Morgunblaðið - 25.04.1942, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 25.04.1942, Blaðsíða 3
Laugardagur 25. apríl 1942. MOKGUNBLAÐIÐ 3 Úthlutað verður 2-300 nýjum garðlöndum í sumar Eftirspurn eftir garðlöndum fyrir ræktun iríatjurta hefir aldrei verið meiri en hún er nú. Til þess að fullnægja þeirri eftir- spurn þarf að auka smágarða- hverfi bæjarins. Með tilliti til þessa var borgar- stjóra og bæjarverkfræðingi heim ilað að taka úr erfðafestu nauð- synleg lönd í bænum til að leigu- görðum verði hægt að fjölga á þessu vori um :2—300. Ætlast er til að þessi nýju garð- lönd verði á fleiri en einum stað, svo bæjarbúar hafi sem stysta leið áð fara til leigugarða sinna. Erlðaíestugjöld lækk- uð I Sogamýri A bæjarráðsfundi í gær var tekin sú ákvörðun, samkv. tilÍÖgu borgarstjóra og bæjarverk- fræðíngs, að erfðafestugjald af ræktarlöndiim í Sogamýri verði lækkað í 50 'krðriur á ári fvrir hvern hektara. '' tJpþrunalega var það ákveðið, þegár nýbýlin voru reist í Soga- mýri fýrir forgöngu f jelagsins „Landnám", að erfðafestugjaldið yrði breytilegt eftir mjólkufverði Kn su tiJhögUn hefir revnst ó- srínngjörn. Því þó mjólkurvérðið liafi hækkað í aurum, hefir af- komá áhúenda ekki hatríað að sáiha skápi. Tillágan í 50 kr. árgjald fyrir hektara miðaðist við fram komnar óskir þeirra Sogamýrarbænda. Fjársofntmín á sumardagínn fyrsta með ágætnm 171 jársöfnun Barnaviríafjelags- *- ins Sumargjöf á sumardag- inn fyrsta gekk með ágætum. Skemtanir voru allar prýðilega sóttar, merki seldust óvenju vel og yfirleitt má segja, að fjársöfn- unin hafi gengið einstaklega vel. I gærkvöldi var vitað um 40.000 krónur, sem inn voru komnar, en þá var enn ekki búið að gera upp nærri alla Jiði. Þykir ekki ólíklegt, að f jársöfnunin hafi numið 50—60 þúsundum eða jáfnvel meir. í fyrra söfnuðust alt í alt 40 þús. kr. Það sem vitað var um í gær- kvöldi, var: Pyrir skemtanir rúmlega 15 þús. kr. Merki 15.600 kr. Sólskin 6700 kr. Laugarnesskólinn. Uppdrættirn- ir af viðbótarbyggingunni við Laugarnesskólann voru samþyktir j á fundi bæjarráðs í gær og borg-1 arstjóra jafnframt falið að gang- j ats fyrir því, að byrjað yrði á framkvæmdum svo fljótt sem auð- j ið er. iiMiititimiiujHiuiifiiimMMitiiiHiiuiMMiiiiiiimmmiMmtMHi ISnarráðuf unglingurl i i Bjargaði fimm ára barni frá úruknun í Sigiufjarðarhðfn Ungi maðurinn hjer á mynd- inni heitir Axel Schiöth, jög er sonur Aage Schiöth lyf- i sala á Siglufirði. Axel er 12 ára gamall og sýndi frábært snar- jræði og framtakssemi á dögun- um, er hann bjargaði lífi fimm i ára telpu, sem hafði fallið í Sigluf jarðarhöfn og var búin að ! missa meðvitund, er Axel náði í hana. j Frjettaritari Morgunblaðsins 1 á Siglufirði segir á þessa leið frá atburðinum: | Síðastliðinn Iaugardag (18. þ. jm.) .var firnm ára gömul teípa, í Ólöf Angantýsdóttir, að leiða tveggja ára gamlan bróður sinn eftir sjóvarnargarðinum, norð- an Siglufjarðareyrar. Sá dreng- urínn þá dós utan í garðinum, ér hann vildi ná. Telpan teygði sig eftik dósinni, en misti þá jafnvægið og fjeíl í sjóinn, en drengurinn stóð eftir grátandi á garðinum. Enginn fullorðinn var þarna nærstaddur, en eftir litla stund bar að 10 ára dreng, Axel Schi- öth og sá hann hvar telpan. lá á botninum og