Morgunblaðið - 28.07.1943, Side 12
12
Miðvikudagur 28. júlí 1943.
HÆFT MEÐ TUNDURSKEYTI EN
KOMST UNDAN
Þetta er eitt af mörgum ski'pum bandamanna, sem
orðið hefir fyrir tunáurskeyti þýsks kafbáts, en samt
komist til hafnar, þar’sem hægt var að gera við skemdir
]>ess.
Vjer berjumst áfram,“
„ítalska stjórnin hefir
engra samninga leitað
— segir Ch urchill
London í gær. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
CHUR|CHILL FORSÆTISRÁÐHERRA gerði stjórn.
arskiftin á Ítalíu að umræðu í neðri málstofu breska
þingsins í dag, og var fjöldi áheyrenda mikill. Forsæt-
isráðherjrann gaf þær upplýsingar, að hin nýja stjórn á
Italíu hefði ekki leitað neinna samninga við bandamenn
og hjeldi því stríðið gegn ítölum áfram.
Drengfamót
Armanns
IIÍÐ ÁRLEGA drengjamót
Ár-manns hefst á Iþróttavell-
inum ví kvöld kl. 8. Mótið
heldur svo áfram annað
kvöld og líkur þá að forfalla
lausu.
Skráðir þátttakendur eru
41 frá 4 fjelögum í Reykja-
vík og Ilafnarfirði, 13 frá
Ármanni, 11 frá I. R., 10 frá
K. R. og 7 frá F. H. — 1
kvöld verður kept í 80 m.
hlaupi, kringlukasti, lang-
stökki, hástökki og 1500 m.
hlaupi og- 1000 m. boðhlaupi,
ef hlaupabrautin verður kom-
iní það ástand, að hægt verði
að keirpa á henni. — Annað-
kyöld verður svo kept í stang
arstökki, kúluvarpi, þrístökki
spjótkasti, 400 m. hlaupi og
3 km. hlaupi.
I 80 m. hlaupi eru 19 kepp-
endur. Finnbjörn Þorvalds-
son (I.R.) er þar Iíklegastur
til sigurs og eftir tíma hans
í 100 m. hlaupi í súmar get-
ur hanh ef til vill bætt þar
drengjametið, en það er 9,4
se'k. sett af Kjartani Guð-
mundssyni (Á) 1932. Einnig'
er meðal ])áttakenda Sævar
Magnússon (F.H.), sem hefir
tekið þátt í mótum í sumar.
f kringlukasti eru 9 þátttak
eridur. Þar á meðal Bragi
Friðrikssoh (Iv.R.) og verður
að telja honum sigurinn vís-
an. Þá eru í hástökki 7 kepp-
endpr. Þar verður baráttan
að öllum líkindum milli Ing-
ólfs Steinssonar (I. R.) og
'Ma gnúsar Guð mundssona r
(F.IL). I langstökki eru 12
keppendur. Má þar t. d.
nefna Finnbjörn Þorvaldsson,
sem er líklegur til sigurs.
Tíu keppendur eru í 1500
ni. hlaupi. Þar á meðal eru
ÍRingarnir, Jóhannes Jóns-
son ög Óskar Jónsson, Ifarald
ur Björnsson (KR) og Gunn-
ar Gíslason (Á). I 1000 m.
boðhlaupi keppa 5 sveitir, 2
frá Ármanni, einti frá KR,
einn frá IR og einn frá F.H.
Verður engu spáð um úrslit-
in.
I 400 m. hlau])i eru 12
keppendur. Má þar t.d. nefna
KR-ingana Svavar Pálsson
og Óskar Guðmundsson, IR-
ingana Jóhannes Jónsson og
Oskar Jónsson og Gunnar
Gíslason frá Ármanni. Þátt-
takendur í 3ja km. hlaupi eru
5. Meðal þeirra eru Jóhann-
es og Óskar úr ÍR, Haraldur
Björnsson úr KR og Gunnar
Gíslason (Á). 3 þátttakend-
ur eru í stangarstökki. Lík-
legastir til -sigurs eru ITafn-
íirðingarnir Þorkell Jóhanns-
son og Sigursteinn Guðmunds
son og Ingólfur ’Steinsson,
(1R). Magnús Guðmundsson
(F’H), senr enn er drengur,
var meistari í fyrra, svo að
hann má ekki taka þátt í
kepninni, en hann reyndir
að bæta drengjametið utan
kepni. Metið er 3,23 m. sett
yrra af Valtý Snæbjörns-
s.vni, (Þór í Vestm.) I þrí-
stökki eru 10 keppendur.
