Morgunblaðið - 24.01.1943, Síða 7
Sunnudagur 24. janúar 1943.
MORGUNBLAÐIÐ
7
REYKJJAVÍKURBRJEF
!•’ ■ '
FRAMH. AF FIMTU SÍÐU
eru að langmestu leyti kaup-
greiðslur eða styrkir, sem fara
eftir dýrtíðarvísitölunni í ein-
hverju formi, hljóta gjöldin að
fylgja henni.
Eftir því sem bæjargjöldin
hækka, væri meiri ástæða til að
dreifa borgunartíma þeirra yfir
fleiri mánuði en nú er gert, t. d.
að útsvörin yrðu greidd með
jöfnum afborgunum 10 mánuði
ársins, desember og einum sum-
armánuði slept. Þetta kæmi sjer
betur bæði fyrir gjaldendur og
bæjarsjóð, í stað þess að nú eru
útsvör greidd á 5—7 mánuðum
ársins.
Evennadeild Slysavamafjelags
fslands I Reykjavík.
••Cílfcli
4) jj (.•
^mc
Fundur
11 í Óddfellow (niðri)
mánudaginh 25. jan., kl. hV-2
i(.U .frrui' Skem.í4atriði:
1. Krindi: Frk. Thora Friðrikson
2. Eamanvísur: Hr. Sigvaldi
Indriðason.
3» Dans.
Fjelagskonur, sem eiga ógreidd
ársgjold eru vinsamlegast beðnar
: ;ið greiða þau á fundinum.
V Stjómin.
FyrirstrfðsverO
! áBardinutau frá kr. 1.50 mtr.
f f’t. ;• i i <• :f.*rf , , ....
Tvistan frá kr. 1.75 mtr.
; . Ljereft frá kr. 1.75 mtr.
Skyrtuefni frá kr. 1.85 mtr.
Flónel frá kr. 2.00 mtr.
Sirts frá 2.50 mtr.
Fóður, tvíbreitt frá kr. 2.50 m.
Kjólatau frá kr. 6.50 mtr.
Handklæði frá 65 au.
Kvensokkar frá kr. 2.50.
Dyngfa
Hjónin ð Reykjahvoli
AU Helgi Finnbogason og
frú Ingunn Guðbrands-
dóttir, em að yerða sjötug,
Helgi á morgun, 25, jan., en
Ingunn að tveim mánuðum liðn^
um, 25. mars.
Helgi Finnbogason er fædd-
ur að Geldingalæk á Rangár-
völlum hinn 25. jan. 1873, son-.
ur Finboga Árnasonar frá Galta
læk og Helgu Jónsdóttur frá
Svínhaga. Fjögurra ára gamall
fluttist hann með foreldrum sín-
um að Reykjum í Mosfellssveit,
þar sem hann svo ólst upp. —
Hann stundaði nám við Flens-
borgraskólann í tvo vetur. —-
Kvæntist 21. okt. 1897 frænku
sinni Ingunni Guðbrandsdóttur,
dóttur Guðbrands Árnasonar og
Sigríðar Ófeigsdóttur frá Fjalli
á Skeiðum, er lengst af bjuggu
í Miðdal í Laugardal. En Ing-1
unn er fædd að Kilhrauni á
Skeiðum og fluttist til föður-,
bróður sins að Reykjum nokkru
eftir að faðir hennar hafði lát-
ist af slysförum. — Þau hjónin
voru fyrst í húsmensku í Reykja
koti í Mosfellssveit (síðar nefnt
Reykjahvoll), en þar bjó þá
Vigdís Guðnadóttir Ijósmóðir
frá Keldum. Hóf Helgi um það
leyti starf hjá Jarðræktarfje-i
lagi Reykjavíkur, sem aftur
leiddi til þess, að hann var
næstu þrjú árin hjá þeim bræðr
4um Vilhjálmi Bjarnasyni bónda
á Rauðará og sjera Þórhalli
Bjarnasyni í Laufási, síðar
biskupi. Að þessum þrem ár-(
um liðnum reistu þau hjónin
svo bú í Reykjakoti, keyptu
jörðina á næstu árum, og hafa
búið þar síðan.
