Morgunblaðið - 13.08.1943, Síða 12

Morgunblaðið - 13.08.1943, Síða 12
12 Föstudagur 13. ágúst 1943 Hjer á myndinni sjest Churchill forsætisráðherra v era að horfa á hundruð amerískra fallhlífaherman na svífa til jarðar. Myndin var tekinn í Bandaríkjun- um, er Churchill var þar vestra í Maí s. 1. VALUR Reykjavíkurmeistari 1943 Vann Fram 3-1 Handknattieiks- mót karla hefst í kvöld í KVÖLD hefst mót í úti- handknattleik karla á í- þróttavellinum hjer. Keppa þar ellefu manna sveitir og taka þessi fjelög þátt í mót- inu: Ármann, Fram, Valur og Víkingur. Fyrsti leikurinn verður milli Ármanns og Víkings en strax á eftir leika Fram og Valur. Dómarar verða Þráinn Sigurðsson og Sigur jón Jónsson. Vinni Valur þetta mót, fær hann til eignar Ár- mannsbikarinn, sem um er ktpt. Á mótinu í útihandknatt- leik karla, sem háð var í fyrra, bar Valur sigur úr býtum, en Víkingar urðu næstir. Þótti mönnum það mót mjög skemtilegt, og svo mun enn verða. — í liðum þeim, sem þarna eigast við, eru ýmsir af þektustu knatt spyrnumönnum vorum og öðrum íþróttamönnum. Handknattleikurinn verð- ur stöðugt vinsælli meðal bæjarbúa, og er skemst að minnast handknattleiks- móts kvenna hjer á íþrótta- vellinum í síðasta mánuði. * I. R. og Akranes- ingar í lands- móti 1. flokks LANDSMÓT fyrsta flokks í knattspyrnu hefst hjer á íþróttavellinum á þriðju- daginn kemur með kappleik milli Hafnfirðinga og Vals, en Hafnfirðingar unnu mót ið í fyrra. Þórður Pjetursson dæmir þenna leik. Þátttaka er að þessu sinni mikil í mótinu, og mæta þar tvær sveitir, er ekki hafa tekið þátt hjer áður í mót- um, en það er íþróttafjelag Reykjavíkur, sem æft hefir knattspyrnu í sumar af miklu kappi og Akurnes- ingar, sem eiga efnileg knattspyrnulið. Má því bú- ast við skemtilegu fyrsta flokks móti að þessu sinni, en • þau hafa oft verið til- breytingalaus og leiðinleg. Á miðvikudaginn keppa svo Akurnesingar og K. R., en þann leik dæmir Hrólfur Renediktsson, en á fimtu- daginn þreytir í. R. við Fram og þann leik dæmir Albert Guðmundsson. Vík- ingur er ekki með vegna bannsins, sem fjelagið er í til l.september, en öll hin Reykjavíkurfjelögin senda lið til þessa móts, svo sem getið hefir verið. VALUR er nú orðinn Reykjavíkurmeistari í 7- sinn. K. R. hefir verið það 14 sinnum, Fram 6 sinnum og Víkingur einu sinni. Valur vann þenna titil góðum leik gegn Fram. Hef ir Valur nú unnið öll þrjú meistar'aflokksmót swmars- ins. Kl. 8 í gærkvöldi hlupu 22 knattspyrnumenn í hláum og rauðum litklæðum inn á íþróttamalarvöll höfuðstaðar- ins, til að útkljá þriðja og síðasta knattspyrnukappleik Reykjavíkurmótsins. Sól var á lofti, og háði það leikmönnum töluvert. Fram kaus að leika undan vindi í fyrri hálfleik. Hófu þeir strax sókn, er þeir h.jeidu í nokkrar mínútur. Fengu þeir eitt sjerlega gott tæki- færi, er þeir misnotuðu. Þeg- ar 25 mínútur voru af leik gaf -Tói Eyjólfs, eftir snögt upphlaup, boltann til Syeins, sem er nýr innfrh. hjá Val. Hann gaf svo boltann þegar í stað til Björgúlfs, sem skor- aði samstundis með föstu hægri fótar sparki. Þetta mark var að sumu leyti að kenna hægri bakv. Fram, er gleymdi að taka stöðu miðframvarðarins, sem svo aftur orsakaði það, að Björgúlfur skoraði auðveld- Jega. Þetta var eitt skemtilegasta markið í leiknum, sakir þess, hve flýtirinn var mikill á uppbyggingu þess. 1 þessum hálfleik fengu bæði liðin mörg góð tækifæri og þó eink um Valur, en þau voru ekki nýtt sem skyldi. Fyrri hálf- leikur endaði því 1:0 Val í hag. Strax í seinni hálfleik hófu Valsmenn sókn, enda Ijeku þeir nú undan sterkari vindi, er jókst því meir, sem leið á kvöldið. Þegar-10 mín. voru af ieik lagði Jói boltann laglega fy-r- ir Svein, sem skaut óverjandi í mark. Mínútu síðar er spyrnt þvert fyrir mark Fram Magnús hleýpur út til að slá boltann, en er of seinn. Ellert nær honum og skorar auðveld iega í tómt markið. Nú standa leikar 3:0 Val í hag. Þeir bláu voru samt ekki uppgefnir, heldur virtust sæk.ja sig eftir því sem ieið á ieikinn. Þegar seinni hálf- leikur er um það