Morgunblaðið - 05.09.1942, Síða 2
2
MOKGUJSI BLAÐIÐ
Laugardagur 5. sept. 1942.
Þjóðverjar
úthverfum
Orusturnar um borgina
geysilega harðar
Rússar hafa einnig hörf-
að í Kákasus
Stokkhólmi í gær. Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
ÞJÓÐVERJAR segjast í dag hafa komist að út-
hverfum Stalingradborgar að vestan. Suð-
vestur af borginni hafa Rússar enn orðið aö
láta undan síga, í sjöunda skipti á fjórum dögum.
Hersveitir von Bocks, sem munu vera um miljón
manna, sækja hægt fram og fórna miklu fyrir hvern spöl,
sem þeim verður ágengt.
Þjóðverjar gera geysiharðar loftárásir á borgina, og senda
fram stórhópa flugvjela, stundum 150 í einu.
Blaðið Rauða Stjarnan hefir hvatt rússneska herinn til
þess að hopa hvergi og skorar á hann að gera Stalingrad að
Verdun Rússlands.
komnir að
Stalingrað
Rommel hefir
hörfað vestur
á bóginn
Gildra, sem Bandamenn
gengu ekki í
Kairo í gærkveldi. Einkaskeyti til Morguublaðeins
frá Reuter. ; 3
HERSVEITIR Bandamanna hafa í allan dag
haldið uppi stöðugum árásum á her Rohim-
els og hafa allar deildir hersins tekið þátt
i bardögum. Rommel hefir ekki ráðist til gagnáhlaupa
neinsstaðar. Bardagar hafa allir færst vestur á bóginit.
Raphl Walling, frjettaritari Reuters, sem er með áttunda herimiji
skýrir frá því, að Bandamenn hafi varast að ganga; í gildru, sem
Rommel hafði ætlast til að þeir gengju í.
Gíildra þessi er nefnd „Caul-
dron“-gildran. Hafði Rommel sent
fram mikinn hóp skriðdreka sem
áttu að verða beita fyrir Banda-
menn svo þeir sæktu fram austur
fyrir aðal jarðduflasvæðin.
Það hefði verið freistandi fyrir
Montgomery hershöfðingja að
sækja fram gegn skriðdrekum
Rommels, en hann vissi, að Rom-
mel hafði komið fyrir mikið af
88 millimetra byssum fyrir austan
Couldron, sem hefðu leikið lið
Bandamanna grátt, ef það hefði
»engið í gildruna.
Norsk háskóla-
hátíð i London
Arshátíð norska háskólans
var haldin í London 2.
september, og voru þá innritaS
ir nokkrir stúdentar er fleatSr,
einnig stúlkurnar, voru í ein-
kennisbúningum, og eins var
um prófessor þann, sem fram-
kvæmdi innritunina.
Japanír ráð-
ast enn á
Salomons-
eyfar
WASHINGTON í gær.
ýjum lendingartilraunum
Japana á Salomonaeyj-
um hefir verið mætt með hörku
af Bandaríkjahersveitum, sem
nú hafa búið þar um sig, til-
ikynnir flotastjórnin í dag.
Í! tikynningunni segir, að í
nokkrunt nýjum tilraunum,
ihafi Japönum tekist að setja
smásveitir á land á ýmsum
stöðum í suðausturhluta íáal-
ómonseyja, og hafa nú verið
ibyrjaðar árásir á þessa flokka.
Flugvjelar, sem þækistöðvar
hafa á landi á eynni Guadal-
canal hafa ráðist á óvinaskip.
Nokkur þeirra hafa orðið fyrir
spréngjum, en ekki er enn full-
kunnugt um tjón. Um morgun-
inn 2. dept. rjeðst sprengju-
flugvjel á stórt japanskt olíu-
skip og kveikti í því.
Um leið og landgöngutilraun
irnar voru gerðar, hófu Japanir
loftárásir á eyna Guadalcanal,
og mistu í þeim 4 orustuflug-
vjelar og 4 af 18 sprengjuflug-
vjelum. Skemdir á stöðvum
Bandaríkja,manna voru litlar.
