Morgunblaðið - 11.02.1942, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.02.1942, Blaðsíða 1
Japanskt herlið streymir inn á Singaporeyju Bardagar harðnandi á Luzoneyju „N(_rmaridie“ eyðilagt í eldi PYÍ var haldið fram í Tokio í gærkvöldi, að harð- ir bardagar væru byrjaðir við innri varnar- garð Singapore. Frá því að Japönum tókst að koma fyrstu herdeildun- um á land í Singapore-eyju aðfaranótt mánudags hafa þeir bætt aðstoðu sína og í London var í gær skýrt at- hugasemdalaust frá þeirri fregn Japana, að þeir hefðu lag- fært granitgarðinn, sem tengir eyna við Malakkaskagann og að herlið streymdi inn á eyna eftir þessum garði. Frá því er einnig skýrt í Tokio, að Japanar hafi náð á sitt vald einum af fjórum til fimm flugvöllum á eynni. Eyjan er um 20 km. á breidd og um 40 km. á lengd. Japanar segjast vera komnir 6—8 km. inn á eyna, og vera um 16 km. frá sjálfri Singapore-borginni. Fulltrúi japönsku herstjórnar- innar í Tokio sagði í gær, að eyj- an myndi þá og þegar falla öll í hendur Japana. Á Batanskaganum á Luzon-eyju á Filippseyjum herða Japanar at- lögur sínar, samkvæmt tilkynn- ingu hermálaráðuneytisins í Was- hington í gærkvöldi. Japanar tefla þar nú fram 5 herfylkjum. En til- raun sem þeir gerðu í gær til að setja lið á land á skagann af sjó, mistókst. Einnig í hollensku Austur-Ind- landseyjum heldur sókn Japana áfram, og nálgast þeir nú Java, mikilvægustu eyjuna, að austan, með því að þeir eru að leggja und- ir sig Celebes. Standa harðir bar- dagar yfir um höfuðborg þessarar eyjar. Roosevelt forseti vjek í gær að hernaðaraðferð handamanna og sagði að fyrsta markmiðið væri að hindra að óvinirnir ynnu nokkra úrslitasigra og að eyða kröftum þeirra, en á meðan söfnuðu banda- menn kröftum til að mala óvinina á s.ínum tíma. I fyrrakvöld voru undirrit- *■ aðir samningar milli Hins íslenska prentarafjelags og Fjelags ísl. prentsmiðjueig- enda og er því vinna að hef j- ast á ný í prentsmiðjunum. Morgunblaðið er í dag að- eins 4 síður, en framvegis væntir blaðið þess, að það komi út reglulega og í venju- legri stærð. Úthlutun ellilauna og örorkubóta Nylega. hefir verið lokið við úthlutun ellilauna og örorku bóta í öðrum flokki. Ellilaunin voru samkvæmt þeirri úthlutun veitt 527 umsækjendum samtals kr. 602,586. En örorkubótum út- hlutað til 329 umsækjenda, sam- tals kr. 365,122. Framfærslunefnd tók það fram í fundargerð sinni, að styrk- ur til einstakra umsækjenda hafi jafnan verið hækkaður samkv. dýrtíðaruppbótinni, nema þar sem sjerstök ástæða hefir þótt til að lækka þá, eða þá hækkuð meira en vísitölunni nam. Ennfremur segir í fundargerð- inni: „Fjárhagsástæður aðstandenda nokkurra umsækjenda höfðu batn að til mjög mikilla rnuna,, og varð ekki hjá því komist að taka eðli- legt tillit til þess, ef samræmí átti að verða í úthlutuninni. — Nefndin var þeirrar skoðunar, að lækkun þessi væri stundum var- hugaverð, einkum þegar fram- færandi og framfærður bjuggu ekki í sama heimili, því að ekki væri trygt, að framfærandi rækti alltaf framfærsluskyldur sínar. Sú leið var því farin, þegar svo stóð á, að framfærður og fram- færandi bjuggu ekki á sama heim ili, að umsækjanda var greiddur til bráðabirgða sá styrkur, sem hann fjekk í desember s. 1., uns vissa væri fengin fyrir því, að framfærandi rækti framfærslu- skyidur sínar svo viðunandi væri. Eldur kviknaði í fyrradag út frá logsuðutæki í 83 þús. smálesta hafskipinu „Nor- mandie“, þar sem það lá í höfn í New York. Eldurinn læsti sig um skipið