Morgunblaðið - 16.04.1942, Side 3

Morgunblaðið - 16.04.1942, Side 3
Fimtudagur 16. apríl 1942. mtKfaiNBUOit) 3 66 f jelagar Bandalags ísl. listamanna senda Alþingi skorinort ávarp Ut af vítaverðu fram- ferði Mentamálaráðs AVARP það til Alþingis, frá Bandalagi ísl. lista- manna, er hjer birtist, var sent Alþingi í gær. ■ . Forsaga málsins er í fám orðum þessi: í fyrra sendu 14 myndlistamenn ávarp til þingsins, þar sem gagnrýnd var starfsemi Mentamálaráðs, einkum kaup þess á listaverkum. Þá hafði stjórn myndlistadeildar Bandalagsins tal af mentamálanefnd neðri deildar og bar fram þá ósk, að nefndin beitti sjer fyrir því, að lögunum um Mentamálaráð yrði breytt. Það m. a. trygt að í Menta- málaráði ætti sæti einn maður er hefði sjerþekkingu á myndlist, er annaðist kaup á listaverkum fyrir ríkið. Mentamálanefndin taldi torvelt að gangast fyrir lagabreyt- ingu að því sinni, en skrifaði Mentamálaráði brjef, þar sem hún lagði til, að Mentamálaráð tæki sjer ráðunaut í þessum efnum. Síðan var þögn um þetta mál, og ekkert -í því gert þangað til forinaður Mentamálaráðs, Jónas Jónsson, hóf blaðaskrif um málið, þar sem hann telur kröfur listainanna um að maður með sjerþekk- ingu á myndlist komi til greina við myndaval, sje ofsókn á hendur Mentamálaráði. Var þá sýnt, að taka þurfti þetta mál upp að nýju. Var fundur haldinn í Bandalagi ísi. listamanna og ákveðið að stjórn Bandalagsins tæki það upp og aliar deildir þess tækju þátt í þessu máli. Er hjer málið tekið upp að nýju af öllum deildum Banda- lagsins, með ávarpi því til Alþingis, sem hjer fer á eftir: „Frá því Mentamálaráð var sett á laggir, hafa ytri kjör íslenskra lista verið allmikið komin undir ráðsmensku þess, og þó einkum hin síðustu ár, er Alþingi hefir falið því nær öll afskifti ríkis- valds af listastarfsemi í landinu og stuðningi við hana. Það er því engin furða, þótt Bandalag íslenskra listmanna telji sig starfsháttu Mentamála- ráðs nokkuru skifta og hafi reynt að fylgjast með þeim eftir föng- um, en samvinna við ráðið um þetta hefir reynst heldur erfið. Vjer undirritaðir fjelagar í Bandalaginu viljum nvi nefna fá- ein atriði í þessum starfsháitum, sem vjer teljum þess verð, að hið háa Alþingi gefi þeim gaum. Á síðastliðnu ári skoruðu ís- lenskir myndlistamenn á Alþipgi, í samræmi við fyrri tilmæli í svip- aða átt, að hlutast væri til um, að Mentamáiaráð tæki sjer ráðu- naut, sem sjerstakt skynbragð bæri á myndlist. Þessu var vel tekið og slíkri áskorun frá mentamálanefnd n.d. beint til ráðsins. Þá áskorun hefir ráðið virt alveg að vettugi. Einu áhrif hennar urðu þau, að á árinu 1941 var engin mynd keypt af neinum myndlistamanni. Það er samt ber- sýnilegt, hversu brýn þörf ráðinu er á leiðbeiningu einhvers smekk- víss manns í þessu efni, og hefir formaður ráðsins lýst því átak- anlega í nýútkominni blaðagrein. Hann játar þar, að ráðið hafi glæpst á að kaupa myndir eftir þrjá nafngreinda málara, en verk „þessara náunga“ sjeu „flest — geymd í dimmum kjallara, þar sem þau angra ekki fegurðartil- finningu sæmilega mentaðra manna“(Tíminn, 26. mars 1942). Ilreinskilnislegar er ekki hægt að játa vanmátt ráðsins til þess að velja myndir handa listasafni ís- lenska