Morgunblaðið - 22.08.1943, Qupperneq 1
Vikublað: ísafold.
30. árg., 188. tbl. — Sunnudagur 22. ágúst 1943.
Isafoldarprentsmiðja h.f.
ÞJÓÐVERJAR TAKA ÖLL VÖLD í DAN-
ÖRKU EF ÓEIRÐUNUM LINNIR EKKI
ASexfflííder
JÁ^í'Áujlu frjettir<
Oandaríkja-
menn hafa
tekið Kiska
Fer hann aftur til
Moskva?
London í gærkveldi.
Alexander hershöfðingi
hefir gert baráttuna á
Sikiley að umræðuefni, og
ljet meðal anna'rs svo um
mælt, að bandamenn
myndu halda áfram sókn-
inni á þessum slóðum, og
nota miklu meira af fall-
hlífarhermönnum í henni,
en hingað til.
Alexander sagði, að það
myndi hafa mjkla þýðingu
fyrir bandamenn að ná
Suður-Ítalíu á sitt vald,
því þá gætu þeir veitt
skæruherjum á Balkan-
skaga mikilvæga aðstoð.
é
Eftir þetta vjek Alex-
ander máli sínu að bar-
dögunum og sagði, að
Þjóðverj'ar hefðu barist af
mestu hreysti á eynni. en
bardögunum hefði samt
verið lokið fyrr, en búist
hefði verið við. Sagði
hershöfinginn, að upp-
haflega hefði verið áætlað
að það tækr 3 mánuði
•að sigrast á liði möndul-
veldanna .á eynni.
Þá sagði Alexander, að
mianntjón möndulherjanna
á Sikiley hefði alls verið
um 200.000 manns, þar af
stór meirihluti Italir, sem
gefist hefðu upp. Breta
kvað hershöfðinginn hafa
misst 11.800 menn, en
Bandaríkjaherinn 7.400.—
Reuter.
Skemdir á
járnbrautar-
stöðvum
ítala
London í gærkveldi.
Flugher bandamanna
hjelt áfram loftárásum á
samgönguleiðir ítala á
Suður-ítalíu í nótt sem
leið, og varð af mikið
tjón. Ráðist var á borg-
irnar Aversia og Bene-
vento nærri Napoli, og
voru nokkrar orustuflug-
vjelar möndulveldanna
skotnar niður. Þá rjeðust
flugvjelar frá Malta á
járnbrautir á Suður-ítalíu,
en stðrar sprengjuflug-
vjelar á járnbrautarstöð-
na í Villla Literno fyrir
norðan Napoli. Breskar
flugvjelar sökktu 7 lend-
hytarbátum möndulveld-
I anna við Grikklands-
| strendur, en ame'rísk her-
I skip skutu á ítalska bæinn
J Gioa Turo, og komu þar
, upp eldar. Bandamenn
misstu alls 10 flugvjelar í
gær og í nótt. — Reuter.
Konungur skorar á þjóð
ina að halda ró og reglu
Þetta er Paasikivi, sem einu
sinni samdi við Rússa í Moskva
um frið. Orðrómur hermir nú
enn einu sinni, að Finnar rnuni
levta hófanna imi frið við
Rússa, og er þá Paasikivi tal-
inn líklegasti samningamaður-
inn.
Skora
semjo
Borgarstjór-
inn ð Róm
segir af sjer
London í gærkveldi.
Fregnir frá Róm herma
í dag, að borgarstjóri og
varaborgarstjóri borgai-
I innar hafi sagt af sér.
Hefir Badoglio skipað
hershöfðingja nokkurn til
að fara með alræðisVald í
borginni. Þá segja fregn.
ir frá Róm, að verkamála-
ráðherra Badogliostjórnar-
innar hafi farið til Torino,
til þess að ræða þar við
verk'amenn, en þeir hafa
verið tregír til að vinna nú
| upp á síðkastið. — Reuter.
Stokkhólmi í gærkveldi.
Sænska blaðið „Dagens
Nyheter“ segir frá því, að
50 þektir stjórnmálamenn í
Helsinki hafi sent Ryti
Finnlandsforseta áskorun
þess efnis, að hann sjái um
að gerðar sjeu nú þegar ráð
stafanir til þess að Finnar
semji sjerfrið við Rússa.
Eftir því sem í áskorun-
inni segir, er fyrsta sporið
í átt til þess að friður náist,
það, að skipta um forsætis-
ráðherra, og gera Paasikivi
að stjórnarforseta í stað
Linkomies, en Paasikivi hef
ir áður staðið í samningum
við Rússa.
