Morgunblaðið - 05.06.1942, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 05.06.1942, Blaðsíða 5
DANA UNDIR HERNÁMINU sFöstudagur 5. júní 1942. JPlorgtttdblafóð Otgef.: H.f. Árvakur, Reykjavlk. ’ BVamkv.stj.: Sigfús Jónssón. Ritstjórar: Jón Kjartansson, Valtýr Stefánsson (ábyrgCarm.). Auglýsingar: Árni Óla. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiBsla: Austurstræti 8. — Slmi 1600. Áskriftargjald: kr. 4,00 á mánuCi , innanlands, kr. 4,50 utanlands. | 1 lausasölu: 25 aura eintakiC, 30 aura meC Lesbók. i' ___________________________ Svikin sönnuð tnefndaráliti meiri hluta stjórnarskrárnefndar neðri ‘deildar (þskj. 368) segir svo m. „Stjómarskárnefnd hefir átt s6 fundi um málið. Á fundi 13. ;.apríl bar formaður upp þá til- lögu, að nefndin flytti frv. um breyting á stjórnskipunarlög- unum, sem fæli í sjer breyting- :;ar, sem leiðir af sambandsslit- um við Dani. Sú tillaga var feld með öllum atkvæðum gegn at- kvæði formanns (G. Sv.). — 1 sambandi við þá atkvæða- greiðslu lýstu þeir Bergur Jóns- son, Gísli Guðmundsson, Jör- undur Brynjólfsson og Sveinbj. Högnason yfir því,. að þeir mundu engri stjórnlagabreyt- ingu fylgja á þessu þingi . . .“. Þessi tilvitnun úr prentuðu þingskjali sannar svo greini-t lega, að ekki verður um vilst að öll skrif Tímans um, að Fram sóknarflokkurinn hafi á síðasta þingi verið reiðubúinn að af- -greiða sjálfstæðismálið, er bull og þvaður og á enga stoð, í veru ieikanum. En Tíminn hefir bersýnilega orðið var óánægju meðal kjós- enda Framsóknar yfir aðgerða- leysi flokksins í sjálfstæðismáÞ inu, og þessvegna reynir blaðið með undanbrögðum og fölsun staðreynda, að friða kjósendur. Sannleikurinn er sá, að hið eina sem Framsókn lagði til þessara mála var þingsályktun- artillagan um skipun milliþinga nefndar í stjórnarskrármálið í heild. Þeirri milliþinganefnd átti ekkert tímatakmark að setja. Hún átti að fá „að starfa“ eins lengi og henni þóknaðist, jafnvel áratugi. Þegar svo Sjálf stæðis- og Alþýðuflokksmenn fluttu breytingartillögu við þingsályktunartillögu Fram- sókar, þess efnis, að milliþinga- nefndin skyldi ljúka störfum fyrir aukaþingið í sumar og hafa þá tilbúna lýðveldisstjórn- arskrá, snerust allir Framsókn- ; armenn gegn þessari tillögu. Framsóknarflokkurinn vildi fresta allri ákvörðun í sjálf-i' stæðismálinu. Hve lengi vissi enginn. En það sjer væntanlega hver einasti Islendingur, að ó- íoisvaranlegt var með öllu, að • draga það lengur en til ársins 1943, að ganga til fulls frá 'þessu máli. Slíkt andvaraleysi mátti skilja þannig, að íslend- ingar væru horfnir frá sambands slitum við Dani. Lokaskrefið í sjálfstæðismál- inu verður stigið á þessu ári, KJOR að er fátt, sem berst frjetta af frændþjóðum vorum á Norðurlönd-um um þessar mund- ir. Svo gersamlega hefir verið snúið við blaðinu, að nú er al- gert samgöngubann einmitt við þær þjóðirnar, sem við höfðum áður mest skifti við. Frjettirnar sem berast eru einkum um ýmis- konar hörmungar í Noregi. Frá Danmörku frjettist lítið eða ekk- ert og má að vísu segja, að engar frjettir sjeu betrhen illar frjettir. En þó vitum við, að Danir hafa ekki átt sjö dagana sæla síðan þjóðin var hernumin fyrir rúm- um tveimur árum. Hinsvegar hefir verið reynt af danskra yfirvalda hálfu, að haldi friðinn í lengstu