Morgunblaðið - 09.04.1942, Blaðsíða 2
MUKGUNBLAtJl t>
VORSOKNIN AÐ
■Fimíudagur 9. aoríl 1942.
HEFJAST?
Rommel farina
á stúfana ■ Líbyti
Stórfeldustu árásir
stríðsins á Malta
FREGNIR í nótt bentu til þess, að vorsókn öxuls-
ríkjanna væri um það bil að hefjast. Breska
herstjórnin í Kairo birti í gærkvöldi aukatil-
kynningu, þar sem skýrt var frá því, að hersveitir Romm-
els í Libyu væru farnar á stúfana.
Hermálaritari Reuters ljet í nótt í ljós þá skoðun, að
ólíklegt væri, að Hitler ljeti við það eitt sitja að hef ja sókn
í Libyu og að sennilegra væri, að með sókninni þar yrði
tjaldinu lyft frá vorsókn öxulsríkjanna á mörgum víg-
stöðvum í senn-
Fíá Malta bárust í gær fregnir um að 9 þýskar flugvjelar
hefðu verið skotnar niður yfir eynni í gær og fjórar aðrar senni-
lega skotnar niður, 8 laskaðar og margar aðrar laskaðar lítil-
tega.
1 fyrradag voru fjórar þýskar flugvjelar skotnar niður
yfir Malta, en þá var gerð hin mesta árás á eyna, sem gerð hefir
Verið frá því að stríðið hófst. 1 opinberri tilkynningu. sem birt
Var í Kairo í gær, segir að meginárásin hafi verið gerð á höfn-
ina í La Valetta, en árásir voru einnig gerðar á flugvelli á eynni.
í tiikynningu þýsku her-
stjórnarinnar í gær var skýrt
irá því, að „öflugar þýskar bar-
daga-, steypi- og orustuflugýjel
ar hefðu gert loftárásir á höfn-
ina og birgðastöðvar í La Val-
etta, tundurskeytaskemmuna
Calafrana og á flu'gv. á Malta. í
. birgðaskemmunum og skipa-
'fimíðastöðvunum komu upp
miklir eldar. Ljett breskt beiti-
skip. sem lá í höfninni var hæft
hvað eftir annað með sprengj-
um“.
LIBYA
• Aukatilkynningin um sóknar
viðbúnað Römxhels í Libyu, sem
herktjórnin í Kairo birti í gær-
kvöldi var á þessa leið:
„Úndanfarna daga hefir orð-
ið vart váxandi hreyfingar í
framlínu óvinanna. Tvær eða
þrjár herdéildir þeirra hafa
háft sig í frammi milli Tmimi
og Mekili vegarins og herstöðva
okkar í suður frá Gazala, en
þær eru ekkj epn komnar að út-
vafðástöðvum okkar. Minni-
háttar viðureignir hafa átt sjer
stað milli óvinanna og vjelaher-
sveita okkair og nánar gætur
eru hafðar á öllum hreyfingum
ðvinanna“.
Fyrstu fregnirnar um vax-
andi viðbúnað í Libyu bárust
með tilkynningu ítölsku her-
stjórnarinnar frá Róm í gær-
dag. Var þar skýrt frá því, að
italskar hersveitir hefðu hrund-
ið broskum hersveitum úr nokkr
um fra m v a rð astöð v u m.
Ttö ár
í dag, 9. apríl, eru liðin tvö .ár
frá því að innrásin var gerð í Nor-
eg og Danmörku.
Egyfskur ráð-
herra handtekinn
KAIRO í gær: — Aly Maher
Pasha.. fyrveratídi forsætisráðr
herra. Egypta; hefir verið settur í
varðhald. Egypska ráðunevtið gaf
í kvöld út tilkynningu, þar sem
segir að Nahas Pasha forsætisráð-
herra hafi sem yfirmaður hervarn-
anna ákveðið vegna örýggis rík-
isins að setja Maher Pasha fvr-
verandi forsætisráðherra og fyr>
verandi forseta hins konunglega
einkaráðs í varðhald. —- Reuter.
*
Maher Pasha er einn kunnasti
stjórnmálamaður Egypta og hefir
staðið í nánu sambandi við Far-
ouk kouuug.