Þar má t.^ d. nefna Úlrich
Uansen (Á. I spjótkasti eru
9 keppendur. Þar á með-
al Braga Friðriksson (KR).
Og loks er það kúluvarpið.
Þar má gera ráð fyrir harðri
keppni milli Jóels Sigurðs-
sonar (ÍR) og Braga Friðriks
sonar (KR).
BEST AÐ AUGLÝSA I
MORGUNBLAÐINU
Churchill sagði, að Bret-
ar væru mjög ánægðir með
fall Mussolini, „eins hins
mesta stríðsglæpamanns".
Einnig sagði ráðherrann,
að búast mætti við viðtæk-
um afleiðingum af þessari
breytingu. sem orðin er, en
þær væru ekki komnar í
Ijós enn. „Við eigum ekki
um neitt að velja, ef Italir
vilja halda áfram að binda
trúss við Þjóðverja, og
vjer höfum gefið fyrirskip
anir, sem miða að því, að
ef svo er, skal land þeirra
verða í rústum og svart af
ófriðarbálinu endanna á
milli“.
„Jeg veit mjög lítið um
hina nýju stjórn“ . sagði
Churchill, „og get ekkert
sagt um framtíð hennar. —
Þessi stjórn hefir ekki
reynt neina samninga við
oss, svo vjer munum halda
árásum á ítalíu með öllum
mætti. „ Ekki vitum vjer,
hvað skeð getur í ítalíu í
náinni framtíð, en við mun
um láta Stali súpa seyðið af
flónsku sinni, og hita það í
tilbót“.
Churchill sagði, að Bret
ar hefðu staðið í nánu sam
bandi bæði við Bandaríkja
stjórn og Rússa þessa síðustu
daga,
Síðan bað Churchill
menn ekki veraof bjart-
sýna, þótt ástæða væri til
bjartsýni. Italir hefðu ekki
styrkleika á við Þjóðverja
nema svo sem svaraði ein-
um á móti 10. Sagði Churc
hill, að menn mættu ekki
láta velgengni blinda sig,
Þjóðverjar væru epn óra-
sterkir. Hitler hefcli á að
skipa 300 þýskum her-
fylkjum, uppskeran í Ev->
rópu virtist góð, og miklar
auðlindir væru þar enn fyr_
ir hendi handa Þjóðverj-
um. Alt þetta yrðu menn
að taka með í reikninginn,
sagði Churchill og vera þess
meðvitandi, að baráttan
yrði löng og hörð og marg
ar fórnir þyrfti að færa*
áður sigur ynnist.
(slendingur
ferst af sjó-
slysi erlendis
AÐSTANDENDUM Geirs
Árnasonar hefir borist
tilkynning um það, að hann
hafi farist í sjóslysi erlendis.
Geir fór hjeðan úr bænum
með skipinu Skagen fyrir
hjer um bil einu og hálfu ári
Hefir hann verið í siglingum
síðan. Síðast, þegar til hans
frjettist, var hann á dönsku
flutningas.kipi, sem sigldi
milli London og New York,
og mun hann hafa farist með
því’ einhversstaðar á þeirri
leið.
Geir var sonur þeirra
hjóna frú Guðrúnar Þor-
steinsdóttur og Árna Jóns-
sonar, Óðinsgötu 20 hjer í
bænum. Geir mun hafa ver-
ið 17 ára, þegar hann fórst,
en hefði orðið 18 ára nú i júlí,
ef hann hefðHifað.
Verða ferðaieyfi
Þjóðverja
um Svíþjóð
afnumin?
Frá sænska sendiráð-
inu í Reykjavík.
1 ræðu sem Per Albin
Hanson, forsætisráðherra
Svía hjelt í Sávsjö þann 25.
þ. m., sagði hann meðal ann-
ars eftirfarandi:
Hinir miklu viðburðir þess-
ara daga gerast tiltölulega
langt frá landamærum vor-
um, en maður verður að hafa
bugfast, að lönd sem eru
nærri oss, geti orðið fyrir
hinni auknu baráttu í ófriðn-
um, og því eru auknar kröfur
gerðar um varðhöld vor. Tek-
ið hefir verið tillit til þessa
fullkomnun viðbúnaðarins,
sem verið er nú að ljúka við.
