Morgunblaðið - 25.04.1942, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 25.04.1942, Blaðsíða 2
2 M O K G U N B L * t> 1 ♦ * Laugardagur 25. apríl 1942. Leyslngar l8iða I Ijós glfurlagt tjðn Þjððverja ð austurvlg- stððvunum (Frá Maurice Lovell, frjetta- ritara R,euters í Kuibyshev). Hinn mikli árangur vetrarhern- aðar Rauða hersins er nú að koma fyllilega í ljós á aust- urvígstöðvunum eftir því, sem snjóa leysir. Tug þús- undir líka af þýskum her- mönnum koma undan snjón- um og gífurleg kynstur af hergögnúm, sem óvinirnir hafa neyðst til að skilja eft- ir, og sem þakin hafa hafa verið snjó í vetur. Rússneska blaðið Pravda, áætl- ar manntjón Þjóðverja 50 þúsund á viku síðan vetrar- hernaðurinn hófst þ. 6. des- ember síðastliðinn. Fyrstu 5 mánuði stríðsins í Rússlandi var talið, að Þjóðverjar hefðu mist um 6 miljónir manna. Þegar blaðið gerði þessa á- ætlun var ekki reiknað með þeim mikla fjölda þýskra hermanna, sem hurfu í hinn rússneska snjó, og sem nú eru að koma í ljós er snjóa leysir. Á torginu í borginni Yukhnov, þar sem Rauði herinn vann á einu svonefndu ,,Brottgalt- ar“vígi Þjóðverja, hefir kom- ið í ljós ein gríðarmikil hóp- gröf, þar sem þúsundir þýskra hermanna hafa látið lífið. 1 hlöðum meðfram vegunum og skurðum, er stöðugt að koma í ljós fleiri og fleiri lík. Snjóskaflar, sem smátt og smátt eru að ieysast upp, -verða að hergagnahaugum, skoífær- um og fallbyssum í tugatali. Mikið er nú unn'ð í borgun-, um Klin, Solicknogorsk, Nar- ofominsk og Shakhnov við að bjarga þessu herfangi. Það er eins og Stalin sxgði: ,4>að er hægt nð erdurvinna borgir, en dauðir menn verða altaf dauðir menn“ % Bresk flugvjel hrapar yfir Danmörku Fregn frá Kaupmannahöfn í gær hermdi, að loftvarna- merki hefðu verið gefin víðs- vegar í Danmörku í fyrrinótt. Nokkrar breskar flugvjelar voru á flugi yfir Suður-Jótlandi og sprengju var varpað þar nið- ur og olli hún nokkru tjóni. Ein bresk flugvjel hrapaði yf- ir Suður-Jótlandi, en þrír menn af áhöfninni björguðust í fall- hlíf og hafa þeir verið kyrsettir. STOÐUG LOFTSÓKN BRETA DAG OG NÓTT Stærstíi ortistufliigvjeía- árásír stríðsíns BRESKI FLUGHERINN hefir haldið uppi stöð- ugum loftárásum dag og nótt á þýskar borg- ir og hernumdu löndin undanfarna sólar- hringa. í gærkvöldi skýrði breska flugmálaráðuneytið frá því, að ein stærsta skyndiloftárás breskra orustuflugvjela í stríðinu hefði verið gerð í gær. Tilkynning flugmálaráðuneytisins skýrði frá því, að sþrengju- flugvjelar, varðar af miklum fjölda orustuflugvjela hefðu farið til árása á skipasmíðastöðvar í Flushing i Hollandi. Einnig gerðn orustuflugvjelar árásir á hafnarborgir í hernumda hluta Frakklands. Engin ensk borg eins illa útleikin og Liibeck Dað var opinberlegt tilkynt í London í gær, að engin borg hafi farið líkt því einjs illa út úr loftárás og þýska borgin Liibeck í loftárás Breta þann 28. mars s.I. Gamla borgin — eða inn- bærinn — er á eyju, sem er um 1 fermíia og þar urðu aðal- skemdirnar. Eyja þessi er mjög þjettbygð og gru húsin þar 3 og 4 hæða há. Þar eru verslanir og opinberar byggingar. Nýj- ustu ljósmyndir, sem breskir flugmenn hafa tekið, sýna að 40% þessa borgarhluta er í rústum. Talið er að 1500 hús hafi verið eyðilögð. Tjón af eldi. Talið er að mest tjón hafi orsakast af eldi, en vegna þess hve hverfið er gersamlega í rústum, verður ekki með vissu sagt, hvað hefir verið eyðilagt með sprengjum og hvað með eldi. Ráðhúsið, aðalrafmagnsstöð- in, markaðshöllin og ríkisbanka byggíngin er alt í rústum. —■ Höfnin er stórskemd. 