Morgunblaðið - 17.06.1943, Side 6
6
M O R G U N B L A Ð T Ð
Fimtudagur 17. júní 1943.
Íflox'íjtmiWaíiiti
Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík
Framkv.stj. Sigfús Jónsson
Ritstjórar:
Jón Kjartansson,
Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.)
Auglýsingar: Árni Óla.
Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla,
Austurstrœti 8. — Sími 1600.
Áskriftargjald: kr. 7.00 á mánuði
innanlands, kr. .10.00 utanlands.
í lausasölu 40 aura eintakið, 50 aura með Lesbók.
Seytjándi júní
í DAG minnast íslendingar Jóns Sigurðssonar forseta,
þess manns, sem skipar þann sess í huga þjóðarinnar, að
afmælisdagur hans er að verða allsherjar þjóðhátíðar-
dagur.
Minningin um Jón Sigurðsson er í huga þjóðarinnar
fyrst og fremst tengd langri og þrautseigri frelsisbaráttu,
þar sem hann hafði giftusamlega forustu. Það voru verk
hans, að lagður var grundvöllurinn að stjórnarfarslegrij
sjálfstæði þjóðarinnar — fyrst með stjórnarbótinni 1874,
næst með heimastjórninni 1904 og loks með fullveldis-
viðurkenningunni 1918,
Þessir sigrar í sjálfstæðisbaráttunni voru verk Jóns
Sigurðssonar.
★
En íslenska þjóðin hefir einnig unnið aðra sigra með
því að fylgja hugsjón þessa mjkla foringja. Jón Sigurðs-
son var ekki eins stórvirkur athafnamaður í stjórnmála-
baráttunni. Hann var einnig brautryðjandi á sviði verk-
legra framkvæmdá í landinu. — Hann trúði því, að ef
þjóðin yrði vakin til starfa eftir aldakúgun og þjáningar,
myndi enn sá dugur í henni, að hún yrði þess megnug,
að leggja grundvöll að nýju menningarríki, sem trygði
framtíð lands og þjóðar. Á öllum sviðum athafnalífsins
var hann hvetjandi. Hann skrifaði ótal greinar um at-
vinnuvegina, — landbúnað', sjávarútveg, iðnað, verslun
og siglingar^ Allstaðar var sama víðsýnið og þekkingin.
Það má því vissulega með rjettu segja, að þær risa-
vöxnu' framfarir á sviði atvinnulífsins, sem hafa orðið
hjer á Iandi eftir heimastjórnina 1904 og einkum eftir
fullveldisviðurkenninguna 1918, sjeu verk Jóns Sigurðs-
sonar fyrst og fremst. Honum tókst að vekja þjóðina til
starfa og dáða.
Og enn í dag getur íslenska þjóðin unnið sigra, stjórn-
arfarslega og á sviði verklegra framkvæmda, í anda Jóns
Sigurðssonar. Svo framsýnn og stórhuga var hann.
★
Sú kynslóð, sem nú er uppi, hefir tiltölulega lítið haft
að segja af sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar. Það eru að
vísu nokkrir einstaklingar, sem jafnan hafa vakað yfir
hugsjón Jóns Sigurðssónar, og þessvegna hafa sigrarnir
unnist. Allur fjöldinn hefir ekkert fyrir þessu haft. En
þjóðin í heild hefir notið ávaxtanna. Hinu aukna stjórn-
arfarslega frelsi fylgdi jafnan aukið -athafnafrelsi þegn-
anna. Þeir gátu þessvegna unnið nýja sigra á sviði at-
vinnulífsins.
En þótt þessi kynslóð hafi fengið í hendur sigrana í
sjálfstæðisbaráttunni án verulegrar fyrirhafnar, og án
fórna, er skylda hennar að varðveita frelsið og tryggja
framtíð þess. í þessu máli má aldrei vera svefn eða and-
varaleysi. Aldrei fresta því til morguns, sem hægt er að
gera í dag.
Nú liggur næst fyrir að ganga formlega frá framtíð-
ar stjórnskipan landsins, — stofna lýðveldið. Þetta á að
gerast á næsta ári. Á næsta afmælisdegi Jóns Sigurðs-
sonar verður lýðveldið stofnað, ef ekkert óhapp kemur
fyrir. Upp frá því verðúr dagurinn lögboðinn þjóðhátíð-
ardagur.
Ef ekkert óhapp kemur fyrir —? Er nokkur sjáanleg
hætta á ferðum ? Liggur ekki brautin bein og greið fram
undan?
Eina Sjáanlega hættan í augnablikinu er sundrung
þjóðarinnar sjálfrar. Það eru þegar komnar fram raddir
er segja: Ekkert liggur á; við getum beðíð með að stofna
lýðveldið! Eftir hverju á að bíða? Eftir því, að erlend
stjórnarvöld fari að hlutast um okkar mál? Er það
heppilegasta úrræðið til að tryggja sjálfstæði landsins?