óð strax út og tókst að ná telpunrii og koma henni upp á garðinn. Var teip- an þá meðvitundarlaus, enda var hún sokkin, er Axel náði henni úr sjónum. Axel beið ekki boðanna, held- ur tók þegar til að gera á stúlk- unni lífgunartilraunir, en hann hafði lítilsháttar kynt sjer slík- ar aðferðir. Tókst honum þetta syo vel, að telpan komst til með vitundar. Nú bar þarna að stúlku, sem þekti telpuna og bar hún hana heim til foreldra hennar, sem eiga heima skamt frá, þar sem slysið varð. Náði telpau sjer furðu fljótt eftir góða hjúkrun og er nú heil heilsu. Foreldrar telpunnar eru Angantýr Einarsson og Korne- lía Jóhannsdóttir. Eins og sjest af afreki Axels, er hann hinn duglegasti piltur. Hann hefir verið á síldveiðum tvö sumur á línuveiðaranum „Sigríði“ Ný síldarverk- smiðja í Ingólfs- firði verður reist á næstu tveimárum Meðalafköst áætluð 2000 mál. á sólarhring AÞESSU VORI verður byrjað að reisa síldar- bræðslustöð á .Eyri við Ingólfsfjörð á Strönd- um, þar sem síldarsöltunarstöð Th. Thor- steinsson- var. A Geir Thorsteinsson nú þá eign. En þeir verða tveir um að rcisa síldarverksmiðjuna, hann og Beinteinn Bjarnason í Hafnarfirði. Verksmiðja þeirra á að vera það stór, að meðalafköst hennar verði 2000 mál bræðslusíldar á síldarhripg. Þeir ætla að byrja á byggingunum í vor og sumar; en verksmiðj- an á að vera tilbúin til starfræksln fyrir síldarvertíð 1943. Ráðunautur við undirbúning verksins er Þórður Runólfsson verksmiðjuskoðunarstj., en Helgi Eyjólfsson bvggingameistari hefir tekið að sjer að standa fyrir bygg- ingunum. Byggingarefni hafa þeir f.jelag- ar fengið, og fer nokkuð af verka jnönnum hjeðan að sunnan til vinnunnar, en búit er vlð. að aðr- ír fáist fyrir norðan. ýerksmiÖja. þessi á að ve.ra út- búin öllum nýtísku .vjelum og tækjum, með .sjálfvirkum löndun- artækjnm o. s. frv. Aðalvjelarnar þarf að fá frá Ameríku. en ými.s- leg tæki verða smíðuð hjer áJandi, sennilega t. d. löndunartækin. Síldarsöltun hefir oft verið rek- in á Ingólfsfirði, en oráið mis- fellasamt vegna þess að ekki liefir verið hægt að koma síld þar í bræðslu. Verðnr nú bót á þessu ráðin. Alveg er óráðið hveruig rekstri hinuar væntanlegu verk- smiðju verður hagað. Áfengismálin í nefnd \ fengismáíin voru enn rædd í sameinuðu þingi í gær. — Jóhann Möller bar fram rökstudda dagskrá um frávísun málsins. Var hún rökstudd með því, að lokun vríibúðanna hefði leitt, af sjer aukið smygl, bruggun i stórum stíl, aukin kynning og viðskifti landsmanna og setuliðsins, svo og neyslu ýmissa banvænna vökvá. Var og í dagskrártollögunni ríkis- stjórnin hvött til að taka til at- hugunar á hvern hátt hægt væri' að koma í veg fyrir að lands- menn neyddust til að neyta áfeng- is ólöglega. — Pjetur Ottesen var ákaflega hnevkslaður af þessari dagskrártillögu. Tillaga kom fram um að vísa málinu til nefndar, en menn vorn ósammála um, hvort. það skyldi vera allsherjarnefnd eða fjárveit- inganefnd. Meðhaldmenn þings- ályktunartill. vildu fá málið í fjárveitinganefnd, en samþ. var með 18:11 atkv. að vísa málinu til allsherjarnefndar. Fyrsti pósturinn bsintfráAmerlku 17 yrsta póstsendingin beint -*• frá Ámeríku er komin hing- að til landsins. Mun það hafa verið ,um 30 pokar, böggla- og brjefapóstur. Má nu