500 hús voru lögð í rústir í úthverfunum, þar á meðal íbúð- arhúsasamstæða. Á listanum yfir byggingar, sem urðu fyrir skemdum, eru járnbrautarvið- gerðarverkstæðið, aðal járn- brautarstöðin, geymsluhús, gas- stöðvar og margar verksmiðjur. (Reuter). Island „fíugvjela- módurskíp Banda- ríkjanna i Atíants- hafí“ ýski aðmírállinn Lútzow, er flytur vikulega yfirlit um stríðshorfurnar í þýska útvarp- ið, sagði í fyrirlestri á þriðju- daginn, að „Bandaríkjamenn væru að leitast við að gera ís land að ósökkvanlegu flug- vjelamóðurskipi“. Churchill gefur skýrsiu á lokuðum fuudi Churchill. forsætisráðherra Breta, gaf yfirlit yfir horf- urnar í stríðinu á lokuðum fundi neðri málstofú breska þingsins á sumardaginn fyrsta. Fundurinn stóð í fjóra og hálfa klukkustund. Sir Stg,fford Cripps, leiðtogi stjórnarinnar í' þinginu mun inn in skamms gefa skýrslu í þing- inu um för sína til Indlands. Til loftbardaga kom milli Spitfire flugvjela og þýskra „Focke Wulf 190“ orustuflug- vjela af nýrri gerð. Voru háð einvígi milli orustuflugvjelanna í 7000 metra hæð. Miklar skemdir eru sagðar hafa orðið á hafnarmannvirkj- 'um og skipasmíðastöðvum í Flushing. Bretar segjast hafa skotið niður 5 óvinaflugvjelar í þess- um leíðangrum og mist 9 örustu flugvjelar sjálfir. Það voru sprengjuflugvjelar af Boston gerð, er gerðu árás- ina á Flushing og komu þær all- ar heim aftur heilu og höldnu. Flugmaður á Spitfire hefir sagt frá því, að hann hafi sjeð er sprengjurnar fjéllu á skipa- smíðastöðvar og sjeð gríðarleg- ar sprengingar og reykjar- mekki. — Einnig sá hann að sprengjur hittu beint í mark, bæði á hús og hafnargarða. Ein Spitfire-sveit lenti í orústu við „Focke Wulf 190“ orustuflug- vjelar í 7000 metra hæð. Tveir flugmenn úr Arnar-flug- sveitinni amerísku hittu stóra þriggja hreyfla „Junkers 52“ her- flutningaflugvjel á leiðimii lieim og skutu hana niður og fjell hún' í sjóinn. Flugmenn frá Nýja Sjálandi rjeðust síðar um daginn á fjórar „Focke-Wulf 190“ orustuflugvjel- ar yfir Norður-Frakklandi. Þeir skutu niður þrjár þeirra, án þess að bíða tjón sjálfir. Fjórða flug- vjelin, sem sást seinast vera að hrapa brennandi til jarðar, er tal- in „sennílega eyðilögð". Kyrsettir f Kalinin- vígstöðvunum Washington í gær: — Það er nú kunnugt orðið, að ein amerísku flug- vjelanna, sem gerðu árásirnar á jap- örisku borgirnar á dögunum varð áð nauðlenda í Síberíu. Ahöfn flugvjel- arinnar var kyrsett samkv. hlutleysis- samningi Rússa og Japana. A blaðamannafundi Roosevelts for- seta í dag, spurði einn blaðaruann- a:ma hvort eklci væri hægt að iata Eússa fá flugvjelina með láns og leigu lagakjöi'um og hvort áhöfnín myndi verða kyrsett á Kalininvígstöðvunum. Forsetinn svaraði ekki spurningunni b'int. Sjóhernaður í Atlants- hafi, Miðjarðarhafi, Svartahafi og Norður-lsbafi ýska