Morgunblaðið - 28.10.1941, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 28. okt. 1941,
„HIíf“ segir ekki
j upp kaup-
samningum
Verkamannafjelagið Hlíf
;4j hjelt fund sunnud. 26.
Jþ. m. í Góðtempiarahúsinu. Var
fundurinn allvel sóttur. Á fund-
inum gerðist eftirfarandi:
; 1. Rætt um uppsögn samn.
ipiga. Urðu miklar umræður um
þáð mál. Að lokum var sam-
þykt, með miklum meiri hluta,
tillaga frá stjórn fjelagsins, um
að segja ekki upp samningum.
2. Dýrtíðarmálin tekin fyrir.
Samþykti fundurinn einróma
svohljóðandi tillögu frá stjórn
fjelagsins:
,,I tilefni þess, að ríkisstjórn-
ip hefir sagt af sjer vegna á-
greinings um lausn dýrtíðarmál-
anna og komið er fram á Al-
þingi frumvarp, sem felur í sjer
lögfestingu á kaupi verka-
manna, sem annara launþega,
lýsir fundur, haldinn í Verka-
mannafjelagittu Iflíf, sunnud.
'26.; okt. 1941 yfir þeirri skoðun
sinjni, að lögfesting kaupgjalds-
ins, sje ósvífin og óþolandi árás
a ýerkalýðinn, þar sem dýrmæt-
asta og; helgasta eign sfjettar-
fjejaganna er rjettur þeírra til
ákýörðunar á kaupgjáldi með-
lima sinna. Vegna þesgarar skoð-
unar og í samræmi við sapiþykt
fjelagsins 5. þessa mán. skorar
fundurinn eindregið og alvar-
íega á Alþingi að fella fram-
komið frumvarp um lögfestingu
á kaupgjaldi svo og allar til-
lögur eða frumvörp, sem fela í
sjer lögfestingu á kaupi laun-.
þega landsins".
3. Verkamannaskýlið tekið til
umræðu. Ljetu ræðumenn í ljós
mikla gremju í garð forráða-1
manna verkamahnaskýlisins.
Að umræðum loknum var sam-
þykt eftirfarandi tillaga frá
stjórn fjelagsins:
„Þar sem Verkamannaskýlið
hefir ekki enn verið opnað
verkamönnum tií afnota, þrátt
fyrir’ brýna nauðsyn og ítrekað-
ar tijraunir af fjelagsins hálfu,
beinir fundurinn þeim tilmælum
til bæjarstjórnar Hafnarfjarð-
ar, að hún hlutist til um, að
verkámannaskýlið verði nú þeg-
ar opnað fyrir verkamenn. Ella
neyðist f jelagið að grípa til rót-
tækahi ráðstafana.
Skotæfingar
Bandaríkjaher hefir skot-
æfingar á Sandskeiði
dagana 28., 29., 30. október,
milli klukkan 9,00 og 15,00.
Breski herinn hefir einnig
skotagfingar 28. október.
1 sambandi við æfingu breska
hersirijs er fólk á svæðinu fyrir
sunnan Hafnarfjörð beðið að
halda sig í húsum. Allar skepn-
ur skulu annaðhvort vera heima
við, eða sendai* í burtu frá um-
í-æddu svæði.
Næturakstur mun fara fram
é Hafnarfjarðarveginum og
Suðurlandsbraut á morgun, 28.
október milli klukkan 20,55 og
21,00.
Arndís Jóndóllir
Kveðfuorð
Arndís Jónsdóttir frá Gunnars-
holti ljest 20. þessa mánaðar.
Átti hún heima við Bræðraborgar-
stíg 37 hjer í Reykjavík. Foreldv-
ar hennar voru Jón Einarsson, síð-
ast bóndi að Gunnarsholti á Rang-
árvöllum, og kona hans, Hólmfríð-
ur Erlendsdóttir, hreppstjóra, er
bjó að Breiðabólsstöðum á Álfta-
nesi, látinn 4. apríl 1901.
★
„Vitið þjer ekki, að þjer eruð
musteri Guðs og að andi Guðs
býr í yðurf'
Þegar vjer komum á þessa jörð,
er líkami vor, tjaldbúðin, must-
erið í smíðum. Eftir fæðinguna er
haldið áfram að byggja musterið.
Guð og náttúran vinna að því,
vandamenn einstaklingsins eða
aðrir í þeirra stað. Loks tekur
andinn, einstaklingurinn sjálfur,
að fullu við allri umsjón tjaldbúð-
arínnar,.
Mnstéri og tjaldbúð er jarðlík-
aminn nefndur í helgum fræðum.
Nú er það undir fjölmörgum að-
stæðum komið, hvemig andinn
heldnr við tjaldbúð sinni'. En
skylda er það hvers manns að
halda vel við musteri anda síns.
Þessar tjaldbúðir vorar, jarð-
líkamirnir, verða fyrir marghátt-
uðum áföllum.
Alloft standast þær ekki áföll-
in og gjöreyðast. En musterin
ganga. úr sjer, þótt vel sje með
þau farið. Tönn tímans slítur
þeim, og að lokum verða þau ekki
hæfir bústaðir.
