Morgunblaðið - 16.04.1942, Side 10

Morgunblaðið - 16.04.1942, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ Fimtudagur 16. aorfl 1942. Frú Martha G. Þorvaldsson Nokkur minningarorð Frú Martha Guðrún Þorvalds- son, læknisekkja frá Hest- eyri andaðist á Landspítalanum þann 24. febrúar s. 1. Hún var jarðsungin frá dómkirkjunni þann 5. þ. m. Frú Marta sáluga var fædd á Patreksfirði þann 2. des. 1875 Foreldrar hennar voru merkis hjónin Sigurður Baehmann kaupmaður á Patreksfirði og fyrri kona hans Marja Guð- björg Eiríksdóttir. Frú Martha var elst af 6 börnum þessara hjóna, en móður sína mistu þau 20/9 1883.. Þá var elsta dóttir- in 8 ára, en yngsta dóttirin að eins hálfs mánaðar gömul. Af þessum börnum lifa nú 3 systur, frú Ingileif kona Ólafs Böðv- arssonar, kaupmanns í Hafnar- firði, frú Sigríður Snæbjörnsson ekkja Jóns Snæbjörnssonar, símstjóra á Patreksfirði og frú Marja kona Hallgríms Jónas- sonar, kaupmans í Reykjavík. Af systkinunum voru dáin á undan Mörthu, Málfríður kona Lárusar sál. Lárussonar, gjald- kera við Rafveitu Reykjavíkur og Jón Bachmann, sem andaðist á besta skeiði aldurs. Sigurður kaupmaður Bachmann kvæntist í annað sinn 1885 Jóhönnu Eggertsdóttur. Sonur þeirra er Eggert Bachmann, bankastarfs- maður hjá Landsbankanum í Reykjavík. Frú Jóhanna sál. Bachmann reyndist stóra stjúp- barna hópnum ágæt móðir, enda var Bachmanns heimilið á Patreksfirði mesta myndar- heimili, þar sem jöfnum hönd- um var lögð rækt við að göfga og glæða hið góða í hugsun og breytni æskulýðsins, sem og að \eita barnahópnum þá fræðslu, er þá voru frekast tök tíl. Þar var t. d. haldinn héimiliskennari ár eftir ár, sem þó var fremur fátítt í þá daga. Frú Martha sáluga Þorvalds- n bar alla sína tíð, bæði í hugsun og starfi, glöggan blæ þess uppeldis, er hún fjekk í æsku. Hún mun hafa verið nokk uð innan við tvítugt, er hún fór utan til þess að afla sjer frekari mentunar, en eftir heimkomuna fjekst hún við kenslustörf í nokkur ár, og ávann sjer við það starf mjög trausta vináttu þeirra, er hún best kyntist. Árið 1902 giftist frú Martha Jóni sáluga Þorvaldssyni, lækni á Hesteyri. Þar var svo hennar aðaldagsverk unnið. Hún var þar læknisfrú í 31 ár, eða til ársins 1933. Þar eignaðist hún með góðum manni ágætt heimili sem í einu og öllu sýndi mentun og grandvarleikþesara merku hjóna. Á Hesteyri var Martha sáluga mjög ýinsæl en þó af engum vinsælli en þeim, sem að einhverju leyti áttu um sárt að binda. Þau hjónin Jón læknir og Martha eignuðust ekki börn, en þau ólu upp 2 fósturböm, — Högna Björnsson lækni í Dan- mörku, systurson Jóns og Huldu Jónsdóttur, systurdóttur frú Mörthu, nú konu Högna læknis. Árið 1933 ljet Jón sálugi Þorvaldsson af embæcti Hann var þá tæpra 66 ára gamall og hafði þjónað þessu afskekta og erfiða læknishjeraði í 32 ár Um vorið fluttu þau hjónin alfarin frá Hesteyri til Reykjavíkur. Bæði voru þau þá glöð og hraust og hlökkuðu til þess að