herstjórnin tilkynti í gær, að þýskir kafbátar hefðú sökt skipum, sem voru samtals 35 þúsund smálesti(r við strendur Norður-Ameríku og að amerísku dráttarskipi hefði verið sökt rjett fyrir utan höfn eina vestra. í MiðjarSarhafi hefir þýskur kafþátur sökt 2 skipum, samt. 13,600 smál, og þrem seglskip- um, sem voru í flutningum fyr- ir Breta. í Svartahafi hafa þýskar flug vjelar hæft með sprengjum stórt olíuflutningaskip og tvö kaup- skip, og við Murmansk befir Jstórt kaupskip verið hæft með 'sprengju. Þjóöaratkvæöa- greiðsla i Kanada f gær fór fram þjóðarat- *■ kvæðagreiðsla í Kanada um það, hvort komið skyldi á al- mennri herskyldu. Sumardagurinn fyrsti á Akureyri Akureyri í gær. il ágóða fyrir starfsemi sína hafði sumardvalarnefnd barna á' Akureyri ýmilegt á boð- stólum á sumardaginn fyrsta, svo sem merkjasölu allan daginn. Kvenfjelagið „Hlíf“ hafði bazar í bæjarstjórnarsalnum. Kaffiveit- ingar o. f). voru á nokkrum veit- ingahúsúm bæjarins, kvikmyndá- sýning í Nýja Bíó\ og kvöldskemt- un í samkomiihúsi hæjarins, þar sem flutt var erindi, söngur og upplestur og að lokum dansað. Um kl. 2 e. h. hófst skrúðganga harna. á Ráðhústorgi. Þar hjelt Snorri Sigfiisson skólastjóri ræðu og barnakór söng. Stórfeld loftárás ð Eystrasalts- hðfnina Rostock Borgín var eítt eldhaf er frá var horfið MIKILL breskur flugfloti gerði stórfelda loftárás á þýsku Eystrasaltshafnarborg- ina Rostock í fyrrinótt. í þess- ari borg eru verksmiðjur, sem framleiða Henkel flugvjelar og einnig eru þar Neptune skipa- smíðastöðvarnar, aem byggja kafbáta og önnur smærri skip. Upp á síðkastið hefir höfnin verið notuð sem útskipunarhöfn fyrir vörur, sem fara eiga til austurvígstöðvanna. í breskum fregnum er því haldið fram, að þetta sje ein stærsta loftárásin, sem gerð hefir verið á borg í Norður- Þýskalandi og er henni líkt við hina miklu loftárás, sem gerð var fyrir skemstu á Lúbeck. í árásinni tóku þátt Sterling, Manchester, Lancaster, Witley og aðrar sprengjuflugvjelar stærstu tegundar, sem Bretar eiga. Allur flugvjelahópurinn slepti sprengjum sínum á einni klst. og gerði það erfiðara um alla hjörgunarstarfsemi. — Notaðar voru sprengjur með sjerstak- lega sterku sprengiefni. Flugmennirnir segja að höfn- in og Heinkel verksmiðjurnar bafi verið eitt eldhaf er þeir hurfu frá borginni og reykja- súlur lagði alí að 3000 metra í loft upp. Einn flugmaður seg- ist hafa sjeð elda brenna enn í borginni, er hann var komi»n 60 mílur á heimleið. Bretar segjast sakna 4 flug- vjela úr árásum þessum. I Bretlandi er ekki farið dult með, að þessi árás hafi verið einn liður í því, að ljetta af Rúss um á austurvígstöðvunum. Fregnir voru enn að_ berast um þessa miklu loftárás í Lon- dan síðdegis í gær, er fregnir bárust um nýjar loftárásir Breta, á Þýskaland og herteknu lönd- in. Þýskar flugvjelar hafa haft sig lítið í fraammi yfir Bret- landi undanfarið. 1 fyrrinótt voru tvær þýskar flugvjelar skotnar niður yfir suðurströnd Englands og í London er við- urkent, að þýskar flugvjelar hafi verið yfir suðurströndinni í gær og varpað þar sprengjum. Nokkuð tjón varð á mannvirkj- um og mönnum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.