Morgunblaðið - 12.06.1943, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 12. júní 1943.
HAGUR UTVEGSBANKANS MJOG GOÐUR
Enginn arður greiddur
AÐALFUNDUR Útvegsbanka íslands h. f. var hald-
inn í húsi bankans í gær.
' Formaður bankaráðsins, Stefán Jóh. Stefánsson
hrlm., flutti skýrslu um störf bankans á árinu sem leið
og gerði grein fyrir hag bankans og breytingum þeim,
sem orðið höfðu á efnahagsreikningl* Fara hjer á eftir
nokkrar tölur úr reikningunum.
Lárus Jóhannesson fær 17 þús.
krónur í skaðabætur
Vegna meiðsla af
völdum lögreglunnar
HÆSTIRJETTUR hefir dæmt fjármálaráðherra f.
h. ríkissjóðs til þess að greiða Lárusi Jóhannessyni hrlm.
17 þúsund krónur í skaðabætur og 3 þús. í málskostnað,
vegna meiðsla er hann hlaut af voldum lögreglunnar
í Reykjavík.
Útlán bankans sem eru aðal-
lega á liðunum í reikningslán-
um, hlaupareikningi og víxl-
um, höfðu aukist um ca. 30
niiljónir. Nema þessir liðir
nú rúml. 76 miljónum. Fast-
eignir bankans og útbúanna
eru bókfærðar kr. 589,000.
Inneignir í erlendum bönkum
voru rúmar 21 miljón og
.höfðu hækkað um tæpar 11
milj. á árinu.
Handbært fje innanlands (sjóð
ur og innstæða í Landsbanka
Islands) rúmar G milj. og bafði
bækkað um 5,7 milj. á árinu.
Gc-rði formaður þá grein fyrir
þcirri lækkun, að vegna hinna
miklu erlendu viðskifta, liefði
bankinn notað mikið fje til
aukningar innstæðu erlendis,
oins og áðnr var drepið á._____
Á eignahlið reikninga banls-
ans undanfarin ár hefir verið
liður, sem nefndur hefir verið
afskriftareikningur. Um áramót-
in 1941—1942 var þcssi liður 2
miljónir. Voru það raunverulega
töp. sem urðu til á kreppuárum
Islandsbanka og fyrstu árum
Utvegsbankans, cn sern bankann
skorti fje á móti. Nú er þessi
reikningur úr söguúni, og er full
ástæða til að samfagna bank-
anum með að sá draugur sje
niðurkveðinn.
Helstu breytingar á skuldahlið
efnahagsreikningsins eru þessar:
Áliættufjeð, (þ. e. skuld bankans
við ríkissjóð Dana), sem í árs-
lok 1941 nam rúml. 2,5 milj. kr.
er horfið af reikningnum. Bank-
inn hefir greitt það að fullu.
Hlaupareikningur var 421/-; milj.
og liafði hækkað um rúmar 22
rnilj. á árinu. Sparisjóðsfje var
43 milj. og hafði aukist um
1U/2 milj. jtessir innstæðuliðir
höfðu því aukist um 33% milj.
Skuldir í eriendum bönkum
voru 2,3 milj. og höfðu lækkað
um 1% milj. Engin veðbönd
hvila nú á fasteignum hankans.
Ábyrgðir vegna viðskiftamanna,
en þær eru aðallega ‘banka-
trygging fyrir vörukaupum er-
lcndis, voru 26,4 milj. og höfðu
aukist um 16,7 milj. á árinu.
Ber þetta vott um mikil við-
skifti.
Gepgisreikningur (sem á að
mæta gengistöpum sem kynnu
að verða á erlendum viðskiftum)
var 1,5 milj. og hafði aukist um
Vs milj.
Loks eru tveir nýjir liðir á
reikningnum: Afskriftafreikn-
ingur: — sem á að mæta töpum
á útlánum sem kunna að koma
fyrir 1 milj. og varasjóður kr.
292.616. — Samkvæmt rekstur-
reikningi hafa tekjur bankans
numið ca. kr. 5,773,000, þar af
hagnaður af erlendum verð-
brjefaviðskiftum kr. 1,090,000.
