Morgunblaðið - 16.04.1942, Síða 11

Morgunblaðið - 16.04.1942, Síða 11
Fimtudagur 16. apríl 1942. MORGUNBLAÐIÐ 11 Sigríður Helgadódir Haukur Oddsson Frá því er jeg fyrst man eft- ir mjer, vissi jeg, að jeg átti föð- ursystur í Birtingaholti, sem gat ekki talað, og mjer fanst, að hún myndi eiga ósköp bágt. Hún hafði verið framúrskar- andi efnilegt barn að öllu leyti, en svo veiktist hún á öðru ári af heilabólgu, sem svifti hana bæði heyrn og máli. Mjér varð oft, hugsað til hennar og þótti hún hafa orðið útundan i líf- inu. Þegar jeg var 11 ára, fjekk jeg að fara að Birtingaholti og sá hana þá í fyrsta sinni. Jeg skildi lítið af því, sem hún var að reyna að segja, en frá henni lagði svo hreina og bjarta ást- úð, að hún gagntók mig alveg. Sigga, frænka mín, var alt öðru vísi en jeg hafði haldið. Hún var glöð og hló, en í augunum og svipnum brá þó jafnframt fyrir sársauka, eins og eitthvað hefði brostið hið innra með henni. Hún laðaði okkur syst- kinin að sjer þegar í stað, og jeg veit, að ekkert haggaði síð- an trygð hennar. Það var gott að vera hjá henni, eins og sól skini á okkur frá bláum himni. Við skildum líka það, sem okk- ur var mest um vert. Enginn gat sagt skýrar en hún: Mjer þykir vænt um ykkur. Mjer þykir gaman að hafa ykkur hjerna hjá mjer. Síðan eru liðnir áratugii’, og margt hefir breytst, en mynd hennar er enn hin sama í huga mjer. Æfi hennar varð ærið fábrot- in að ytra hætti. Hún ól allan aldur sinn að kalla á sama stað. Hún var fædd í Birtingaholti 11. sept. 1870, og þar andaðist hún 13. febr. Mentun fjekk hún svo góða, sem kostur var, hjá ágætum foreldrum og í glæsi- legum systkinaflokki, og mót- aðist við það skapgerð hennar með líkum hætti og hinna barn- anna. Viljaþróttur hennar var svo mikill og athyglin næm, að hún fylgdist undravel með því, sem fram fór í kringum hana. Hún naut í þrjú ár kenslu í Daufdumbraskóla, fyrst hjá sjera Ólafi Helgasyni í Gaul- verjabæ og síðar hjá sjera Gísla Skúlasyni á Stóra-Hrauni. Sótt- ist henni námið hið besta. Fingramálið, sem hún lærði, notaði hún mjög lítið, en komst aðdáanlega vel upp á það að sjá, hvað talað var við hana, og talaði nokkuð sjálf á ófull- komnu máli. Sjera Valdimar Briem fermdi hana, en systir hennar á líkum aldri túlkaði svör hennar. Hún var gáfuð kona og prýðilega verki farin. Vinnan var aðalskemtun henn- ar um æfina, og var hún sívinn- andi af óþreytandi kappi og vandvirkni. Birtingaholtsheim- ilið naut allra starfa hennar. Langmesta yndi hennar var það, hve öll böm, sem með henni voru, hændust að henni og elskuðu hana. Þau læi'ðu svo fljótt að tala við hana og skilja hana, og það ljetti henni lífið mikið. Börn Águsts bróður hennar ólust upp með henni og í Birtingarliolli Kveðju- orð Frænka mín góð, jeg kem að að kveðja þig, jeg kem og vildi þakka fyrir mig. Hjá ykkur átti sál mín sumar- land, sem seinni tímar aldrei vinna grand. svo börn yngsta sonar hans. Hún tók ástfóstri við þau, og öll elskuðu þau hana eins og eldri systur eða góða móður; svo reyndist hún þeim hverja stund. Hún var hvers manns hugljúfi, sem kyntist henni, því að hún var sjálf öllum góð. Þess vegna var innra líf henn ar auðugt og hún mikil gæfu- kona þrátt fyrir þann harm, sem hún bar í hljóði. Hún kvart aði aldrei yfir hlutskifti sínu, heldur ljet það verða sjer hvöt til þess að leita hærra og hærra. Hógværð hennar var altaf hin