geta not ið efri áranna í návist vina og ættingja, enda var hjer um mikla breytingu að ræða, þar scm flutt var frá Hesteyrarhjer- aði til Reykjavíkur. Þetta fór nú mjög á annan veg en til var hugsað. Jón læknir dó þ. 3. júlí 1933, örfáum dögum eftir að þau hjónin komu suður. Yið andlát Jóns brast sá meginþátt- ur í lífi Mörthu sálugu, að hún fjekk þess ekki bætur. Hún var velkomin til fósturbarna sinna, en hún var þar samt ekki nema tíma og tíma í senn. Hún varð smátt og smátt meira einangruð á heimili sínu Laugavegi 43, en hún hafði nokkru sinni áður verið á æfinni, einkum eftir að fósturbörnin fluttu til Danmerk ur. Nokkra trygga vini og syst- ur átti hún, þar sein hún var á- valt velkomin, en þeirra naut ekki sem skyldi, af því að hús hennar var afskekt. Heilsan fór þá einnig að bila og var hún síðustu árin, sem svipur hjá sjón. Frú Martha sáluga var fríð sýnum og virðuleg í viðmóti, en jeg hygg, að enginn hafi haft náin kynni af henni svo, að hann hafi ekki sannfærst um, að hún var góð kona, sem átti skilið virðingu og vináttu. Blessuð sj(e mining he*nnar. 8/3 1942. Sigurjón Jónsson, ÁGÚST th. blöndal. FRAMH. AF BLS. 9. mannvænleg og vel gefin, Guð- mund í Stórholti, Dalasýslu, Krist- ínu símstöðvarstjóra, Norðfirði, Arndísi, gift á Blönduósi, Theó- dór. bankastjóri á Seyðisfirði, Láru, gift á Seyðisfirði og Jósefínu, gift á Norðfirði. Ágúst var greindur maður og hnyttinn í tilsvörum, svo að við- ræðnmaður varð oft orðlaus. Eink- um eru í mynnum ýms tilsvör hans við þá menn, sem honurn fanst koma þjösnaleg^, fram. Drengur hinn besti var Ágúst og minnast samferðamenn hans með söknuði. Samferðamaður. Minningarorð um frú Björgu Jósefínu Sigurðardóttur Fædd 13. desember 1865. Dáin 26. mars 1942. Frú Björg Jósefína andaðist 26. mars og verður lögð til hvílu 4. apríl. Hún var fædd á Auðólfsstöðum í Langadal, Bjuggu foreldrar hennar þar, góðu búi. Sigurður faðir hennar var frá Gröf í Víðidal, var hann þjóðhagasmiður. Systkini Sig- urðar voru: Eggert í Helgu- hvammi, bókamaður mikill og orðlagður gáfumaður, og Þor- björg á Marðarnúpi móðir Guð- mundar Björnssonar, landlækn- 1 is og þeirra systkina. hannes fór til Ameríku en hún Móðir Jósefínu var Guðrún varð eftir. En di’engurinn ólst Jónsdóttir prests að Undirfelli upp á Eyjólfsstöðum hjá föður í Vatnsdal, Eiríkssonar prests bróður sínum Jónasi Guðmunds- að Staðarbakka, Bjarnasonar syni. bónda í Djúpadal í Skagafirði. ! Jósefína giftist 20. júní 1894 Kona sjera Jóns á Undirfelli. Eyþóri Benediktssyni, ættuðum var Björg Benediktsdóttir frá úr Vatnsdal. Var Eyþór glæsi- Víðimýri, Halldórssonar klaust- menni og hið mesta prúðmenni. urshaldara á Reynistað, Bjarna Þau reistu fyrst bú á Þingeyr- sonar sýslumans á Þingeyrum, um . En þar flæddi fjeð, svo að Halldórssonar. mikið tjón varð af. Eftir Kona Benedikts á Víðimýri, tveggja ára búsliap flytja þau var Katrín dóttir Jóns biskups að Tindum, en þar verða þau Teitssonar og Margrjetar dótt- líka fyrir óhöppum á skepnum. UjT Finns biskups Jónssonar. Á Tindum eru þau aðeins eitt ár En kona Halldórs klausturs- þá flytja.