búast við að póstur fari að koma reglulega beint að vestan. Eldspýturnar komnar- og lækka I verði Tóba kseinkttsalan hefir nú feng . ið eldspýtnabirgðir, en hörg- ull hefir verið á eldspýtum hjer í bænum undanfarið. Sigurður Jónasson forstjóri skýrði blaðinu :jvo frá í gærkvöldi, að nægar Iftrgðir væru fyrir hendi til langs tíma. EJdspýtúr þær, sem nú eru komnar, eru ódýrari en þær, sem áður yoru til. Késtar stokkurinn nú 10 aura í stað 13 aura áður. Ármann vann víðavangs- hlaupíð Glímuf jelagið Ármann vann víðavangshlaupið á sumar- daginn fyrsta mjög glæsilega, átti 1., 2. og 3. mann. Fjekk sveitin 6 stig, en betri árangri er ekki hægt að ná. Er þetta í fyrsta skifti, sem Ármann vinn ur ,,EgilsfIöskuna“. Fyrstur varð að marki Sigur- geir Ársælsson,, tími hans var 14 mín. 33,2 sek. Annar varð Haraldur Þórðarson á 14:37,8 og þriðji Árni Kjartansson á 14:44,4. Allir þessir menn eru úr Ármanni. Fjórði var Indriði Jónsson (K R) á 14:47,8. Önnur í röðinni var einnig sveit Ármanns íslendingar i stað japanskra fiski- mannaviðstrend- ur Kyrrahafs Vestur-íslendingar hafa tek- ið við af japönskum fiski- mönnum í British Columbia á Kyrrahafsstj’önd, en Japanar þeir, sem þar voru, hafa allirj verið kyrsettir og er þarafleið- andi skortur á vinnuafli við' fiskveiðamar. Frá þessu er skýrt í kanad-' iska blaðinu „The Star Week-j ly“, frá 11. apríl, sem gefið er út í Toronto. í greinihril ségir m. a.: „Flestir Islendingarina eru óvanir fiskiveiðum ,á sjó, því, þó nokkrir þeirra sjeu fæddir á Islandi og hafi stundar veiðar við strendur hinnar norðlægu eyjar. þá eru flestir fæddir í Manitoba og þeir hafa aðallega stundað fiskveiðar í Winnipeg- vatni. En þeir eru fljótir að læra aðferðir þær við lax og síld veiðar, sem notaðar eru við Kyrrahafsströndina og búist er við miklu af þeim í framtíð- inni. Nokkrir íslendinganna eru nú að undirbúa sig undir lúðuveið- ár, sem hefjast um 15. apríl. — Þeir eru allir góðir sjómenn og flestir þeirra kunna skil á skipa smíðum. Elsti maðurinn í hópn- FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU Tveir hestar drepast af raf- magnsstraum > að vildi til á túninu á Blöndu- hlíð hjer við bæinn í gær- dag, að tveir hestar, sem voru þar á beit, duttu alt í einu niður stein- dauðir. Við rannsókn komi 'í ’ljðs, að hestarnir liöfðu orðið fyrir há- spennurafmagnsstraum. Á miðvikudagskvöld ók herbíll á rafmagnsstaur og braut hann. Rafveitunni mun ekki hafa- orðið kunnugt um þet.ta fyr en á fitotu- dag síðdegis og voru þegar send- ir menn tii að gera við til bráða- birgða. í gær fóru syo menn frá rafveitunni til .aðosqtja <upp ný.f- an staur. Á rafmagnsstauruin á þessum slóðum ern símavírar og munií rafmagnsstrengirnir hafa snert þá. en símavírarnir liggja svo aftnr yfir túnið. Komu hestarnir við víra þessa og varð það þeii'ra bani eins og fyr segir. Eitt þúsund krðnur tíl bliRdfaheimilis Ci ormanni Blindravipafjelags Á ffelands voru færðar kr, 1000,00 að gjöf til Blindra- heimilissjóðs fjelagsins þ. 22 þ. m. og vill gefandinn ekki láta nafns síns getið. Fyrir þessa höfðinglegu gjöf vill stjóm fjelagsins færa gef- andanum $ínar innilegustu þakkir og óskar honum gleði- legs sumars.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.