Morgunblaðið - 13.08.1943, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 13- ágúst 1943.
Ilvað er
meðaldags-
verk?
VTGFÚS GUÐMUNDSSON
frá Ungey hefir sent blaðinu
grein um Ilitaveituvinnuna.
Ilonum þykir verkinu miða
seint, þar sem hann hefir ha.ft
tækif'æri til að fylgjast með
því.
Ilann vill, að verkalaun sje
meira miðuð við afköst en nú
er títt, og þeir, sem vinni
meira en meðaldagsverk, fái
meira en meðalkaup, en hin-
ir, sem ná ekki meðalafköst-
um, verði að láta sjer nægja
með minna. Tíðarandinn er
ekki sá í svipinn. En að því
kann að koma, að meira verði
knýjandi að réikna sannvirði
vinnunnar, en nú er gert.
V. G. spyr, hverjir me.ti nú
hvað sje meðaldagsverk. Tel-
ur hann líklegt, að meðal-
dagsverk nú nái ekki þeim
afköstum, er reiknuð voru
dagsverk í Búalögum fornu.
Þar var löggiL dagsverk
m. a.:
Að go’a vætt (aðrir á hest)
til kola. — : löggva viðinn,
færa að, kuria og brenna. Að
höggva hundrað (120) rafta.
Að taka upp hrís (höggva og
rífa?) á 20 hesta. Að bera
(leiða?) á völl hundrað
„hesta taðkláfa, til ýmsra út-
garða“. Að breiða á (róta úr
og rnylja) hundrað taðkláfa-
hestum. Að þæfa 20 álna voð
(tvíbreiða). Að slá eyrisvöll
(þ. e. dagsláttu, ferhyrning
rjetthyrndan, 80 fm. á hverja
hlið). Að skera 7 (aðrir 8 eða
9) hundruð hringtorfs. Að
skera hálft annað hundrað
heytorfs, 7 fet hverja þeirra.
Að skera tvítuga gróf, 10 fet
á breidd og „liggi niður 20
torfur ok reisi torf at auki“.
Að hlaða vegg 6 faðma, axlar-
háan, 5 fet neðst, 3 fet efst.
Að skera 10 geldinga (sauði)
og raka gærurnar af öllum.
Margt er fleira talið í með-
aldagsverki, og litlu betra.
Fyrir þessi dagsverk mátti þá
greiða 2 álnir í fæði og 4 í
kaup.
Waltherskepnin
hefst 5. sept.
NÚ hefir verið ákveðið,
að Waltherskepnin, haust-
kepni meistaraflokkanna í
knattspyrnu hefjist sunnu-
daginn 5. september, með
leik milli K. R. og Víkings,
sem þá verður leystur úr
leikbanni. Þann leik dæmir
Guðmundur Sigurðsson. —
Annar leikur kepninnar
verður svo sunnudaginn 12.
sept. milli Fram og Vals, en
úrslitaleikurinn milli sigur
vegaranna í þessum tveim
leikjum verður svo háður
sunnudaginn 19. sept.
Yfirleitt eru leikir Walt-
herskepninnar altaf háðir á
sunnudagseftirmiðdögum,
sakir þess hve þá er tekið
að dimma á kvöldin.
Vv4»*VVVV***VVV‘**vVvv</,«H»4VVV4«*V*«*VvvvVV*t*VVVVVVvVVVVV%HrVV
| Myndafrjettir j
X**VmW**,*a.*, <*♦>
„ELDINGIN“.
Þetta er ein af þektustu orustuflugvjelum Bandaríkja-
raanna, Lockheed „Lightning“, eins og hún er nefnd.
Á STRÖNDINNI
Bandamenn hafa náð fótfestu einhversstaðar á Sikil-
eyjarströndum, og halda inn í landið. Aðrir eru að vaða
í land frá innrásarbátunum.
INNRÁSARÆFINGAR.
Amerískar flugvjelar eru hjer að æfa sig í því að hefja
sig til flugs rneð svifflugu í eftirdragi. Miklu var beitt af
svifflugum við innrásina á Sikiley.
LOFTVARNABYSSA
Loftvarnabyssurnar verða stöðugt stærri og fullkomn-
ari. Hjar á myndinní sjest ein af nýjustu og fullkomn-
ustu loftvarnabyssum Breta. |
225. dagur ársins.
ÁrdegisháflæSi: 4.15.
Síðdegisháflæði: 16.42.
Næturlæknir í læknavarð-
stofunni. Sími 5030.
Hjónaefni. Nýlega hafa op-
inberað trúlofun sína ungfrú
Bryndís Eiríksdóttir og
Bjarni Gíslason, bæði til heim
ilis að Sandlækjarkoti, Gnúp-
verjahreppi.