Er sá hagnaður svo til kominn
að bankinn hefir 2 síðastliðin
ár keypt dönsk dollara-ríkis-
skuldabrjef, og notað þau til að
ljúka skuldinni við ríkissjóð
Dana, sem áður var minst á.
Er það í samræmi við samning
sem gerður var við rikisstjórn
Dana um það leyti sem I)an-
xnörk var hemumin. I'egna
lágs gengis á þessum brjefum í
Ameríku hefir orðið mikill hagn-
aður á kaupunum. Kostnaður af
bankarekstrinum hefir numið
kr. 1.342.000, og er því ágóði
bankans rúml. kr. 4.431.000 auk
yfirfærslu frá fyrra ári, rúml.
43.000. þessu fje sem var sam-
tals ki’. 4.475.000.51, var l> til
að yrði ráðstafað á þessa leið:
Til eftirlaunasjóðs starfs-
manna kr. 200.000, til afskriftar-
reiknings kr. 3.000.000, þar af
fara 2 milj. til lúkningar hinum
gamla afskriftarreikningi eins
og áður er sagt.
Til gengisreiknings kr. 500.000.
Til afskriftar af húseign hank-
ans í Reykjavík ca. kr. 322.488.84
Til varasjóðs 4% af hlutafjenu
kr. 292.616.00, Til næsta árs yf-
irfært kr. 159.955.67.
Formaður fulltrúaráðsins fór
síðan nokkrum orðum um hag
bankans, sem hann trddi nú
góðan, en gat þess, að vegna ó-
vissu þeirrar sem framundan
væri, hefði ekki verið talið rjett
að greiða hluthöfum arð og að
fjármálaráðherra, sem fer með
hluti ríkissjóðs og hefir alt afl
atkvæða á hluthafafundi, hefði
verið því samþykkur.
Tillaga frá einum hluthafa
um að greiddur yrði 4% arður
var feld af fjármálaráðherra.
Formaður fulltrúaráðsins ljet
þess getið að nefnd sú, sem
skipuð hefði verið til að meta
hlutabrjef bankans, út af vænt-
anlegum kaupum ríkissjóðs á
hlutabrjefum innstæðueigenda í
Islandslbanka hefði nýlega skil-
að áliti til ríkisstjómarinnar og
hefði hún komist að þeirri nið-
urstöðu að hlutabrjefin væru að
minsta kosti í nafnverði.
Endurskoðendur bankans, þeir
Björn Steffensen endurskoðandi
og Haraldur Guðmundsson for-
stjóri vom báðir endurkosnir.
Samþykt var samkvæmt til-
lögu stjórnar bankans að gefa
50.000 kr. í byggingarsjóð dval-
arheimilis aldraðra sjómanna.
BÍLAHAPPDRÆTTI
FRJÁLSLYNDA
SAFNAÐARINS
FRJÁLSLYNDI SÖFNUÐ-
URINN hefir efnt til bíla-
happdrættis til ágóða fyrir
kirk.juhyggingu safnaðarins
og verður clregið í happdrætt
inu næstk. | : iðjudag. BíHiiin,
sem dregið verður um er nýr
„Plymouth-Special de Lux“,
módel 1942.
Eftir munu vera aðeins fá-
einir miðar í happdrættinu og
má búast við að þeir sel.jist
allir. Er eftirspurn eftir mið-
um svo mikil, að safnaðarfólk,
sem kann að hafa óselda miða,
er kvatt til að gera skilagrein'
fyrir kvöldið í kvölcl til bess
að hægt sje að koma óseldum
miðum á markaðinn.
Miðar verða seldir í bif-
reiðinni á götunum báða
hvítasunnudaganna.
Valsmenn. Farið verður í
byggingu skíðaskálans annað
kvöld kl. 6—7. Reisuhátíð um
hvítasunnuna.
Aftur á móti sýknaði
Ilæstirjettur bæjarsjóð Reykjá
víkur í jiessu máli, en Lárus
gerði kröfu til skaðabóta af
báðum í sameiningu, bæjar-
sjóði og' ríkissjóði, samtals
rúmar 50 þús. kr. í undir-
rjetti voru Lárusi tildæmdar
20 • þús. kr. í skaðabætur, er
báðir fyrn. aðiljar skyldu
greiða.
