Morgunblaðið - 16.04.1942, Side 9

Morgunblaðið - 16.04.1942, Side 9
Fimtudagur 16. april 1942. _ Arni Krlitfánsioii Hinn 9. febr. Ijest á Akureyri Árni Kristjánsson frá Lóni, tæplega níræðnr að aldri. Ilann var fæddur 25. ág. 1852 að Ærlækjarseli í Öxarflrði. Paðir hans var Kristján hreppstjóri Árnason uinboðsmanns, Þórðarson ar, Pálssonar frá Kjarna í Eyja- firði; móðir Kristjáns var Jó- hanna, dóttir Skíða-öunnars, er bjó í Reykjadal og margt manna er frá komið á Austurlandi. — Móðir Árna var Sígurveig iQuð- mundsdóttir, Árnasonar bónda í Ærlækjarseli, og konu hans Ólaf- ar Sveinsdót.tur Guðmundssonar bónda á Hallbjarnarstöðum á Tjörnesi, sem varð kynsæll maður. Árni ólst upp hjá foreldrum sínum í Ærlækjarseli og var hjá þeim þar til vorið 1870 að hann varð skrifari hjá Lárusi háyfir- dómara Sveinbjörnsson, er þá var sýslumaður Þingeyinga og bjó á Húsavík. Var Árni þar í 2 ár. Á þeim árum fæddist Guðmundur Sveinbjörnsson skrifstofustjóri, <og var Árni skírnarvottur hans. Vorið 1872 kvæntist Árni Önnu dóttur síra Hjörleifs Guttormsson ar, sem síðast var prestur að Völl- um í Svarfaðardal, og fóru þau þá að búa á þriðjungnum af Ær- lækjarseli. Þaðan fluttust þau 1875 að Lóni í Kelduhverfi og bjuggu þar til 1907 að þau fóru að Þórunnarseli og bjuggu þar á móti Guðmundi syni sínum fram til ársins 1919 að þau fluttust til Akuréyrar og voru þar til ævi- loka. Anna dó 4. mars 1921. Það mun hafa verið ætlan for- eldra Árna, að láta liann ganga mentaveg og verða prest. Þess vegna var honum komið 16 ára gömlum til síra iGunnars Gunnars- sonar, sem þá var aðstoðarprest- ur á Sauðanesi og var hann þar við nám í 12 vikur. Lengri varð skólagangan eigi, en mentunar aflaði hann sjer sjálfur, og varð „óefað sá rit- og reikningsfærasti maður óskólagenginn í Norður- Þingeyjarsýslu", eins og segir í grein um hann í „Óðni“. Hann þurfti líka á því að halda, því að mörg trúnaðarstörf voru hon- um falin um ævina. Árið 1879 var hann kosinn í hreppsnefnd og árinu eftir hreppstjóri í Keldu- neshreppi og gegngdi.því starfi á meðan hann var í Kelduhverfi. Þá var hann og kosinn sýslu- ívefndarmaður og gengdi því starfi jafn lengi. Amtsráðsmaður var hann frá 1893 og þar til það starf var lagt niður. Hann sat og löngum í sáttanefnd og sóknar- nefnd. Ennfremur átti hann sæti í yfirskattanefnd, og skipaður í Landsdóm, þegar hann var stofn- aður. Endurskoðandi sveita og sýslureikninga var hann langa lengi. Hann var einn af stofnend- um Kaupfjelags Þingeyinga fyrir 60 árum, og ennfremur Kaupfje- lags Norður-Þingeyinga. Var hann endurskoðandi þess fjelags frá stofnun þess, þar til hann varð sölu- og framkvæmdastjóri þess 1909 og hjelt því starfi um 10 ára skeið. Rækti hann öll þessi störf af dugnaði og samviskusemi. Seinustu 22 árin, eða frá því að frá Lóni hann fluttist til Akureyrar og fram til dauðadags, var hann bók- haldari við verslun Kristjáns son- ar síns. Árni var sannkallaður sveitar- höfðingi og sýndist öllum að hlíta ráðúm hans í hvívetna. Hann var glæsimenni í framgöngu, kurteis jafnt við háa og lága, og framúr- skarandi dagfarsgóður á heimili. Höfðingi var hann heim að sækja, og manna ræðnastur og glaðvær- astur við gesti sína. Hverjum manni var hann hjálpsamari og leysti hvers manns vandræði. Hann var fjölhæfur að gáfum, og honum ljek alt í höndum, því að