Morgunblaðið - 12.04.1942, Qupperneq 3
iU RU U N BLAÐIÐ
Sunnudagur 12. apríl 1942.
Frá leikskólanum í Tjarnarborg.
Þörfin kallar á vaxandi
starfsemi Sumargjafar
Frá aðalfundi fjelagsins i dag
A ÐALFUNDUR Bamavínafjelagsins Sumargjöf
verður haldinn í Kaupþingssalnum kl. 2 í clag.
Þar verður rætt um starfsemi fjelagsins á
liðnu ári og framtíðarfyrirætlanir.
t gær átti blaðið tal við ísak Jónsson kennara og spurði
hann hvað markverðast væri að segja um starfið síðasta ár. -
Hann komst að orði á þessa ieið:
8
Vígsla flokksbeimilis
Sjálfslæðismanna
i Hafnarfirði
F
JÖLMENNI mikið var samankomið við vígslu hms nýja
flokksheimilis Sjálfstæðismanna í Ilafnarfirði í gæi'kvöldi.
Þetta er í fyrsta skifti, sem
fjéiág okkar hefir starfað óslit-
ið alt árið. Markar þetta tíma-
mót í æfi fjelagsins. Höfum við
nú fengið mun betrí starfsgrund
völl en áður, síðan við fengum
hið nýja hús Tjamarborg.
En reynslan hefir sýnt, að
þörfin fyrir fjelagið og starf-
semi þess fer vaxandi með ári
hverju. Hún kallar á ný verk-
efni til úrlausnar.
Sem stendur höfum við tvö
barnaheimili, í Tjarnarborg og
Vesturborg. En starfsemin er
fjérskift.
1 Tjarnarborg eru 3 deild-
ir, vöggustofa, dagheimili og
leikskóli. Vöggustofan er ný
starfsgrein. Hún er á efri hæð
Tjarnai borgar. Þar er rúm fyr-
ir 16 ungbörn. En eftirspurnin
eftir plássi þar er mikið meiri.
í vöggustofuna eru teknir
hvítvoðungar. Yngstir hafa þeir
komið bálfsmánaðar gámlir,
beint frá fæðingardeild Lands-
spítalans. Þar geta börnin verið
til tveggja ára aldurs.
Á neðri hæð hussins er og
dagheimíli fyrir 3-7 ára börn, er
þar fá fæði og eru þar frá kl.
9—6. En auk þess er þarna leik
skóli fyrir börn. Eru þau þar 2
—3 klst. á dag.
í Vesturborg er svo vistheim-
ili fyrir böm 3—10 ára. En tak-
ið eftir. Þarna er autt aldurs-
bil. Okkur vantar nýja starfs-
deild. þar sem börn geta verið
sem eru 2—3 ára, sem eru of
stálpuð til þess að vera í vöggu-
stofu, en of ung til þess að vera
á vistheimili með sjer eldjrí
bÖrnum. Þau þurfa að vera út af
fyrir si.g.
En auk þess þjt'fti að vera í
bænum dagheim'Ii fyrilr hvít-
voðunga, einskonar vöggustofa,
þar sem mæður gætu komið ung
börnum sínum til gæslu og um-
onnunar. meðan þær sinna sín-
um daglegu störfum.
Jeg vona, að þessar nýju
starfsdeildir komist á fót, segir
ísak. Vinsældjr Sumargjafar
fara vaxandi. Skilningur manna
á þörfinni fyrir þenna fjelags-
skap hefir aldrei verið meiri en
nú. Fjelagsmönnum hefir fjölg-
að á árinu um 111. Alls eru fje-
lagsmenn nú 666.
Kostnaður við reksturinn er
nú orðinn allmikilL Brúttóút-
gjöld fjelagsins urðu síðastlið-
Ið ár alls um 94 þús. kr. Við-
hald og umbætur fasteágna
námu um 17 þús. krónum, þar
með talin húsgögn og áhöld í
Tjarnarborg. Af kostnaði heim-
1 ilanna jgreiddu aðstandendur
Sfeáfeþingill
Eggert Giffer
skákmeistari
Islands
Síðasta umferðín í Skákþingi
íslendinga var tefld í gær-
kvöldi, og iórn leikar þannig:
{ meist.araflokki; Eggert íGilfer
og Óli Valdiinarsscn jafntefli. Jó-
hann Snorrason >g Sturla Pjeturs-
son .jafntefli. Pjetur Guðmunds-
j son og Jóhann L. Jóhannesson
jafntefli. Margeir Stemgrímsson
vann Guðmund Bergsson og Krist-
ján Sylveríussen vann Sigurð
Gissuraraon.