og síð- ar hvolfdi því í ísilagða höfnina, og varð af því brak mikið. Bandaríkjastjórn lagði löghald á skipið, sem var eign Frakka, í desember síð- astliðnum og var verið að búa það út sem flugvjela- móðurskip. Það er tekið fram í New York-fregnum, að álitið sje, að hjer sje ekki um hermd- arverk að ræða. Skæð veiki í kúm veldur bændum stórtjóni Veikin hefir breiðst óðfluga út í nágrenni bæjarins Skæð kúaveiki hefir gengið undanfarið hjá bændum hjer í nágrenninu og hefir veikin einn ig borist til nálægra sveita. Eng- in skepna hefir drepist úr veiki þessari, en nyt fellur mjög mik- ið úr kúnum á meðan þær eru veikar og hafa bændur því orð- ið fyrir tilfinnanlegu tjóni. Ekki verður mönnum neitt að sök, þó að þeir neyti mjólkur úr kúm, sjúkum, þó að mjólkin sje ósoðin. Ásgeir Einarsson dýralæknir skýrði Morgunblaðinu svo frá um veiki þessa: Fyrst varð vart við veiki þessa í kúm í fjósi einu í Skerjafirði þann 15. janúar. Ekki er vitað um orsök veikinnar, þar sem eng- inn samgangur gripa var í fjós þetta. Hefir síðar komið í ljós, að veikin berst með mönnum og hefir breiðst óðfluga út. Er því nauðsynlegt, að menn, sem ganga um f jós, þar sem sýkt- ar skepnur eru, fari ekki í önn- vi r fjós, þar sem sýkin hefir enn ekki komið. Ásgeir Einarsson sagði, að veik in lýsti sjer í kúnum sem venju- legt kvef. Nasarensli, hóstakjölt ur. Skepnan fær hitasótt í 2—3 daga. Síðan mikinn niðurgang og nvtm minkar niður í svo að segja ekkert í vikutíma eða svo. Naut- gripirnir eru veikir í viku til tíu daga og venjulega gengur veikin alt upp í tvær vikur í hverju fjósi. Kýr sýkjast undantekningar- laust allar, ef sýkin kemur í fjós- ið. Þó er eitt dæmi um gamla kú á búi hjer nálægt bænum, sem ekki tók veikina, þó að allar aðr- ar kýr í fjósinu veiktust. Þessi’ eina kýr er frá Korpúlfsstöðum' en sama veikin gekk þar fyrir nokkrum árum og er því talið víst að þessi gamla kýr sje ónæm fyr ir veikinni, þar sem hún hefir haft hana áður. Ekki hefir enn tekist að ein- angra bakteríuna, sem veldur þess um sjúkdóm 1 kúnum, en unnið er að rannsókn veikinnar á Rann- sóknarstofu Háskólans. Bæjarsiminn er of hlaðinn - segir Bjarni Forberg bæjarsímastjóri Bjami Forberg bæjarsíma- stjóri hefir skýrt svo frá, að nú væru hjá honum um 750 pantanir frá mönnum, sem vildu fá síma hjer í bænum. Ómögulegt að vita hvenær eða hvar verður hægt að fá viðbót við tæki sjálf- virku stöðvarinnar. Svo mikil er símanotkunin, seg ir hann, að oft horfir til vand- ræða. Vjelar sjálfvirkustöðvar- innar eru, sem kunnugt er þann- ig að þær geta afgreitt ákveðinn fjölda upphringinga í einu, sem til fellur innan hverra 500 númera í talsímanúmerastöðinni. En þeg ar fleiri taka upp símann í einu, þá afgreiðir stöðin ekki þá, sem umfram eru, fyrri en svo marg- ir, sem eru á tali, hafa lagt nið- ur heyrnartól, að símafjöldinn sem notaður er, komist niður fyr ir hámarkið. Þess vegna er það, að menn verða oft, á þeim tíma dags, sem síminn er mest notaður, að bíða stundarkorn eftir því, að sónninn komi frá stöðinni. Mjög íþyngir það afgreiðslu sjálfvirkustöðvarinnar, segir bæj arsímastjórinn ennfremur, hve börn og unglingar hjer í bæ hafa lagt það í vana sinn, að nota sím- ann mikið. Telur hann, að upp- hringafjöldi í hverju símatæki bæjarsímans sje meiri en sögur fari af annars staðar, og kennir það m. a. því, hve æska Reykja- víkur notar símann mikið. Skaftfellingamót verður haldið að Ilótel Borg 25. þ. m.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.