hverjum úianni var hann verk- lagnari. Hann vaj- afburða sjó- maður og skytta, vefari og sláttu- maður, og smiður góður. Skrifari var hann með afbrigðum, og gaf fjölda barna forskriftabækur. Kennir enn áhrifa hans á skrift inargra þar norður frá. Ilann var bókhneigður og las feikna mikið um dagana. Var hann mjög hlyntur mentun al- þýðu, og er það eitt dæmi „þess, að þegar er hann var orðinn for- ráðamaður sveitar sinnar, rjeði hann þangað Guðmund Hjaltason til að hafa á hendi barnafræðslu og var iGuðmundur kennari þar í mörg ár. Voru Keldhverfingar því á undan mörgum öðrum í þeim efnum. Árni var maður fríður sýnum og höfðinglegur fram á elliár. Var hann alla ævi heilsuhraustur og kendi sjer vart meins fyr en nokkr um dögum áður en hann dó. Og óskertum gáfum og minni hjelt hann til síðustu stundar. Má alveg sjá það á mynd þeirri, er hjer birtist, og tekin var af honum skömmu áður en liann dó. Tveir synir hans eru á lífi, Guðmundur póstur og Kristján kaupmaður, báðir á Akureyri. Það er gott að ganga til hvílu eftir langan og viðburðaríkan starfsdag, og skilja eftir orðstír, sem aldrei deyr. Svo er um Árna frá Lóni. Frændi. Agúst Th. Blöodal Asíðastliðnum vetri andaðist Ágúst Th. Rlöndal, sýslu- skrifari á Seyðisfirði, nálega sjö- tugur að aldri. Sýsluskrifarastarfið er fjöl- breytt og mikilsvarðandi starf í þjóðfjelagi voru. Þarf góða hæfi- leika tli þess að leysa það veru- lega vel af hendi. Annarsvegar að inna af hendi vandasöm verk fvrir yfirinenn sína og hinsvegar að greiða fyrir málefnum sýslubúa á sem hagkvæmastan hátt. Ágúst var einn af þessum gömlu góðu sýsluskrifurum, sem lagði alla sína krafta fram, til þess að leysa vel af hendi starf sitt. Endi mun honum hafa tekist það, þótt strangar kröfur væru gerðar. — Ágúst gekk í Latínuskólann, en hætti námi og gjörðist sýsluskrif- ari hjá föður sínum, Blöndal sýslu manni á Kornsá. Hann varð síðan sýsluskrifari nálega alla æfi, fyrst í Húnavatnssýslu, þa.r næst í Strandasýslu og síðan á Seyðis- firði; fyrst hjá Jóliannesi Jó; hannessyni' bæjarfógeta, mági sín- um, nokkur ár, en síðar, nálega 20 ár, hjá Ara Arnalds bæjarfó- geta. — Ágúst Iiafði framúrskar- andi fagra rithönd. Einhverju sinni var deilt um það í Stjórn- arráðinu, hver sýsluskrifaranna á landinu hefði fegursta rithönd. Deilan, (þótt ekki væri hún al- varleg), var leyst með þriggja manna nefnd. í nefndinni voru Eggert Briem, Indriði Einarsson og Klemens Jónsson. Úrskurður Nokkur minningarorð um Jóhann Þórðarson Fyrir nokkrum dögum síðan barst frá útlöndum andláts- fregn Jóhanns Þórðarsonar. Hann var sonur hjónanna Jóhönnu Eiríksdóttur og Þórð- ar Jóhannssonar, sem allan sinn búskap hafa verið á Lauga veg 92 hjer í bæ. Átti Jóhann þar heima allan sinn aldur, að undanskildum 2 árum, sem hann hefir dvalið í Kaupmannahöfn. Jóhann var fæddur 3. júlí 1919 og var hann því 22 ára, er hann ljest 20. febrúar s. 1. Hann er dáinn hann ,,Jói“, en svo var hann jafnan kallaður meðal ættingja og vina. Þessi prúði og myndarlegi piltur, sem með hógværð og snyrtimensku sinni, vann traust allra, sem hann umgekst. Við skiljum ekki þann skapa- dóm, þegar menn á besta ald- ursskeiði hverfa svo fljótt sjón- um vorum, og við spyrjum sjálfa oss, hvers vegna þurfti1 einmitt hann að falla svo fljótt, en það stoðar ekki að spyrja, því eina svarið verður