Morgunblaðið - 05.09.1942, Page 5

Morgunblaðið - 05.09.1942, Page 5
Laugardagur 5. sept. 1942. r Qvgmtbh&tb Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Jón Kjartansson. Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.). Auglýsingar: Árni Óla. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald: kr. 5.00 á mánuði innanlands, kr. 6,00 utanlands. í lausasölu: 30 aura eintakið. 40 aura með Lesbók. Raforkusjóður 'C' rumvarp það, sem Sjálf- stæðismenn fluttu snemma á þinginu, um raforkusjóð hef- ir náð fullnaðarsamþykki Al- þingis og er orðið að lögum. -—- Samkvæmt lögúnum skal raf- orkusjóður stofnaður með 10 miljóna króna frámlagi úr ríkis sjóði og 500 þús. kr. á ári eftir 1942. Tilgangur raforkusjóðs er, að stuðla að því, ,,að gerð- ar verði rafveitur og reist verði raforkuver og raforkustöðvar í sveitum, kauptúnum og hinum smærri kaupstöðum", eins og ■segir í 1. grein laganna, en í imeðferð málsins á þingi komu hinir smærri kaupstaðir inn í lögin. Þessi löggjöf mun marka merkilegt tímamót í rafmagns- málum sveitanna. Það eru 13 ár liðin síðan Jón Þorláksson flutti þetta mál fyrst á Alþingi. Oft og mörgum sinnum hafa Sjálfstæðismenn reynt að þoka málinu áfram á þingi, en altaf hafa illviljuð öíl staðið í vegi og hindrað framgang þess. — En nú er takmarkinu loíís náð. Myndariegur sjóður verður til taks, til þess að styrkja raforku veitur um sveitir landslns. — Verður því hægt að hefjast handa um framkvæmdir strax og ástæður leyfa. 1 hinum nýju lögum eru eng in fyrirmæli um það, hvernig haga skuli styrkveitingum til, þessara framkvæmda. Verður sett um það sjerstÖk löggjöf, enda nauðsynlegt að sjerfræð- ingar komi þar til ráða. Ríður á, að þannig verði gengið frá þeirri löggjöf, að útilokuð verði öll togstreyta milli hyer- -aða og landshluta. — Kæmist hún að, væri það vísasti vegur- inn til þess að stöðva allar framkvæmdir. Undirbúning- ur aliur og framkvæmdir á • sviði rafmagnsmálanna verð- ur að vera í höndum hæfustu sjerfræðinga. Þeirra ráða og tillagna verður að hlíta um framkvæmdir á hverjum tíma. Verði þessi sjónarmið ein látin ráða, verður ekki langt að bíða þess, að raforkuveitur teygi arma sína út um blóm- legar sveitir landsins og færi býlunum birtu og yl. Með raforkusjóði er lagður grundvöllur að einu stærsta framfara og viðreisnai'máli sveitanna. Hlutverk hans verð ur að nema burt fjarlægðirnar svo að takmarkinu verði náð, sem Jón Þorláksson setti, að bændur, sem búa fjær orku- veri geti fengið raforku með sama verði og þeir, sem nærri eru. — Þetta var hugsjón Jóns Þorláhssonar. Hún er nú að komast í framkvæmd. BÆN DAHOFÐINGINN BJARNI í ÁSGARÐI Eftir Þorstein Þorsteinsson sýsluroann C karð hefir nú orðið fyrir skildi í Dölum vestur. Verður þar til grafar borinn næsta mánu- dag bændahöfðinginn Bjarni Jens- son frá Asgarði. Hann var einn af nafnkendustu bændum þessa lands Bárust víða um hjeruð frásagnir af höfðingsskap hans og frábærri gestrisni. Ileima í Dölum var hann hjeraðshöfðinginn, er hjeraðsbúar leituðu trausts til, þegar vanda bar að höndum. Lungnabólga — eða afleiðingar hennar — varð honum að bana. Hann lá skamma hríð. Hann and- aðist að heimili sínu þann 21. f. m. Bjarni í Ásgarði var fullra 77 ára, er hann ljest. Hann var fædd- ur að Pálsseli í Laxárdal 14. maí 1865. Var faðir hans bændahöfð- inginn Jens hreppstjóri og denne- brogsmaður á Hóli Jónsson Magn- ússonar rímnaskálds á Laugum, en hann var, að því er ýmsir telja, sonur Magmisar Pálssonar lög- manns Vídalíns. Móðir Bjarna var Jóhanna Jónasdóttir, komin af góðu bændafólki. Ársgamall flutt- ist Bjarni með foreldrum sínum að Hóli í Hvaiíimssveit, og var þar heimili hans þangað til hann byrj- aði sjálfur búskap í Ásgarði, að undanskildum þeim árum, sem hann dvaldi á Olafsdalsskólanum. Faðir hans gerðist brátt stórbóndi og hafði umsvifamikiun búska,p og