ríkisins, ekki síst, þegar þess er gætt, að fyrir einum hálf- um mánuði hafði Mentamálaráð enn ratað í þá ógæfu að falást eftir myndum til kaups af Öllum þessum þremur náungum. Vjer vonum, að hið háa Alþingi gangi nú fastar eftir því, að ráðinu verði fenginn öruggur leiðbeinandi, sem afstýrt geti slíkum slysum fram- vegis. Þá vill Bandalagið vekja athygli hins háa Alþingis á því, kð sjálf- ur formaður ráðsins, sem ætla má, að megi sín þar ekki minna FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU Bannað að veiða og leggjast við akkeri út at Seyðisfirði LT ernaðaryfirvöldin hafa far- ið fram á, að bannaðar verði allar veiðar og akkerisleg- ur skipa fyrir mynni Seyðis- fjarðar og Loðmundarfjarðar. Hefir ríkisstjórnin birt aug- lýsingu um þetta í síðasta Lög- birtingarblaði. Bannsvæðið nær frá Dala- tanga í línu á skerið við Álfta- nes og siðan alllangt inn á fjörð inn fyrir mynni Loðmundar- fjarðar og Seyðisfjarðar. Flugslysið: Von um III þriggla tiinna særðu ■—--- ----- ----- ----------- - —— - - —* Samtal við Guðm. Guðjónsson kaupmann: Matvörur sem gey mast best þurfa að vera á boðstólum Breskft liðsfor- ftngftnn lálftnn VON er nú talin til þess að þrír hinna f jögra manna sem slösuðust, er flugvjelin „SmyrilT* hrapaði í fyrradag, haldi lífi, en sá fjórði, breski liðsforinginn, andaðist í gærmorgun. Sigurður Jónsson flugmaður og Rosendahl eru úr hættu, að talið er, eli Axel Kristjánsson er enn hættulega veikúr, en mikil vön um að lífi hans verði bjargað. Meiðsli Axels eru niikií. Hann Skortur á geymslurúmi torveld- ar dreifing mataibirgða Formaður Fjelags matvörukaupmanna, Guð- mundur Guðjónsson, hefir skýrt blaðinu frá, að bæjarbúar eigi erfitt með að fylgja þeim leiðbeiningum eða tilmælum stjórnarvaldanna, að taka út kornvörur á núgildandi matvælaseðla. í samtali, er blaðið átti við hann í gær, komst hann ni. a. þannig að orði: 1 endalok síðasta skömtunartímabils, bar allmikið á því, að fólk keypti meira en venjulega af kornmat, vegna þess, að það átti þá óeydda seðla frá því tímabili. Hafði ekki þurft að taka út allan sinn skamt, en vildi nota seðlana meðan þeir voru gjald- gengir. fótbrotnaði, handleggsbrotnaði og einnig er talin hætta á að höfuð- kúpan hafi brotnað. Auk fjekk hann taugaáfall. Líðan hans var verst í fyrrakvöld og var hann þá alveg talinn af um tíma. Þá var honum gefið blóð og lífi hans bjargað með því. f gærmorgun var líðan Axels mikið betri og virtist fara batnandi er leið á daginn. í gærkveldi var svo kom- ið, að mikil von var talin tii þess, að hann lifði. Axel hefir yerið rænlaus síðan slysið varð. Sigúrðui* Jónsson er mikið meiddur, þó hann sje talinn úr lífshættu. Hann kjálkabrotnaði og sennilega ef hann rifbeinsbrotinn og mjaðmabrotinn og illa skorinn á höfði, Iíann fjekk og taugaá- fall. Sigurður svaf í gærdag og er líðan hans mjög eftir vonum. Rosendahl fótbrothnaði, kjálka- brotnaði og slasaðist á höfði. Hann var sá eini, sem -strax á fyrsta degi fjekk nokkra rænu. Agnar Kofoed Hansen lögreglu- stjóri, sem er, eins og kunnugt er, tengdasonur Axels Kristjánsson- ar, héfir stöðugt verið'í sambandi við sjúkrahúsið og lækna þar. í stuttu viðtali við Morgunblaðið í gær ljet lögreglustjóri