og það er eflaust
af þessum' ástæðum, sein Sigríður
1 er raunverulega áyalt jgfn ung,
hvað sem tölu æfiáránna líður, og
hefir alt til þessa dags megnað
að varðveita ljetta lund sína og
bjartsýná lífsgleði. Hún er allra
kvenna glöðust á „góðra vina
fundum“ og aldrei hljedræg, þeg
ar tekið er lagið eða stiginn dans.
En allir, sem þekkja Sigríði frá
Álfsnesi, virða hana og þvkir vænt
um hana og það að verðleikum.
í dag lifir hún enn eina af mörg-
um gleði og ánægjustundum sín
um í hóp barna sinna uppi í Álfs-
nesi og fjölmennur vinahópur
hennar, bæði í sveitinni og utan
hennar, samgleðjast henni og
árna henni allrar farsældar í fram
tíðinni og óska henni margra og
gleðilegra ólifaðra æfiára.
Hálfdan Helgason.
tiiiiiiiiiliiilsiilliiiliilliiiiiiiiiillllliiiMiiiiiiiiiiiiiiiuiiinililiiim
| 3000 kr. (
s Ungur og reglusamur maður =
I 24 ára, óskar eftir þrjú þús- |
= und krónum að láni í 2 man- g
s uði, gegn tryggingu í iðn- ||
^ rekstri. Þagmælsku lieit.ið. — g
s Ijjett og hreinleg vinna í boði =
M fyrir 1—2 stúlkur. Ef þjer =
H viljið sinna þessu, þá sendið jfjj
1 nafn yðar í lokuðu umslagi =
Í. til afgr. Morgunblaðsins fyrir s
1 föstudag 17. ]). m., merkt: §
„Traust“.
illlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllillllliuilllllli
Sjötugur í dag:
Olgeir Júlíusson
Akureyri
Akureyri í gær.
70 ara er a ,n0l'8'un (sunnud.)
* ^ Olgeir Júlíusson, Hríseyj-
argötu 11.
Olgeir fluttist hingað til bæjar-
ins barn að aldri, með foreldrum
sínum, Júlíusi Kristjárissyni og
konu hans Maríu Flóventsdóttur,
er áttu lengst af heima að Barði
hjer 1 bæ.
Olgeir lærði ungur bakaraiðn, og
stundaði það starf tim mörg ár.
Á síðari árum var hann um
nokkurt skeið hafnarvörður fyrir
Akureyrarkaupstað, en síðan liann
lj'et af því starfi hefir hann haft
á hendi nokkur aðstoðarstörf
skrifstofum bæjarins.
Hann er viðkynningargóður mað
ur í umgengni. vinsæll og glað
lyndur í skapi.
Framsóknarmenn skemta
FEAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU.
JÓNAS: „En Hermann Jónasson
reynir hjer að fara milliveg', sem því
iniSur er ó£ær“.
HERMANN: „Við viljum að ísland
slíti tengslum á grundvelli sáttmálans í
síðasta lagi eftir áramótin 1943, eða
fyr, ef stríðinu lýkur fyrir þann tíma“.
JÓNAS: „Mjer finst alveg sjerstak-
lega mikil ástæða til þess að dást að
kjarki þeirra manna og dirfsku, sem
tclja málum landsins best borgiS með
því, að þjóðin iiggi eins og illa gerður
og óráðstafaðm’ hlutur, þar til hinir
voldugu herrar jstóru landanna byrja að
skifta veröldinni á ný“.
HERMANN: „Ágreiningur um mark-
ndð í sjálfstæðismálinu getur því ekki
verið fyrir hendi, nema til sjeu ein-
hverjir faldir „svikarar við frelsiö“. —
Það þarf sannast að -segja nokkra
„dirfsku“ til að. bera slíkt á samþings-
menn sína og samborgara, sem að fund-
arsamþyktunum (er Jónas hafði vitn-
að til) jstanda. En það virðist þó vera
ætlun Jónasar .TónssonaÞh
Þegar þeir Jónas og Hermann
höfðu kyrjað þenna tvísöng í
nokkrum Tíma-blöðum, kom lands
fundur Framsóknarmauna saman
hjer í bænum. Hann gerði „álvkt-
un“ í sjálfstæðismálinu, sem hall-
aðist á sveif með Hermanni'.
