Morgunblaðið - 02.03.1943, Síða 7

Morgunblaðið - 02.03.1943, Síða 7
Þriðjudagur 2. mars 1943. MORGU N BLAÐIÐ 7 Hjeraðsbönnin lögfest Heraðabönnin svonefndu voru lögfest á Alþingi í gær. Ed. samþykti frv. með 9 :8 atkv. og er það þar með orðið að lög- um. Blaðið hefir áður birt frum- varpsgreinarnar. En efni lag- anna er það, að áfengisútsala má ekki vera, nema kjósendur í við- komandi kaupstað samþykki hana. Þar sem áfengisútsala hef- ir verið stofnsett, skal hún lögð niður, ef meirihluti kjósenda samþykkir það. Skylt er að láta fram fara atkvæðagreiðslu um þetta, ef Ys kjósenda krefst þess. Þótt lög þessi hafi verið sam- þykt, getur orðið dráttur á gild- istöku þeirra. Því að sá vara- nagli er í 2. gr., að ef lögin brjóta í bága við milliríkjasamn- inga (sbr. Spánarsamninginn o. fl.), skal ríkisstjómin samrýma þá ákvörðun laganna og öðlast lögin þá fyrst gildi. Ekkert er um það sagt, hvort ríkisstjórnin á að segja upp þessum milliríkjasamningum, ef þeir verða ekki „samrýmdir" lög- unum, svo að ekki er ósennilegt, að þingið fái um þetta að fjalla aftur áður en langt líður. SöQUlegt þingmðl FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐC inni voru atkvæði látin skera úr Þau f jelhi á þann veg, að ákveðið var með 9 : 6 atkv., að telja þetta nýtt mál. Afleiðingin varð sú, að þrjár umræður voru á- kveðnar um 'málið í deildinni í stað einnar. Fór svo 1. umr. málsins fram í Ed. í gær og frv. vísað til 2. umr. og landbúnaðamefndar. Fari svo, að frv. þetta hljóti afgr. í Ed. fær Nd. það til með- ferðar að nýju og verður þá sennilega að láta fram fara þrjár umræður um máliS, þrátt fyrir fyrri meðferð þess. Itússland FR AMH AF ANNARl SlÐU shenko marskálkur sókn á þess- um stöðvum, og var hún síðan hafin. Var þá rofin allmikil víggirðingarlína, og lentu her-i sveitir Þjóðverja í hættu á því, að verða umkringdar. Hörfuðu þær því undan, svo sem fyrr er sagt. Hefir rússneski herinn þarna náð landi, sem er um 1650 ferkílómetra að flatar- máli. Orustur hafa staðið þarna í viku, og var tekið allmikið af herfangi, segir einnig í skýri ingum Rússa, en Þjóðverjar hafa að undanförnu talað um harða bardaga á þessum slóð- um. SkemtlAfjlðuni lohað í Noregl regnir frá norska blaðafull trúanum hjer hafa það eftir útvarpinu í Oslo, að öll- um vínveitingastofun, stórum gildaskálum, næturklúbbum og öðrum skemtistöðum í Noregi hafi verið lokað. Skíðamót Akureyrar Björgvin Június- son besti svigmaðurinn Frá frjettaritara vorum á Akureyri. Síðamót Akureyrar hjelt ári fram á sunudaginn og var kept í svigi karla. Svig- brautin, sem var mjög glæsi- leg, var sunnan til í Fálkafells- brautinni. Kept var í þremur flokkum, A., B. og C. og voru allir flokkar ræstir í sömu braut. Jafnhliða einstaklingskepninni var sveita- kepni um svigbikar Akureyr- ar, en þann bikar hlýtur það fjelag að verðlaunum, sem á bestu fjögra manna sveit á skíðamótum Akureyrar. Kaup- fjelag Eyfirðinga gf þenna bik- ar og hefir tvisvar verið kept um