Þrátt fyrir þessar árásir,
segir í tilkynningunni flota-
málaráðuneytisins, erum við
stöðugt að styrkja aðstöðu okk-
ar á eyjunum.
Mac Arthur hershöfðingi
hefir tilkynt, að sprengjuflug-
vjelum hafi tekist að hitta
stöðvar Japana við Salamua á
Nýju-Guineu. Þar var engin
mótspyrna veitt. — Flugvjelar
Bandamanna hafa einnig ráð-
ist á samgönguleiðir Japana á
Kokoda-svæðinu.
Gagnkvæmar
loftárásir Breta
og Þjóðverja
Breskar flugvjelar gerðu loft-
árásir á Norðvestur-Þýska-
landi í fyrrinótt. Árásirnar voru í
fremur smáum stíl, að því er
breska flugmálaráðuneytið tilkynn
ir. Tvær flugvjelar komu ekki
aftur.
Það hefir verið tilkynnt, að
snemma í gærmorgun hafi tvær
þýskar flugvjelar varpað sprengj-
um á stað á suðausturströnd Eng-
lands. Nokkrar skemdir urðu og
fáeinir menn særðust.
f gærkveldi rjeðust fjórar þýsk-
ar flugvjelar á stað á suðvestur-
strönd Englands. Vörpnðu þær
sprengjum. Ein þessara flugvjela
var skotin niður af jörðu. Reuter.
Willkie ier á
konungsfund
Wendell Willkie gekk í
gær á fund Farouks
Egyptalands-konungur í Cairo.
Bar hann konungi persónu-
legan boðskap frá Roosevelt
forseta.
Hinn mikli þungi sóknar
Þjóðverja hefir neytt Timo-
chenko marskalk til þess að
tefla fram varaliði við Kach-
lainsk og Kalach.
Álit manna í Stokkhólmi er,
að illa horfi fyrir Rússum. —
Frjettaritari Dagens Nyheter
lætur þá skoðun í ljósi, að Stal-
ingrad sje ,,raunverulega töp-
uð“, nema Thimochenko takist
einu sinni enn að komast úr
úlfakreppunni.
Þjóðverjar halda því fram,
að þeir sjeu komnir austur að
Volgu þeggja megin við Staiin-
grad, en þær frjettir hafa ekki
verið staðfestar.
Orusturnar við Stalingrad í
gær hafa verið kallaðar þæij
hörðustu, sem um getur í hern-
aðarsögunni.
I Kákasus sækja Þjóðverjar
fram, og hafa Rússar verið
neyddir til þess að hörfa á ein-
um stað íyrir norðvestan Novor
ossisk.
I tilefni af þeim frjettum, að
Rússar flytji liðsauka frá Bat-
um til Novorossisk, hefir Berl-
ínarfrjettaritari Dagens Nyhet
er látið svo ummælt, ,,að Rússar
sjeu auðsjáanlega staðráðnir í
því að gera Novorossisk að ann
ari Seþastopol".
í Norður-Kákasus hafa Þjóð-
verjar unnið á í sókn smni til
Grosny olíulindanna, þar eð
þeir hafa komist yfir Terek-
fljót nærri Modzok.
FLOTI RÚSSA
ATHAFNASAMUR.
ússar tilkyntu í gærkvöldi,
að herskipum þeirra hefði
tekist að sökkva fjórum þýsk-
um skipum á Eystrasalti, og!
ennfremur aðstoðuðu herskip
þeirra á Svartahafi landherinn
í vörn Novorossisk.
Þá segjast Rússar stöðugt
sækja á við Reshev, og sje bar-
ist þar af mikilli hörku.
Ssnskt blað
bannað vegna
rðgs um Berg-
grav biskup
Igrein í sænska blaðinu
„Göteborgs Stiftstidning“
ræðst sænski presturinn Ivar
Rhedin, sem er nasisti, með sví-
virðingum á Berggrav biskup.