I forsendum dóms Ilæsta-
rjettar segir svo:
„Lögreglumenn þeir, sem í
máli þessu greinir, voru að
rækja störf sín í lögreglu
Reykjavíkur, þegar gagná-
frýjandi hlaut lemstur sitt.
Yfirstjórn lögreglu Reyk.javík
ur og ákvarðanir urn fram-
kvæmd hennar eru falin hand
höfum ríklsvalds. Athafnir
lögreg'lu þessarar eru því þátt
ur. í beiting ríkisvalds, enda
eru lögreglumennirnir um
meðferð starfa sína ekki háð-
ir' st.jórnvöldum Reykjavíkur.
Eru þess vegna ekki efni til
þess að greiða gagnáfrýjanda
bætur úr bæjarsjóði Reykja-
víkur og breytir það ekki þess
ari niðurstöðu, þótt annar
lögreglumannanna tæki laun
sín úr nefndum bæjarsjóði
og bæjarstjórnin hafi haft
hönd í bagga um skipun hans.
Ber því að sýkna borgar
st.jóra Reykjavíkur f. h. bæ.j-
arsjóðs, en málskostnaður
gagnvart honum þykir eiga
að falla niuðr.
Kemur þá til álita krafa
gagnáfrýjanda á hendur ríkis
sjóði. Það verður ekki talið
lögreglumönnunum til áfellis,
þótt þeir skærust í leikinn, er
gagnáfrýjandi ör af víni var
að skifta sjer af ölvuðum er-
lendum sjóliða, sem herlög-
reglumaður var að taka fast-
an. Ilins vegar þykir það
sýnt, að lögreglumennirnir
hafa tekið gagnáfrýjanda of
hörðum tökum og það jafn-
vel jiótt óhrakin sje sú stað-
hæi'ing þeirra, að hann liafi
reynt að gera tilraunir til
mótspyrnu.
Rjettlátt þykir og eðlilegt,
að þjóðfjelagið beri ábyrgð
á mistökum sem þessum, að
því leyti sem þau teljast op-
inberum starfsmönnum til ó-
gætni, en verða ekki rakin til
hattsemi þess aðiija, sem tjón-
ið bíður. Yirðist sú meðferð
máls og leiða til aukins ör-
yggis þjóðfjelagsþegnum og
miða til varnaðar.
Samkvæmt atriðum jieim
öllurn, sem ni! var lýst, þykir
rjett að dæma fjármálaráð-
herra f. h. ríkissjóðs til að
greiða gagnáfrýjanda bætur,
er þykja hæfilega ákveðnar
kr. 17.000.00. — Ennfremur
greiði ríkiss.jóður 3 þús. kr.
í málskostnað".
Prestafjelag
íslands ára
Aðalfundur
26. þ. m.
PRESTAFJELAGS IS-
LANDS verður 25 ára í lok
þessa mánaðar. Verður af-
jmælisins minst með því, að
birt verður í næsta hefti
Kirkjuritsins saga fjelagsins
alt frá stofnun þess. Söguna
rita þeir guðfræðiprófessor-
arnir Ásmundur Guðmunds-
son og Magnús Jónsson.
Aðalfundur prestafjelags-
ins verður haldin 26. júní í
Háskólanum. Áður en gengið
verður til fundarstarfanna,
eða kl. 9,30, flytur sjera
Bjarni Jónsson vígslubiskup
morgunbænir í Háskólaka-
pellunni.
Klukkan 10 ávarpar for-
maður fjelagsins, prófessor
Ásmundur Guðmundsson
fundarmenn og gefur skýrslu
um störf fjelagsins og fjár-
hag. Síðan verða umræður
um skýrsluna.
Klukkan_ 14 flytja fram-
söguræður'um efnið .,Þjóð-
erni og kirkja“ þeir sjera
Eiríkur Bryn.jólfsson . á Út-
skálum og s.jera Páll Þor-
leifsson á Skinnastað.
Kl. 17 verða framhaldsum-
ræður um „Þjóðerni og
kirkju“, en að þeim loknum
verða tekin fyrir mál, sem
upp kunna að verða borin.