TJrsLt í meistaraflokki urðu því
þau, að Eggert Gilfer vann nú
skákmeistaratign íslands í 9.
skifti. Hlaut hann 7 vinninga. Óli
Váldimarsson fjekk 6%> Jóhann
Snorrason 6, Kristján SylveríuSí
son 6, Sturla Pjetursson 5%, Mar-
geir Steingrímsson 4, Jóhann L.
Jóhannesson 33/2. Pjetur Gúð-
muridsson 3, Sigurður Gissurarson
2 og Guðmundur Bergsson iVá-
Verðlaunum verður úthlutað í
Fjelagsheimili verslunarmauna kl.
2 í dag.
Framhaldsaðalfundur fríkirkju-
safnaðarins í Reykjavík er í'fíí-
1 kirkjunni í dag kl. 14.
Bryggjan áÆgis-
garði fullgerð
1. maí
Framlenging á kola*
bakkanum
Umlanfarna mánuði hefir ver-
ið unnið að því að gerá
bryggjupláss austan á Ægisgarði.
IJm 100 metrar af því bólvirki eru
nú fullgeroir, og verið að vinna
við næstu 25 metra, en síðasti
kaflinn á að vera fullgerður
seinan í vor. Þá verður
þarna nýtt bólvirki 145 metra að
lengd. Eykst lijer talsvert bryggju
pláss hafnarinnar.
Næstu daga verður byrjað á
bólvirldnu, sem á að koma í fram-
lenging af kolabakkanum. Þar
kemur 70 metra bólvirki, er verð-
ur fullgert í sumar.
Miklum föfum hefir það vald-
ið fyrir togara á þessari vertíð,
hve þröngt, hefir verið í höfninni.
En þess er vænst,, að ameríska
herstjórnin stuðli að því, að pláss-
leysi í höfnínni tefji ekki fisk-
veiðar framvegis.
Varlegra að birgja
sig aí kartöfiom
Annars geta þær
farlö forgörönni
Kartöflutippsk era var í fvrra-
haust með mesta móti, sem
kuunugt er. Hún var svo mikil,
að talið var víst að hún meira en
nægði neysluþö.rf landsmanna.
Þessvegna var talsvert selt af
kartöflum til setuliðsins.
Enn eiga bændur víða um land
óseldar kartöflur frá í fyrra-
haust. En ekki er gerlegt að vita
ineð neinni vissu, hve miklu birgð-
iv þessar nema. Þó má telja víst,
að þær sjeu nægilegar til neyslu
handa þjóðinni fram að næstu
uppskeru.
Eu bændur, sem kartöflur eiga
nú, geta ekki verið vissir um, að
þeir fái markað fyrir þenna jarð-
argróða sinn til manneldis. Eitt-
hvað kann að verða afgangs um-
fram það, sem þarf til matar. Og
ef bændur fara að óttast um, að
brenna inni með kartöflur frá í
fyrra, er hætt við að þeir grípi til
þess fyrir vorið að nota þær til
skepnufóðurs.
Því væri æskilegt, að verslanir
og þeir aðrir, sem enn þurfa að
kaupa nokkuð verulegt af kart-
öflum í vor og sumar, dragi ekki
lengi að tryggja sjer þessi kaup.
Því illa væri farið, ef kartöflur
yrðu notaðar í vor handa skepn-
um og af því stafa,ði svo kartöflu-
skortur til manneldis, er fram á
sumarið kemur.
Breska setuliðið tilkynnir. Her-
æfingar fara fram þriðjudaginn
14. og miðvikudaginn 15. þessa
mánaðar á svæðinu Miðdalsheiði
norður að Grímmannsfelli. Við æf-
ingar þessar verða notaðar ýms-
ar tegundir af skotvopnum. Veg-
inum frá Geithálsi til Þingvalla
verður lokað á méoan á æfingun-
sténdur.
2,500,000 fslensKar
kíúnur greiddar her-
mönnum hjer ð
einum mánuöi
Amerískir hermenn í setulið-
inu hjer, fá laun sín greidd
í íslenskum krónum, eða þann
hluta launanna, sem þeir óska
að taka út hjer. í marsmánuði
var hermönnunum greiddar kr.
2,500,000 í íslenskum pening-
um.
Frá þessu er sagt í blaði ame-
xúska setuliðsins ,,The White
Falcon“, sem út kom í gær. Þar
er sagt, að þetta sje hæsta upp-
hæð, sern greidd hafi verið í
laun til hermannanna hjer á
einum mánuði.
Hjer koma ekki öll kurl til
grafar hvað snertir launa-
greiðslur til setuliðsmanna. —
Upphæðin er mikið hærri, sem
greidd er til setuliðsins. Hjer
er aðeins um að ræða það, sem
þeir fá borgað í íslenskum krón-
um, en margir láta herinn ann-
ast fyrir sig peningasendingar
heim til ættingja og vanda-
manna.