bil hálfnað- ur, fær Fram aukaspyrnu. Haukur Antons fær boltann og skorar (3:1). Nú veltur á ýmsu, sem eft- ir er leiks, en hvorugu liðinu tókst að skora. Endaði leikur- inn því með 3:1. Það má með sanni segja, að úrslitin væru rjettmæt. Valsmenn ljeku nú með liesta móti. Nú var þetta alt ann- að lið en á móti K. R. Vörnin var ágæt. Björn ljek nú sem bakvörður, og virðist það faba honum betur. Utframverðirnir voru mjög sæmilegir. Geir var ólíkt betri en í síðasta leik. Framlínan var nú virkari en áður. Það vantaði að vísu Albert, en Magnús Bergsteinsson, stað- gengill hans, stóð sig ágæt- lega. Lið Fram var nú töluvert breytt frá fyrri leik þess. Ey- jólfur er nýr í liðinu og var hann hægri bakvörður. Hann skortir ennþá mikla reynslu og' þjálfun, en það er vert að gefa honum gaum sakir dugn aðar hans og vilja. Karl, sem nú Ijek vinstri bakv., er lið- inu mikill styrkur. Sæmi og Ilögni ljeltu útframverði og voru góðir. Þó mega þeir „dekka" betur. Framlínan var nokkuð í molum. Nýr maður ljek m.ið- framherja, og' var hann því með öllu óvanur, að því er virtist. Þórhallur og Karl voru nú ekki eins athafnasamir og oft áður. I'Iaukur Antonsson virð ist, vera í góðri þjálfun. Sem heild var leikurinn vel og prúðmannlega leikinn, og brá oft fyrir mjög góðum leik. Dómari var Þorsteinn Ein- arss'on og dæmdi hann vel. 'Hann er einn af þeim fáu dómurum, sem eitthvað legg- ur á sig að hlaupá til að fylgj- ast sem best með leiknum. Slíkt e.r auðvitað nauðsynlegt bæði til að sjá rangstæður o. fl. o. fl. H. Ó. — Fallbyssur Framh. af 1. síðu. virkjabyssa, tvíhleypt og hefir lítið sameiginlegt með skriðdrekabyssunni. Fyrsta ætlunarverk þess- arar byssu er að skjóta á innrásarbáta og tundurbáta og var gildi hennar revnt fyrir tveim árum, er ítalsk- ir tundurbátar og hraðbát- ar rjeðust inn í höfnina í Valetta á Malta, voru þá 8 af bátunum eyðilagðir með þessum fallbyssum. — Byss ur þessar eru hafðar í skot- turnum og skjóta kraftmikl umsprengikúlum. —Reuter Sjötugur verður í dag Karl Sigurðsson, bóndi að Drafla- stöðum í Fnjóskadal. Lögreglan lýsir eftir 18 ára pilti SÍÐAN á miðvikudag, 4. þessa mánaðar, hefir ekkert frjettst til 18 ára pilts, Hró- ars Sigurðssonar, sem held- ur til að Hótel Heklu hjer í bænum. Umræddan miðvikudag hitti kunningi Hróars hann og hafði Hróar þá orð á því, að hann hefði í hyggju að fara til Vestmannaeyja, en ekki hefir hans orðið vart þar. Hróar var klæddur blá- um hversdagsfötum. Hann var í rauðröndóttri skyrtu, bindislaus, í brúnum skóm og með brúnan hatt. Hann er tæplega meðal maður á hæð, grannur, bláeygður og dökkhærður. Þeir, sem kynnu að hafa orðið varir við piltinn, eftir í miðvikudaginn, 4 ágúst, eru beðnir að gera rannsóknar- lögreglunni aðvart hið fyrsta. Laugardalurinn skemti- og íþróttasvæði GUNNAR ÞORSTEINSSON flutti á síðasta bæjarstjórn- arfundi tillögu um það, að nefnd sú, sem starfað hefir frá því í apríl í vor, að gera tillögur um íþrótta- og skemtisvæði Reykvíkingá, og liefir samið álitsgerð um Laugardalinn, fái að starfa á- fram að þessu máli. Á fundi bæjarráðs í gær var fallist á þessa tillögu.Með því móti fær nefndin málið til meðferðar áfram, til þess að ákveða nánar um framtíð- artilhögun svæðisins, og hvernig framkvæmdum skuli þar haga. En á meðan ekki er fylli- lega ákveðið, hvernig svæðið verður notað, verða ekki leyfðar þar byggingar, innan þeirra takmarka, sem nefndin tiltók í áliti sínu. Æskilegt væri, að nefndin vandaði verk sitt sem mest, en hinsvegar ljeti það ekki dragast lengi að semja fulln- aðarálit. Loitárás á Plymouth London í gærkveldi. - UM 40 þýskar sprengjuflug vjelar flugu í fyrrinótt inn yfir suðurströnd Englands. Ráðist var aðallegá á tvær borgir, og varð önnur þeirra — Þjóðverjar segja það hafn arborgina Plymouth — fyrir mjög snarpri árás, sem olli eyðileggingu, og fórust um 20 manns. Þá var og ráðist á Bournemouth og urðu þar skemdir og manntjón. Ein þýska flugvjelin var skotin niður. — Reuter.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.