Morgunblaðið - 22.12.1943, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 22. des. 1943.
MORGMBLAMÐ
7
ATVINNUHORFUR í BÆNUM
ATVINNUMÁLANEFND var
skipuð hjer í haust til þess að
rannsaka atvinnuhorfur hjer í
bænum. — í nefndinni eru
þessir:
Sigurjón Á. Ólafsson form.
Sjómannafjelagsins, Gunnar E.
Benediktsson, Helgi H. Eiríks-
son og Zophonías Jónsson.~
Nefndin tók til starfa þ. 9.
sept. og hefir nýlega skilað
áliti til bæjarráðs. Hefir hún
haft dr. Bjöm Bjömsson hag-
fræðing sjer til aðstoðar við
nefndarstörfin. Hefir hann
annast skýrslusöfnun fyrir
nefndina og unníð úr þeim
skýrslum.
Nefndin safnaði í upphafi
nákvæmum upplýsingum um
starfsmannafjöldi allra fyrir-
tækja hjer í bænum og hvern-
ig horfur væri í rekstrinum,
hvort fyrirtækin myndu geta
bætt við sig starfsfólki, eða út-
lit væri fyrir, að þau drægju
saman seglin.
Samandregið yfirlit yfir
þetta er í áliti nefndarinnar og
mjög fróðlegt, bæði um rekst-
urshorfurnar, eins og þær eru
nú, auk þess sem þarna er yf-
irlit yfir það, hve margt fólk
starfar hjer í hverri grein.
Starfsfólk bæjarins er sam-
tals 811 manns. Af því eru 211
konur. Eru þá allir taldir, er
fá laun úr bæjarsjóði, eða hjá
fyrirtækjum bæjarins, enda
þótt þeir hafi þar ekki öll sín
laun. Verkamenn eru hjer ekki
taldir, nema þeir, sem eru fast
ráðnir t. d. við sorphreinsun.
Starfssfólk ríkisins og ríkis-
fyrirtækja hjer í bæ er sam-
tals 1541. Af því eiga 50 lög-
heimili utan bæjarins. — 1110
eru karlar, 431 kona. Hjer er
ekki talið fólk Það, sem hefir
atvinnu við þingið um þingtím
ann, 50 manns.
Við sjávarútveg voru vinn-
andi 1010 manns, en búið var
að afskrá af sfldveiðaskipum,
er skýrslunum var safnað. Þeir
Úr neíndaráliti atvinnumálanefnda
r
sem vinna nokkurn veginn að
staðaldri hjá útgerðinni í landi
voru 257, en auk þess vinna
250 menn í ígripavinnu við
höfnina hjá Eimskipafjelagi
Islands og Skipaútgerð ríkis-
ins. Nákvæmt yfirlit yfir í-
gripavinnu við höfina var ekki
hægt að fá. Við afgreiðslu kola
og olíu vinna 189 manns.
Iðnaðurinn. Þar er starfslið-
ið lang-fjölmennast, 6055
manns, 4100 karlar og 1952
konur. Af þeim voru 1571 fag-
lærðir iðnaðarmenn, 572 iðn-
nemar, 3022 verkamenn og
annað starfsfólk 890. Safnað
var skýrslum frá 620 atvinnu-
fyrirtækjum. Þar af voru 120
taldir einyrkjar. Skrifstofufólk
fyrirtækjanna er talið með.
í nefndarálitinu er gerð
sjerstök grein fyrir mann-
fjölda í byggingariðnaðinum,
en hann er allbreytilegúr, eft-
ir ástæðum.
En í öðrum iðngreinum unnu
í okt. 1200 fagmenn, 1475 iðn-
nemar, 1200 iðnverkamenn og
1320 iðnverkakonur.
Atvinnurekendur í iðnaðin-
um töldu geta bætt við sig
starfsfólki, sem hjer segir: 120
faglærðum, 100 ófaglærðum,
20 nemum og 320 stúlkum,
samtals 560 manns. — En sú
fjölgun er bundin ýmsum
skilyrðum, sem vafasamt er,
hvenær hægt er að fullnægja,
svo sem rýmra húsnæði, auk-
inn innflutnjng á efnivöru og
áhöldum til breytinga á verð-
lagsákvæðum, lækkun skatta
o. s. frv.
Niðurstöður nefndarinnar.
Hjá Höjgaard og ' Schultz
unnu 428 bæjarmenn. er skýrsl_
an var samin og 804 hjá setu-
liðinu.
Er nefndin hefir gert grein
fyrir starfsmannafjölda og
rekstarhorfum atvinnugrein-
anna, segir svo m. a. um nið-
urstöður hennar:
Allmikill skortur er á kven-
fólki til ýmis konar iðnaðar-
starfa. Sama máli gegnir og
um heimilisstörf. Á því virðist
engin veruleg breyting muni
verða nú fyrst um sinn. — At-
vinnumarkaður kvenna kemur
því ekki til frekari athugunar
í þessu sambandi.
Eins og sakir standa, er ekki
heldur um neitt atvinnuleysi
að ræða hjá körlum. Við hina
lögboðnu atvinnuleysisskrán-
ingu í byrjun nóv. s.l. gáfu sig
fram aðeins þrír menn, er gátu
ekki stundað vinnu vegna van
heilsu. Ráðningarstofur bæjar-
ins staðfesta og, að enn sje
engin óvanaleg aðsókn af
mönnum í atvinnuleit, og eft-
irspurnin eftir starfskröftum
fullnægi algerlega framboði
þeirra.