Síðan verður kosin stjórn og
endurskoðendur.
Klukkan 19 flyitur sjera
Stefán Snævarr á Völlum í
Svarfaðardal kvölclbænir í ka-
pellunni.
Um kvöldið verður sam-
eiginlegur kvöldverður fund-
armanna í Háskólanum.
Það má búast við því, að
þessi aðalfundur Prestafje-
lagsins, sem haldinn er á
þessum merku tímamótum í
sögu fjelagsins, verði fjöl-
sóttur.
Sigurður Eggerz bæ.jarfó-
geti á Akureyri dvelur hjer
í bænum þessu dagana.
Fjalakötturinn sýnir liinn
ný.ja íslenska gárnanleik
„Leynimel 13“, næstk. mánu-
dag (2. hvítasunnudag) og
þriðjudag kl. 8 bæði kvöldin.
Raunaheimili hjálparþurfi:
Afhent sjera Sigurbirni Ein-
arssyni: frá J. E. 10 kr.,
Brúðhjónum 25 kr., Ónefnd-
um 5 kr., Ónefndum 50 kr.,
N. N. 50 kr.
PANTELLAÍA
Framh. af 1. síðu.
þessi fyrsti landskiki, er til
Evrópu er talin. gekk ítöl-
um úr greipum.
ÁRÁSIR ÞÝSKRA
FLUGVJELA
Þegar bandamenn voru
að setja lið sitt á land á
Pantellaria, komu 60 þýsk-
ar steypiflugvjelar og
gerðu árás á skip og lend-
ingarbáta. Þýsku flugvjel-
arnar komu gegnum regn-
skúr og sáust seint. Sjónar
vottar segja, að ekkert
breskt skip hafi orðið fyrir
sprengjum.
Þýsk blöð halda því fram
að bestu hersveitir ítala,
sem barist hafa í Rússlandi,
Frakklandi og Grikklandi,
verði nú settar til þess að
verja meginland Italíu, og
hafi þær þegar tekið sjer
stöðu. Einnig er svo sagt í
þýskum blöðum, að víða á
Suður-Ítalíu sjeu mikil sam
gönguvandræði vegna loft-
árása bandamanna.
íítölsk blöð hrósa því
mjög, að setuliðið á Pant-
ellaria skuli tvisvar hafa
neitað uppgjöf, áður en það
ljet undan.
Hjónaband. I dag verða
gefin saman Jóhanna Ingii
mundardóttir og Björn Sig-
urðsson, byggingameistari frá
Yestmannaeyjum. Brúðhjónin.
dvelja, fyrst um sinn á Vest-
urgötu 48.
Fimleikasýning Glímufje-
lagsins Ármanns, sem fram
átti að fara á íþróttavellin-
uh í gærkvöldi, fjell niður
vegna veðurs. Sýningin fer í
þess stað fram á annan hvíta-
sunnudag, kl. 5 e. hád.
Raunaheimili hjálparþurfi.
Erla, Maggi, Magnús og Reyn
ir 50 kr„ R. S. 10 kr„ M. 10
kr„ J. II. 5 kr„ Móðir og
sonur 49 kr., Guðrún S. 10
kr. N. N. M. 15 kr.
j Kaffistell j
• •
J fyrir 6, hvít, á 60 kr. J
2 fyrir 12, hvít, á 90 kr. I
• / •
S MATARSTELL Z
J hvít, fyrir 6 og 12. J
2. Einnig ódýr vatnsglös, 2
2 Glerskálar, Vasar, «
l Sykursett, Kökuföt o. fl. •
I STÓRIR SPEGLAR í
• •
• nýkomnir. •
• •
i K. Einarsson j
j & Björnsson j
«[•»•«•••••••••• ••••••••;
IJppboð.
Opinbert uppboð verður
haldið við vörugeymsluhús
Eimskips á hafnarbakkanum,
í dag kl. 2 e. hád. og verða
þar selclir ca, 200 kassar af
appelsínum, sem skemst hafa,
Greiðsla fari fram við
hamarshögg.
Lögmaðurinn
í Reykjavík.