lög og persóna konungsins hefir verið það einingarmerki, að þjóð- in hefir safnast um í aðdáunar- verðri einlægni og trúnaðar- trausti. Menn munu minnast þess, að þegar Þjóðverjar buðu norður- landaþjóðunum griðasamninga, vorið 1939, höfnuðu Finnar, Norð menn og Svíar því' boði með þeim forsendum að Kellogg-sáttmálinn gamli væri raunverulegur griða- samningur við Þýskaland, sem aðrar þjóðir. En Danir töldu sjer rjettara að undirrita samninginn. Þeir voru næsti granni Þjóðverja og vegna legu 'landsins þótti þeim hætta á, að Þjóðverjar mundu fremur ráðast inn í landið, ef ekki væri sjersamningurinn gerð- ur. Þetta hlífði þó enganveginn Dönum við þeim atburðum er biðu þeirra 9. apríl 1940 og munu ýmsir heldur ekki hafa búist við því. Undanfarnir mánuðir og ár höfðu þegar sýnt haldgæði ýmsra annara samningar, sem Þjóðverj- ar höfðu gert. Danir áttu þúsund ára gamlan sjálfstæðisferil að baki sjer og höfðu getað fagnað fullkomnum friði í landi sínu þrjá aldarfjórð- unga. Samkvæmt þeim „samning- um“, sem þeir neyddust til að gera við Þjóðverja 9. apríl, skyldi landið halda, sjálfstæði sínu og konungur og stjórn halda áfram að starfa á líkum grundvelli og áð ur. Þjóðverjar skyldu ekki skiftá sjer af dönskum innanlandsmái- um, ekki nota danskan her eða fiota til sinna þarfa, og hverfa á burt frá Danmörku þegar að stríðinu loknu og viðurkenna full- veldi og sjálfstæði Danmerkur eftir stríðið. * ★ Vitanlega hafði hernámið þær afleiðingar, að Bandamenn urðu að telja Danmörku óvinaland, þar sem Þjóðverjar höfðu byrjað þar hernaðarframkvæmdir. Og vitan- Jega var hin mikla útflutnings- verslun Dana til Bretlands úr sög- unni og kaupskipafloti Dana varð að hætta frjálsum siglingum um heimshöfin. Það er þáttur út af fyrir sig, hvílíkt efnahagslegt tjón Danir hafa beðið við hernámið, en hans verður ekki hægt að geta nema lítillega í þessari grein. sem, eins og kunnugt er, veitti stjórninni forustu til dauðadags á núlíðandi vori. En það er víst, að þessi stjórn hefir ekki átt sjö dagana sæla, því að það leið ekki á löngu áður en Þjóðverjar fóru áð gera kröfur til ýmsra manna- breytinga. Þannig vildu þeir ekki líða, að P. Munch, utanríkisráð- herra, gegndi stöðu sinni áfram. í hans stað var tekinn Erik Sca- venius, fyrv. sendiherra (og. utan- ríkisráðherra í fvrstu stjórn Zahle), en þó að hann sje ekki talinn nazisti, þá virðist hann þeirrar skoðunar, að framtíð Dan- merkur sje undir því komin, að landið hafi sem nánasta og inni'- legasta sambúð við Þjóðverja. Og samkvæmt þessu hefir hann breytt, og þykir reka erindi þýskra áhrifa ósleitilega meðal þjóðar sinnar. Ýmsa aðra menn gátu Þ.jóð- verjar ekki þolað í opinberum málum, og má nefna þeirra á meðai Hedtoft Hansen, sem varð f orseti danska verkamannasaim bandsins eftir Stauning, og Ohrist- mas Möller, fyrrum formann hægri flokksins, einn hinn eftir- tektarverðasta stjórnmálamann Dana á síðari árum. Þessir menu voru gerðir áhrifalausir í stjórn- málum, þ. e. a. s. á yfirborðinu. Christmas Möller er nú fyrir nokkru kominn til Englands — tókst að strjúka úr landi á æfin- týralegan hátt, ásamt fjölskyldu sinni og hefir nú byrjað að starfa meðal frjálsra Dana í London. ★ Hvaða afstöðu tóku nú stjórn- arerindrekar Dana erlendis gagn- vart. hernáminu. Sendiherrann