Morgunblaðið - 30.08.1942, Page 2

Morgunblaðið - 30.08.1942, Page 2
2 MOEGUiN BLAÐIÐ Sunnudagur 30. ágúst 1942. m ■ ■ ÞJÓÐVERJAR STOÐV- Finna iAÐIR VIÐ STALINGRAD ÞAÐ HEFIR jafnan verið snar þátt- ur í eðli lslendinga, að hafa samúð með þeim, sem minnimáttar eru, og drengskaparhugmyndin hefir varð- veitst óspillt með þjóðinni fram á þenna dag. i'ví er það, að samúð Islendinga er svo til óskift með norsku þjóðinni í raunum hinna síð- ustu tíma. * VIÐ ÍSLENDINÖAR höfum sjálíir orðið að búa við kúgun og þján- ingar um margar aldir, og þess vegna kunnum við vel að meta frelsi og sjálfstæði, sem fengist hefir eft- ir þrautseiga baráttu bestu manna þjóðarinnar. Við skiljum því vel baráttu nágrannaþjóðanna fyrir frelsi sínu og rjetti til þess að skipa málum sínum sjálfar, án íhlutunar annara. Sjaldan eða aldrei hafa erlendir atburðir vakið jafnmikla athygli og árás Rúsa á Finna 30. nóvember 1939 og samúðaraldan risið eins hátt og þá. Nú, þegar svo lengi er um liðið, og menn geta skoðað hlutina í rjettu ljósi, hleypidómalaust og skynsamlega, má hugleiða ,,hernað- arlega nauðsyn" hinnar rússnesku árásar, ef svo má að orði kveða, en rjettmæt var hún að sjálfsögðu aldrei, Ofbeldi í hvaða formi sem er, er ávalt andstyggilegt, undir hvaða yfirskyni, sem það er framið. -¥■ VÖRN FINNA var viðbrugðið og vafalaust með rjettu. Nú berjast Rússar einnig fyrir tilveru sinni, við hlið annars Norðurálfuríkis, Nor- egs. Það má því með sanni segja. að það sje ömurleg kaldhæðni ör- laganna, að þessar þjóðir, sem jafn- an hafa verið vinveittar hvorri ann- ari, skuli nú berjast fyrir svo ólík- um markmiðum. Að vísu er það svo, að norska stjórnin í London hefir ekki sagt Finnum stríð á hendur, en hinsvegar er það ómótmælanlegt, að Finnar hafa valið sjer það hlut- skifti, að berjast með þeim, sem nú hafa hneppt bræðraþjóðina norsku í hlekki. ★ FREG-NIR FRÁ FINNLANDI eru fáar og erfitt að gera sjer grein fyrir, hvað raunverulega er að ger- ast bak við tjöldin þar í landi. Vel má vera að Finnar sjeu ekki að öllu leyti sjálfráðir gerða sinna nú. Vitað er, að Þjóðverjar ráða par mjög miklu og ekki er ólíklegt, að þeir hafi herlið í landinu. Þá er afstaða Finna að nokkru leyti skiljanleg, þegar þess er gætt, að Rússar hafa jafnan verið taldir erfðafjendumir. Finnar urðu að lúta valdboði rússnesku einræðis- herra um margar aldir, og enn hefir tæpast fennt í sporin eftir borgara- styrjöldina eftir síðustu heimsstvrj- öldina, hvað þá eftir Rússlandsstyrj öldina í hitteðfyrra. ¥ ÝMISLEGT bendir þó til, að Þjóð- verjar fari ekki öllu smu fram í Finnlandi, og að Finnar hafi að FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU. Lottárðsir i Niiroberg og Soarbriicken T fyrrinótt fóru öflugir hópar *• breskra, flugvjela til áfása á hernaðarlega mikilvæga staði í Þýskalandi og herteknu löndunum. Aðal árásinni var beint gegn Niirnberg, mestu iðnaðarborg í Bayern. Urðu bresku flugvjel- arnar að fljúga um 1800 km. leið, fram og aftur, en engu að síður segja Bretar, að árásin hafi borið mikinn árangur. — Miklir eldar komu upp og sáust þeir bera við himin, löngu eft- ir, að bresku flugvjelarnar sneru heim á leið. Núrnberg er mikilvæg járn- brautarmiðstöð og þar eru einn ig mikilvægar verksmiðjur, er smíða dieselvjelar fyrir kaf- báta, alúminíumverksmiðjur og skriðdrekaverksmiðjur. Loft- varnir borgarinnar