Morgunblaðið - 28.07.1943, Blaðsíða 1
Vikublað: Isafold.
30. árg'., 167. tbl. — Mivikudagur 28. júlí 1943.
Isafoldarprentsmiðja h.f.
ÞJÚÐVERJAR VIRÐAST NÚ
IIMIR
UM VÚRIM SIKILEYJAR
HJER BJÓ MUSSOLINI
Myndin sýnir Palazzo de Venetia í Róm, þar sem
Mussolini bjó, áður en hann fór í sumarbústað.
Hafa gert hörð
gggndhlaup
Flytja að sjer liðs-
auka í flugvjelum
London í gærkvöldi. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
FRJETTARITARAR vorir með herjum bandamanna á
Sikiley álíta, að Þjóðverjar sjeu nú einir um vörn eyj-
arinnar. Hafa þeir verið fyrir á öllum vígstöðvum. —
Flytja þeir stöðugt liðsauka loftleiðis til vígstöðvanna
norðaustan á eihni, en hringurinn um vígstöðvar þeirra
þrengist stöðugt. I dag gerðu þeir feikna hart gagn-
áhlaup á sveitir Kanadamanna á miðvígstöðvunum, því
var hrundið, en það sást á snerpunni, að hjer gátu ekki
ítalir verið að verki, en fyrr höfðu þeir þó varið þessar
stöðvar.
*
A Frasico
að fara
líka?
London í gærkveldi
ÞÝSKA frjettastofan sagSi
í kvöld, aíS spönsku örygg-
isyfirvöldin hafi orSið að
grípa til mjög strangra ráð
stafana, til þess að halda
uppi reglíi. Enn fremur var
sagt, að konungssinnar þar
í landi væru nú undir eft-
irliti. —Reuter.
★
Sjerstaklega er vakandi
auga haft á þeim, sem skrif-
að hafa undir ávarp um það,
að Spánn verði aftur kon-
ungsríki. Foringi konungs-
sinna, Juan Venetos hefir
verið sviftur vegabrjefi sínu.
Spánska útvarpið hefir í
kvöld haft í hótunum við „þá,
sem vilji leggja út í fjár-
hættuspil vegna eiginhags-
muna sinna, og þá, sem hafa
látið vissan áróður hafa áhrif
á sig“, eins og komist er að
■orði, og bætt við: „Allir svik-
arar skulu vita að þeir eiga
eltki von á góðu“. —Reuter.
Mussolini
í sumar-
bústað
Madrid í gærkveldi.
Einkaskeyti til Mbl
frá Reuter.
FERÐAMENN, sem hing-
að eru komnir loftleiðis frá
Eóm, skýra svo frá, að Muso-
lini dvelji nú í sumarbústað
sínum í Ostia. Áður höfðu
frjettastofu vorri borist
fregnir frá Sviss, þess efnis,
að Mussolini væri í fangelsi,
og ennfremur, að herforingj-
ar nokkrir hefðu komið í veg
fyrir að hann færi til Þýska-
lands. Var sú fregn af sænsk-
urp rótum runnin.
Ferðamennirnir frá Mad-
rid sögðu ennfremur, að
Mussolini hefði orðið að
segja af sjer, vegna þess að
hann hefði stutt kröfu Þjóð-
verja um að yfirgefa Suður-
og Mið-Italíu og verjast norð-
ar. En eftir að Þjóðverjum
var sagt að ítalir yrðu að
liætta þátttöku í stríðinu, ef
alt landið yrði ekki varið,
gengust Þjóðverjar inn á að
hjálpa til þess.
Barist til úr-
slita við
Munda
BANDARÍKJAMENN á
Nýju-Georgiu hafa nú hafið
allsherjarárás á stöðvar Ja-
pana við Munda-flugvöllinn,
og hefir talsmaður Mac Art-
hurs sagt, að nú verði barist
til úrslita. Eru orustur hin-
ar grimmilegustu.
Bandaríkjaflugvjelar vörp-
uðu 8 smálestum af sprengj-
um á flugvöllinn í árás í gær,
en herskip hafa auk þess
skotið á stöðvar Japana
þarna. —Reuter.
Ekki ú skamma
Italíukonung
— segir Roosevelt
Washington í gærkveldi.