Trúlofun. Nýlega hafa op-
inberað trúlofun sína ungfrú
Kristín Einarsdóttir frá
Garðsauka í Hvolhreppi, og
Ragnar Jónsson, Ilellu, Rang-
árvölium.
Hjónaefni. S.l. mánudag
opinberuðu trúlofun sína ung
frú Margrjet Markúsdóttir,
Bergþórugötu 18 og Grover
Ilugh, Gash. U. S. Navy.
Hjónaefni. Nýlega hafa op-
inberað trúlofun sína ungfrú
Gunnhiklur Georgsdóttir, Að-
alstræti 16 og Roy II. Lewis,
U. S. Army.
Lögreglan biður þess getið,
að hún hafi ekki tilkynt um
bilunina á háspennutaug í
Hafnarstræti á þriðjudag, af
þeirri einföldu ástæðu, að húu
hafi enga tilkynningu um
þetta fengið.
Ilinsvegar tók lögreglan á
móti tilkynningu um bilun
þessa á fimtudagsinorguninn,
setti lögreeluvörð við staðinn
og tilkynti betta jafnframt á
skrifstofu.
Er það því lögreglunni að
þakka, að tilkynning um bil-
un þessa komst að lokum
rjetta boðleið, enda hefir lög-
reglan þrásinnis, er.raftaugar
bæjarins hafa bilað vegna á-
rekstra á stólpa eða af öðrum
ástæðum, tilkynt rafmagns-
veitunni það samstundis og
jafnframt haldið vörð um
saðinn, ef vegfarendum var
nokkur hætta búin, þangað
til viðgerðamenn komu á vett
vang.
íþróttamót. Ilið árlega
íþróttamót ungmennafjel.
Drengs í Kjós og Afturelding
ar í Mosfellssveit verður háð
n.k. sunnudag á Bugðubökk-
um í Ivjós, •skamt frá Laxá.
Ilefst mótið á ræðu, sem Ö-
lafur Thors fyrv. forsætisráð-
herra flytur. Ennfremur talar
þar Ben. G. Waage, forseti I.
S. í. Að ræðuhöldunum lokn-
um hefjast íþróttirnár. Fje-
lögin hafa um tuttugu ára
skeið haldið þessi íþróttamót,
til skiftis í hjeruðunum, með
vaxandi áhuga hjeraðsbúa
fyrir líkamsrækt og íþrótta-
kepni. Fjelögin hafa sent
marga góða íþróttamenn á
landsmót 1. S. I., með góðum
árangri. Margir muna enn,
hve fjelögin voru sigursæl á
Víðavangshlaupi í. R. fyrir
nokkrum árum síðan. —
Verði veður gott á sunnudag-
inn kemur, má búast við
miklu fjölmenni á mótinu.
Golfklúbbur íslands. Kepni
um Öldungabikarinn hefst
þriðjudaginn 17. ág. kl. 5 s.d.
Þeir einir, sem eru 50 ára og
[ eldri, geta tekið þát.t í kepn-
inni og skrifi þeir nöfn sín á
lista, sem festur er upp í Golf-
skálanum lúukkutíma fyrir
kepnina.
Hanndrætti Hringsins. Dreg
ið var í happdrætti Hringsins
hjá logmanni, og kom ujip nr.
979.. Vinningsins, sem er mál-
verk, má vitja til frú Ingi-
bjargar Þorláksson, Bjarkar-
götu 8.
Útvarpið í dag:
20.30 íþróttaþáttur I. S. í.
(Helgi S. Jónsson kaupm.).
21.00 „Úr handraðanum“ (dr.
Guðmundur Finnbogason).
21.20 Symfóníutónleikar (plöt
ur) : a) Píanókonsert nr. 5
eftir Beethoven. b) Orostu-
symfónlan eftir sama.
Móðir mín
SÓLVEIG BENEDIKTSDÓTTIR
andaðisf í Landakosspítala aðfaranótt 12. þ. m.
Anna Björnsdóttir.
Jarðarför dóttur okkar, systur og unnustu
SIGRÍÐAR SIGURÐARDÓTTUR
frá Brekku í Holtum
fer fram frá heimili hennar laugardaginn 14.
ágúst kl. 11 f. h.
Marta Jónsdóttir. Sigurður Guðmundsson.
Marteinn Davíðsson.
Jarðarför konunnar minnar og móður okkar
GUÐRÚNAR GUÐMUNDSDÓTTUR
frá Múlastöðum
fer fram mánudaginn 16. ágúst 1943 kl. 1,30 frá
heimili hennar Öldíígötu 25 Rvík.
Arnlaugur Ólafsson og börn.
Innilegt þakklæti til allra þeirra sem auð-
sýndu okkur samúð og hluttekningíi við andlát
og jarðarför dóttur okkar
MARGRJETAR ÞORFINNSDÓTTUR
Guðfinna Torfadóttir. Þorfirtnur Þórðarson.