Morgunblaðið - 21.07.1942, Page 7
Þriðjudagur 21. júlí 1942.
MOEGUN BLAÐIÐ
1
Setuliðsmenn
færa Akureyrar-
kirkju tvo kerta-
stjaka að gjöf
Prá frjettaritara yornm
á Akureyri.
unnudaginn 19. þ. m. kl. 10.30
f. h. fór fram hátíðleg
guðsþjónusta í Akureyrarkirkju
í tilefni þess, að breska setuliðið
þar afhenti kirkjunni af gjöf 2
sjöarmaða kertastjaka til að
standa á altari. Eru það hinir
fegurstu gripir.
Guðsþjónustan hófst með því að
söngflokkur kirkjunnar söng ís-
lenska þjóðsönginn, en síðan af-
henti yfirmaður setuliðsins á Ak-
ureyri, Brigadier Pfoctor, grip-
ina, en vígslubiskup sjera Friðrik
J. Rafnar tók við og þakkaði.
Framkvæmdi hann síðan altaris-
þjónustu, en yfirforinginn las guð
spjall úr kór. Flutti síðan vígslu-
biskupinn prjedikun á ensku, en
ávarpaði í lok ræðu sinnar norska
hermenn, sem í kirkjunni voru
líka, á þeirra máli. 'Annars fór
guðsþjónustan öll fram á ensku,
enda var kirkjan þjettskipuð setu
liðsmönnum.
Nokkrir horgarar hæjarins voru
viðstaddir: Sóknarnefnd, stjórn
lcvenfjelags Akeyrarkirkju, bæj-
arstjóri, alþíngismaður bæjarins
og frjettamenn útvarps og blaða.
Þjóötiátíð Vestmanna-
eyja verður 7. og 8.
ágöst næstkomanúi
jóðhátíð Vestmannaeyja verð-
ur haldin að þessu sinni
föstu- og laugardaginn 7. og 8.
ágúst n. k.
Sú nýbreytni verður tekin upp
í sambandi við hátíðahöldin, að
þau hefjast nú á föstudegi, í stað
laugardags áður.
Mjög verður til hátíðarinnar
vandað, sem að undanförnu.
Til skemtunar verða allskonar
frjálsar íþróttir, knattspyrna,
bjargsig, brenna, flugeldar, svo og
dans í Herjólfsdal bæði kvöldin.
Þjöðverjar þjarma að
Norðmðnmim
Yfirmaður þýsku lögregi-
unnar í Noregi hefir dæmt
9 menn frá bænum Mandal i
Suður-Noregi í allt að tveggja
ára fangelsi fyrir að hafa staðið
í ólöglegu sambandi við stríðs-
fanga.
í Grefsen, skamt frá Oslo,
hafa 60 menn verið handteknir,
sakaðir um ólöglega starfsemi.
Hjónaband. Gefin voru saman í
hjónaband á laugardag af sjera
Jakobi Jónssyni ungfrú Aðalbjörg
Guðrún Bjarnadóttir og Sigurður
Þorbjörn Guðmundsson. Heimili
þeirra er að Hátúni 15, Reykjavílc.
Allsherjarmótið
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU
Spjótkast: 1. Jón Hjartar,
KR 52,33 m. 2. Jóel Sigurðsson,
ítR 49,77 m. 3. Jens Mágnússon.
KR 45,28 m. 4. Anton Björns-
son, KR 43,25 m.
400 m. hlaup: 1. Sigurgeir
Ársælsson, Á 53,5 sek. 2. Jó-
hann Bernhard, KR 53,9 sek.
3. Brynjólfur Ingólfsson, KR
54,0 sek. 4. Hörður Hafliðason,
Á 57,2 sek.
Þrístökk: 1. Oliver Steinn,
FH 13,01 m. 2. Skúli Guðmunds
son KR 12,98 m. 3. Jón Hjartar,
KR 12,65 m. 4. Stefán Jónsson,
Á 11,41 m.
5000 m. hlaup: 1. Haraldur
Þórðarson, Á 17:38,8 mín. 2.
Tndriði Jónsson, KR 17:40,6
mín. 3. Árni Kjartansson, Á.
17:43,4 mín.
Sleggjukast: 1. Vilhj. Guð-
mundsson, KR 42,31 m. 2. Helgi
Guðmundsson, KR 37,28 m. 3.
Gunnar Huseby, KR 36,06 m.