Þegar andi vor yfirgefur tjald-
búð sína, musterið, jarðlíkamann,
er sagt að vjer sjeum sáluð, önd-
uð eða látin.
Það er mikilsvert atriði, að vjer
gerum greinarmun á anda og jarð-
líkama, alt frá fæðingu einstakl-
ingsins til andláts hans. Og yrði
það alment, myndi dauðinn ekki
svo hræðilegur sem nú er hann í
vitund barna, unglinga og jafnvel
fullorðinna manna. Honum yrði
tekið með meiri rósemi og færri
tárum.
Oldum saman hefir kveðið við
í eyrum barna og unglinga, þeg-
ar látins manns hefir minst ver-
ið ? „Hann er nú kominn imdir
græna torfu! — Ef hann mætti nú
líta upp úr gröf sinni!“ En sann-
arlega er það ekki maðurinn, sem
kominn er undir græna torfu eða
í ofninn, heldur hjúpurinn, tjald-
búðin, jarðlíkaminn, musterið. Og
ekki þarf að búast við, að hann
líti upp úr gröf sinni' nje út úr
ofninum. —
Það er eins og menn geti ekki
munað þessi fornhelgu sannindi:
„Duftið hverfur til jarðarinnar,
þar sem það áður var, en andinn
fer til Guðs, sem gaf hann“.
★
Arndís Jónsdóttir, þú ert horfin
oss. Tjaldbúð þín ónýttist fyr en
varði, — eins og margra annara.
Skin og skuggar skiftust á í
jarðlífi þínu. Þú varst þolinmóð,
er á móti bljes. Þjer varð ekki um
megn að bera mótgang lífsins.
Fölskvalaus barnatrú þín entist
þjer allan veginn, og sýnirnar þín
ar gerðu þig sterka í mótlætinu.
Þú áttir vissuna.
Ekki verður hjá því komist að
sakna þín. En huggun vor er, að
vjer vitum anda þinn vera að
byrja nýtt líf. Vjer v.itum, að
verridarengill þinn, sem hefir með
þjer vei-ið frá upphafi vega, fylgdi
þjer nú inn í fyrirheitna landið.
Eins og hugsun þín nær enn til
vor, svo ná hugsanir vorar vit-
und þinni, þótt langt sje hnatta
milli og víðátta geimanna óendan-
leg.
Munum, að hugsun er fljót í för.
Andi þinn birtist. oss í sálar-
líkamá þínum, en það skynja að-
eins fáir í vöku.
Sonur þinn og þeir, sem allra
næstir þjer stóðu og nutu kærleika
þíns í ríkustum mæli, þakka þjer
í dýpstu helgi hjarta síns ástríki,
umönnun og fórnfýsi.
Vjer kveðjum þig, allir vinir
þínir, með innilegustu þökkum
fyrir samfylgd og samvistir. Og
vjer óskum þjer allrar blessunar
á leið þroska og fullkomnunar.
Hallgrímur Jónsson.
-----
Hðskólafyririestur um
breska útvarpið
Breski sendikennarinn, dr. Cyril
Jaekson flytur háskólafyrir-
lestur á ensku í kvöld kl. 8,15 um
„Útvarpskenslu í Englandi“.
Fyrir þrettán árnm var stofnuð
deild í útvarpinu til þess að ann
ast kensludagskrána. Hefir hún
tekist svo vel, að n\i mætti segja
að útvarpið sje orðið „fastur kenn-
ari“ í ríkisskólunum.
í tvo tíma á dag, á milli 11 og
12 og 2 ög 3 er útvarpað dagskrár-
liðum í mörgum námsgreinum, en
hver liður stendur venjulega í 20
mínútur. Dagskráin er birt á und-
an, og með því móti fá kennararn-
ir tækifæri til að ákveða., hvaða
útvarpstíma þeir ætla að nota, sem
verður börnunum t.il fræðslu. Þeg-
ar tíminn kemur, er opnað fyrir
útvarpið. Börnin hlusta, og ef til
vill skrifa sjer til minnis, og að
dagskránni lokinni er farið yfir
efnið.
Maður getur ímyndað sjer, hvað
það er kennui’um til hjálpar að
geta fært sjer í nyt alt hið besta
sem vÖI er á í sambandi víð náms-
grein þá, sem kend er, t. d. góða
hljómlist, upplestur kvæða o. s.
frv.
Dr. Jaekson ætlar að leika ýms-
ai- plötur, sem hafa verið teknar
upp við útvarpskenslu í Englandi,
til þess að sýna meðferð éfnisins.
Aðalfundur Stúdenta-
fjelags Háskólans
Aðalfundur Stúdentafjelags Há
skólans var haldinn í gær.
í. stjórn fjelagsins voru kosnir
Guðlaugur Einarsson stud. jur.,
formaður, Ólafur Hallgrímsson
stud. oecon, ritari of Kristján Ei-
ríksson stud. jur. gjaldkeri.