Hvað mfemdi Jón Sigurðsson hafa sagt við því?
Vonandi skeður ekkert óhapp. Ef forráðamenn þjóð^
arinnar starfa í anda Jóns Sigurðssonar, mun vel fara.
Heiðmörkin
Skógræktarfjelasið
hefir safnað 25
þúsund krónum.
UNDANFARJN ár hefir
Skógræktarfjelagið unnið
að því að landspilda sú, er
fengið hefir nafnið Heið-
mörk, yrði eign bæjarins og
fengi algerða friðun.
Er þetta, sem"kunnugt er,
gert til þess, að land þetta
verði í framtíðinni friðland
Reykvíkinga og þar geti
vaxið birkiskógur.
Þó landið hafi alt frá
fyrstu bygð verið notað til
sauðbeitar, þá eru þar enn
í dag nokkrar skógarleifar.
Annars er allmikið af
landi þessu lítt gróið hraun
sem með friðun myndi til-
tölulega fljótt gróa ypp og
að einhverju leyti klæðast
skógi, því í hraungjótunum
eru víða birkiplötnur.
Til þess að hrinda frið-
uninni áleiðis, tók Skógrækt
arfjelagið sjer fyrir hendur
að kaupa gaddavír í girð
inguna, meðan hann var
ekki eins dýr og torfenginn
eins og hann er nú.
Hafa velunnarar fjelags-
ins og vinir þessa málefnis
skotið saman fje til girð-
ingarinnar og það svo miklu
að nú eru fyrir hendi um
10 þúsund krónur umfram
andvirði gaddavírsins. —
Verður því fje varið til þess
að festa kaup á girðinga-
staurum. Girðingin utan um
landið verður um 22 kíló-
metrar á lengd. En landið
er samtals 27 ferkílómetrar
eða um 2700 hektarar.
Þegar minkar um atvinnu
í bænum, og fullunnin eru
þau nauðsynjaverk sem
bærinn hefir nú með hönd-
um, er ætlast til þess, að
bærinn annist að koma
girðingunni upp. En það
verður sennilega að bíða til
næsta árs.
Mest af þessu landi er í
eign bæjarins og ríkisins.
En eignarnáms heimild er
fyrir því landi, sem er í ein
stakra eign.
Skógræktarfjelagið er
þeim mönnum mjög þakk-
látt, er lagt hafa fram fje
til þess framtíðarmáls bæj-
arbúa og þeim, sem starfað
hafa að fjársöfnuninni
----------------- ir
Landsfundur
Sjáifstæðis-
fiokksins settur
í DAG kl. 5 síðdegis verð-
ur Landsfúndur Sjálfstæðis-
flokksins Séttur, í SýningaF
skálanum við Kirkjustráeti.
Formaður Sjálfstæðisflokks
ins, Ólafur Thors, flytur
ræðu um stjórnmálin síðustú
árin og viðhorfið í latidsmál-
nnuiii.
Aúk kjörinna fulltrúa geta
aðrir S.jálfstæðismenn, meðan
húsrúm levfir, sótt fundinu,
en þurfa að fá s.jer aðgangs-
kort, annaðhvort á skrifstofu
flokksins eða við inngang-
inn áður en fundurinn hefst.
Óvegleg leið-
armerki
VÖRÐURNAR gömlu á fjalla-
vegunum voru og eru góð leið-
armerki. Margur maðurinn
hefir til bygða komist heill á
húfi úr stórhríð með hjálp varð
anna. En nú er öldin önnur. —
Bílarnir hafa breytt ferðalög-
unum og nú eru komin ný leið
armerki meðfram vegum lands
ins, leiðarmerki. sem sannar-
lega eru óveglegir arftakar
gömlu varðanna Hjer er átt
við flöskur og flöskubrot, tóm-
ar niðursuðudósir og pappírs-
rusl og aðrar umbúðir.
Mjer er sagt, að bílstjóri
einn, sem fór „hringinn“ svo
kallaða, kringum Þingvallavatn
hafi talið milli 30 og 40 tómar
áfengisflöskur við veginn á leið
sinni! Þetta er sannarlega ekki
fallegt, ef rjett er hermt.
Nú er ferðafólk að fara í
sumarfrí, eða í stuttar skemti-
ferðir út í guðsgræna náttúr-
una. Það er siður að hafa með
sjer bita í slík ferðalög og því
miður er það ekki af ástæðu-
lausu, að fólk er mint á, að
kasta ekki frá sjer umbúðum
af mat, sem það hefir með sjer
á bersvæði. Það er svo ákaf-
lega lítil fyrirhöfn, að safna
saman umbúðum og leyfum og
grafa það niður, eða koma því
fyrir í gjótu og láta stein yfir.
Hver einasti maður vill hafa
hreint og þokkalegt á heimili
sínu. Við megum ekki heldur
vera sóðar úti í náttúrunni.
þar sem við njótum ánægju-
legra stunda.
