Morgunblaðið - 22.02.1942, Qupperneq 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Suitnudagrur 22. febr. 1942.
ÚR
DAGLEGA LÍFINU
ins
í dýrtíöarmðlinu
Ræða
dr. Salazár
F. F. F,
á Filippseyjum
^Ákaflega kemur það sjer illa fyrir
urglinga þá, sem bera Morgunblaðið
tji kaupenda, —■ fyrir afgreiðsluna og
íyrir kaupendurna sjálfa, hve víða
vaptar biaðagætt. eða ílát fyrir blöð
ig brjef við inngang að íbúðum
e.anna hjer í bænum. Fólk fer mis-
jafnlega snemma á stjá á morgnana,
er blaðinu er dreift út í hvert hverfi
bœjarins, eftir þeirri röð, sem ungl-
ingamir koma að húsunum.
Þegar þeir, sem með blöðin koma,
hafa ekki önnur ráð, en vefja blaðið
aaman, og smeygja þvi bak við hurð-
arhúna, eða þessh. Þá kemur það oft
fyrir, að blöðin fjúka sje hvassviðri
og húsdyrnar áveðra, eða þau renn-
blotna í rigningum. Það kann lika að
vera stöki* sinnum, að vegfarendur
taki slík blöð, traustataki, sem þann-
ig eru óhirt á gangvegi þeirra.
Ekki mega kaupendur blaðsins
skoða þessa ábendingu þannig, að
vanskil á blaðinu eða seinkun á út-
burði þess við og við, sje þessari
vöntun á umbúnaði að kenna. Því þar
kpma líka til greina vandkvæði á því,
sem verið hafa langa hríð, að prent-
un á upplagi blaðsins sje lokið nægi-
lega sneinma, til þess að blaðið sje
komið til allra kaupenda i bænum um
fótaferðatíma. Og enn hafa vand-
kvæði orðið á heimsending blaðsins
tii kaupenda, vegna þess hve erfitt
hefir verið í allan vetur, að fá ungl-
inga til að bera blaðið út. En þegar
ofan á þetta bætist svo það, að óvíst
er á sumum stöðum, að blaðið Uomiát
altaf í hendur kaupendum, þó það sje
borið að húsdyrum þeirra, þá bætir
það ekki úr skák.
★
„Ung kona“ skrifar blaðinu eftir-
farandi spurningar viðvíkjandi kíg-
hóatanum. Blaðið tekur með þökkum
við svörum frá læknunum:
Um daginn las jeg í Morgunblað-
inu að kíghóstinn væri nú óðum að
breiðast út hjer í bænum og einnig
það, að hann væri mjög hættulegur
litlum börnum og sjálfsagt væri að
verja þau fyrir honum eftir megni.
Mig langar nú til, fyrir mína hönd og
annara, sem eiga ung börn, að biðja
blaðið að leita sjer upplýsinga hjá
einhverjum góðum Jækni um það,
hvemig best sje að verja þau, og vil
jeg hjer koma með nokkurar spurn-
ingar, sem mjer liggja þyngst á hjarta
i þpssu sambandi:
X. Hvað getur heilbrigð manneskja
borið kíghóstabakteríuna Ianga leið
og hvernig ber hún hana?
2. Er óhætt að láta eklra fólk um-'
gangst börnin, sem á að verja?
3. Er ekki hættulegt fyrir foreldra ;
eða fólk, sem þarf að umgangst börn-1
in að koma í hús þar sem kíghósti
getur verið?
4. Hvað gerigur fólk lengi með kíg-
hóstá áður en hann kemur í Ijós?
5. Er hættulegt að fara með böm-
in út í vagni ? geta þau smitast á göt-
unni þó enginn komi niður að vagn-
inum.
6. Er gagnslaust að láta sprauta
mjög ung börn? (nokkurra vikna).
Eða með öðrum orðum: Hvernig
er best að verja ungbörn fyrir kig-
hcstanum?
★
Svör við spurningunum í gær:
X. Edith Cawel) var bresk hjúkrun-j
arkona er Þjóðverjar skutu sem njósn-!
ara 1915.
2. Vesuvíus er eina eldfjallið á |
I
meginlandi Evrópu, sem gosið hefir
síðan sögur hófust.
3. Hálsinn er ýmist nefndur Drag-
háls eða Geldingadragi.