Þetta nægði flokknum, því að nú
var sunginn einsöngur og púað
undir.
★
Skemtiþátturinn í sambandi við
kjötverðið liófst á f jór-rödduðum
söng,
Fyrsta rödd (tenor) var sungin
af fulltrúum bænda á frindi í ágúst
mánuði; þeir kröfðust kr. 3.75 fyr-
ir kjötkílóið.
Önnur rödd (2. tenor) var sung-
in af Jóni Árnasyni; hanri krafð-
ist kr. 3.25.
Þriðja rödd (1. bassi) var sung-
in af Páli Zophóníassvni. Þar var
verðið kr. 2.90.
Fjórða rödd (2. bassi), sungin
af ráðherrum Framsóknarflokks-
íns; þeir voru með kr. 2.80. "
Svo var haldin ráðstefna um
þetta mál og þar var kjötverðið
ákveðið kr. 3.20.
Eftir það var kyrjaður einsöng
ur og púað undir.
★
l áfengismálinu hófst skemti-
þátturinn með þrí-söng.
Forsöngvari var Guðbrandur
Magnússon. Hann taldi .ekkert vit
í að loka vínbúðunum og dró fram
mörg rök fyrir sínu máli.
Svo heyrðist rödd Evsteins:
Sjálfsagt að loka.
Loks kom rödd Ilermanns: Álít
persónulega að rjett sje að hafa
áfengisverslunina opna; en þar
sem Alþingi á að koma saman, te)
jeg rjett að það skeri úr.
'Tnn á milli þessara þriggja höf-
nð-radda heyrðust milliraddir, en
þær voru hjáróma. Þessar raddir
komu frá kjósendum, sem voru að
revna að mynda sjer sjálfstæða'1
skoðun á þessu máli. Þessir menn
fóru að líta á hag ríkissjóðs; þeim
kom og til hugar brugg og smygl.
Þeir sáu og mikið áfengisflóð hjá
setuliðinu og mintust um leið öng-
þveitisins í siðferðismálunum. Nær
undantekningarlaust voru þessar
raddir á móti lokun.
Svo var haldinn fundur með
þingmönnum Framsóknar og
flokksstjórn. Þar var samþykt, að
áfengisverslunin skyldi vera lokuð.
Eftir það var kyrjaður einsöng-
iu' og púað undir.
★
Tilgangurinn með því að vera að
rifja þessi mál upp er engan veg-
inn sá, að vera á neinn hátt að
amast við því, að ráðamenn Fram-
sóknarflokksins reyni að mynda
sjer sjálfstæða skoðun . á þeim
málum, sem á dagskrá eru. Er
því síður en svo nokkuð við það
að athuga, að ráðamenn flokksins
greini mjög á í skoðunum í ýms
um mikilsvarðandi málum.
En það má kallast furðumikil
dirfska hjá blaði þessara manna,
að það skuli leyfa sjer að deila á
Sjálfstæðismenn fyrir það, að þeir
hafi sjálfstæða skoðun á málun-
um.
Sjálfstæðisflokkurinn hefir skoð
anafrelsi og athafnafrelsi á sinni
stefnuskrá. Honum getur því aldr-
ei komið til hugar, að leggja nokk
urt band eða haft á skoðanafrelsi
manna. Ilandjárnin þekkjast ekki
í flokki Sjálfstæðismanna.
Bitt er raunasaga Framsóknar-
manna, að þeir eru að burðast við
að hafa sjálfstæða skoðun á mál-
unum til að byrja með. En þegar
svo ráðamenn flokksins koma sam
an, er jafnan fyrsta verkefnið
það, að leggja á handjárnin -—
svifta menn skoðanafrelsinu.
Allír sjá, að þetta er ékki í anda
lýðræðisins. Hjer er að verki vald-
boð, sem er skilgetið afkvæmi ein-
ræðis og harðstjórnar.
