Morgunblaðið - 31.03.1942, Page 3
3
l»riðjudasrur 3L roars 1942. MÖKG UN BLAÐI9 _
Skattafrumvörp ríkis-
stjórnarinnar komin fram
90°/o skatiur at skattskyldum
tekjum ytir 200 þús. kr.
„Af sjðfugs
$jónarhól“
Frádráttarreglan afnumin
Samtal við dr. phil. Heiga Pjeturss
UTBÝTT 'hcfir verið á Alþingi tveim skatta-
frumvörpum og voru bæði fram borin ao
tilhlutan ríkisstjórnarinnar, en mejrihluti
fjárhagsnefndar neðri deildar flytur frumvörpin. Frum-
vörpin eru um tekju- og eignarskatt og um stríðsgróða-
skatt.
Þar aem skáttafrnmvörp þessi eru flutt að tilWutau rfkis-
stjörnarinnar, má að sjálfsögðu ganga út frá. að um þau sje
samkomulag innan ríkisstjórnarinnar og þá .sonnih'ga einnfg
innan stjörnarflokkaroia. Verður því hjer reynt að geta a :höf-
uðdráttum ut á hvað frumvörpin ganga.
J eg var kallaður „studiosus“, þegar jeg var barn;
jeg byrjaði svo snemma að hafa ánægju af að
lesa“, sagði dr. Helgi Pjeturss, er jeg kom
beim til hans á vinnustofu hans í gær við Smiðjustíg.
Sr. Einar í Kirkjubæ gaf mjer Biblíu í afmælisgjöf
þegar jeg var 7 ára“, hjelt hann áfram. „Jeg á hana víst
hjerna“.
E)r. flelgi gekk að einum af bókaskápum sínum ög tók út gamla
biblín. Þar stendur með snyrtilegri höhd: „Studiosus bibl. Helgi
Pjetnrss, :31. mars 1879.
Eins og áður greinir er hjer
um að ræða tvö frumviirp.
Annað fjallar uin tekju-> og
eignaskattinn alrnent, en hitt
um str'íðsgröðaskattinn.
TEKJU- OG
EIGNARSKATURINN
Höfuðbreytingin, sem frum-
varp þetta ráðgerir á gildandi
skattálögum er sú, að við á-
kvörðun skattskyldra tekna
verði ekki hægt að draga
gfreiddan tekjuskatt og útsvar
frá tekjum. en í þess stað verði
skattstíginn lækkaður.
Um þetta atriði hefir leng'i
''•erið deilt og hafa Sjálfstæðis-
menn staðið gegn breytingunni
af' ótta við það, að hún dragí
þann dilk á eftir sjer, að skatt-
stíginn verðí hækkaður siðar.
HJnsvégar verður því ekki neit-
að, að brevtingin er hagkvæm
i'yrir ríkissjóðínn, því að tekj-
ur hans verða jafnari frá ári til
árs með þessu fyrirkomulagí.
Breytingin er og til hagsbótá
fyrir þau fyrirtækj, sem hafa
mjög ójafnar tekjur frá ári tíl
árs, eins og t. ð. útgerðarfjelög.
Fyrír almenning á það áð
koma nokkurnveginn út á eitt
hvort fyrirkomulagið er haft,
þar sem skattstíginn er lækkað-
ur að sama skapi. En hinu verð-
ur þó ekki neitað, að almenn-
ingur missir hjer þá einu vöru
sem hann hafði gegn hóflausri
skattaálagningu, því að á með-
an leyft var að draga frá skatt-
skyldum tekjurn þann tekju-
skatt og útsvar, sem skattþegn-
inn hafði greitt síðasta skattá^,
var fyrir það girt að allar tekj-
urnar færu í skatta og útsvar.
Nú er þessi hemill burtu num-
inn og verðá því skattþegnarnir
að vera enp þetur á verði en
áður, þegar verið er að breyta
; kattalöggjöfinni.
Önnur aðalbreytingin, sem
frumvarp þetta ráðgerir, fjallar
um varasjóðstillag fjelaga.
í núgildandi skattalögum er
helmingur af varasjóðstillaginu
FRAMH. Á SJÖTTTT STÐTJ
Nfu manna
stjórnarskrár-
nefnd f N.d.