Það er heldur ekki víst, að
amerískir hermenn eyði öllu
þessu fje hjer á landi því marg-
ir skifta íslenskum krónum aft-
ux í dollara, sem þeir 'senda
heim í póstávísunum. einnig
gegnum herinn.
„The White Falcon“ birtir all
langa grein um þessar launa-
greiðslur og segir ítarlega frá
mönnum þeim, sem myndir eru
af á íslenskum peningaseðlum,
Jóni Sigurðssyni forseta og Jóni
Eiríkssyni. Er getið æviatriða
þessara manna 'í greininni og
starfi þeirra fyrir íslands og Is-
lendinga. Á sama hátt er skýrt
hversvegna myndir eru af Gull-
fossi, fjárhóp og Vestmanna-
eyjahöfn á peningaseðlunum.
Greininni lýkur með þessum
orðum:
„Þannig getur hermaðurinn
sjeð á launum sínum myndir, er
tákna aðalframleiðslu lands-
manna, mestu menn þjóðarinn-
ar, sem eiga beinan þátt í nú-
verandi íslenskri menningu, og
hin andstæðu náttúruöfl, sem
skapa ísland.
. . . Ameríski hermaðurinn
mun kunna að meta það, sem á
bak við þessar tá3cnmyndir hins
fyrsta ameríska lýðveldis ligg-
ur“.
Blóðgjafasveit skáta í Reykja-
vík heldur aðalfund sinn annað
kvöld kl. 9 í Vonarstræti 4. Þór-
arinn Guðnason læknir mun flytja
þar erindi um blóðgjafir. Þá fara
fram aðalfundarstörf og að lokum
sameiginleg kaffidrykkja.
Bjarni Snæbjörnsson alþm. setti
samkomuna og gerði grein fyrir
hús-málinu.
Ilúsið kostaði 40 þús.. en breyt-
ingar á því kostuðn 30 þús. Rjeði
Júlíus Nýborg skipasmiður breyt-
ingum innan hiiss og er þar öllu
einkar haganlega fyrir koxnið.
Bj. Snæbj. lýsti .eiimig flokks
starfseminni og hvað starfið- yrði
ijettara með húsinu. Þakkaði hanu
öllum, er unnið höfðu að fram-
gangi þessa nytjamáls.
Næstur t.alaði Jakob Möller fjár
málaráðherra. Hann þakkaði'
Hafnfirðingum f. h. miðstjói’nar
Sjálfstæðisflokksiiis fvrir framtak
þeirra og dngnað. Sagði hann, að
ef Sjálfstæðismenn í Reykjavík
væru eins framtakssamir og Hafn-
firðingar, ættu þeir að reisa hús
fyrir 700 þús. kr.
Frú Rannveig Vigfúsdóttir for-
maðnr „Vorboðans“,, fjelags Sjálf-
stæðiskvenna í Hafnarfirði flutti
kveðju frá „Vorboðanum“ og af-
henti húsinu að gjöf vandað
píanó.
Gísli Jónsson varaformaður
Varðarfjelagsins í Rvík flutti
kveðju og árnaðaróskir og af-
henti húsinu 500 kr gjöf frá
Verði.
Bjarni Snæbjörnsson þakkaði
gjafirnar.
Margir fleiri töluðu. Meðal
þeirra voru Ragnar Jónsson úr
stjórn Heimdallar, frú Guðrún
Pjetursdóttir úr stjórn Hvatar, er
fluttu kveðjur t'rá þessum fjelög-
um. Ennfremur töluðu Stefán
Jónsson framkvaimdastjóri í Hf„
Jóhann G. Möller alþm., Júlíus
Nýborg skipasmiður, Enok Helga-
son, Gísli Jónsson, er mintist sjó-
manna.
Vígsluathöfnin stóð fram á
nótt. Var mikið sungið og svo>
dansað fram eftir nóttu.
Sumardvalanefnd.
Belðnir komaar
fyrlr 650 bfirn
Sumardvalarnefnd bafa borist-
all-margar nýjar beiðnir um
aðstoð við að koma börnum til
dvalar í sveit næsta sumar.
Samkvæmt upplýsingum, er
Gísli Jónasson yfirkennari ljet
Morgunblaðinu í tje í gærkvöldi,
hafa nefndinni, síðan skrifstofan
var opnuð í Miðbæjarskólanxun,
borist beiðnir fyrir 160 einstök
börn og 60 börn í fylgd með mæðr
um, sem eru 28. — En áður hafði
nefndinni borist beiðnir fyrir um.
430 hörn.
Skrifstofan tekur á móti beiðn-
um til 19. þ. m„ svo biíast má við,
að enn bætist stór hópur við.
Næturvörður er í Lyfjabúðinni
Iðunni.