4. Gísli Sigurðsson, FH 29,28 m.
Nú stendur mótið þannig, að
KR er hæst með 131 stig, Ár-
mann hefir 91 stig, FH 51 stig,
ÍR 11 stig og U. M. F. Selfoss
1 stig.
í kvöld lýkur mótinu og verð-
ur þá keppt í 10 km. hlaupi og
fimtarþraut.
Rússland
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU.
milcilvægri hæð fyrir austan Don.
Þýskar hersveitir hafa komist yf-
ir norðurhluta Don-fljóts á mörg-
um stöðum og , innikróað rúss-
neskar h'ersveitir. Þá segjá Þjóð-
verjar, að rússnesk herdeild, sem
hafi komist yfir Don í skjóli,
myrkurs, hafi verið upprætt af
þýskum hersveitum.
. í Moskvafregnum segir, að rúss
nesk herdeild, sem hafi barist við
Þjóðverja við Rzev, fyrir vestan
Moskvu, sem Þjóðverjar sögðust
nýlega hafa umkringt, hefði nú
lcomist undan. Rússar mistn samt
um 5000 menn, en mestur hluti
herdeildarinnar komst nndan í
skógana og gekk í lið með smá-
skæruflokkum.
Frjettaritarar benda á það, að
Þjóðverjar hafi nú ekki tilkynt,
að þeir hafi tekið mikilvæga, nafn-
greinda staði, og að þeir minnast
á harðari mótspyrnu Rússa. Þykir
þetta benda til þess, að sólcn ÞjóS
verja sje hægari mí. seinustu dægr-
in, og að Rússum hafi borist liðs-
auki og hergögn.
Á suðnrvígstöðvunum virðast
Rússar hörfa slcipnlega undan og
leita stöðva, þai* sem betra er til
varnar.
Rússar tilkynna einnig, að flug-
vjelar úr norðurhafsflota þeirra
hafi gert árás á stóran þýskan
flugvöll og e-yðilagt 10 flugvjel-
ar andstæðinganna, þar af tvær í
loftorustum.
Noregssöfnunin — afh. Mbl. G.
Þ. 200.00 kr.Inga Lára Lárus-
dóttir 50.00 kr. N. N. 100.00 lcr.
N. N. 50.00 kr. N. N. 500.00 lcr.
M. S. 10.00 kr. Ónefnd stúlka
20.00 kr. F. G. (áheit) 10.00 lcr.
■•••••••• «»• ••OTMMMNieaM
Dctgbóh
ra»0Qi»MaM« ••••Qnioooae
Næturlæknir er í nótt Bjarni
Jónsson, Reynimel 58. Sími 2472.
Næturvörður er í Laugavegs
Apóteki.
Næturakstur annast Aðalstöðin.
Sími 1383.
Silfurbrúðkaup eiga í dag Ólafía
Einarsdóttir og Pjetur Lárusson,
fulltrúi í skrifstofu Alþingis.
Hjónaefni. Nýlega hafa opinber-
að trúlofun sína Fjóla Ágústs-
dóttir, Nýlendugötu 27, og Stein-
dór Steindórsson, Teigi, Seltjarn-
arnesi.
Afhending sveinsbrjefa fer fram
í Baðstofu iðnaðarmanna fimtu-
daginn 23. júlí. Ætlast er til að
foreldrar sveinanna og meistarar
mæti.
Frá Sumardvalarnefnd. Börnum
á barnaheimilunum Ásnm og
Þykkvabæ líður vel og biðja að
heilsá foreldrum sínum.
Frjettir af síldveiðum. Eins og
nú horfir við, þylcir ekki rjett
að birta fregnir af síldveiðnm,
hvar skipin afla og hve mikill afli
kemur á land. Hafa hernaðar-
yfirvöldin skrifað blöðunum og
bent á, að rjettast muni vera, að
láta allar slíkar fregnir niður
falla það sem eftir er síldarver-
tíðar.
Fjársöfnunin til barnaspítala.
Árangur af fjársöfnun þeirri til
stofnupar barnaspítala, sem kven-
fjelagið „Hringurinn“ hefir geng-
ist fyrir, hefir til þessa orðið svo
sem hjer segir: Tekjur af merkja-
sölu 14. júní, svo og af kaffisölu
og öðrum veitingum kr. 16.800.
Auk þess gáfu 5 Hrings-konur
(Helga Claessen, Ingibjörg Cl.