Endurskoðendur fjelagsins voru
kjörnir Sigríður Jónsdóttir stud
jur. og Stefán Eggertsson stud.
theol.
Stúdentafjelag Háskólans hefir
á undanförnum árum haft m. a.
það hlutverk með höndum að
halda Rússagildi. Það er fagnað-
aröl fyrir nýinnritaða stúdenta.
Mun horfa dauflega um þá fram-
kvæmd nú.
Fjársöfnun til
Neskirkju
Safnast hafa 15000 kr.
Mbl. hefir verið beðið að
birta eftirfarandi:
I tilefni af almennri fjársöfn-
un til Hallgrímskirkju í
Reykjavík, sem fram fer þessa
dagana, vill sóknarnefndin í
Nesprestakalli taka fram, að
fyrir nokkru var hafin fjársöfn-
un til sóknarkirkju í Nespresta-J
kalli innan sóknarinnar sjálfrar.
Taldi sóknarnefndin heppilegt
'að fjársöfnunin færi fram inn-
an sjálfrar.sóknarinnar og hafði
þar fyrir sjer fordæmi sóknar-
nefndar í Laugarnessókn.
Hafa þegar safnast á þenna
hátt rúmlega 15.000 krónur,
sem eru gjafir og fyrirheit um
framlög til kirkjubyggingar frá
áhugasömum 'sóknarmönnum í
Nesprestakalli.
Þessarí fjársöfnun verður
haldið áfram á sama hátt inn-
an sóknarinnar og vill sóknar-
nefndin minna sóknarmenn á,
að til þeirra verður leitað á
næstunni.
Sóknarnefndin.
heldur
hlutaweltu
j álf stæðiskvenn af j elagið
„Hvöt“ efnir til hlutaveltu
fyrir útbreiðslustarfsemi sína n. k.
sunnudag í Verltamannaskýlinu.
„Hvöt“ heitir á meðlimi sína og
annað gott sjálfstæðisfólk, að
bregðast nú vel við og styðja
hlutaveltuna eftir megni. Það, sem
þegar hefir borist til hlutavelt-
unnar, sýnir góðan hug til fje-
lagsins og að vænta má ágætra
muna og fjárupphæða. en betur
má, ef duga skal, svo hún verði
sem glæsilegust og fjelaginu til
sóma, Margar héndur vinna ljett
verk, og safnast þegar saman
kemur.
Athygli skal vakin á því, að
allar upplýsingar viðvíkjandi
hlutaveltunni gefa þessar konur
úr nefndinni: Soffía Ólafsd, sími
3321, Cista Guðjónsd., sími 4252,
Guðný Björnæs, sími 3368, Elín
Zoega. sími 3360, Cista Eggertsd.,.
sími 4497.
Aðalfundur
Danska fjelagsins
Danska f jelagið (Det. Danske
Selskab i Reykjavík), sem
stofnað var 1923, hjelt nýlega að-
alfund í Oddfellowhúsinu.
Formaður fjelagsins. hr. Sv. A.
Johansen gaf ársskýrslu og lagSi
fram endurskoðað reikningshald
fyrir fjelagið og hjálparsjóð þess;
hvorttveggja var samþykt.
Sv. A. Jöhansen heildsali var
endurkosinn í formaunssæti og enn
fremur þeir K. A. Bruun gleraugna
sjerfræðingur, varaformaður og O.
Kornerup-Hausen heildsali, gjald-
keri. Fyrir eru í stjóruinui G. E.
Nielsen endurskoðandi sem skrif-
ari og Johs. Lundegaard verk-
fræðingur, sem er skjalavörður.
Endurskoðendur voru kosnir A.
Herskind og A. P. Nielsen.
L. Storr vicekonsúll baðst úrid*
an endurkosningu sem stjómandi
hjálparsjóðsins og var honum
þakkað fyrir margra ára vel unn-
ið starf. í hans stað var kosínn
O. Kornerup-Hansen.
Um 20 nýir fjelagar hafa bæst
við á árinu.
Mount Everest leiðangurinn. —
Fjallamenn sýna kvikmyndina frá
Monnt Everest leiðangrinum 1933
í Oddfellowhúsinu í kvöld klukk-
an 9. Eftir sýninguna verður dans
að.
Operettan Nitouche verður sýnd
annáð kvöld og hefst sala að-
göngmniða kl. 4 í dág.
Hjartans þakkir til ættingja og vina fyrir auðsýnda viu-
•{> semd á silfurbrúðkaupsdegi okkar, 21. þ. m.
Elísabet Eyjólfsdóttir.
Eiríkur Eiríksson.
“♦**»**♦**♦•*♦—»—«—♦**♦—♦*%M»*4»—♦**♦—♦—♦"»—♦—♦ ♦ ♦ » ♦ * ♦ ♦ • » ♦•♦♦«•♦♦**♦• ••♦•••♦••*••
❖
• t
Þakka hjartanlega öllum þeim, sem auðsýndu mjer vm- X
V
áttu og trygð á 80 ára afmælinu. *
Guð blessi ykkur öll. » 1
Sveinsína Þórunn Jónsdóttir, Keflavík. y
y
?
❖