í Noregi var þegar kvaddur heim ásamt sendisveit sinni —- því að samkvæt nýskipuninni í Noregi skyldu Þjóðverjar rækja utanrík- ismálaþjónustuna fyrir Norð- menn. En það voru fæstir sendi- herrar Dana, sem hægt- var að kveðja heim eða kærðu sig um að hverfa heim. -Þeir voru raunveru- lega sviftir öllu sambandi við stjórnina í Kaupmannahöfn og urðu því að starfa upp á eigm spýtur, eftir því sem þeir töldu þjóðinni hollast, á hverjum stað. Þess varð skamt að bíða, að í odda skærist • milli sendiþjónust- unnar erlendis og stjórnarmnar heima. , Sendiherrarnir vissu, að utanríkismálaráðuneytið þurfti að gera fleira en því gott þótti, og því fór svo að sendiherrarnir urðu að ganga í berhögg við bein fyrir mæli stjórnar sinnar. Kunnast dæmi þessa er það, sem gerðist í Washington sumarið 1940. Sendi- herra Dana þar, Henrik Kauff- mann, gaf þegar tveimur dögum eftir hernámið út yfirlýsingu um afstöðu sína. Segir bann þar, að Danmörk hafi orðið að beygja sig fvrir ofbeldi og að hann muni starfa áfrám fyrir hagsmunum konungs síns og þjóðar, en kváðust ekki viðurkenna neinn nýjan sendiherra, sem skipaður væri af danskri stjórn er ekki hefði frjálsar hendur. Sendiherrarnir í London og París gáfu ekki út neinar yfirlýsingar þá, en störfuðu áfram eins og áður, og voru ekki kvaddir heim. TJm þessar mundir fóru Banda- ríkjamenn að tryggja sjer flota- stöðvar víðsyegar, við Atlantshaf, m. a. á breskum eyjum vestur við Ameríku. Þeir töldu sjer ómiss- andi að koma upp flotastöðvum á Grænlandi og nú gerði stjórnin samning við Kauffmann sendi- herra, um að Danir leyfðu þessar stöðvar og að Bandaríkin tækju að sjer að halda uppi verslun á iGrænlandi og sjá landsbúum fyrir nauðsynjum. Þýska stjórnin and- mælti vitanlega þessu, og ljet dönsku stjórnina mótmæla og svifta Kauffmann embætti. En hinsv-egar hafði danska stjórnin vitanlega enga möguleika til þess að fvlgja þessari embættissvift- ingu eftir, svo að Kauffmann sit- ur enn og starfar í Washington. sem sendiherra konungs síns og hinnar frjálsu Danmerkur. Líkt fór síðar uln danska sendi- herrann í London. Hann hefði enga aðstöðu getað haft til þess að reka þau erindi í Englandi, sem ekki liefðu samrýmst enskum hagsmunum. Og á síðastliðnum vetri skar loks úr um afstöðu hans og sendifulltrúans. Þeir gengu op- inberlega í flokk hinna frjálsu Dana, sem sendimenn og fulltrúar konungs síns. Eigi skal út í það farið, hvernig þessu háttar gagn- vart áðurgildandi lögum og venj- um, en ástandið lýsir því, að þó að Danmörk sje talið óvinaland Bandamanna, vegna þess að land- ið er hernumið af -Þjóðverjum, þá er þjóðin ekki talin óvinaþjóð. Yfirleitt hefir farið svo um sendi- herra Dana erlendis, að þeir hafa leitast við að vinna í samræmi við afstöðu þess lands, sem þeir dvelja í, og starf þeirra er eink- um fólgið í því, að gæta hags- muna og hjálpa samborgurum sín- um í því landi sem þeir dvelja. ★ Það væri vægt til orða tekið að segja, að óhug hafi slegið á dönsku þjóðina við hernámið. Hiin var sem st'eini lostin. En lyndis- einkunn hennar lýsti sjer brátt í framkomu hennar gagnvart hinum óboðnu gestum. Jafnframt alvör- unni bar talsvert á öðru í hug þjóð arinnar. Dönsk kímni er að jafn- aði góðlátleg, en hún getur líka verið beisk, og á því fengu Þjóð- verjar