eru mjög öflugar, en samt tókst bresku flugvjelunum að finna staði þá sem ákveðið var að ráðast á. Borgin er einnig ein mikil- vægasta borg Nazistahreyfing- arinnar, og þar hafa flokks- þingin verið haldin undanfarin ár, svo sém kunnugt er. Skæð árás var einnig gerð á Saarbrúeken, sem er í Saarhjer aði, einu mesta kolasvæði Þýska lands. Mikil árás var gerð á þá borg í lok fyrra mánaðar. í gærdag voru gerðar harð- ar árásir á hafnarmannvirki í Osténde í Belgíu og varð þái mikið tjón af. I fyrrinótt kvikn uðu miklir eldar í borginni. — Bretar mistu samtals þrjátíu sprengjuflugvjelar í árásum þessum. Þýskar flugvjelar komu til árása á borgir í norðaustur og austur Englandi og varð af nokkurt manntjón og eigna. í björtu í gær gerðu þýskar flugvjelar árásir á staði í suð- vesturhluta Englands og á borg í Austur-Anglíu. Nokkrir menn biðu bana og nokkurt eigna- tjón varo. Tvær hinna þýsku flugvjela voru skotnar niður. Herstjórn Bandaríkjamanna í Bretlandi tilkynnir, að Fljúg- andi virki, sem svo eru nefnd, hafi í gær farið til árása á her- stöðvar Þjóðverja við Courtrai í Belgíu. — Allar flugvjelarnar komu heildar heim aftur. Aframhaldandi sóknj Zhukovs við Rzev Þjóðverjum verður lítið ágengt í Kákasíu FREGNUM frá Rússlandi ber saman um, að Rúss- ar haldi öllum stöðvum sínum við Stalingrad og á sumum stöðum hafa þeir byrjað gagn- áhlaup. Á miðvígstöðvunum eru hersveitir Zhukovs enn í sókn og hafa enn tekið nokkur bygð svæði. Undangengin dægur hefir Þjóðverjum ekkert orðið ágengt við Stalingrad, og Rússar hafa hvarvetna haldið stöðvum sínum, þrátt fyrir áköf áhlaup Þjóðverja. Norð- vestur af borginni, þar sem ástandið var einna ískyggileg- ast fyrir skehimstu, hafa Rússar byrjað gagnáhlaup og orðið nokkuð ágengt. Sums staðar hafa Þjóðverjar orðið að hörfa undan um 2 km. veg. Talið er, að Þjóðverjar hafi linast í sókninni vegna hinna hörðu bardaga undanfarna viku. Fyrir norðan og sunnan Stalin- grad reyna Þjóðverjar að komast fram hjá borginni og stefna þeir til Volgu, en Rússar veita hvarvetna öflugt viðnám. Er ber- legt, að fyrsta tilraun Þjóðverja til þess að taka Stalingrad með áhlaupi hefir mistekist, enda tala Þjóðverjar í fregnum sínum um geysiöflugar víggirðingar borgarinnar. Þó segja Rússar, að Þjóðverjar eigi enn fleiri hermönnum og meiri hergögnum á að skipa á þessum slóðum. ______ apanar i undan haldi I Cliekiang Hjúskapur. í gær voru gefin saman í hjónaband af sr. Oarðari Svavarssyni ungfrú Ása Jónsdótt- ir og Ásgeir. Guðmundsson. Heim- ili þeirra er á Sogabletti 16. HÆGARI SÓKN ÞJOÐ- VERJA í KÁKASÍU. í Kákasíu er sókn Þjóðverja miklu hægari en vdrið hefir. Suður af Krasnodar geisar skriðdrekaorusta. Rússar nota þar þá aðferð að hleypa skrið- drekum Þjóðverja gegnum víg- línu sína og freista ^síðan að tortíma fótgönguliðinu, sem fer á eftir. Þá kemur röðin að skrið dlrekunum, sem Rússar reyna að granda, einum og einum í í einu. Sókn Þjóðverja í áttina til flotahafnanna Tuapse og Novorossisk virðist stöðvuð, að minsta kosti í bili, og þeim verð ur lítið ágengt í sókninni áleið- is til Grozny-olíuhjeraðsins. Við Rzev verður Rússum all- mikið ágengt. Þar hefir hersveit- um Zhukovs tekist að ná á sitt vald flugvelli og mörgum bygð- um svæðum. Þjóðverjar revna að koma sjer upp ramgeru virkja- beiti með steinsteyptum vígjum, gaddavírsgirðingum og sprengju- beltum, en árangursiítið. 