Þeim hjónum hefir orðið sex
barna auðið. Þrjá sonu mistu
þau í bernsku, Finnbogi býr á
Sólvöllum, giftur Ingibjörgu
Bjarnadóttur frá Vatnshorni í
Húnavatnssýslu, Sigríður er
heima, en ,Oddný gift Ólafi
Pjeturssyni bónda á ökrum i
Mosfellssveit. Þá ólu þau hjónin
upp bróðurdóttur Ingunnar,
Ingveldi Árnadóttur og er hún
gift Vígmundi Pálssyni bónda
að Efra-Hvoli í Mosfellssveit.
Laugaveg 25.
H. H.
AUQAÐ hvflint Tyilh
með gleraugnm frá I I Llf
Háskólafyrirlesturinn
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU
skrifa allmikla bók um þetta
efni og vona að geta komið henni
út í sumar, svo að það voru mjer
| hæg heimatökin að sjóða saman
þetta erindi, sem jeg ætla að
flytja í dag. Jeg veit ekki hve
margir Reykvíkingar kæra sig
um að hlusta á fróðleik/ af þessu
tagi, en jeg vildi óska þess, að
einhverjir þeirra, — sem betur
fer sárafáu manna— sem hafa
verið að halda fyrirlestra um síld
arrannsóknir mínar, á bak við
mig, hefðu tíma til þess að koma,
og hlýða á. það sem jeg hefi að
segja.'
fitíííerl Claessen
Elnar Asmnndsson
Éw*«tarj*tUnnilaflntnlngim«nn.
■krifatofa í Oddfellowhiiin*
(Inngangm um anaturAyr),
■fani 1171.
Hallgiímsprestakall. Ferming-
arbörn Jakobs Jónssonar og síra
Sigurbjörns Einarssonar eru beð
in að koma til viðtals i Austur-
bæjarskólann næstk. þriðjudag,
kl. 5 e. hád.
Dúqbóh
□ Edda 59431267 — 1. Atkv.
I. O. O. F. 3 == 1241258 = Fl.
Næturlæknir er í nótt Bjami
Jónsson, Reynimel 58. Sími 2472.
Næturvörður er í Ingólfs Apó-
teki. Sími 1330.
Guðsþjónusta verður haldin \
Kapellu Háskólans í dag kl. 5
síðd. Sjera Sigurður Einai'sson
dósent messar. Allir velkomnir.
Bjami Markússon, Hverfisgötu
24, Hafnarfirði á sjötugs afmæli
mánudaginn 25. þessa mánaðar.
Hann er fæddur og uppalinn í
Hafnarfirði og hefir búið þar
allan sinn búskap. Sjómensku
hetfir hann stundað um fimtíu
ára skeið. Hann var hinn mesti
dugnaðar- og atorkumaður og
virtur af öllum þeim, er þektu
hann. Á þessum merkisdegi hans
munu margir vinir hans og kunn
ingjar hugsa til hans með hlýj-
um hug og óska honum allra
heílla á ókomnum árum.
Kunnugur.
55 ára er í dag Magnús Guð-
mundsson, skipasmiður, Báru-
götu 15.
j'i' Silfurbrúðkaup eiga í dag Berg
rún Árnadóttir og Jóhann Helga
son, Ósi í Borgarfirði Eystra.
Fermingarböra, sem ferma á á
þessu ári, vór eða haust, gjöri
svo vel að koma til viðtals í Dóm
kirkjuna sem hjer segir: til sjera
Bjarna Jónssonar næstkomandi
miðvikudag kl. 5 síðdegis, til
sjera Friðriks Hallgrjmssonar
fimtudag kl. 5 síðdegis.
Háskólahljómleikar. Þeir Ámi
Kristjánsson og Björn Ólafsson
halda fimtu Háskólahljómleika
sína (ekki 3. eins og misprent-
aðist í blaðinu j gær) kl. 5 síðd.
í dag í Hátíðasal Háskólans. —
Sepnilega munu nokkrir aðgöngu
miðar fást við innganginn.
Útvarpið í dag.
10.00 Morguntónleikar (plötur):
a( Fiðlusónata í d-moll eftir
Bach. b) Píanósónata Op. 31,
eftir Beethoven.
14.00 Messa í Hallgrímssókn (sr.
Sigurbjörn Einarsson).
15.30 Miðdegistónleikar ; (plotur)
a) Kirsten Flagstad syngur.
b) Valsar eftir Johan Strauss.
18.45 Bamatími (Kennaraskóla-
nemendur).