Útgáfa leiðbeiningarritsins
„Ef stríðið kemur“, er alvar-
leg áminning um það, að
stjórnin reiknar með þeim
möguleikum, að stríðið geti
skollið yfir oss. Samtímis
höldum vjer áfram baráttu
vorri fyrir því að komast hjá
stríði. —
I tilefni af ræðunni held-
ur blaðið „Socialdemokraten',
því fram, að árásir amer-
ískra sprengjuflugvjela á
Noreg feli í sjer möguleika á
að stríðið blossi þar upp ein-
hverntímann, og að vjer
verðum þessvegna að auka
varðhöld vor og viðbúnað til
hins ýtrasta. Með tilliti til
mikilvægis samgangnanna í
því að alt sje reiðubúið, yrði
umferðaleyfi Þjóðverja um
landið að afturkallast. „Dag-
ens Nyheter“ segir, að sem
lið í hinum auknu varðhöld-
um, megi einnig skilja svo,
sem verið geti, að það standi
fyrir dyrum að afnema ferða-
leyfin.
IMazistar ráð-
ast á iðnað
IMorðmanna
Frá blaðafulltrúa
Norðmanna:
NÚ HAFA nazistar í
Noregi ráðist á iðnaiðinn
og iðnstjettir norsku þjóð-
arinnar. Ef þeim tekst að
framkvæma áform sín, þá
verður iðnaður landsins
lagður að velli að hálfu
leyti, til þess að það fólk,
sem með því verður at_
vinnulaust, geti farið í
nauðungarvinnu í þjónustu
þýska hersins.
Frjáls blöð Norðmanna
rísa öndverð gegn tiltæki
þessu og hvetja forustu-
menn iðnaðarins til þess að
snúast til harðvítugrar and
stöðu.
Mfetvælaráðuneyti Quisl-
ings hefir sent iðnrekend-
um fylkjanna opið brjef,
þar sem svo er fyrir mælt,
að fjöldinn allur af iðn-
greinum og atvinnufyrir-
tæhjum verði alveg lagður
iniður, að undanteknum
þeim, sem vinna beint eða
óbeint í þágu hersins.
Úr öðrum atvinnugrein-
um verði dregið, alt frá 30
----70%, svo sem rekstri
sláturhúsa, leðuriðnaði als-
konar,- blikksmiða, mynda-
smiða o. m. fl. Og enn er
þriðji flokkur atvinnufyrir-
tækja sem á að loka vegna
atvinnuástands, svo sem
beykistofum, vagnasmiðj-
um, bílaviðgerðarverkstæð-
um, vjelsmiðjum o. m. fl.
Fyrir lok júlímánaðar
eiga iðnrekendur fylkjanna
að gefa skýrslu um lokun
fyrirtækjanna, til iðnsam-
bandsins. En af skýrslum
þessum á það að koma í
ljós, að 50% af iðnaðar-
fólki, sem var í vinnu 1.
apríl s.l., verði útilokað frá
atvinnunni.
Stjórn fylkisiðnrekenda á
að gefa skýrslur um vinnu
afl fyrirtækjanna, húsnæði,
rekstursfje, áhöld, efnivör-
ur o. fl.
Eitt af hinum frjálsu
blöðum hvetur iðnrekendur
til þess að gefa ekki þessar
skýrslur og mótmæla lok-
unum fyrirtækjanna. Þeir
verði að heimta að lagðar
verði fram ástæður fyrir
árás þessari á iðnaðinn.
Þeim verður að vera það
ljóst, að aðeins með öflugri
og einhuga andstöðu verð-
ur hægt að bjarga iðnað-
inum, þegar svona er kom-
ið. —
ÍSLENSK STÚLKA
FER Á ÍÞRÓTTA-
HÁSKÓLA YESTAN
HAFS
ÁRMENNINGAR hjeldu
ungfrú Sigríði Valgeirsdótt-
ur, íþróttakennara, kveðj u-
samsæti í gærkveldi. Er Sig-
ríður á förum vestur á í-
þróttaskóla í Kaliforniú. Sig-
ríður hefir stundað nám við
íþróttaskólann á Laugar-
vatni og s. 1. vetur kendi hún
hjá Ármanni og Jóni Þor-
steinssyni í íþróttahúsi hans.
Hún hefir og í mörg ár verið
í úrvalsleikfimisflokki Ár-
manns.