16 skipum sökt
í Atlantshafi
Dýska herstjórnin birti í gær
aukatilkyúnihgu, þar sem
skýrt 'var frá þvt, að þýskir kaf- j
bátar hefðu sökt í Atlantshafi 16
óvinakaupskipumf samtals 104.000 j
smál.
13 skipum var sökt við strendur
Ameríkn og 3 við strendur Afríku.
Laasoin
Talið er að hin nýja lausn varð,
andi landvarnamál Indverja
sje svipuð því fyrirkomulagi, sem
nú er í Ástralíu.
En þar hefir Mae Arthur æðstu
herstjórn, en hermálaráðherrann,
Ford, hefir ábyrgð og völd, sem
eru greinilega afmörkuð.
Betri ttorfur
f Indlsíidi
Tilkynning
Cripps í dag
amningaumleitanirnar í Ind-
landi snerust skyndilega til
betri vegar í gærmorgun. í fyrra
kvöld var alment álitið, að kon-
gressflokkurinn hefði lokið um
ræðunum um tillögur Cripps og
samþykt að fella þær.
En í gærmorgun kom fram-
kvæmdaráð flokksins saman á
fund að nýju og er álitið, að
nóttina áður hafi verið fundin
ný lausn á skipun landvarna-
málanha, sém lögð var fyrir
fundinn í gær. Framkv.ráðið sat
á fundi í allan gærdag og í
fregn frá Nýj'u Delhi í gærkv.
var skýrt frá því, að ráðið væri
nú búið að hafa tillögur Cripps
til meðferðar á fundum, í sam-
tals 48 klst.
Álitið er, að á fundinum í
gær hafi verið rætt úm hina nýu
lausn og um gagntillögur 'í sam-
bandi við hana, sem sennileg?i
verða samþyktar á fundi ráðs-
ins snemma í dag og afhentnr
Sir Stafford áður en hann gerir
opinberlega grein fyrir erindis-
iokum sínum, en það verður kl.
hálf níu f. h. í dag eftir ísl.
tíma.
Yfirleitt kom fram sú skoðun
í Nýju Delhi í gær, að horfurn-
ar væru nú mun bjartari á því,
að indversku leiðtogarnir sam-
þyktu tillögur Cripps.
Hið nýja viðhorf sem skapað-
ist í gærmorgun, er talið vera að
hiiklu leyti að þakká fulltrúa
Roosevelts, Johnson hershöfð-
ingja, en hann hefir undanfarná
daga setið á stöðugum ráðstefn-
um með helstu leiðtogunum í
Nýju Delhi. ’ Hann ræddi við
Pandit Nehru síðdegis í gær á
meðan að framkvæmdaráð kon-
gressflokksins sat á fundi og
var það fimta samtal þeirra.
Annar stærsti flokkurinn í
Indlandi, flokkur Múhameðstrú
armanna, gerði í gær samþykt,
þar sem bresku tillögurnar voru
gagnrýndar og sagt um þær, að
þær uppfyltu ekki vonir flokks-
ins. Afhenti dr. Jinnah Cripps
þessa samþykt í gærkvöldi, en
Cripps fekk honum þá hina nýu
lausn á landvarnamálunum. —
Fór Jinnah að því búnu á fund
framkvæmdaíráðs Múhameðs-
trúarmanna og lagði hina nýju
lausn fyrir fundinn. Ráðið sat á
fundí í eina klst., en síðan var
fundinum frestað þar til í dag.
Iskyggilegar horf-
ur á Bataanskaga
Bandaríkjamenn hörfa
í nýja víglínu
ÞAÐ VAR viðurkent í Washington í gær, að
horfurnar á Bataanskaga á Filippseyjuxn
væru alvarlegar. Var frá því skýrt, að her-
sveitir Wainwrights hershöfðingja ættu nú fyrir höndum
örðugri daga en nokkru sinni áður í f jögurra mánaða hug-
djarfri vörn þeirra á Filippseyjum.*
Fyr í gær hafði verið skýrt frá því í fregn frá Wáshington, að
hersveitir Wainwrights hefðu í fyrrakvöld hörfáð til nýrra vígstöðva,
cftir að Jaþanar höfðu brotist í gegnum víglíriu þeirra um miðbik
hennar á mörgum stöðum. Varð ekki hjá því komist að rjetta víglín-
Bússland
Aukin tiofkun
skriðdreka
rátt fyrir að rússneska her-
stjórnin hafi tilkynt í nótt,
að engar markverðar breytingar
hefðu gerst á austurvígstöðvuntun
i í gær, þá er þó greinilegt, að tals-
; verðar heraaðaraðgerðir eiga sjer
j stað þar.
j Þannig skýrði' „Právda" í gær
frá skriðdrekaárás Þjóðverja íy
Krímskaga. „Pravda“-segir, að um
100 þýskir skriðdrekar hafi byrj-
að árás í slæmu skvgni um dögun,
j en að rússneskt stórskotalið hafi
í hrundið árásinni og eyðilagt 32
skriðdreka fyrir Þjóðverjum.