að kenna. í dönskum blöð- um mátti sjá margt neyðarlegt, sem þó ekki var beinlínis hægt að hafa á, og prentfrelsið var svo miklu rýmra í Danmörku en t. d. Noregi, að Danir gátu sagt meiningu sína, í þeim blöðum, sem ekki beygðu sig þegar undir okið. Að einu gerðu Danir mikið: að senda einskonar „keðjubrjef“ til kunningja sinna. Hver sá, sem brjefið fjekk, átti að afskrifa svo og svo mörg eintök af því og- senda sínum kunningjum. Yarð úr þessu mikill flaumur brjefa um landið. Sum voru brjefin í Ijóðum en önnur í óbundnu máli. Fræg urðu einkum ýms brjef, sem eignuð voru danska skáldinu, síra Kai Munk í Vedersö, og var þar margt neyðarlegt. Að spellvirkj- um á hersímum og þessháttar kva.ð allmikið, en til alvarlegra óeirða kom sjaldan. Allir sameinuðust fyrst og fremst um það, að glæða þjóð- ernismeðvitundina og það er vafa samt, hvort Danir hafa um langan aldur verið eins vel vakandi þjóðernislega eins og einmitt sið- an vorið 1940. Eitt er vert að nefna sjerstaklega. Hinn svo- nefndi „allsang“ (þ. e. sama og þjóðkór og „takið undir“ hjá okk ur) var þá að berast til Danmerk- ur frá Svíþjóð, þar sem Sven Lilja hafði átt upptökin að hon- tmi. Sumarið 1940 og síðan halda allir bæir í Danmörku „alsangs- mót“ á sumrin; þar er söngurinn aðalatriðið, en einnig eru ræðnr haldnar, og að lokum send kveðja til konungs. Talsvert hefir kveðið að því, að danskir menn liafi verið fang- elsaðir fvrir bersögli. Sagnfræð- ingurinn dr. Wilhelm la Coxir hefir verið Þjóðverjum óþægnr ljár í þúfu og orðið að þola fang- elsi og ofsóknir fyrir. I smáritnm sem hann hefir gefið út, hefir hann lýst með berum orðum van- efndum Þjóðverja á- samningum þeim, sem þeir buðu sjálfir og settu í byrjun hernámsins. Og la Cour hefir ferðast, um landið og haldið fyrirlestra fyrir hús- fylli. Svo er og um fleiri. Yfir- Ieitt eru Danir vel vakandi og síf'elt á verði gagnvart ágengni hernámsþjóðarinnar. Og þeir þrír menn í stjórninni, sem draga leynt og Ijóst tauin Þjóðverja, eiga ekki öfundsverða daga og liafa ekki farið varhluta af quisl- ingsnafninu, þó aðstaða þeirra sje að vísu önnur en hans. ílvað líður nazistunum í Dan- mörku, munu menn spyrja. Flokk- ur þeirra, sem til var löngu fyrir hernámið, mun síst hafa eflst við breytingu þá, sem varð með her- náminu. Skæðasta vopnið gegn þessum flokki og Fritz Clausen, foringja hans, hefir verið háð og spott. Hinn danski foringi munt vera allskrítinn maður í háttum sínum og þjóðin var fljót að finna, hvar hann var veikastur fyrir. Það hendir þráfaldlega að Clau- sen, og lið hans snýr sjer til yfirvaldanna til þess að biðja um „vernd“ gegn brellum ungra manna, sem hafa gaman af að gera honum skráveifur. ★ Eitt af mestu hitamálunum, sem orðið hefir í Danmörku, var krafa Þjóðverja um að Danir undirrif- uðu hinn svonefnda „andkomm- FRAMH. Á SJÖTTXJ SÍÐIT þrátt fyrir andstöðu Framsókn- arflokksins. Hann hefir á úr- :?]itastundinni svikið íslenska málstaðinn. Stjórnin bætti þegar við sig fulltrúum úr þeim flokkum, sem ekki áttu þar sæti áður, þ. e. að þjóðstjórn var mynduð undir framhaldandi forsæti Staunings, frjálsrar og sjálfstæðrar Danmerk ur, hvað sem öðru liði. Banda- ríkin ákváðu þá að viðurkenna Kauffmann áfram, sem fulltrúa

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.