hjelt sonum sínum mjög að vinnu. í barnæsku misti Bjarni móður sína, en eignaðist stjúpu. Áttu þau stjúpmæðgin lítt skap saman, en hann þegar í æsku mik- ill fyrir sjer; mun sá uppeldis- agi, sem hann var þá beittur, hafa haft nokkur áhrif á skapgerð hans í sumum greinum. Bjarni naut al- mennrar barnafræðslu í uppvexti, en fór á búnaðarskólann í Olafs- dal og dvaldi þar tvö ár. Var hann þá á tvítugsaldri. Sagði hann það oft, að dvöl sín þar og kensla Torfa hefði orðið sjer að ómetan- legu gagni. Bar hann þaðan í frá hina mestu virðingu fyrir Torfa og vinarhug til hans. Er Torfi læknir sonur hans heitinn í höfuð Torfa í Ólafsdal. Torfi í Ólafsdal bar og hið mesta traust til Bjarna og fól honum á sumrin, þótt ung- ur væri, verkstjórn á jörð sinni Belgsdal. Hálfþrítugur (1890) byrjaði Bjarni búskap í Ásgarði, á nokkr- um hluta jarðarinnar, en þar kom brátt, að hann tók jörð þá alla og hefir síðan búið þar stórbúi. Bætt jörðina afarmikið, sljettað alt tvin-1 ið, sem var geysistórt, en karga- þýft, og girt það afar vandaðri girðingu. Húsaði hann jörðina með miklum hlöðum og gripahúsum og stói’U íbúðarhiísi, — en áður hafði hann reist minna íbúðarhús. Árið 1891 kvæntist Bjarni Sal- björgu Ásgeirsdóttur frá Kýrunn- arstöðum, hinni ágætustu konu. Áttu þau hjón saman 17 börn, 10 þeirra náðu fullorðinsaldri; af þeim 10 eru nú 7 á lífi. Salbjörg andaðist 1931. Tveimur árum síð- ar kvæntist Bjarni eftirlifandi ekkju sinni, Guðrúnu Jóhannsdótt- ur, mestu myndar- og greindar- konu. Þau hjón Bjarni og Salbjörg ólu upp, auk sinna eigin barna, nokkur börn. þeim vandalaus, en án allrar meðgjafar. Einnig voru þar gamalmenni, þeim hjónum kunnug en óskyld, er þau tóku endurgjaldslaust. Var því jafnan margt heimilisfólk í Ásgarði, og flestar nætur voru fleiri eða færri næturgestir þar. Mörg störf voru Bjarna falin um æfina, og verður hjer ekki talið nema fátt þeirra. Hann varð hreppstjóri við lát " föður síns 1910. Sýslunefndarmaður hafði hann verið óslitið 37 ár. Hrepps- nefndarmaður í 50 ár, en neitaði að taka við kosningu á síðastliðnu vori. 1905 tók hann sem gjaldkeri við Sparisjóði Dalasýslu og gegndi því starfi tjl dauðadags. Var hann aðal framkvæmdamaður sjóðsins allan þann tíma. Ljet hann sjer mjög ant um viðgang hans. Það þykir mikið sagt, að maður gæti annara eigna sem síns eigin fjár, en slíkt var vanmælt um Bjarna í Ásgarði og sparisjóðinn, því að hann stundaði miklu meir hag sjóðsins en sitt eigið gagn. Aðeins í eitt skifti þennan tíma var feld niður nokkur hundruð króna skuld (gömul) hjá eignalausum manni. Vildi Bjarni þá ákafur1 greiða sjóðnum skuld þessa úr sjálfs sín vasa, og var þó engri vanrækslu hans um að kenna, að skuld sú tapaðist. Bjarni var formaður Kaupfje- lags Hvammsfjarðar yfir tuttugu ár. Hann var formaður fasteigna- matsnefndar Dalasýslu frá upp- hafi. Lengst af var hann fremsti maður í búnaðarf jelagi sveitar sinnar. Hann var einn af stofn- endum Búnaðarsambands Dala- og Snæfellsness og var fulltrúi á öllum fundum þess. Árið 1930 var hann sæmdur riddarakrossi fálkaorðunnar, og þótti þar fara að verðleikum. Bjarni í Ásgarði var með hærri mönnum, karlmannlegur, en fríður og höfðinglegur sýnum. Var hann jafnan auðkendur í flokki. Nokk- uð þótti hann fasmikill og orð- hvass fyrr á árum; en öllum nauð- leitarmönnum reyndist hann hinn besti drengur. Þekki jeg engan, er komst til jafns við hann um alla hjálpsemi. Gestrisnin var frá- bær. Öllum gestum leið vel í Ás- garði og ekkert til þess sparað frá hendi húsbændanna. Sjálfur lán- aði hann peninga mörgum mann- inum, sem í kröggum var, en ekki hafði næga tryggingu að setja fyrir láni úr sparisjóðnum. Var það og almenningsálit um Dali, að gjalda bæri Bjarna í Ásgarði lán| hans skilvíslega og framar öðrum lánardrotnum, hitt, væri ódreng- skapur. Fjölmargir leituðu og til Bjarna um annan