hann áður. Úrslit í mótinu urðu sem hjer segir: A. fl. 1. Björgvin Júníusson (K. A.) 15 7.8 sek. 2. Magnús Brynjólfsson (K. A.) 16 3.0 sek. 3. Júlíus B. Magnússon (Þór) 16.8.0 sek. B. fl. 1. Þorsteinn J. Hall- dórsson (M. A.) 17 4.0 sek. 2. Gunnar Karlsson (K. A.) 17 5.0 sek. 3. Úlfar Ragnarsson (M. A.) 17 6.2 sek. C. fl. 1. Hreinn ólafsson (Þór) 18 3.8 sek. 2. Sveinn Snorrason (M. A.) 18 7.4 sek. 3. Sigurður Þórðarson (K. A.) 19 3.1 sek. 1 sveitarkepni sigraði sveit Knattspyrnufjelags Akureyr-, ar og er það í annar sinn í röð að það vinnur svigbikar Akur- eyrar. í sveitinni voru: Bjöfg-i vin Júníusson, Magnús Brynj- ólfsson, Gunnar Karlsson og Eyssteinn Árnason. önnur varð sveit Mentaskólans á Akureyri. Þriðja varð sveit Iþróttafjelags ins Þór . Þá vann Björgvin Júníusson svigmeistaraþikar Akureyrar. Er það nýr bikar, sem besti svigmaður í A. flokki á Akur- eyri hlýtur ár hvcrt. Karl Frið- riksson, kaupmaður, Akureyri, gaf bikarinn. Áfengiasmygl ýlega var yfirmaður af pólsku skipi dæmdur í lögreglurétti Reykjavíkur í 1600 króna sekt fyrir áfengis- smygl. Hafði hann flutt inn 17 flösk ur af víni, sem hann geymdi á milli þilja í herbergi sínu. Ekki er þó getið um, að hann hafi selt þær. Þýskar útvarps' stöðvar þögnuðu í gærkvöldi 'C' lestar meiri háttar útvarps- -*■ stöðvar þýskar, þar á með- al Deutschlandsender, útvarps- stöðin í París og Kalundborgar- stöðin þögnuðu í gærkveldi. — Skömmu áður, en stöðvamar hættu að útvarpa, hvöttu þulirnir menn að gæta þess sjerstaklega vel, að myrkvun væri fullkomin. Reuter. Dagbóh • □ Edda 5943327 — I. Unglinga vantar til að bera Morgunblaðið til kaupenda í Höfðahverfi. Talið við afgreisl- una í dag. Næturlæknir er í nótt Halldór Stefánsson, Ránargötu 12. Sími 2234. Næturakstur annast Geysir. „Nú er það svart maður“ verð- ur sýnd annað kvöld kl. 8. Eru nú aðeins örfáar sýningar eftir af þessu vinsæla gamanleik. Að- göngumiðasala hefst í dag kl. 4. Leiðrjetting. Svar húsameist- arafjelagsins í laugardagsblaðinu hefir misprentast á einum stað, þar sem stendur „verðlaunuðu" í stað „óverðlaunuðu“. Upphaf málsgreinarinnar átti að vera þannig: „Herra Jónas Jónsson veit það, að með því að birta að eins hina 4 óverðlaunuðu upp- drætti í blaði sínu og gefa í skyn að aðrir uppdrættir hafi ekki borist . . . .“. Að gefnu tilefni skal þess ennfremur getið, að Sigurður Guðmundsson húsa- meistari minnist þess ekki, að hafa fengið aftur frá nefndinni uppdrætti þá, af Saurbæjarkirkj- unni, er verðlaun hlutu, heldur aðeins aukatillögur sem hann ljet fylgja aðaluppdráttunum. Húsameistarafjelag Islands. Híutaveltu halda neniendur Verslunarskólans næstk. súnttu- dag í skólanum til styrktar fyr- irhugaðri byggingu leikfimis- og samkomuhús. Er hjer með skor- að á velunnendur skólans að bregðast vel við, þegar nemend- urnir koma í heimsókn til þeirra. Ef svo illa skyldi takast til, að einhver yrði eigi heimsóttur, þá er liann vinsamlegast beðinn að hringja í síma 2071 á morgutt, fimtudag, og