Morgunblaðið - 17.03.1942, Page 7
Þriðjudagur 17. mars 1942.
M ORGUNBLAÐIÐ
1
Sextugur
igiirður Þorsteinsson bókhald-
ari varð sextugnr þ. 7. jan-
úar síðastliðinn, en vegna stöðv-
unar á útgáfu blaða um stund
hefir orðið að bíða að minnast
þes^a ágæta samborgara okkar.
Goodtemplarar kunna vel að
meta starfsemi góðra meðlima
sinna, hvar í fremstu röð Siguro-
ur er, enda gegnir hann nú og
hefir gert um langt skeið, einu
af virðingar- og þýðingarmestu
störfum Reglunnar í Reykjavík,
sem er formenska Þingstúku
Reykjavíkur, samband allra Good-
templarastúkna í Reykjavík.
Goodtemplarar hjeldu Sigurði,
konu hans og öðru fjlöskyldufólki
veglegt samsæti, þar sem honum
voru færðar gjafir, sem vott
þakklátssemi fyrir vel unnin störf
og ljúfmannlega framkomu í allri
umgengni og samstarfi í stúku
sinni, st. Prón nr. 227, og Þing-
stúku Reykjavíkur.
Margir af bestu mönnum Regl-
unnar ljetu í ljósi viðurkenningu
og virðingu fyrir vel unnin störf'
og óskir um langt og farsælt líf
nfmælisbarninu til handa.
Til þess að skilja betur skap-
festu manna og áreiðanlegheit í
hvívetna, verður helst fyrir að at-
huga liverrar ættar menn eru og
kygg' jeg, að ættfróðir menn gætu
gefið margar og merkilegar upp-
ilýsingar þar um.
Þessvegna er ekki að undra þó
að margt sje vel um Sigúrð,í því
efni, því að hann er framúrskar-
andi vel ættaður, sem kunnugt
•er.
Þessvegna er hann hið góða for-
dæirþð fyrir hina ungu, en það _er
aðaltilgangur starfsemi Good-
templarareglunnar. Og mesta gleði
Sigurðar er áreiðanlega sú, að
hafa beint mönnum og að halda
því áfram meðan líf endist, inn
á braut bindindis með því að ger-
ast meðlimir Reglunnar.
Biginkona Sigurðar, frú Ama-
lía Sigurðardóttir, dóttir þjóð-
kunnugs heiðursmanns og ein
hverrar helstu máttarstoðar Regl-
unnar .á sínum tíma, er sjálf iGood
templar um langt árabil, hefir
veitt manni sínum ómetanlegan
fityrk og stuðning í starfi hans
fyrir Regluna. þ. J. S.
Vegabrjefin. Tæplega 19,000
manns hafa nú sótt vegabrjef sín
on vegabrjef eru afgreidd til fólks
•sem býr við götur með upphafs-
stafnum A—S. Það er mjög nauð-
synlegt að fólk sæki vegabrjef sín
■sem allra fyrst. Þegar hefir borið
á því, að menn, sem ekki hafa
haft vegabrjef, hafa orðið fyrir
úþægindum, t. d. í viðskiftum síll-
um við setnliðin.
StrlO við apa
Vegagerðarmenn, sem vinna við
Sikagassamveginn á landa-
mærum Indlands og Kína, en veg-
ur þessi á að koma í stað Burma-
brautarinnar, hafa lent í styrjöld
við apa.
Pregn um þetta hefir borist til
aðalskrifstofu Kínahjálpaiúnnar í
New York. frá hinni opinberu
kínversku kvikmyndastofnun.
Kvikmyndastofnun þessi hfefir ver
ið að láta taka myndir í evði-
hjeruðum nálægt landamærum Ind
lands og kvikmyndamennirnir
skýra frá því að þúsundir apa
hafi nýlega gert harðar árásir á
hina mensku ,,innrásarmenn“ í
land þeirra.
Aparnir ljetu steina rigna yfir
höfuð verkamannanna og gerðu
árásir á matvælabirgðir þeirra.