Þýska herstjórnin skýrði frá því
síðdegis í gær, að þýskar hersveit-
ir hefðu gert skyndiárás á Donets-
vígstöðvunum og hrundið Rússum
úr víglínu þeirra fyrir austan
Kharkov og bætt með því veru-
lega hernaðaraðstöðu sína.
Frjettaritari Reuters í Moskva
segirt að undanfarið hafi skrið-
drekar verið notaðir meir í bar-
dogunum, heldur en fyr í vetur.
Hann getur sjer til, að Þjóðverj-
ar sjeu að prófa hin nýju hergögn
sín og yfirleitt telur hann að til-
raunablær hafi verið á hernaðar-
áðgerðum þeirra síðustu dagana.
Nefnir hann þar sem dæmi árás-
irrfar á Murmansk.
Frakkarog striðið
Tvær fregnir hafa borist varð^
andi Petain og afstöðu hans
í stríðinu.
Það hefir verið tilkynt í Was-
hington, að verið sje að ferma í
Bandaríkjunum tvö frönsk skip,
sem flytja eigá vörur til Nörður-
Afríku. Þetta verða fvrstu vöru-
sendingarmir frá Bandaríkjunum
til ’Norður-Afríku frá því í nóv.
síðastliðnum.
í fregn frá Viehy segir, að Pe-
tain og Ijaval muni ræðast við að
nýju innan hálfs mánaðar
Yamashita hershöfðingi, sem
stjórnar sókn Japana, er sagður
tefla fram 100 þús. manna her á
hiniun tiltölulega mjóu vígstöðv
um og að tilgangur hans sje að
knýja fram úrslit hvað sem það
kostar, áður en regntíminn hefst
á Filippseyjum, en það vérðrir inn
an hálfs mánaðar.
í tilkynningu hermálaráðuíieyt
isins í Washington í nótt var skýrt
frá því, að Japanar væru þegar
j byrj’aðir atlögur að hinni nýju
víglínu Wainwrights liershöfð-
| ingja. Tilkynningin var á þessa
íléið: • ' ■ ’ „
j Filíppseyjar: Nýjar japanskar
j hersveitir halda áfram framsókn
j sinni á Bataanskaga með miklum
j krafti. Harðar atlögur eru nú gerð
ar ý hinar nfju vígstöðvar okk
ar. Steypiflugvjelar og árásaflug-
vjelar varpa sprengjum og skjóta
af vjelbyssum á framlínu okkar og
samtímis halda sprengjuflugvjelár
uppi árásum á bakstöðvar okkár,
nálægt suðurodda Bataanskagans.
Árás þessi er hin lengsta og
mesta, sem Japanar hafa gert frá
því að hernaðaraðgerðir byrjuðu
á Bataanskaga. Japanskar árása
sveitir koma í hópum, og er næst-
um ekkert hlje á atlögunum, erida
taka .Japanar ekkert tillit til
manntjóns, sem er mikið á báða
bóga. Amerískar og filippinskár
hersveitir veita öllum áhhiujnim
harðvítugt viðnám.
Strandvarnalið okkar hefir
hrundið ítrekuðum tilrammm ó
vinarina til að setja her á land að
baki vígiínu okkar.
Til Corregidor!
Sú skoðun var látin í Ijós í
fWashington í nótt, að ef
Wainwright hershöfðingi neyddist
til að hörfa með her sinn úr skóg-
unum og grenjunum á Bataan
skaga, sem hann hefir varist svo
djarflega í undanfarna mánuði, þá
kynni hann e. t. v. að reyna að
koma eins mörgum af mönnum sín-
um eins og kostur er yfir sundið
frá suðurodda skagans til Gorregi-
dor eyjarinnar.
! Sund þetta er 8 km. breitt.