sama. Að því skapi sem henni veittist erfiðara að njóta fulls samfjelags við aðra, því heitar brann hjarta hennar af kær- leika til þeirra. Kærleiki henn- ar var svo mátfugur og trú á Guð, að böl hennar snerist í blessun. Hún var ekki eitt af olnbogabörnum þessíjrar jarð- ar, heldur í flokki þeirra, sem sagt var um: „Sælir eru“. Mestallar eigur sínar gaf hún cftir sinn dag í sjóð til styrkt- ar málleysingjum og nokkura fjárhæð til þess að rækta skóg í brekkunni fyrir ofan bæinn í Birtingaholti. Hún horfði fram á viðskilnaðinn við þetta líf sömu róseminni og traustinu og faðir hennar hafði gjört, þeg ar hún var ung. Móðir hennar hafði beðið hann að skila kveðju til barnanna þeirra, sem á undan voru komin, og þá hafði hann sagt alveg rólega og hiklaust, eins og hann væri að fara til næsta bæjar: „Jeg skal minnast þess, Guðrún mín“. Þannig hugsaði hún um það síð- ast, óttalaus og glöð, hversu gott myndi verða að fá að koma heim til pabba og mömmu og allra systkinanna, sem á undan væru farin; það myndi verða líkt og á jólum, og þá myndi hún geta farið að tala og heyra til annara og ef til vill geta sungið líka. Blessandi hefir hún skilið við Birtingaholt og alla þar, einkum mágkonu sína og bróður, sem stendur einn þar eftir, er þau voru 14 áður syst- kinin. Mikið fjölmenni safnaðist saman að Hrepphólakirkju til jarðarfarar Sigríðar 23. febr. og voru flutt þar kveðjuljóð þau er hjer fara á eftir. Ásmundur Guðmundsson. Birtingaholt var bjart og hlýtt í senn. Þar bjuggu góðir, sannir, vitrir menn, og konurnar með kærleikseld i sál með kærleik leystu sjerhvert vandamál. Þar var svo gott að gleðjast eins og barn og gleyma því, að til er nokkurt hjarn. Við lifðum þar við ljóðahreim og blóm, sem litu aldrei nokkurn skapadóm. Og þú varst ein í þessum fríða hóp, sem þetta giaða höfðingssetur skóp. Þar íslensk menning átti æðstu völd, og allir báru hreinan, fægðan skjöld. í augum þínum bjó hið blíða mál, sem birti þína fögru, hreinu sál. Við þurftum engin orð — jeg skildi þig, og enginn hefur heitar blessað mig. Þú várst svo góð, þú varst svo blíð og heit, að vissi’ eg engan betri í minni sveit. Þú vildir allra þæta mein og böl og barst í hljóði þína eigin kvöl. Því bágt á sá, sem hvorki á heyrn nje mál, en hefur fengið stóra, ríka sál, sem. vildi fegin faðma alt á jörð og flytja Guði lof og þakkar- gjörð. Jeg kveð þig ei svo hlýtt, sem hæfir þjer, en hjartans bænir þigðu samt frá mjer og þakkir fyrir blíðubrosin þin. Guð blessi þig um eilífð, frænka mín. Guðrún J. Erlings. frá Hrísey F. 20. jan. 1912. D. 11. ág. 1941. O Ú fregn barst hingað fyrir all-löngu frá Danmörku, að Haukur Oddsson frá Hrísey væri látinn á heilsuhælinu í Sölleröd við Kaupmannahöfn. Þótt lang- vinn veikindi hafi búið ættingja hans og vini undir það, sem nú er fram komið, er þetta mikil harmafregn, því að ættingjar eiga að sjá á bak glæsilegum æsku- manni og ástvini, og vinir hans og skólasystkini hafa mist góðan dreng úr hópnum.’ Haukur heitinn var fæddur 20. janúar 1912 í Hrísey í Eyjafirði. Faðir hans var Oddur Sigurðsson skipstjóri frá Látrum í Þing- eyjarsýslu, sonur Sigurðar Stefáns sonar bónda þar. Móðir hans, sem enn er á lífi, er Sigrún Jörunds- dóttir, dóttir Jörundar Jónssonar í Hrísey, sem mikill ættbogi er kominn frá og margir kannast við. Þegar Haukur kom í Gagnfræða- skólann á Akureyri haustið 1928, bar strax á miklum gáfum og dugnaði hjá honum, og var hanu alla sína skólatíð ýmist efstur í bekk, eða með þeim efstu. Hann tók þar gagnfræðapróf vorið 1930. Um haustið fór hann suður til Reykjavíkur og settist í stærð- fræðideild Mentaskólans. Las 5. bekk utan skóla sumarið 1931, og tók stúdentspróf vorið eftir. Það haust sigldi hann til Kaupmanna- hafnar, innritaðist í Tekniska háskólann og hóf nám í verk- fræði. Jafnframt námi sínu tók hann mikinn þátt í fjelagslífi stúdenta í Höfn, og var um skeið í stjórn fjelags þeirra. Hann var frjáls- lyndur í skoðunum og umburðar- lyndur. Sumarið 1935 kendi hann fyrst þess krankleika, sem leiddi hann til bana: berkla í lungum. Tveir bræður hans voru þá þegar dánir af völdum sama sjúkdóms. Hann lá fyrst á sjúkrahúsi í Kaup- mannahöfn, en 'dvaldi síðan á heilsuhælinu í Sölleröd. þar hrest- ist hann það mikið, að haun fór þaðan um tíma, en var samt kom- inn þangað aftur, er dauðann bar að höndum, hinn 11. ágúst síðast- liðinn. í jauúar 1938 kvæntist hann danskri konu, Ketty Clausen að nafni, sem lifir mann sinn. Þann tíma, sem hann dvaldi á heimili sínu, naut hann hinnar ástríkustu umönnunar konu sinnar, og vafa- laust urðu honum seinustu stund- irnar, sem hann lifði, á margan hátt bjartari og hlýrri fyrir að- hlvnningu hennar. Haukur var óvenjumiklum gáf- um gæddur og mannkostum, enda mjög vinsæll. Jeg ætla að hverjum manni hafi þótt vænt um hann sökum göfugmensku hans, sem kyntist honum að nokkru ráði. Hann A7ar kátur í vinahóp en al- vörugefinn undir niðri, en glað- værð hans var kesknislaus og al- vara án þykkju. Hann A-ar því geðprúður og dagfarsgóður með afbrigðum. Sjúkdóm sinn bar hann tneð æðrulausri karlmeusku, eins og hans var von og vísa, og skap stilling hans breyttist- aldrei. Hann lætur ekki eftir sig neinar reistar hallir nje unnin stórvirkij ekki er samt ólíklegt, að það hefði getað orðið, hefði honum enst aldur og heilsa til. En hann lætur ættingjum sínum og vinum eftir kærar minningar um göfugmennf og góðan dreng. B. E. Sólveig Björnsdóttir FRAMH. AF BLS. 9. og var síðar kennari yfir 20 ár í fínum hannyrðum við þann skóla.. Erlendis dvaldi hún og við nám nokkrum sinnum. Sólveig Björnsdóttir unni heimili sínu, átthögum, landi og þjóð af heilum hug og vildi sóma þess í hvívetna. Hve mikið samband Var á milli þessarar djúpu tilfinningar og listhneigð- ar hennar, brestur mig vit til að dæma um. En vinkona hennar hefir sagt mjer, að Sólveigar kærasta hugðarefni hafi verið að fegra ísl. kvenbúninginn og gjöra hann sem hentugastan tií að sýna tign og fegurð ísl. kon- unnar Baldýringin og annar gamall saumur, vóru henni fagrar minj- ar um aldagamlan ísl. hagleik og menningu. Með honum hafðj konan skreytt híbýli sín og klæði. Hannyrðirnar höfðu ver- ið ísl. konunni í fábreytni lífs- ins og andstreymi, „helgra kvelda jólaeldur“. Með Sólveigu Björnsdóttur er gengin göfug kona og hennar Ijúft að minnast. Bjarni Thorarensen segir í hinu ágæta kæði um Rannveigu Filippusdóttir: Nú hvílir þú vinkona mín og frændkona „við sundin blá“, við hlið móður þinnar og systra, á þeim stað, sem þjer var kær- astur allra. Heimilisræktin og átthaga- trygðin voru ef til vill sterkustu þættirnir i sálarlífi þínu. Bjðj- um Guð að þesar dygðh megt blómgast í hugum ísl. kvennti og karla í framtíðinni. St. H.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.