greiða, t. d. matvæli eða mannalán. Altítt var Bjarni Jensson. það, meðal annars, að hann flutti og sótti hjeraðslækninn i Búðar- dal, er hann var fenginn í vest- ursýsluna, venjulegast í Ásgarð, en stundum alla leið vestur í Saurbæ. Aldrei var tekinn eyrir fyrir þessar ferðir, eða fyrir greiða til ferðamanna, þar til nú fyrir þreftiur eða fjórum árum, að áætlunarbilar höfðu þar viðkomu- stað til þess að fá keyptan mat eða kaffi handa farþegum, en lengi var það að .,Ásgarðsbónd- inn“ átti erfitt með að fella sig við það að taka fje fyrir veittan mat eða drykk. Margir voru þeir, sem banyæn mein höfðu tekið og bjuggust við dauða sínum, er fólu Bjarna í Ás- garði að hafa forsjá fyrir fjöl- skyldu sinni, eða liönd í bagga um fjárgæslu hennar að þeim látn um, og revndist hann því fólki sem öðru, er hans leitaði, hinn mesti bjargvættur. Bjarni í Ásgar’ði hafði mörg störf og umsvífamikil, og tíma- frekur varð honum hinn geysi- mikli gestagangur. Var því sjald- an stund til bóklesturs, en minni hafði hann óvenjulega gott. Var hann fróður um ýms þjóðleg efni, t. d. ættir manna, um menidna sjálfa og hagi þeirra. Furðaði ýmsa, er að Ásgarði komu iir f jar- lægum hjeruðum, hversu bóndinn þar var fróður um samhjeraðs- menn þeirra. Reikningsmaður var hann ágætur og vandaði mjög frá- gang allra skýrslu- og álitsgerða, er hann sendi frá sjer. Hjer er ekkert rúm til þess að lýsa Bjarna í Ásgarði rækilega. Hann var stórbrotinn hjeraðshöfð- ingi, þjóðlegur í háttuin, gestris- inn og gjafmildur, vildi liðsinna öllum, er leituðu hans, og gerði það líka, ýmist með fjárframlög- um eða hollum ráðum. Vinum sín- um var hann einlægur og manna trygglyndastur. Má með sanni segja um Dalasýslu, að þar varð hjeraðsbrestur, er Bjarni fjell í valinn. Verður sæti hans seint fylt, og vinsælli mann vissi jeg ekki. Mun það ekki leika á tveiua tungum, að þótt Bjarni hirti ekkr altaf um að gæta hinna nákvæm- ustu hirðsiða, þá var hann sóml íslensku bændastjettinni. Hann líktist um margt hinum ágætustu fornmönnum vorum. Vildi hann alt gera til vegs og viðreisnar hjeraði sínu. Þótti mönnum það miklu varða um framgang mála í hjeraði að hafa til þeirra brau*- argengi Bjarna í Ásgarði. Er sem hjeraðið sjálft verði svipminna fyrir sjónum vorum nú, þegar Bjarni í Ásgarði er horf- inn þaðan. Iþróttamót að Laugum þróttamót „Þingevings“ sam- *■ bands íþrótta og ungmenna- fjelaga í Þingeyjarsýslu var hald- ið að Laugum sunnudaginn 23. ágúst. Iveppendur voru frá ung- mennafjelögunum Mývetningur í Mývatnssveit, Efling í Reykjadal, Gaman og alvara í Kinfi, Geisli í Aðaldal og Íþróttaf jelaginu Völsungur í HúsaVík. Veður var gott að öðl’u leyti-en því, að norð- an kaldi mun hafa háð keppend- um að einhverju leyti í stökkun- um. þar sem atrennan var á móti vindinum. Úrslit í einstökum íþróttagrein- um voru þessi: 100 m. hlaup. 1. Ari Kristins- son, Völs. 11,9 sek. 2. Stefán Bene- diktsson V. 12.0 selt. 3. Arnviður Ævarr Björnsson V. 12,1 sek. Hástökk. 1. Ari Kristinsson V. l, 55 m. 2. Jón Kristinsson V. 1,50 m. 3. Adam Jakobsson G. 1,45 m. Kúluvarp. 1. Adam Jakobsson !Gl 11,05 m. 2. Lúðvík Jónassoa V. 11,01 m. 3. Valdimar Vigfús- son V. 9,67 m. Langstökk. 1. Ari Kristinsson V. 5,86 m. 2. Jón Kristinsson V. 5,52 m. 3. Adam Jakobsson G. 5,37 m. Spjótkast. 1. Adam Jakobsson B. 43,13 m. 2. Illugi Jónsson M. 42,08 m. 3. Stefán Benediktsson V. 41,38 m. 800 m. hlaup. 1. Þorkell Aðal- steinsson V. 2,24,2 mín. 2. Reynir Kjartansson G. 2,25,4 mín. 3. Ey- steinn Sigurjónsson V. 2,26,8 mín. Þrístökk. 1. Ari Kristinsson V. 11,98 m. 2. Arnór Benediktsson GA 11,94 m. 3. Stefán Benediktsa. V. 11,02 m. Boðhlaup 4x100 (fram og afturV vann sveit Völsunga á 52,4 sek. Síðan keptu Mývetningar og Völs- ungar í knattspyrnu og vann Mý- vetningur með 4 mörkum gegn 2. S. P. B.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.