ROOSEVELT sagði á
blaðamannafundi í dag, að
hann vildi, að ekki hefði ver-
ið ráðist á Ítalíukonung, eins
og gert var í útvarpi upp-
lýsingadeildarinnar í Banda-
ríkjunum. Sagði forsetinn, að
hann hefði aldrei samþykt,
að ófvirðuleguim orðum um
Viktor Emanuel væri útvarp-
að til Ítalíu, og þetta hefði
heldur ekki verið samþykkt
af þeim sem yfirumsjón hefir
með s'líkum útvarpssending-
um, og myndi mál þetta
verði rannsakað. —Reuter.
Italska stjórnin
er fyrst og
fremst stríbs-
stjórn
London í gærkveldi.
TIKKYNT var í Róm í
kvöld, að ihlutverk hinnar
nýju ítölsku stjórnar væri
fyrst og fremst að ráða fram
úr hemaðarlegum vandamál-
um. Síðan var sagt: „Bado-
glio er hermaðm', nauðsyn-
legur til þessara starfa. Hin
nýja stjórn er framkvæmda-
söm stjórn. Stríðið heldúr á-
fram þrátt fyrir allar raunir
og allar fórnir, sem færðar
hafa verið, og sem enn munu
verða færðar af fúsum vilja.
—Reuter.
Roosevelt
flytur ræðu
í dag
London í gærkveldi.
ROOSEVELT forseti mun
í dag flytja þýðingarmikla
ræðu, og mun hann þar
meðal annars gera að um-
ræðu stjórnarskitin á Ítalíu.
Búist er við að ræðan standi
yfir um hálfa klukkustund.
—Reuter.
Mikill
fögnuður
ítala
London í gærkveldi.
FRJETT, sem hefir borist
til Ziirich frá Chiasso við
landamærin milli Italíu og
Sviss, segir frá því að ítalir
fagni mjög stjórnarskiftun-
um. Hafi fánar hvarvetna
verið dregnir að hún, að því
er fregn þessi hermir, lík-
neski af Garibaldi eru hulin
blómum, og fólkið dansar á
götum úti, en lúðrasveitir
leika á torgum borganna. —
Hermir fregnin, að langt sje
síðan, að fánar hafi svo al-
ment verið dregnir að hún í
Italíu. —Reuter.
Nýi Garð-
urvígðurá
laugardag
Nýi Stúdentagarðurinn verð
m' vígður næstkomandi laug-
ardag, 31. þ. m„ og hefst at-
höfnin kl. Sy^ að kvöldi.
FORSETASKIFTI í
ÖLDUNGADEILD
ÍTALA
Tilkynt var í Róm í kvöíd,
að forseti öldungaráðs Itala,
Suai'do greifi hefði beðist
lausnar.
Líklegt er talið, að það:
hafi verið sveitir úr 15. skrið
drekaherfylkinu þýska, sem
þetta áhlaup gerðu. — Á víg-
stöðvum áttunda hersins hafa
framvarðaskærur átt sjer
stað, en breytingar engar
orðið.
ERFIÐ AÐSTAÐA
Áttundi herinn á þarna
mjög erfiða aðstöðu, hann
verður að sækja á ramgervar
varnarstöðvar, sem óvinirnir
hafa sjálfir kosið
sjer, og þar að auki yfir
sljettu, þar sem altaf sjest of-
an úr hæðunum til hverrar
hreyfingar, og þegar er hellt
kúlnaregni yfir hvern þann
skriðdreka, sem sækir fram.
Auk þess er svo heitt þarna
á sljettunni, að menn eru
mestan hluta df»sins svo
magnþrota af hita, að þeir
geta sig varla hreyft, hvað
bá heldur barist. Og er nær
dregur varnarstöðvum Þjóð-
verja, eru kvnstur af jarð-
sprengjum í jörðu hvarvetna.
BANDARÍKJAMENN
Bandaríkjamenn sækja
fram frá Palermo. Mótspyrna
er lítil, en margt að gera á
leiðinni. llafa-enn verið tekn-
ir nokkrir ítalskir fangar.
Als eru nú fangarnir orðnir
meira en 70.000 talsins. —<
Frjettaritarar vorir hafa það
eftir fróðum- mönnum, a'ð
Þjóðverjar muni > ætla að'
verja horn Sikileyjar meðan
nokkur kostur sje, til þess að
geta eflt varnir meginlandsins
á meðan.
HERLIÐ 1 FLUGVJELUM
Þjóðverjar hafa hjer tekið
upp sinn gamla sið, að flytja
liðsauka að sjer í hinum
stóru Junkers 53 flutninga-
Franfh. á 2. síðu.