Frá því í desember hefir verið
hægt að halda vinnunni áfram
með því að vopnaðir verðir hafa
verndað verkamennina nqtt og
dag. Á einum stað lagðist vinna
niður í meir en viku, á meðan
verið var að hrekja apana, burtu
úr nokkrum trjám. (Reuter).
Athngasemd
Hr. ritstjóri.
O ökum mjög villandi frásagm
^ ar í ,,Alþýðublaðinu“ í dag,
um vörukaup þau, er jeg hefi
haft með höndum fyrir ýmsa
umbjóðendur hjer heima, leyfi
jeg mjer að biðja yður að birta
eftirfarandi:
Vörur þær, er keyptar hafa
verið, eru að mestu leyti full-
komnar nauðsynjavörur, svo
sem: búsáhöld, glervörur, vefn-
aðarvörur, verkfæri, ritföng o.
s. frv. Kaup á allskonar smá-
vörum hafa verið hverfandi,
eða a.lls ekki yfir 2—3% af
heildarkaupunum. Keypt hefir
verið eingöngu hjá gömlum og
þektum verslunarhúsum, að
mestu af gömlum birgðum, og
verið þaraf leiðandi 15—30%
lægra en það er nú á heims-
markaðinum. Algert útflutn-
ingsbann er nú ennfremur kom-
ið á margar þær vörutegundir,
er .jeg keypti, og þær því ófáan-
legar frá Englandi um ófyiir-
sjáanlegan tíma. Þá mætti einn-
ig taka fram, að flestar hinar
keyptu vörur heyra undir á-
kvæði verðlagsnefndar og þar
rueð trygt, að hið hagkvæma
innkaupsverð komi íslenskur.i
neytendum til góða. — Frekari
hækkanir á vöruverði eru fyrir-
sjáanlegar, og virðist augljóst,
að hagstætt er að gera nauð-
synleg vörukaup áður en frek-
ari verðhækkanir koma til fram
kvæmda.
Allir hugsandi menn ættu
heldur að reyna að ljetta undir
:neð innflytjendum þeim, sem
reyna að stemma stigu fyrir
verðbólgunni með hagkvæmum
vörukaupum á rjettum tíma,
heldur að auka þá erfiðleika er
við nú þegar eigum við að stríða.
Það atriði verður e.t.v. nauðsyn-
legt að ræða nánar síðar.
Með þökk fvrir birtinguna.
Reykjavík 13'. mars 1942.
Ingólfur GuSmundsson.
Sýslufundur
Eyjafjarðarsýslu
Fhá frjettaritara vorum
á Akureyri.
ýslufimdur Eyjaf jarðarsýslu
hófst á Akureyri 5. mars og
lauk 16. s. m., laust fyrir hádegi.
Meðal annars gerðist þetta á fúnd
inum: ■ .
1) Sýslunefnd skoraði á sauð-
f.jársjúkdómanefnd ríkisins, að
setja upp á næsta vori varnar-
girðingu í Eyjafirði gegn mæði-
veikinni, svo veikin berist ekki
út um sveitirnar milli Eyjafjarð-
ar og Hjeraðsvatna.
2) Til sýslnvega í sýslunni voru
veittar kr. 56.900.
3) Sýslunefndin mælti með því,
að vegurinn yfir Oxnadalsheiði
yrði fullgerður á næsta sumri.
4) Samþykt var að veita til nýs
sjúkrahúss á Akureyri kr. 10.000.
5) Til vatnamála veitt kr. 2.300,
6) Til heilbrigðismála kr. 12.000
7) Til búnaðarmála kr. 3.500.
Laugardaginn 14. mars hjelt
sýslunefndin sýslumanni og. frú
hans samsæti Ræður hjeldu sýslu-
nefndarmennirnir Eiður Guð-
mundsson fyrir minni fósturjarð-
arinnar, Einar G. Jónasson fyrir
sýslumannsfrú, Solveigu Eggerz,
og Þórarinn Kr. Eldjárn fyrir
sýslnmanni, Sig. Eggerz. Davíð
Jónsson flutti kvæði sýslumanni,
er síðan var sungið í samsætinu.
Sýslumaður og frú hans þökkuðu.
Stóð samsætið langt fram á nótt
og var í alla staði hið ánægjuleg-
asta.