1 Rzev er nú barist hús úr húsi og eru bardagar mjög harðir. Við Kaluga, um 300 km. suð- vestur af Moskvu, hafa Rússar teflt fram mörgum fótgönguliðs- herfylkjum, skriðdrekum og öflug- um flugsveitum, að því, er þýsk- ar frjettir herma. Gagnáhlaupum þýskra hersveita, sem voru studd- ar skriðdrekum og steypiflugvjel- um, var hrundið. LOFTÁRÁS í Á HELSINKI. í herstjórnartilkynningu Finna ekki getið nm tjón af völdum hennar. Rússar tilkyntu á miðnætti í nótt, að engar mikilvægar breyt- ingar hefðu orðið á austurvíg- stöðvunum í gær. f n á ! A+f.iroe Flogsveitlr Banda- manoa athafnasamar i Egyptalandi TH nn er lítið að frjetta frá víg- stöðvunum í Egyptalandi. Könnunarsveitir hafa áttst við og komið hefir til loftbardaga, en til frekari átaka hefir ekki dregið. Þjóðverjar gerðu loftárásir á staði í Cairo og Alexandríu og var ein þýsk flugvjel skotin niður. Þá var gerð tilraun til loftárása á Möltu, en Spitfire-flugvjelum Breta tókst að skjóta niður eina þýska flugvjel og aðrar urðu fyr- ir skemdum. Aðfaranótt föstudags gerðu breskar flugvjelar af miðlungs- stærð harða hríð að skipum og mannvirkjum í Tobruk. Bjart tunglsskin var og mátti gjörla sjá, er sprengjur fjellu á þrjú skip þar í höfninni. Komu eldar upp í tveim þeirra. Þá komu sprengjur niður á hafnargarða og olíustöðvar ítalska flotans þar skamt frá. Amerískar flugvjelar gerðu á- rás á flugvöll andstæðinganna FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU. C'1 regnir frá Chungking herma, að Kínverjar haldi áfram sókn sinni í Chekiang-fylki. I fyrradag náðu Kínverjar borg inni Lishui á sitt vald, að afstöðn- mn hörðum orustum. -Tapanar mistu um 600 menn og hörfa nú undan til norðvesturs, en Kínverj- ar veita þeim eftirför. Kínverjar eru nú komnir það nærri ströndinni, að kleift er að gera árásir á Japan frá stöðvum þeim, sem síðast fjellu í hendur þeirra. Hertogínn af Kent jarðsett- tir í gær Hertoginn af Kent var jaxð- settnr í St. Georgs-kapeJln í Windsor í gær, en þar hvíla marg ir Bretakonungar og aðrir með- limir konungsf jölskyláimnar hreskn. Útförin fór fram með einföld- um hætti, eh þótti mjög virðu- leg. — Auk ekkju hins látna » hertoga, Mannu Gnkk.japrinsessu, voru konungshjónin bresku við- stödd, María ekkjudrotning, her- toginn af Gloucester, bróðir hins látna, fulltrúi hertogans af Wind- sor, Hákon Noregskonungur, Ólaf- ur ríkiserfingi, Gteorg Grikkjakon- ungur, Pjetur Júgóálavakonungur, Yilhelmína Hollandsdrotning, á- samt Bernhard prins, svo og márgt annað stórmenni. Á kistunni voru aðeins tveir kransar, annar frá Marinu prins- essu, en hinn frá konnngshjón- unum bresku. MinningarguSsþjón- ustur eru haldnar víðast hvar um breska heimsveldið í tilefni af hinu sviplega fráfalli hertogans. Bandaríkjamenn sökkva japönskum tundurspilli f? lotamálaráSuneytið í Wask A ington tilkynnir, að einum japönskum tundurspilli og senni lega öðrum í viðbót, hafi verið sökt í loftárás amerískra flug- vjela. Síðastliðinn fíimtudag .sáu flugmenn, sem hafa bækistöð á Guadal-Canaleyju á Salomons- eyjum, japanska flotadeild, er í voru 1 lítill tundurspillir og 3 stórir og voru þegar hafnar loft árásir á skipin. Einn tundurspillir varð fyrir sprengju og sökk og sennilega annar. Auk þess laskaðist þriðji tundurspillirinn alvarlega.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.