Þorláksson, Margrjet Ólafsson,
Guðborg Eggertsdóttir og Áslaug
Benediktsson) kr. 1000.00 hver,
eða samtals kr. 5000.00. Ennfrem-
ur hafa ýmsar aðrar peningagjaf-
ir borist, samtals kr. 1305.00. G'ef-
endur eru: Jenny Forberg kr. 100-
00, Marie Múller kr. 50.00. Jenny
Bav kr. 50.00, Ingibjörg Pjeturs-
dóttir lcr. 50.00, Sigrún Jónsdóttir
kr. 50.00, 5 Hring-konur kr. 70.00,
Hannes Thorarensen kr. 50.00 Hin-
rik Thorarensen lcr. 50.00, Friðrik’
Hallgrímsson kr. 50.00, Helgi
Magnússon kr. 50.00, B. S. 1. kr.
50.00, Axel Helgason kr. 50.00. N.
N. kr. 100.00, Gísli Gnðmundsson
kr. 25.00, Eva Hjálmarsdóttir kr.
10.00. Á fundi ljósmæðra gáfu:
Þuríður Bárðardóttir kr. 150.00,
Sigríður Sigfúsdóttir kr. 500.00,
Jóhanna Sveinsdóttir kr. 50.00,
Valgerður Guðnadóttir kr. 50.00,
Jóhanna Friðriksdóttir kr. 50.00,
Þórdís Jónsdóttir kr. 50.00, Ása
Ásmundsdóttir kr. 50.00, Guðrúu
Valdimarsdóttir lcr. 30.00, Þuríður
Gúðnadóttir kr. 20.00. Einnig var
samþykt á sama fnndi að fjelagið
gæfi kr. 500.00. Alls hefir þannig
safnast fram að þessu kr.
23.105.00. — Stjórn Iíringsins hef-
ir beðið blaðið að flytja innilegar
þaklcir öllum þeim, sem stuðlað
hafa að þessum góða árangri, bæði
með peningagjöfum, gjöfum á mat
vörum til veitinga, aðstoð sinni
eða á annan hátt.
Útvarpið í daff.
15.30 Miðdegisútvarp.
19.25 Hljómplötur: Lög úr óper-
ettum og tónfilmum.
20.30 Erindi: Frá Sebastopol
(Skúli H. Magnússon).
20.55 Hljómplötur: a) Spænska
skemtilagið eftir Rimsky-Kor-
sakow. b) 21.10 Symfónía nr.
2 eftir Rachmaninoff.
Víð tiöfum (engið nýja sendingu al
MATAR- og
KAFFISTELLUM
v p rp a a /
Símar 1135 og 4201
Sælgætis- og efnageiðio Froyja
TILKYNNIR:
Yegna sumarleyfa verður verksmiðjan lokuð
til mánaðamóta.
Afhending sveínsbrjefa
Iðnaðarmannafjelagið í Reykjavík hefir ákveðið að
afhending sveinsbrjefa fari fram í Baðstofu fjelagsins
fimtudaginn 23. júlí kl. 8y2 síðdegis. Allir þeir iðnsveinar,
piltar og stúlkur, er lokið hafa prófi í einhverri iðngrein
síðan afhending sveinsbrjefa fór fram í fyrra, eru beðnir
að koma. Þeir nýsveinar, sem þegar hafa fengið brjefin
í hendur, eru beðnir að afhenda þau á skrifstofu lögreglu-
stjóra eða einhverjum úr fjelagsstjórninni fyrir annað
kvöld (miðvikudag 22. júlí).
Ætlast er til að meistarar og foreldrar sveinanna
sjeu viðstaddir.
Stjórnin.
Sendlsveinn óskast strex j
Upplýsingar í síma 1707. Z
m
Jéhann Karlsson & Co. •
Þingholtsstræti 23.
TengdamóSir mín,
GUÐLEIF ERLENDSDÓTTIR,
fyrv. hjúkrunarkona, andaöist 19. þ. m.
Pjetnr Lárusson.
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
PÁLÍNA EINARSDÓTTIR,
er andaðist 14. þ. m., verður jarðsungin miðvikudaginn 22.
þ. m. Athöfnin hefst með bæn frá heimili hinnar látnu, Undra-
landi, kl. 1 e. h. Jarðað verður frá Aðventkirkjunni.
Enok Ingimundarson. Kristín Björnsdóttir.
' Pálmi Kr. Ingimundarson, Sveinfríður Á. Guðmundsdóttir
og börn.
YALGERÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR
verður jarðsungin í dag kl. lOþó frá heimili sínu, Fálkagötu 22.
Þorbjörn Sigurðsson.