NEÐRI deild kaus í gær 9
m ann a stjórnarskrárnefnd,
sem á að fjalla um fraTnkomnar
tillögur varðandi breytíng-ar k
stjórnarskránni.
Nefndina skipa þessir menni
Gísli Sveinsson, Jón Pálma-
son, Garðar Þorsteinssón, Berg-
’fur Jónsson, Gísli Guðmundsson,
Sveinbjörn Högnason, Jörundur
Brynjólfsson, Ásgeír Ásgeirs-
son, Einar Olgeirsson.
Svo sem kuhnugt er var
fyrstu umræðu stjórnarskrár-
frumvarpsins lokið í neðrí deild
á þríðjudaginn var, en atkvæða-
greiðsla fór ekki fram fvr en í
gær. Var samþykt með 13
gegn 8 atkv., að vísa frumvarp-
inu til 2. umræðu; á móti voru
Framsóknarmenn eingöngu.
Erlent skip
strandar við
Austurland
Slvsavarnafjelagi íslands barst
í gœrmorgun skeyti þess efn-
is, að skip hefði strandað við Aust
firði, skamt frá Eystra-Homi, og
að næsti bær frá strandstaðnum
myndi vera Hvalsnes.
Ekki var vitað, bvaða skip þetta
væry. eða hvort, mannbjörg hefði
orðið.
Síðar í gær barst sú fregn, að
skipið væri erlent og að áhöfnin,
fimm menn, befðu allir komist til
mannabygða bjálparlaust,. Það
fylgdi ekki með hverrar þjóðar
skipið væri. en bin fámenna á-
höfn bendir til að skipið sje lítið.
— llvaða samband var milli
vkkar sr. Einars í
— Möð'ir mín kendi honum að
spila. Hún kendi aUa sína æfi að
sþija tók. aldrei nema 50 aura á
■tímann. Það var siður á hennar
dögum. Stundum kendi hún 11
tíma á dag. Húri lagði hart að
sjer. Efniii vom þannig. Ilún var
aldrei lieilsiigöð. Faðir liennar, Vig
fus sýslumaðiir Thorarensen, flutti
;NÍg með sinn mkia barnahóp atist-
an nr Skaftafellssýslu til Borð-
eyrar. Móðir mín var flutt í
'hripi., Ilún beið þess aldrei bætur.
Hún var þriggja ára. Hún var
skilin eftir hjer í Reykjavík hjá
skýldfóTkmu sínu. Jeg held að hún
hefði orðið ríthöi’niidiir. ef kring-
umstæðiir hemiar hefðu leyft. Hún
bafði svo inikið yndi af að segja
frá og fræða. Hún fór til Hafnar
er bún var fertug. Sú ferðasaga,
«em hún sagðí úr jieirri ferð, var
Hreint fistaverk.
Það var annárs skrítið. að móð-
ír Iriíii 'áttí þrjá bræður fyrir
lángafa. syni Þórarins á Grund.
Stéfán amtmann, Vígfús sýslu-
mann á Hlíðarenda og sr. Gfísla
í Odda.
Doktorinn handleikur biblíuna
gömlu og segir svo: ,
; — Sr. Einar hjelt jeg myndi
verða prestnr, vegna þess hve mik
ið jeg las í biblímmi sem barn.
-— Hvenær vaknaði áliugi yðar
fvrir jarðfræðinni?
---Þegar je.g vai-í Latínuskólanv
úm. Þá las jeg> öll ósköp í jarð-
fræði, mörg þúsund blaðsíður.
byrjaði oft kl. 5 á morgnana og
las þangað til jeg fór í skólann.
Svo sigldi jeg til Hafnar sem
stúdent, 1891 og las náttúrufræði
með jarðfræði sem aðalfag. Jeg
fjekk ágætiseinkunn í dýrafræði
hjá Lútken. Það fjekk engirin sam
tíðarmanna minna. Jeg var dálítið
hreykinn af því.
— En hvenær fórtið þjer fyrstu
rannsóknaferð hjer heima?
— Þorvaldur Thoroddsen tók
mig með sjer á ferð um Snæfells-
nes. Jeg var með honum í þrjár
vikur og lærði mikið. Harin var
mjer ósköp góður. Sjálfstæðar
Ðr. Helgi Pjeturss.