munu munimir þá verða sóttir. Skátaskólinn að Úlfljótsvatni við Sog tekur til starfa um mán- aðamótin maí—júní. Teknir verða skátar' og nokkrir Ylfing- ar, ef ástæður leyfa. Skriflegar umsóknir sendist til Jónasar B. Jónssonar, kennara við Laugar- nesskólann, fyrir 20. mars. Til- greindur sje aklur, heimilisfang, símanúmer, ef til er, og hvað flokki, sveit og deild skátinn til- heyrir. Ungbamavernd Líknar, Templ- arasundi 3. Stöðin er opin mánu- daga, þriðjudaga, fimtudaga og föstudaga kl. 3.15—4 fyrir öll böm til tveggja ára aldurs. Börn eru bólusett gegn barnavéiki þriðjudaga og föstudaga, en hringja verður fyrst í síma 5967 milli 11—12 aama dag. Berklavarnahælið, afh. Morg- unbl.: Ella, Bjössi, Rúna 50 kr. Kosningaáheit af Snæfellsnesi 100 kr. Blindraheimilið, afh. Morgun- blaðinu: N. N. 20 kr. G. G. 10 kr. Útvarpið í dag: 12.10 Hádegisútvarp. 15.30 Miðdegisútvarp. 19.25 Þingfrjettir. 20.00 Frjettir. ‘ 20.30 Tónleikar Tónlistarskólans: Hljómsveit (dr. Urbantschitch stjórnar): a) Bach: Branden- burgerkonsert nr. 3, G-dúr. b) Hans Gál: Concertino í D-dúr, fyrir píanó og strengi. 21.00 Erindi: Feður Ameríku, II: Heilir í höfn (Sverrir Krist jánsson sagnfr.). 21.25 Hljómplötur: Kirkjutónlist I Vegna blns hörmulega at- burðar, er vfelskfplð Þormóð- ur fórst með 24 farþegum og allri óhöfn nótfina milli 17. og 18. fcbrúar s.I., heflr ríkls- sffórnin úkveðið, að minn- ingarguðsþjónusta skuli fara fram í dómkirkjunni í Reykja- vík fðstudaginn 5. mars nœst- komandi, og hefst hún kl. 14. Ætlast er til, að oplnberar stofnanir verði lokaðar þann dag frú húdegl. Rikisstjórn Islands Hjer með tilkynnist vinum og vandamönnum að móðir okkar, INGIBJÖRG JÓNSDÓTTIR frá Hafnardal andaðist í Reykjavík þann 28. febrúar síðastliðinn. Börn hinnar látnu. Okkar kæri bróðir, MARGEIR JÓNSSON, kennari, Ijest að heimili sínu, Ögmundarstöðum í Skagafirði 1. þ. m. Dýrunn Jónsdóttir, Jónína Kr. Jónsdóttir. Jarðarför, JÓHÖNNU GUNNLAUGSDÓTTUR, fer fram miðvikudaginn 3. mars, kl. 2 e. hád. frá heimili okkár, Austurgötu 45, Hafnarfirði. Rransar afbeðrjr. .— Jarðiið verður frá fríkirkjunui. Fyrir hönd okkar og annara vandamanna. Laufey Sigfinnsdóttir, Kristján Guðmundsson. Jarðarför elsku sonar okkar og fóstursonar, RÓSMUNDAR TH. ODDSSONAR, fer fram fimtudaginn 4. mars og hefst með bæn að heimili hins látna, Suðurgötu 37 í Hafnarfirði, kl. 2 e. hád. Metta Einarsdóttir, Jóhannes Guðmundsson og systkini. Jarðarför, ÓLAFÍU ÓLAFSDÓTTUR frá Auðsholti fer fram frá Dómkirkjunni, miðvikudaginn 3. mars og hefst með húskveðju að heimili hinnar látnu, Njáls- götu 84, kl. 1 e. hád. Jarðað verður í Fossvogskirkjugarði. Fyrir hönd vandamanna. Þóra Þórðardóttir. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við fráfall og jarðarför unnusta míns, sonar okkar og bróður, PÁLS SVEINSSONAR frá * Bakkakoti.. Ingibjörg Stefánsdóttir, Anna Guðmundsdóttir, Sveinn Eyjólfsson og systkini.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.