þau að Hamri á ÁsUm. haldara var Ragnheiður Eiaars- Þar búa þau í 32 ár. J'örðin var dóttir frá Söndum, Nikulásson lítil og rýr, en þeim tókst þó ar sýslumanns, Einarssunar að koma aftur á fót sæmilegu biskups, Þorsteinssonar. Kona búi, svo að ávalt voru þau veit- Bjarna sýslumanns Halldórs- andi. Eyþór fór vel með allar sonar, var Hólmfríður dóttir skepnur. Hann var einstakur Páls lögmanns Vídalíns. | hirðumaður svo að alt var sópað En Undirfellssysturnar voru og fágað utanhúss. Hagur var Katrín gift sjera Jóni Norðmann hann og búmaður í besta lagi á Barði í Fljótum, Herdís gift og hinn ágætasti heimilisfaðir. Þorsteini Þorleifssyni í Kjör- j Það má fullyrða að heimilið vogi, Björg gift Sæmundi bónda á Hamri hafi verið með allra í Haganesi, Margrjet gift Þor- fremstu heimilum í Svínavatns- láki bónda í Vesturhópshólum hreppi og þótt víðar væri leitað og Guðrún móðir Jósefínu. sökum háttprýði og myndar- Var Guðrún annáluð höfðings skapar í hvívetna. Var það og gáfukona, enda munu þær mjög rómað fyrir gestrisni og Undirfellssystur hafa notið allr- oft gestkvæmt. Innan bæjar ar þeirrar mentunar, sem bestur ríkir húsfreyja, sem hlotið hefir var kostur á og þá tíðkaðist. Var miklar gáfur að vöggugjöf og hún svo vel að sjer um allar kven einnig dugnað og hagleik til alls legar listir, að rómað var. Kendi 1 er hún leggur hönd á. Hún á hún mörgum heimasætum að leikandi lund og ríkan skilning baldera og skattera, enda hafði hún það fyrir atvinnu að sauma og kenna eftir að hún varð ekkja og fluttist til Blönduóss. Á Auðólfsstöðum á Jósefína fyrstu minningarnar. En þegar hún var barn að aldri fluttust foreldrar hennar út að Hofi á Skagaströnd. Var lagt mjög að föður hennar að byggja kirkj- una þar, af því að til þess þótti enginn honum færari. Þegar Jósefína var 13 ára fer hún til Margrjetar móðursystur sinnar í Vesturhópshólum, móð- ur Jóns Þorlákssonar, borgar- stjóra og þeirra systkina. En 15 ára gömul flytst hún að Eyjólfs- stöðum í Vatnsdal. Á Eyjólfs- stöðum er hún fram undir tvítugs aldur. Þar kynnast þau Jóhannes Nordal og hún. Þar fæðist þeim sonur, sem nú er jjóðkunnur, Sigurður Nordal prófessor. Á þeim árum var mikið harð- æri og því ekki efnilegt að hefja búskap. Það varð því úr að Jó- er varpar birtu og yl yfir heim- ilið og setur sinn hugþekka blæ á alt er hún fjallar um. Því þykir öllum þar gott að koma og gott að dveljast. Sem dæmi má geta þess, að hjá þeim dvöldust sömu hjú svo tugum ára skifti. Á Hamri dvelst hún fegurstu ár ævinnar. Þeim fæðast 7 böm Eru þau öll fædd á Hamri, nema Jón, sem fæddur er á Þing- eyrum. Eitt þeirra miístu þau strax. Börn þeirra, þau er upp komust eru: Jón veðurfræðing- ur, Benedikt húsgagnameistari, Guðrún gift Þórði Kristleifssyni kennara, á