Rhedin kallar hann uppreisn
armann, hlyntan kommúnist-
um, samsærismann, sem hafi
aðeins gert Norðmönnum ilt.
Sænski pfesturinn beinir á-
rásum sínum einnig að norsku
flóttamönnunum og Hákoni
konungi og hann gagnrýnir
Noregssöfunina í Svíþjóð.
I tilkynningu frá Stokkhólmi
segir, að sænska blaðið „Nya
Dagligt Allehande“ hafi skýrt
frá því í fyrradag, að útgáfa
„Göteborgs Stiftstidning“ hafi
verið stöðvuð um stundarsakir,
vegna þess að það birti grein
Rhedins.
En blaðið bætir því við, að
ekki sjeu l,íkur til, að Rhedin
verði látinn sæta ábyrgð fyrir
grein sína.
Sænski biskupinn Aulen seg-
ir um grein Rhedins, að það
sje reginhneyksli, að slík grein
skuli vera birt í blaði, sem hefir
saman við kirkjuna að sælda.
Biskupinn segir ennfremur,
að sleggjudómar Rhedins um
Berggrav biskup sjeu auðvitað
staðleysa ein.
Næturvörður er í nótt í Lyfja-
búðinni Iðunni.
í stað þess, að senda fram vjela-
hersveitir sínar ljet Montgomerry
hershöfðingi sjer nægja að halda
uppi stórskótahríð á stöðvar
Rommels.
NÝTT VOPN.
Rommel hafði nýtt vopn í sókn
sinni. Var það 125 millimetra fall-
byssa, sem er á vagni er gengur
fyrir loftskrúfu. Er vagninn fram
leiddur í Renault-verksmiðju
franskri.
ÁRANGURSRÍKUR LOFT-
HERNADUR BANDA-
MANNA.
Það hefir verið opinberlega til-
kynt í Kairo, að meðalstórum
sprengjuflugvjelum Bandamanna
hafi orðið vel ágengt í loftárásum,
sem gerðar voru á herstöðvar
Möndulveldanna í Egyptalandi.
Mikill grúi vjelknúina hern-
aðartækja voru eyðilögð og miklir
eldar komu upp. Áhöfn einnar
flugvjelarinnar sagðist hafa sjeð
sjö stórelda og urðu miklar
sprengingar í eldhafinu. í einni
sprengingunni kastaðist brak 2000
metra í loft upp. Flugvjelarnar
hristust af sprengingunum, sem
urðu á árásarsvæðinu, en flugvjel-
arnar gerðu árásir sínar úr 2000
metra hæð.
Um kvöldið var haldin veisla
þar sem 250 gamlir og ungir
stúdentar voru viðstaddir. Var
þar Churchill forsætisráðherra
sent eftirfarandi skeyti:
„Fyrverandi stúdentar vi5
norska háskólann og aðra
norska skóla, halda í dag í
þriðja sinn hátíðlegt afmæli
háskólans 1 Osló á breskri
grund. Vjer gerum það fullir
þakklætis fyrir það algera
frelsi, sem vjer njótum í hinu
göfuga landi yðar. Vjer hyllum
yður sem framúrskarandi leið-
toga í stríði Stóra-Bretlancte
móti vorum sameiginlegu fjand
mönnum, í fullu trausti þess,
áð þjer munuð byrja baráttuna
fyrir því að frelsa Noreg og
önnur hemumin og líðandi
lönd, þegar, er ástæðumar
leyfa það“.
í veislunni talaði Noel Baker
meðal annara, og lagði áherslu
á þýðingarmikla þátttöku Nor-
egs, bæði í vörn Norðmanna
heimafyrir og starfi verslunar-
flotans síðan.
Sjúklingar á Vífilsstöðum biðja
Morgunblaðið að færa þeim, Jóni
Norðfjörð og Hermanni Cruðmunds
syni, sínar bestu þakkir fyrir
skemtunina á þriðjudaginn, enn-
fremur Swing-kvartettinum fyrir
skemtuniná sama dag.