Hið sænska blað sagði
ennfremur, að þingið myndi
koma saman einhverntíma
eftir 1. september, og
myndi þá ræða ýms utan-
ríkismál. Ekki er enn vitað,
hvort umræður þessar
verða opinberar, eða hvort
málin verða rædd á lokuð-
um þingfundum. — Reuter.
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
KRISTJÁN 10. DANAKONUNGUR og ríkisráð Dana
hefir gefið út ávarp til þjóðarinnar um að forðast spell-
virki og óspektir, en hafa ró og reglu. Gefur konungur í
skyn í ávarpi sínu, að ef óspektum og spellvirkjum sloti
ekki, muni Þjóðverjar taka í sínar hendur öl> völd í land-
inu og stjórna því samkvæmt herlögum.
í Odense heldur óspektum’áfram þrátt fyrir það, að
borgarstjórinn hafi skorað á fólkið að vera rólegt. Ekki
hefir þó komið til eins alvarlegra árekstra og þar urðu
í borginni í gær, en orðið hefir að banna íþróttamót og
veðreiðar.
_________________________ Danska útvarpið hefir
birt ávarp Kristjáns kon-
ungs og ríkisráðsins, og var
það svohljóðandi: „Atburð-
ir hættulegs eðlis hafa orð-
ið nýlega. Spellvirki og mót-
þrói hafa víða komið fyrir,
og tilraunir hafa verið gerð
ar til þess að stöðva sam-
göngur á járnbrautum og að
stöðva ýmsar opinberar
framkvæmdir.
Framhald slíks sem þessa
mun hafa ófyrirsjáanlegar
afleiðingar fyrir þjóðarheild
ina. Tafið verður fyrir flutn
ingi fæðu og eldsneytis með
þessu framferði, og fram-
leiðslan trufluð“. Ávarpinu
lýkur á þessa lund: „Danskt
fólk á ekki að láta hafa sig
til þess að fremja óhugsað-
an verknað, en vera- rólegt
og varfærið, og hver sem
vill að Danir hafi áfram yf-
irráð í landi sínu,werður að
telja það skyldu sína, að
síuðla að því að ró og regla
sje haldin í landinu hvar-
vetna, og vinna að þessu
með öllum ráðum“.
Spellvirki á verksmiðjum
eru mjög tíð, og herma frjett
ir frá Stokkhólmiv að spell-
virki hafi verið unnin á 6
verksmiðjum á einni viku.
Einnig hafa borist lausa-
fregnir um það, að Danir
hafi ráðist á járnbrautarlest
ir, er fluttu þýska hermenn
í leyfisferðir frá Noregi.
Ríkisþingið danska hefir
verið kallað saman, og Dr.
Werner Best, fulltrúi Þjóð-
verja í Danmörku, mun
ganga á fund Kristjáns kon
ungs í dag. Segja fregnir frá
Stokkhólmi, að þeir muni
ræða um spellvirkin í land-
inu.
Framh. á 2. síðu.
Rússar byrja
sókn á hend-
ur Finnum
London í gærkveldi.
RIJSSAR er\i í þýskum fregn
um sagðir hafa byrjað sókn á
Murmansksvæðinu, og er það
fyrsta sóknin gegn Finnum
í langan tíma. Bkki hafa Rúss
ar sjálfir sagt neitt um sókn
þessa, en Þjóðverjar segja. að
harðir bardagar sjeu nú háð-
ir þar norður frá, og hryndi
finnsk- þýskar hersveitir á-
hlaupum Rússa.
Yið Karkov geysa enn jafn-
harðar orustur og áður, og
virðist Rússum lítið eða ekk-
ert verða ágengt við borgina
sjálfa, en sunnan hennar og
norðan hafa þeir unnið á
nærri Sumy, og var þetta vest-
asti bærinn, sem Rússar náðu
í vetrarsókn sinni síðastl vet-
lur.
Á Briansksvæðinu sækja
Rússar stöðugt lengra inn í
Merianskóginn, en það er af-
ar mikill skógui' fyrir austan
Briansk. Þarna vinna nú rússn
eskir verkfræðingar og vinnu-
sveitir að því að endurbyggja
brýr, sem Þjóðverjar hafa
sprengt í loft upp.
Blaðið Pravda segir, að
Þjóðverjar hafi sent mikið
varalið til Spas-.Deminskvíg-
stöðvanna til þess að stöðva
sókn Rússa þar, og gera nú
Þjóðverjar gagnárásir á þess-
um slóðum með miklum skrið-
drekasveitum. Eru þar nú
háðar harðar orustur hvar-
vetna: — Reuter.