Morgunblaðið - 28.07.1942, Qupperneq 6
6
MORGuNBLAÐIÐ
. Þriðjudagur 28. júlí 1942„
Frá líkfylgd Howards Smiflli sendiherra
Fremst á myndinni tíl vinstri g-anga Sveinn Björnsson ríkisstjóri og frú hans, þá Ólafur Thors forsætisráðherra og frú hans, þá Magnús Jónsson atvinnu-
málaráðherra og Stefán Þorvarðsson skrifstofustjóri í utanríkismálaráSuneytitiu. — Á myndinni til hægri sjást nokkrir af fulltrúum erlendra ríkja er voru í fylgdinni.
Fremst sendiherra Bana Le Sage de Fontenay og frú hans. sendiherra Norðmanna August Esmarch, Arent Claessen aðalræðismaður Hollendinga og frú hans, fulltrúi
frjálsra Frakka Henri Voillary og frú hans og Oscar Johanson sendifulltrúi Svía. (Myndimar eru teknar af U. S. Army Signal Corps).
SJcrítin nöfn.
Margar þjóðir eru saman komnar
á íslandi um þessar mundir. Eru
menn farnir að venjast því. Þó vakti
það nokkra eftirtekt hjer um daginn
er það vitnaðist, að Indíáni væri hjer
kominn, sá fyrsti líklega, sem kom-
ið hefur hingað til lands, er ó-
breyttur hermaður í Bandaríkjaher,
Landi hans einn hefir sagt mjer
nánar frá þessum náungaa.
Hann heitir „Little thunder“ eða
myndi kallaður „litla þruma“ á ís-
lensku, eða „skrugga“. En Indíánar
hafa nöfn, sem hljóma einkennilega
í eyrum.
Svo sagði mjer landi hans, sem
kunnugur er Indíánum, að meðal
þeirra þektust mannanöfn sem þessi:
„Grátandi hlátur“, „Alls' ekkert“,
„Ógurlegur hávaði“, „Rigningar-
andlit", en það nafn merkir, að mað-
ur sje sískælandi.
Hermaður kunnugur
forsögunum.
Landi „Litlu þrumu“, segir svo
frá, að hann sje af óblönduðu Mem-
omenae Indíánakyni, og á heima í
Michigan. En þar eru margir Indí-
ánar búsettir.
Má vera, segir hann að „Litla
þruma“ sje afkomandi Skærlingja
þeirra, sem um getur í Eiríkssögu
rauða’og Þorfinnssögu karlsefnis.
— Eruð þjer kunuugur sögum
þeim?
— Já. Jeg hef verið við nám hjá
Stefáni Einarssyni, segir hann og
kann dálítið í íslensku. Það er að
segja, jeg get lesið íslensku með
orðabók. En að tala hana er mjer
alveg ómögulegt. Hann dregur upp
blað úr vasa sínum, sem skrifað er
ýmisl. á íslensku um ,Litlu þrumu‘
og ættmenn hans. Það getur skeð að
þjer þurfið að leiðrjetta málið á
þessu, ef þjer setjið það í blaðið,
Þar stóð m. a.:
Önnur stríðstækni.
„Litla þruma“ hefir ekki lengur á
1 sjer „stríðsmálningu" og „hræðilegt
útlit“ er ekki þáttur í hernaðartækni
hans. Hann er hreinlegur Banda-
ríkjahermaður og því varla neitt
1 líkur þeim mönnum, sem Þorfinns-
^ saga lýsir þannig: „Þeir voru smá-
! ir menn ok illilegir, ok ilt höfðu þeir
hár *á höfði, eygðir váru þeir mjök
ok breiðir í kinnum“.
Útbúnaður hans er harla ólíkur
vopnum forfeðra hans, sem Hauks-
bók svo segir um: „Þá tóku þeir
rauða skjöldu ok báru í mót . . . Þeir
höfðu ok valslöngur, Skrælingja-
knött mikinn, því nær til jafns við
sauðarvömb ok bláan að lit“.
★
Ólík lönd.
„Litla þruma“, er kemur frá skóg
um Michiganfylkis, segir ísland
harla ólíkt heimalandi sínu, en hin-
um grimmúðgu frændum hans Dak-
ota- og Sioux-Indíánum, sém reika
um skóglausar auðnir Montana og
Dakota myndi líka við hraun og há-
lendi íslands. Þeir Sioux-Indíánar
herjuðu ennþá í Norður-Dakota um
það leyti, sem íslendingar námu þar
lönd á öldinni sem leið.
Kynþáttur „Litlu þrumu“ er ná-
skyldur Iroquois-Indíánum, er segj-
ast vera afkomendur þeirra fornu
Indíána, sem bygðu hauga mikla í
Massachusetts og víðar á Atlants-
hafsströndinni. Vísindamenn hafa
brotið mjög heilann um hauga þessa
og sumir haldið að Vínlandsmenn
hefðu gert þá. En svo er ekki.