þetta, er hann, sem öllu ræður, gaf: „Nú skilur þú ekki það, sem fram við þig kemur, en seinna munt þú skilja það“. j Jóhann heitinn sigldi til Hafn ar, eins og fyr segir, fyrir 2 ár- um, og hugðist hann að full- numa sig í garðrækt, svo sem i hugur hans hneigðist til. Þetta' nám varð ekki langt, því nokkru eftir að hann kom til Hafnar, fekk hann meinsemd í annan fótinn, með þeim a|lei$ingum að fótinn varð að taka af hon- um um mitt læri. Þetta virtist þó ætla að ganga vonum fram-! ar, og eftir að hann var laus af I sjúkrahúsinu, hugðist hann með óbilandi kjarki og vilja- festu að taka fyrir annað nám, sem skapaði honum heppilegri lífsskilyrði. Þessi von náði ekki að rætast. Hver dauðaorsökin hefir ver- ið er ekki kunnugt, en trúlegt er að meinsemdin hafi tekið sig upp, og hefir hann nú, fjarri ættingjum og vinum, orðið að lúta valdi dauðans. Við beygj- um höfuð vor, með innilegri þlutjtekningu til systkiiiía ættt^ ingja og vina hins látna og biðj- um huggunar og blessunar for- eldrunum, sem þráðu svo mjög að hafa nánara samband við soninn elskulega, í hans erfiðu raun. Nú hefir hann kvatt þennan heim. Við horfum yfir hafið, það hyllir undir land. Sann- færð um það, að hann í gulln- um geislum, þess lands, hefir fundið, meðal horfinna vina, þau blóm, sem hann þráði og leitaði að hjer á vorri jörð. M. S. þeirra ldjóðaði svo: Fegurst rit- hönd Ágústs, en læsilegust rithönd Benedikts frá Auðnum. Ágúst var fríður yfirlitum, snar leg aúgu, liðugur í hreyfingum, enda leikfimismaður á yngri ár- um. Hann hafði jafnan góða skap- gerð, gat verið nokkuð ör, og var hreinn og beinn, hver sem í hlut átti. Hann var hrókur alls fagn- aðar, söngelskur og söngmaður góóður á yngri árum. Ágúst var kvæntur Ólafíu Theó- dórsdóttur fré Borðeyri, mestu ágætiskonu, sem andaðist fáum árum á undan honum. Var heimili þeirra friðsamlegt, prýðileg um- gengni. Gestrisnin ríkti þar, þótt erfiðar ástæður væru, því sýslu- skrifarastarfið var illa launað framan af, alt til 1920. — Þau lijón eignuðust mörg. börn, öll FRAMII. Á BLS. 10. Sólveig Björnsdóttir frá Grafarholti Hún ljest eftir langa og erf- iða sjúkdómslegu 2. jan. s. 1. : Sólveig var fædd í Reykjavík 18. nóvember 1886. Foreldrar hennar voru þau merkishjónin Björn Bjarnarson, hreppstjóri í Grafarholti og kona hans Kristrún Eyjólfs^ dóttir, bónda og hómópata Þorsteinssonar að Stuðlum í Reyðarfirði og síðari konu hans Guðrúnar Jónsdóttur Pálssonar gullsmiðs, Sveinssonar prests í Goðdölum. En foreldrar Björns eldra í Grafarholti voru Björn Eyvinds- son bóndi í Vatnshorni í Skorra- dal og Sólveig Björnsdóttir. prests á Þingvöllum. Var Sól- veig heitin eftir föðurömmu sinni. Barn að aldri fluttist hún með foreldrum sínum að Reykjakoti í Mosfellssveit og þaðan að Gröf í sömu sveit. Eftir aldamót in bygði faðir hennar Grafar- bæinn á nýjum stað nær alfara vegi og vatnsbóli og nefndi hann þá Grafarholt. En við þann stað var Sólveig af kunn- ingjum kend æ síðan. Við þennan stað tók hún miklu ástfóstri. Þar lifði hún fegursta skeið æfinnar í hópi ungra systkina, glaðra fjelagra og vina. — Og lífið var henni örlátt. Hún var kona fríð sýnum vel á sig komin, hög svo af bar, vinföst og trygg í lund. Ung stundaði hún nám í Kvennaskólanum í Reykjavík, FRAMII. Á BLS. 11,

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.