1942
— ekkl1943
Casey, sendiherra Ástraþu-
manna í Washington, sagði
í gær, að tími væri nú til þess
kominn, að Bandaríkjaþjóðirnar
byrjuðu sókn á hendur óvinunum,
til þess að verja Ástralíu.
Við höfum ekki efni á því að
miða aðgerðir okkar við árið 1943,
heldur verðnp við að miða þær við
árið 1942, ságði hann.
ðMiaaoaoeo* xMtooMoooea
Ðagbók
• mooooooooo oooooooeeoM
□ Edda 59423177 — 1.
I.O.O.F. = O.b. l.P. = 1233178V4
Næturlæknir er i nótt Jóhannes
Björnsson, Sólvallagotn 2. Sími
5989.
85 ára er í dag frú Kristín Þor-
láksdóttir frá Seljatungu, nú til
Heimilis á Klapparstíg 25 hjer í
bænnm..
Árni Jóhannsson, aðalgjaldkeri
Kaupfjelags Eyfirðinga, og forset.i
báejarstjórnar Akureyrarkaupstað-
ar, varð 60 ára í gær.
Brejrtingar á atkvæðaseðlum.
Nokkrar breytingar voru gerðar á
atkvæðaseSlum i’ið kosningarnar á
sunnudag, aðallega tilfærslur á
mönnum, breyting á röð. Ekki er
búið að telja, eða reikna út at-
kvæðatölu hvers fyrir sig, en
breytingar á atkvæðaseðlum voru
]>essar: Hjá A-lista 37, B-lista 70,
C-lista 22 og D-lista 495.
AUCLÝSING er eulls fsrildi.
;
%
I
i
%
Öllum þeim, sem heiðruðu mig með gjöfum, skeytum og
annari vinsemd á fimtugs afmæli mínu, 15. þ. m., þakka jeg
innilega. Sjerstaklega þakka jeg húsbónda mípum, hr. Tómasi
Tómassyni, útgerðarmanni, fyrir hans höfðinglégu gjöf.
Sig. Jónsson, Hverfisgötu 98 A.
5*
T
..................
Kvenkápnr
Höfum fengið smekklegt úrval af kápum.
^HiiiiiiiniiiiiiuiiiiiiiiiiiiiDiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuumuuiuiuiininnnaBBmi
| Tilboð óskast
fi veitingahúsið HveiagerQi
| til reksturs næsta sumar, tímabilið maí—september.
Rjettur er áskilinn til að taka hverju tilboðinu
| sem er, eða hafna öllum.
Oddviti Ölfushrepps, Hveragerði.
■■uuiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiniuiuiiuiiiiiiinHiiuaH
Fiskvinna
1 , \ • •„ 4 •
2 karlmenn vanir flökun og nokkrar stúlkur geta
fengið atvinnu strax hjer í Reykjavík. Mikil eftirvinna.
Stúlkur geta fengið frítt húsnæði og aðgang að eldhúsi á
vinnustað.
Upplýsingar gefur
Óskar Halldónson
Ingólfsstræti 21. Sími 2298.
EF LOFTUR GETUR ÞAÐ EKKI ÞÁ HVER7 /
« '-;í t
l Móðir okkar, l
frú ÞÓRUNN SCH. THORSTEINSSON,
andaðist að heimili sínu, Þingholtsstræti 27, aðfaranótt mánu-
dags þ. 16. mars.
Börnin.
Konan mín,
GUÐRÚN FRIÐRIKSDÖTTIR,
Leifsgötu 13, andaðist í spítala aðfaranótt 16. þ. m.
Jón Hjartarson.
Jarðarför dóttur minnar elskulegrar og systur okkar,
VALGERÐAR ÓLAFSDÓTTUR,
fer fram miðvikudaginn 18. mars kl. 3,30 frá dómkirkjunni
Valgerður H. Briem og börn.
Kærar þakkir fyrir auðsýnda samúð við fráfall og jarðar-
för bróður míns,
ÞORSTEINS GUNN ARSSONAR,
f. v. lögregluþjóns.
Fyrir mína hönd og annara aðstandenda.
Tómas Gunnarsson.