★
Vantaði efni.
Nokkru fyrir kosningar, er Fram
tíðin, blað Sigurðar Jónassonar var
komið út, gekk Sigurður upp Hverf-
isgötu í þungum þönkum lesandi hið
nýútkomna blað sitt.
Kunningi hans einn gekk þar fram
á hann, leit á blaðið í höndum hans
og sjer þar stóra auglýsingu.
-— Þú hefir brotið „principið“,
segir kunninginn. Þegar við ætluð-
um að fara að gefa út blað, um árið
kvaðst þú enga auglýsingu vilja þar
hafa. Þarna er „Commander‘ -aug-
lýsing hjá þjer.
Sigurður svarar með alvörusvip.
— Jeg skal segja þjer. Jeg mátti
til. Mig vantaði efni.
★
Jeg var áðan að velta því fyrir
mjer, hvort mjóróma menn geti tal-
að digurbarkalega, eða
hvort þeir, sem baknagaðir eru í
Tímanum, verði fyrir tímans tönn.
• Unglinga vanflar %
• ©
0 til að bera Morgunblaðið til kaupenda í 0
0 Austurbænum ®
orflttnHaíið I
SjúKrabllinn og sæiði hermaðurinn
Frásögn Kjartans Ólafssonar brunavarðar
T Morgunblaðinu 25. þ. m. var
* grein með fyrirsögninni:
Særðum útlending neitað
um hjúkrun á Landsspítalanum.
Þar sem minst er á að sjúkra-
bíll sem þar stóð, hafi ekki feng-
ist til að flytja manninn, vil
jeg leyfa mjer að segja þetta.
Við vorum þarna tveir bruna
verðir með bílinn eins og venju
léga í sjúkraflutningum. Vorum
nýkomnir með konu á handlækn
ingadeild spítalans. sem þurfti
skjótrar læknisaðgerðar við, og
beið læknir til að framkvæma
hana. Rjett í því að við erum í
undirbúningi með að taka kon-
una úr sjúkrakörfu bílsins og
leggja hana í sjúkrabörur, er
komið með særðan mann í fólks
bíl á spítalann og beðið um
hjálp. Tökum við strax sjúkra-
börurnar, sem við ætluðum að
nota fyrir konuna og förum með
þær niður í lyftuna til móts við
sæðra manninn, sem var útlend-
ingur og var borinn inn í spítal-
ann af tveim löndum sínum. Var
hann svo lagður á þær og ekið
inn á handlækningadeild, þar
sem honum var gefin morfín-
sprauta, og svo strax drifinn út
aftur, eftir að nýr læknir kom
til sögunnar, og ekið á burt í
sama fólksbílnum sem kom með
hann á spítalann.
Minnist jeg ekki að neitt sjer-
staklega væri um sjúkrabílinn
beðið til þess, en við áttum þá
enn eftir að taka konuna, sem
við vorum að flytja úr sjúkra-
körfunni og leggja hana inn á
spítalann.
En mjer er óhætt að segja það
að sjúkrabílnum er aldrei neitað
þegar hann er á staðnum, og um
hann er beðið til að flytja sjúk-
an eða særðan mann, hvort sem
íslenskur eða útlendur maður á
í hlut.
Jeg vil svo minnast á það í
þessu sambandi, að við sem höf-
um annast um sjúkraflutninga
hjer mörg undanfarin ár, höf-
um oft rekið okkur á þá erfið-
leika sem á því eru í þessum bæ
að fá fyrstu hjúkrun handa slös
uðu fólki. Hefir Landspítalinn'
þó oftast og nær altaf verið okk-
ar þrautalending, þar sem hjálp
hefir verið að fá.
Nýlega las jeg í blaði, að
í ráði væri að bærinn og þá
sennilega ríkið líka í samein-
ingu, komi hjer upp hjálparstöð
þar sem hægt er, á hvaða tíma
sem er, að ná til læknis og veita
slösuðu fólki fyrstu hjálp. Von-
andi verður þeim framkvæmd-
um hraðað, því á slíkri stofnun
er mikil þörf.
Kjartan Ólafsson,
brunavörður.
305 menn farast
með „Hermes“
LONDON í gær: Breska flota-
málaráðuneytið tilkynti í
kvöld, að 305 menn hefðu farist
er flugvélamóðurskipinu „Her-
mes“ var sökt við eyna Ceylon í
apríl síðastliðnum.
— BlaV SlálíatætilamniiBa —
Auglýsenchsr þeir, sem þurfs
að auglýsa utan Reykjavíkur,
ná til flestra iesenda í sveit
um landsins og kauptúnum
með því að augiýsa í
ísafold og Verði
-----Sfmf 1600. ------------