X Harðarsögu og Hólmverja er frá
þvá sagt er Hörður Grímkelsson og
menn hans rændu sauðum I Skorra-
dal af Indriða. Er þeir komu á hálsinn
milli Skorradals og Svínadals „þá
gerði snæfall mikit og gerningaveður
mót þeim, þá mæddust forustusauðir,
er þeir komu undir fjallið, og vildu
þeir Geir þá láta eftir sauðina, en
Hörður kvað það lítilmannlegt, þó að
nokkur snæskafa væri eður lítið
mugguveður í móti. Hörður tók þá
forustusauðina, sinni hendi hvorn og
dró svo upp fjallið. Varð það slóð
núkih Þeir ráku þar í annað fje. Því
heitir þar Geldingadragi siðan.
4. Mönnum kólnar í vatni sem er
15 gráður fyrr en í 15. gr. lofthita af
því vatn er betri hitaleiðari en loft.
5. Sjörnurnar í belti Orions heita
Fjósakonurnar (sennilega af því að
fólk miðaði tímann við afstöðu þess-
rra auðþektu stjai-na á vetrarkvöld-
um t. d. hve nær fara skyldi til fjós-
verka á kvöldin).
SPURNINGAR:
1. Hvort er stærra a<S flatarmáli ís-
land eða Borneo?
2. Hvað eru kallaðir „lausnarsteinr
r.r“?
3. Hver vann fyrstu Islandsglím-
una?
4. í hvaða stórborg í Evrópu eru
rngir strætisvagnar eSa bílar?
5. Hvað er klórnatríum?
Bridge-kepnin
PEAMH. AP ÞRIÐJU SÍÐU
Fyrir að vinna 500 eða meir í
einn spili 6 stig. Fyrir að vinna
25H—490 í einu spili 5 stig. Fyrir
að vinna 50-—240 í einu spili 4
stig. Fyrir að vinna 0—40 í einu
spili 3 stig. Fyrir að tapa 0—40
í einu spili íý stig. Fyrir að tapa
50—240 í einu spili 2 stig. Fyrir
að tapa 250—490 í einu spili 1
stig. Fyrir að tapa 500 eða meir
í einu spili 0 stig.
TTrslit í fyrstu umferðinni urðu
þessi:
1. fj. Einars B. Guðmundssonar
76 stig (+500). 2. fl. Gunnars
Viðars 73 stig (+550). 3. fl. Pjet-
urs Halldórssonar 73 stig (+20).
4. fl. Lárusar Fjeldsted 71 stig
(—20). 5. fl. Harðar Þórðarsonar
71 stig (—550). 6. fl. Lúðvíks
Bjarnasonar 68 stig (—500).
Töhir þær, sem birtar voru að
kepninni lokinni og hafa komið
í blöðunum, um viðureign flokka
Lárusar Fjeldsteds og Pjeturs
Halldórssonar, voru ekki rjettar
(vegna rangrar skýrslu), og leið-
rjettast þær hjer með. Næsta um-
ferð fer fram í Ingólfskaffi annað
kvöld kl. 8%.
Margt manna var að horfa á
spilamenskuna og skemtu þeir
sjer bið besta.
Vilji menn fá aðstoð, hringið í
síma 2339, á kosningarskrifstofu
flokksins í Varðarhúsinu. Munið
að listi flokksins er D-listi.
AUCM/ÝSINUA^
eiga að jafnaði a?5 vera komnar fvrir
kl. 7 kvöldinu áöur en blaðiS kem-
ur út.
Ekkl eru teknar auglýsingar þar
sem afgrreiðslunni er ætlað vísa á
auglýsanda.
Tilboö og- umsóknir eigra auglýs-
endur að sækja sjálfir.
Blaftið veitir nldrel neinar upplýs-
ingar um augJýsendur, sem vilja fá
skrifleg svör viö auglýsingum sínum.
PRAMH AF ÞRIÐJU SÍÐU
hafa verið með í Öllmh þessurn
þvingunarráðstöfunnm.
★
Hversvegna er verið að þessu?
Er það bara af eintómri illgirni
valdhafanna, þings og stjórnar, að
verið er að öllu þessu bramli?
Nei, þannig er þetta ekki. Allar
þessar ráðstafanir eru gerðar í
því skyni, að hafa hemil á dýr-
tíðinni, svo að peningamir verði
ekki einskisvirði að lokum. ÞaS
er m. ö. o. verið að koma í veg
fyrir, að hið sama endurtaki sig
og var hjer í ársbyrjun 1939, þeg-
ar Alþýðuflokkurinn, með Stefán
Jóhann í fararbroddi, rjeðist í
gengislækkunina, til þess að
„reyna að bægja böli atvinnuleys-
isins frá dyrum verkalýðsins“.