Laugarvatni, Mar- grjet gift Eyjólfi Jónssyni trje- smíðameistara, Björg gift Agli Forchhammer yfirkennara og Jónína ógift úti í Kaupmanna- höfn. Á Hamri tóku þau til fóst- urs Guðmundu Ágústdóttur, þá ársgamla. Ólst hún upp hjá þeim til 17 ára aldurs. Hún er rú gift og búsett hjer í bæ. Jeg sje í anda hina ungu konu er var búin gáfum og glæsileík framar flestum konum, sem jeg hefi kynst. Jeg sje hana flytja inn á þröngt sveitaheimili, þar sem bíða hennar ótæmandi störf en takmarkað svið. Hún er gædd gáfum og atgerfi, er skipa henni fremsta sess hvar sem er. En atvikin haga þvi svo, að hún hlýtur hlutskifti einyrkjakon- unar. í þessu umhverfi sómir hún sjer vel. En mjer finst, sem hún hefði engu síður sómt sjer í ríkmannlegu stórbrotnu um- hverfi. — Og mjer virðist sem engin staða hefði verið svo glæsi leg, að hún hefði ekki setið hana með virðuleik þeirrar fyr- irmensku og göfgi er henni var í blóð borin. En frú Jósefína var gædd óvenjulegu þreki og mikilli skap festu. Hún átti víðsýni og skiln- ing er kom henni að miklu liði í lífsbaráttunni. Það mun nokk- uð algengt að þeir sem hlotið hafa mikið andans atgervi, i heimti vítt svið og geri hærrí I , ( kröfur en svo að lífið fái þeim í fullnægt. Engar slíkar kröfur gerði frú Jósefína, og því varð líf hennar óneitanleg blessun öllum, á leið hennar urðu. Hún , skildi lífið og var ánægð með ; hlutskifti sitt. Þrár hennar bund ' ust að því að standa í skilum við alla og í skilum við lífið sjálft. Fún lagði alúð við heimili. sitt I og kostaði kapps um að ala börn sín vel upp. Hún bað víst | aldrei um frægð nje frama þeim j til handa. Ilenni fanst það öllu varða að þau yrðu drengir góðir. Hún lifði það að sjá þær ! óskir uppfyltar. En það mun hafa orðið bjart um hana, er ; elsti sonur hennar fór sigurför | um heim bókmentanna og það jmun líka hafa orðið bjart um, jer næst elsti sonurinn ruddi sjer I braut til menta. og lauk námi þrátt fyrir erfiðar ástæður. Hún hafði mikið barnalán, og því varð hún auðug, að lífið færði henni mikla blessun. Þau hjónin brugðu búi 1930 og fluttu til Reykjavíkur, fyrst til Jóns, en síðustu árin dvöld- ust þau hjá Benedikt. Frú Jósefína var ung i útsjón en þó enn yngri í anda. Af miklum skilningi fylgdist hún með hin- um öru breytingum nútímans cg hún skildi ungu kynslóðina si því að hún var sjálf einlagt u.ng. Jeg kom til hennar skömmu fyrir andlát hennar. Hugði jeg þá síst, að dauðinn biði við dyrn ar. Það var bjart yfir henni. I augum hennar ljómaði sama lífsf jörið og áður fyr. Jeg horfði aftur og aftur inn í gáfulegu, góðu augun hennar er ávalt vöktu eftirtekt mína og aðdá- un. — Og jeg hugsaði: þessi augu geta ekki verið feig. Það ei fyrst nú, er jeg sit við skrif- borið, að jeg greini vit í þesari hugsun. En nú finn jeg að augu hennar endurspegluðu ódauð- leikann. — Og að jeg hafði rjett fyrir mjer. EHnborg Lárusdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.