í ljós á- nægju sína með þá sjerstaklega góðu aðbúð og hjúkrun alla, sem hinir særðu menn hafa hlotið á sjúkrahúsinu. Læknar sjúkrahússins eru lir flugliðinu breska og hafa þeir allir mikla reynslu við lækningu á særðum mönnum og hafa sjer- staklega góð tæki og aðbúnað, hvað snertir lækningu og meðferð manna, sem fengið hafa taugaáfall og slasast mikið. Sagði lögreglu- stjóri að það þyrfti ekki læknis- fróðan mann til að sjá að alt væri gert, sem hugsanlegt væri, til að hjúkra hinum særðu mönn- um hið besta. Skattamálin koma úr nefnd Fjárhagsnefnd neðri deildar hefir skilað áliti um tekju- og eignaskattsfrumvarpið. Nefnd- arálitið er sameiginlegt og þær breytingartillögur sem nefndin í heild flytur, eru fáar og allar smávægilegar. í nefndarálitinu er tekið fram, að þeir Jón Pálmason og Þorst. Briem telji „óvarlega ráðið að afnema úr lögunum. heimild til frádráttar á tekjuskatti og út- svari ög að heppilegra liefði verið að hækka skattinn með breytingu á skattstiga“. En með því að sam- ið hafi verið um þetta atriði milli stjórnarinnar, telji þeir ekki þýða að flytja tillögu til breytinga. Haraldur Guðimuidsson hefir FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU Átta ára drengur slasast að slys vildi til í gærmorg- un um klukkan 11,30, að 8 ára gamall drengur, Árni Krist- jánsson, Ármannssonar jVlenta- skólakennara, varð fyrir vöru- flutninga-„trillu“ og slasaðist nokkuð, þó ekki stórhættulega. Slysið bar að með þeim hætti, að ekið var ameríkskri dráttarbifvjel upp Hofsvalla- götu. Aftan í bifvjelinni var dráttar vagn og losnaði hann aftan úr og rann upp á gang- stjett, en þar var Árni litli fyr- ir. En þegar þau tilmæli til al- mennings voru auglýst, að taka út á nýju seðlana sem fyrst, til þess að komvörubirgðir dreifð- ust sem mest út á heimilin, bar ekki mikið á því, að eftir þess- um tilmælum væri farið. Sannleikurinn er sá, að ákaf- lega margar fjölskyldur hjer í bænum hafa svo lítið og óhent- ugt geymslupláss, að það getur ekki geymt nema mjög lítið af mjöliy jafnvel ekki meira en kemst fyrir í brjefpokum í eld- hússkápnum. En slík geymsla hrekkur skamt, til þess að heim- ilið birgt sig af mjölmat, og er óhentug það sem hún nær. Þess er líka að gæta, að hin malaða kornvara, sem til lands- ins flyst, þolir illa geymslu, nema takmarkaðan tíma, fáa mánuði. Og það er tæpa§t rjett af okkur kaupmönnum, að örfa fólk til þess, að kaupa kornvör- ur til langrar geymslu, ekkl síst: þegar við vitum, að þær geta’ legið undir skemdum á heimil- unum í hinum óhentugu geymsl um. Þegar svo, eftir langan tíma, að fólk ætlar að notá vöru þessa, og hún er ékki léhgúí'-ó- skemd, getur það komið fyrir að einhverjum detti í hugy að Við höfum selt óvandaða eða jafnvel skemda vöru. Alt öðru máli ér að gegna með þá matvöru, sem beinlínis er til þess útbúin að geymast ó- skemd. Eins og a. d. niðursoðn- ar vörur, niðursoðið grænmeti, þurkaðir og niðursoðnir ávext- ir. Þetta geymist alt von úr viti, í hvaða geymslurúmi að kalla má sem er. Þetta vita og finna húsmæðurnar. Og það er eftir- spurninni eftir þessum vörum, sem nú þarf að fullnægja, ef heimilin eiga að vera birg með FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.