20.20 Kvöldvaka Vestfirðingafje-
lagsins: a) „Þið landnemar“
(kórplata). b) Ávarp for-
manns, Guðlaugs Rósinkranz
yfirkennara. c) Ámi Friðriks-
son magister talav um Vest-
firði. d) Bjarni Andrjesson
syngur lög eftir Vestfirðinga.
e) 21.00 Sögukáfli eftií* Guð-
mund G. Hagalín (dr. Símon
Jóh. Ágústsson les). f) Kvæða
lestur: Jakob Thorarensen
(talplata). Guðmundur Ingi
(Ólafur Þ. Kristjánsson les).
Steinn Steinarr. g) Ungfrú
Sigrún Magnúsdóttir syngur.
h) Gils Guðmundsson kennari
flytur vestfirskan frásagnai*-
þátt. í) Lög eftir Sigurð Þórð-
arson (Útvarpshljómsveitin).
Útvarpið á morgun:
20.30 Erindi: Þættir úr sögu
Skagafjarðar, IV (Brynleifur
Tobíasson mentaskólakennari).
21.00 Um daginn og veginn
(Vilhj. Þ. Gíslason).
21.20 Útvarpshljómsveitin: Brúð
kaupsferð um Norðurlönd eft-
ir Emil-Juel Fredriksen.
t ::
Hjartans þakklæti færi jeg öllum skyldum og vanda- ;;
| lausum sem á einn eða annan hátt glöddu mig með gjöfum ! í
* og heimsóknum nú um jólin. — Guð blessi ykkur öll. ;;
| i:
X Knstín Bjamadóttir, Bókhlöðustíg 6 B. ! \
::
Hjartans þakklæti færi jeg öllum vinum og kunningj-
um sem glöddu mig á 80 ára afmælinu með blómum, skeytum
og gjöfum. En sjerstaklega þakka jeg börnum, tengdaböm-
um og barnabömum fyrir þær rausnarlegu gjafir sem þau
færðu mjer og gerðu mjer daginn ógleymanlegan. Guð launi
ykkur öllum, þegar hann sjer best henta.
Jóhanna Kjæmested.
20-30 toiina vjelalaus bátur
Vil kaupa 20—30 tonna vjelalausan bát.
Tilboð merkt: „Vjelalaus bátur“, sendist Morgun-
blaðinu fyrir 5. febrúar næstkomandi.
Vegna jarðarfarar
Guðnýjar Vigfúsdóttur, fer bifreið til Kefla-
víkur frá B.s. Geysi, þriðjudaginn 26. þ. mán.,
kl. 10.15. — Farmiðar sjeu pantaðir á stöðinni
eða í verslun Jóns Mathíesen, Hafnarfirði
fyrir kl. 9 á mánudagskvöld.
Jarðarför,
KRISTÍNAR INGIMUNDARDÓTTUR,
fer fram frá dómkirkjurtni, mánudaginn 25. jan. og hefst
með húskveðju kL 2 e. h. hjer á heimilinu.
i FJi. Elli og hjúkrunarheimilisins Grund.
Gfsli Sigurbjömsson.
Jarðarför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og
önunu,
GUÐNYAR helgu VIGFÚSDÓTTUR,
fer fram þriðjudaginn 26. þ. mán., og hefst með húskveðjn
kl. 1 e. hád. að heimili mínu, Suðurgötu 6, Keflavík.
Fyrir mína hönd, barna minna, tengdabarna, bama-
bama og annara vandamanna.
Þorsteinn Ámason.
Jarðarför dóttur minnar og systur okkar,
SALBJARGAR BJARNADÓTTUR,
Njálsgötu 71, sem andaðist 15. þ. mán., fer fram frá Fri-
kirkjunni, þriðjudaginn 26. þ. m. og hefst kL 1.30 með bæn
frá Elliheimilinu Gmnd.
Ingibjörg Jakobsdóttir og systkini.
Lnnilegt þakklæti vottum við öllum, fjær og nær, er
sýndu okkur samúð og hluttekningu í veikindum og við frá-
fall dóttur okkar,
SIGRÍÐAR í. TRYGGVADÓTTUR
frá Kirkjubæ við ísafjörð, er andaðist 16. f. mán.
Fyrir okkar hönd og fjarstaddra vandamanna.
Kristjana Sigurðárdóttir. Tryggvi Á. Pálsson.