Sjerstaklega þarf að brýna
fyrir fólki, sem heimsækir sögu
staði, eins og t. d. Þingvelli,
að gera þessa helgu staði ekki
að „svínastíum“. Hundruð er-
lendra manna heimsækja sögu-
staði okkar í sumar. Ef þeir
eru útataðir í matarleifum og
umbúðum af mat, þá mun
menningarástand þjóðarinnar
verða dæmt efíir því. En það
er þó fyrst og fremst vegna
okkar sjálfra, sem við verðum
að sýna hreinlæti, hvar sem
við erum stödd á landinu.
#
RáSherrahús-
ið og risnan
Borgari skrifar:
„FÓLK veitti því á sínum
tíma athygli, að þegar forsæt-
isráðherra tók á móti gestum
á nýársdag í vetur var það gagn
stætt venju gert í Stjórnar-
ráðinu. Slíkar móttökur hafa
verið tíðkaðar áður, en þá far-
ið fram á heimili forsætisráð-
herra. Nú nýlega var aftur frá
því sagt, að ríkisstjórnin hafi
haft gestaboð og nú í þinghús
inu. Um það er auðvitað ekki
nema gott að segja, að uppi
sje haldið opinberri risnu. —
Nauðsyn þess skilja allir. En
fólk furðar á því, að Stjórn-
arráðið og þinghúsið skuli gert
að slíkum drykkjustöðum. •—
Fólk veit ekki betur en ríkis-
stjórnin ráði yfir sjerstökum
bústað, sem til slíkrar risnu
:sje æUaður. Sem sje forsætis-
ráðherrabústaðnum.
Raunar er sagt, að hvorki
núverandi forsætisráðherra nje
sá, sem næstur var á undan
honum, hafi flutt í þann bú-
stað, heldur hafi þeir báðir
leigt hann út. í sjálfu sjer er
ekkert við því að segja, en
fólki finst, að ef forsætisráð-
herra vill heldur fá leigutekj-
urnar en búa þai'na sjálfur,
eigi hann heldur að nota þær
til þess að leigja húsrými fyrir
óhjákvæmileg samkvæmi held-
ur en að hafa þau í þinghús-
inu eða stjórnarráðinu.
Best væri samt, að ráðherra
bústaðurinn við Tjarnargötu
væri sjálfur notaður til þess-
ara hluta en ekki eingöngu sem
leiguhús, er forsætisráðherrar
taki tekjur af. Jeg hefi heyrt
marga hafa orð á þessu og
vona að þessi vinsamlega
bending verði tekin til greina,
og allra síst má skilja hana
svo, að verið sje að draga úr
að landið haldi uppi eðlilegri
risnu, heldur til að greiða fyr-
ir að hún geti átt sjer stað.
Stu.ndvísi
strætisvagna
VERKAMAÐUR, búsettur í
Hafnarfirði, kvartar undan því
hve misfellasamt það sje, að
strætisvagnarnir, er fara eiga
úr Hafnarfirði, kl. 7 á morgn-
ana, leggi af stað á rjettum
tíma.
Hann segir, að það hafi
komið fyrir, að vagnar þessir
sjeu jafnvel 15—20 mínútum
á eftir áætlun Þetta kemur
þeim illa, sem stunda atvinnu
hjer í Reykjavík, og eiga að
mæta stundvíslega til vinnu
sinnar.
Spyr hann, hvort eigi muni
vera hægt að fá lagfæring á
þessu.
©
Ógeðsleg
sjón við
Tjörnina
VEGFARENDUR. er gengu
framhjá Tjörninni í góða veðr-
inu á fimta tímanum í gær,
sáu ógeðslega sjóri.
Lokan, sem er fyrir Lækn-
um. til þess að sjór renni ekki
inn í Tjörnina á meðan verið
er að vinna við afrenslið í
Tjarnargötu, hafði verið tekin
burt og vegna þess að hásjáv-
að var, streymdi sjórinn inn
í Tjörn. En það var ekki nóg.
Með sjónum streymidi inn í
Tjörn það, sem virtist vera
afrensli úr öllum vatnssalern-
um í Miðbænum. Geta menn
gert sjer í hugarlund viðbjóð
vegfarenda, að sjá saurinn og
salernispappírinn velta í stríð-
um straum inn í Tjörnina.
Fyrir utan andstygðina, sem
þetta hlýtur að vekja hjá þeim
sem framhjá Tjörninni ganga
virðist ekki fjarri sanni að
ætla, að þessi óþrif, geti blátt
áfram verið heilsuspillandi.
Hjer Verðá heilbrigðis- og
hreinlætisyfirvoldin að taka í
taumana, og gera ráðstafanir
til að slíkt sem þetta komi ekki
fyrir aftur.
Það virðist vera kaldhæðni
örlaganna, að atvik eins og
þetta skuli koma fyrir í sjálf-
um ,,hreinlætismánuðinum“.