Það er fáránlegur barnaskapur
að láta sjer detta í hug, að „stríðs-
gróðinn" geti bjargað þjóðinni
þegar hrunið skellur yfir að hild-
arleiknum loknum. Og þó að öll-
um þessum imyndaða „stríðs-
gróða“ væri „jafnað niður“ strax
í dag og þannig haldið áfram
stríðið út, en öllum hömlum gegn
vexti dýrtíðarinnar jafnframt kipt
úr vegi, myndi íslenska þjóðin
verða fátækari en nokkru sinni
áðúr. Og hún væri enn ver stödd.
Hún hefði um aldur og æfi glat-
að fjárhagslegu sjálfstæði sínu og
í kjölfarið færi hið pólitiska sjálf-
stæði.
★
Það er aumur stjórnmálamaður,
sem ekki sjer, að hið eina sem
g-etur bjargað þjóðinni nú og í
framtíðinni, er, að takast megi
að stöðva dýrtlðarflóðið og skapa
skilyrði fyrir lífvænlegan atvinnu
rekstur í landinu, að stríðinu
loknu. En þeir stjórnmálamenn,
sem sjá þetta, en vilja ekki eða
þora ekki að taka afleiðingunum,
þeir eru svikarar við þjóð sína
og eiga engan tilverurjett.
Ekkert er auðveldara fyrir
stjórnmálamennina á þessnm tím-
um en það, að gerast hoðberar
einnar stjettar, gera háar kröfur
fyrir hennar hönd, en hirða ekk-
ert um hvernig farið er með
aðrar stjettir. Þetta hlutskifti hef
ir Stefán Jóha.nn valið sjer nú.
En hann aðgætir ekki það, þessi
værukæri sjálfselskari, sem þykist
vera málsvari launastjettanna, að
sii stefna, sem hann hefir tekið
nú, boðar atvinnuleysi og eymd
hjá þessum stjettum.
Þar er ekki verið að bæja böli
atvinnuleysisins frá dyrum verka-
lýðsins, beldur er verið að opna
dyrnar upp á gátt, svo að eymdin
geti bafið innreið sína á heimili
verkalýðsins, strax að stríðinu
loknu.
★
Sjálfstæðisflokkurinn hefir trygí
íslenskum launastjettum meiri
rjettarbót en nokkur önnur þjóð.
Hann hefir trygt launastjettunum
fulla dýrtíðaruppbót.
Og nú vinnur flokkurinn að því
að hækka verðgildi peninganna,
sem launþegar fá handa á milli.
En Alþýðuflokkurinn vill gera þá
verðlausa.
rSAMH. Ar ANNARI BlÐD
henti stjórn okkar Bretum og
Hollendingum mótmæli“.
Salazar rifjaði síðan upp at-
burðina, sem gerðust í desem-
ber síðastliðnum (er Bretar og
Hollendingar sendu her til port.
Tunis) og sagði: „Breska stjórn
ib bar ekki ein alla ábyrgð á
þessum atburðum, en tók á sig
fulla ábyrgð. Það er ekki nema
sanngjarnt að látin sje í ljós frá
þessum sama stað viðurkenning
á sanngirni bresku stjórnarinn-
ar er hún fjelst á það, að við
\orum í fullum rjetti okkar, er
\ið lögðum fram mótmæli
„Mjer var mik,ið kappsmál
að hermenn okkar kæmust sem
fyrst til Timor, til þess að fá
ieyst úr þessu máli svo að ekki
lifði eftir skuggi af gremju eða
reiði milli Portúgala og Breta“.
Salazíar vjek síðan að orð-
sendingu þeirri, sem sendiherra
Japana í Lissabon afhénti þann
19, febrúar, þar sem gerð var
grein fyrir afstöðu Japana, „en
þótt orðsending þessi hafi verið
skrifuð á rjettan hátt, þá dreg-
ur það á engan hátt úr alvöru
ástandsins“, sagði Salazar.
„Rjettarslærðing af heridi eins,
afsakár ekki að annar traðk-
aði á hinum sömu rjettindum“
(undirtektir). „Portúgalar gera
það því með fullum rjetti og
þeim ber skýlda tií þess, að
leggja fram mótmæli í Tokio
við þessari rjettindaskerðingu“.