..rannsókriaferðir bvrjaði jeg svo
hjer, 1899 og hjelt þeim áfram til
1913, og fór nokkrar eftir það. Eu
mig liefði langað til að skoða
betur skagana á Norðurlandi, þeir
eru svo nierkilegir, hefi ekki liaft
tækifæri til að athuga þá nægilega
vel. %
GRÆNLANDSFERÐ.
— Þjer fóruð eitt sinn til Græri
lands.
— Það var sumarið 1897. Jeg
var óheppmn í þeirri ferð. Við
vorum 2 máimði með gömlu segl-
skipi frá Höfn til iGodhavn. Jeg
PEAMH. Á RJÖTTT7 JBIÐU
Handknattleiks
mótinu lokið
Urslitaleikir handknattleiks-
mótsins í 1. og 2. fí. fóru
fram á sunnudag, en áður höfðu
farið fram urslitaleikir í meistara-
flokki og kvennaflokki, eins og
áður hefir verið skýrt frá hjer í
blaðinu. Á simnudag fóru leikar
svo, að í 1. fl. sigraði ÍR Val með
30 mörkum gegn 16 og í 2. fJ.
vann Ármann Hauka með 10:5.
íslandsmeistarar í handknatt-
leik þetta ár eru því: T meistara-
flokki Valur, í 1. fl. ÍR. í 2. fl.
Ármann óg í kvenflokki Ármann.
z n~
| Verður aðkomu-1
] fúlki bannað að!
1 koma á skíðaviku;
ísaf jarðar
5 . ■=
I Bæjarstjórn vill [
setja bæinn ]
| í sóttkví j
iniiuiiiiiminiimn 'iiminihimiminiijr
O æjarstjórn ísafjarðar sam-
* þykti á fundi sínum í gær,
að fara þess á leit við landlækni
og heilbrigðismálaráðun., að
utanbæjarmönnum verði bann-
að að koma til ísaf jarðar vegna
kíghósta smitunarhættu. Þessi
ráðstöfun er gerð aðallega
vegna hinnar fyrirhuguðu skíða
viku, sem halda á um pásk-
ana á ísafirði.
Tugir manna hjeðan úr bæn-
jm höfðu fyrirhugað að fara
vestur á skíðavikuna með Esju
í kvöld, en mikil líkindi enu
fyrir því að ekkert geti úr för
þeirra orðið.
★
Morgunblaðið átti tal við
Vilmund Jónsson landlækni í
gærkveldi og spurði hann hvort
nokkurar ákvarðanir hefðu
verið teknar um málaleitari
bæjarstjórnarinnaf á fsáfirði:
Hann sagði að svo væri ekki.
Sjer hefði borist skeýti að vest-
an um þetta mál, en tími hefðv
ekki uhnist til að ria í ráðuneyt-
ið nje taka ákvörðun í málinu.
Hinsvegar sagði landlæknir.
að samkvæmt sóttvarriarlögun-
um væri það algjörlega einka-
mál þess hjeraðs, serii óskaði
eftir að sóttvörnum yrði komið
á hjá sjer að öðru leyti en því,
að leyfi þyrfti frá héilbrigðis-
vfirvöldum landsins. Ef þetta
væri einróma Ösk bæjárstjórn-:
ar, hjeraðslæknis ög- IÖgreglu-
stjóra á ísafirði, væru allar lík-
ur til að leyfið yrði veitt.
★
Frjettaritari Mbl. á ísafirði
skýrði blaðinu svo frá í gær,
að verið væri að bólusetja börn
þar gegn kíghósta og þar sem
nokkurn tíma þyrfti til að bólu-
efnið verkaði, óttuðust Isfirð-
ingar að kíghósti gæti borist
með aðkomumönnum.
12 þúsund skömtunar-
seðlar súttir f gær
A fhending matvælaseðía fyr-
** ir næstu þrjá máriuði hófst
í gær í Góðtemplarahúsinu og
voru sóttir um 12000 seðlar, af
um 40.000.
Skömtunarseðlar verða af-
hentir í dag og á morgun. Er
almenningur áminntur um að
draga ekki að sækja seðla sína,
]»ar sem afhending fer fram að
eins þessa tvo daga. Opið er í
Góðtemplarahúsinu kl. 10—12
og 1—6