Dagbók
PRESTAFJELAGS-
FUNDURINN.
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU.
stungu síra Magnúsar Björnsson-
ar fyrv. prófasts, kosinn í stað dr.
theol. Magnúsar Jónssonar, er
baðst undan endurkosningu.
Að lokum las formaður fje-
lagsins, prófessor Ásmundur Guð-
mundsson upp kaflann Jóh. 15,
I—16 og bað bænar. En síðan
gengu margir prestanna til altar-
is í Háskólakapellunni.
Fundinn sátu um 40 prestar og^
var það haft fyrir satt, að þó
margur væri skilningurinn, vildu
þeir allir vera af einu-m anda.
ÍX] Helgafell 594110147-VI-2.
I.O.O.F. 3 = 12310138 = 8‘/2 I
Næturlæknir er í nótt Eyþór
Gunnarsson, Laugaveg 98. — Sími
2111. Aðra nótt Gísli Pálsson,
Laugaveg 15. Sínri 2474.
Helgidagslæknir er Ól. Þ. Þor-
steinsson, Eiríksgötu 19. Sími 2255.
Næturvörður er í Reykjavíkrir
Apóteki og Lvfjabúðinni Iðunni.
Síra Jón' Auðuns messar í frí-
kirkjunni í Revkjavík í dag kl.
51/2.
Landakot. Söngmessa kl. 10.
Bænahald og prjedikun kl. 6 síðd.
Jóhanna Guðmundsdóttir, Trað-
arkotssundi 3 á 71 árs afmæli á
morgun. ,,
Fertugsafmæli. Guðjón Þórðar-
son skósmiður er fertugur í dag.
Hjónaband. í gær voru gefiri
saman í hjónaband af Síra Friðrik
Hallgrímssyni Ólöf Ragnheiður
Guðjónsdóttir og Ketill Björnsson,
bæði til heimilis á Hólmavík.
Hjónaefni. Nýlega opinberuðu
trúlofun sína. ungfrú Halldóra
Guðlaugsdóttir, Þrastagötu 3 og
j Guðm. Valur Sigurðsson, Hverfis-
götu 75.
Óperettan Nitouche verður sýnd
kl. 2.30 í dag en ekki í kvöld. Saía
aðgöngumiða hefst kl. 1.
Utvarpið í dag:
11.00 Messa, í Dómkirkjunni. Setn
, írig almenns kirkjufundar (Prje
dikun. sjera Árni Sigurðsson
fríkirkjuprestur. — FyT}r altafi
Bjarni Jónsson vígslubiskup og
Friðrik J. Rafnar vígslubiskup).
14.00 Setning almenns kirkjufund
ar. Ræða: Gísli Sveinsson sýslu-
maður, form. kirkjufundarnefnd
ar. —- Sálmasöngur (Dómki'rkju
kórinn. Stj.: Páll ísólfsson). —
19.30 Hljómplötur: Frönsk svíta
og sónata fyrir flautu og píanó
eftir Baeh.
20.30 Upplestur: ,,Kleópatra“ eft-
ir Walter Görlitz (Knútur Arn-
grímsson kennari).
21.00 Einleikur á píanó (ungfrú
Helga Laxness): Tónverk eftir
Bach: a) Partita í c-moíl. b)
Fantasia í c-moll ( >
21.25 Hljómplötur: Rapsódía eftir
Rachmaninoff,
Paganini.
um stef, eftir
Dótturdóttir mín,
SVALA VALDIMARSDÓTTIR,
sem andaðist 7. þ. m„ verður jarðsungin frá dómkirkjunni
miðvikudaginn 15. þ. m., kl. 2 e. h.
Jarðar verður í gamla kirkjugarðinum.
Gróa Jónasdóttir, Skólavörðustíg 35.
Maðurinn minn
I»ORGRtMUR SVEINSSON skipstjóri
. andaðist í gær.
. María Jónsdóttir.
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda vináttu við andlát og
jarðarför
SIGRÍÐAR EIRÍKSDÓTTUR
frá Eskifirði.
Aðstandendur.
j