„Japanska stjórnin vissi það
íullvel að innan fárra daga
myndi málið hafa verið jafnað
og portugalskir hermenn myndu
hafa verið komnir til Timor, til
þess að vernda hlutleysi eyjar-
innar. Japanska stjórnin gat
jafnvel ekki fært sjer til máls-
bóta eins og Bretar gerðu, að
þeim bæri skylda til þess, sam-
kvæmt gildandi samningum, að
lijálpa okkur“.
Salazar sagði ,að hann myndi
reyna að leysa þetta mál með
þolinmæði í anda portúgalskrar
siðvenju. (Reuter)'.
REYKJJAVÍKURBRIEF
FRAMH. AF FIMTU SlÐU
méirihlutann, sem honum hafði
altaf borið —- og l.jet Framsókn
nú eftir annað minnihluta-
sætið í nefndinni, en taldi hitt
miðnr rjettlátt, að hafa þar fjóra
menn af' fimm.
Alþýðuflokkurinn, sem með vel-
þóknun hefir undanfarin ár traðk
að á allri sanngirni og rjettlæti í
þessu máli, og sem með dólgslegri
frekju hefir nötað þær aðferðir í
Alþýðusámbaiidinu t. d. að svifta
alla aðra en Alþýðuflokksmenn
kjörgerigi og kosningarrjetti, á
éðliiega erfitt með að skilja, að
Sjálfstæðismenn skuli hjer hafa
fylgt sem í öðrum málurn, rjett-
sýni og sanngirni. En þá aðferð
nota Sjálfstæðismenn í öllum mál-
Um, alveg án tillits til þess; hvort
Alþýðublaðsritarar reka upp fleiri
eða færri spangól.
Mac Arthur hershöfðingi
hefir sent hermálaráðu-
neytinu í ^Vashington skýrslu
um framkomu Filippseyinga í
þeim hjeruðum, sem Japanar
hafa lagt undir sig. Segir í
skýrslunni, að Filippseyingar
láti ekki kúgast þrátt fyrir harð
neskju Japana.
Það sje sama hverrar stjettar
menn sjeu, allir sjeu vissir um
lokasigurinn yfir Japönum
Margir svikarar hafa horfið
á leyndardómsfullan hátt.
F. F. F.
Leynifjelag eitt, sem gengur
undir nafninu „F. F. F.“ (Fight-
ers for freedom" hefir verið
stofnað meðal filipinskra föð-
uriandsvina.
Dag nokkurn var japanska
herstjórnin vör við, að búið var
að breyta auglýsingu til almenn
ings frá henni. í auglýsingu
þessari stóð m. a. ,,að andstaða.
gegn Japönum varðaði dauða-
refsingu" og tilkynt var, að fyr-
ir hvern Japana sem ljeti lífið
yrðu 10 Filippseyirjg^r skotn-
ir“. Breytingin, sem gerð var á
auglýsingunni var á þá leið, að
þar stóð:
„Fyrir hvern Filippseying.
sem drepinn er, verða 10 jap-
anskir hennenn drepnir".
(Reuter),
Bardagarnir
í Austur-Asíu
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU.
ar árás á japönsk skip hjá Pal-
embang á Sumatra og hæfðu
þrjú þeirra.
Loks var eitt japanskt 'skip
hæft hjá Timor.
Engar éilkynningar hafa
borisit frá bandamönnum
um bardagana á landi,
hvorki á Timor nje á Bali.
Japanar tilkynna aftur á
móti, að þeir hafi náð öruggri
fótfestu á Bali og hafi sett vjela
hergögn á land þar. Hafa þeir
náð á sitt vald flugvelli á vest-
urströnd eyjarinnar við sundið,
sem greinir hana frá Java.
Á Timor segja Japanar að
sóknin gangi samkvæmt áætlun.
Japanskar flugvjelar hafa und-
anfarna daga og nætur haldið
uppi stórfeldum loftáþásum á
flugvelli bæði á austur og vest-
úrströnd Java. En engar fregn-
ír hafa. borist ennþá um að þeir
hafi reynt að setja her á land á
Java.
BURMA.
Frá vígstöðvunum í suðurhluta
Burma hafa engar opinberar fregn
ir borist síðasta sólarhringinn. Er
þetta talið get.a hent, til þess, að
Bretar hafi neyðst til að hörfa
úr Bilinvarnarstöðvunum og koma
sjer fyrir í nýrri varnarlínu hand
an við Sittangfljótið.
Laridsstjórinn í Burma, Sir Reg
inald Dorman Smith, sagði í blaða
viðtarli í gær, að Rangoon kynni
að verða önnur Malta eða önriur
Tobruk. ,