Rannsóknin bendir hinsveg-
ar til þess, að eftir árarhótin
megi búast við breytingum á
atvinnumarkaðinum, er leiði
til atvinnuleysis. En hversu
mikil brögð verða að því, fer
eftir ýmsum aðstæðum, sem erf
itt er að gera sjer grein fyrir
nú, eða fyr en reynslan sjálf
sker úr. Veltur þar einna mest
á þeim framkvæmdum, sem
höndum,
og inn-
Bifreiðarstjórar eru alls setuliðið hefir með
taldir 650, við vöru- og fólks- j svo 0g veðráttufari
flutninga, hætt við, að sumt
af
missi atvinnu í náinni fram-
tíð.
! flutningi á efni til byggingar-
vöruflutningabifreiðunum framkvæmda.
Barnasokkar
allar stærðir
verða teknar
upp í dag.
Ingólf sbúð
Hafnarstræti 21. — Sími 2662.
Plotínurefaskinn
Þeir, sem eru í vandræðum með val á góð-
um jólagjöfum handa konunni, ættu að líta
á platínurefaskinnin hjá
0. Helgason & Melsted h.f.
Hafnarstræti 19.
Eftir því, sem fram hefir
komið, liggur fyrir innan
skamms bein fækkun á verka-
mönnum við núverandi fram-
kvæmdir, sem hjer segir: Hjá
Höjgaard og Schultz ca. 300,
við innlagnir í hús ca. 100, hjá
t vegamálastjóra ca. 35, hjá Al-
menna byggingarfjelaginu (ef
til vill) ca. 80. Hjá þessum fáu
aðilum nemur hin fyrirhugaða
fækkun verkamanna því rúm-
lega 500. Afgreiðsla við höfn-
ina getur og farið minkandi frá
því, sem nú er.
Þar á móti kemur fyrirhug-
uð fjölgun verkamanna hjá
frystihúsunum og olíufjelög-
unum um ca. 100. Þá má og
gera ráð fyrir, að atvinna hjá
verkamönnum í bænum glæð-
ist nokkuð yfir vetrarvertíð-
ina, auk þess, sem allmax-gt
bæjarmanna, einkum úr hópi
sjómanna, leitar sjer atvinnu
annars staðar um þann tíma.
Ef dregur úr framkvæmdum
setuliðsins og byggingarstarf-
semin í bænum dregst saman
á vetrinum, vegna feðráttufars
eða efni^skorts, má vænta enn
meira framboðs á atvinnu-
markaði verkamanna, en gert
er ráð fyrir hjer að framan. —
Hinsvegar er ekki hægt fyrir-
fram að segja um hversu
miklu það nemur, eins og áður
greinir.
Tillögur nefndarinnar.
I fyrsta lagi bendir nefndin
á, að talsvert muni vera af
utanbæjarmönnum hjer í at-
vinnu. Vill hún að hömlun á
innflutningi til bæjarins verði
framfylgt.
Þá bendir nefndin á, að bær
inn þurfi að láta framkvæma
ýms aðkallandi verk, t. d.
gatnagerð, endurbætur á göt-
um og ýmsar byggingar. Enn
fremur æskilegt að hefja vega
gerð um þjettbýlið í Kópavogi
og laga lóð Sjómannaskólans,
en þær framkvæmdir verða á
vegum ríkisins.
Þá segir að endingu í álit-
inu:
Atvinnulíf bæjarins hlýtur í
framtíðinni sem hingað til að
byggjast að verulegu leyti á
útgerð, svo og iðnaðarstarf-
semi í sambandi við vinslu
sjávarafurða. Til þess að öll
þessi starfsemi geti þróast á
eðlilegan og æskilegan hátt, er
nauðsvnlegt m. a. að skapa út-
gerðinni viðunandi afgreiðslu-
skilyrði við höfnina. Bátaútveg
ur er hjer minni en vænta
mætti og æskilegt getur tal-
ist, enda eru afgreiðsluskilyrði
fyrir báta mun lakari í höfn-
inni en vera ber, og þau gætu
verið. Lítur nefndin svo á, að
nauðsynlegt sje að hefjast þeg
ar handa um endurbætur á
núverandi bátahöfn og gera
jafnframt ráðstafanir til, að
verbúðirnar verði rýmdar og
bátaútgerðinni veittur að-
gangur að þeim. Samtímis sje
haldið áfram framkvæmdum
við fyrirhugaoa bátahöfn í
vestanverðri höfninni. Hrað-
frystihúsum fer nú fjölgandi
hjer, og væri óeðliiegt, að þau
þyrftu að afla sjer fiskjar frá
öðrum verstöðvum.
Ef bærinn á að geta hagnýtt
hið aukna land, er hann nú
hefir aflað sjer, er nauðsyn-
legt, að umbætur fari fram á
jörðunum, ræktun verði end-
urbætt og aukin, sje þess kost-
ur. Nefndin telUr ekki í sín-
um vei'kahring að gera tillög-
ur um, hvernig þeim fram-
kvæmdum skuli háttað. Sama
gildir um fyrirhugaða skipa-
smíðastöð, en nefndin lítur svo
á, að fyrir framtíð sjávarút-
vegsins, og raunar alls atvinnu
lífs bæjarbúa, sje mjög mikil-
vægt, að hafinn verði undir-
búningur að því verki sem
fyrst, en ráðist í framkvæmdir
þess jafnskjótt og nauðsynleg-
um undirbúningi er lokið.
I athugasemdum þeim, sem
atvinnui'ekendur Ijetu fylgja
skýrslunum, kemur mjög
greinilega í ljós, að mikið velt-
ur á því fyrir iðnaðarstarfsem-
ina í bænum, að innflutningur
á efnivörum minki ekki frá
því, sem nú er. Með auknum
innflutningi gætu og ýmsar
starfsgreinar allverulega fært
út kvíarnar, í bili að .minsta
kosti, eða á meðan dregur ekki
úr núverandi viðskiftaveltu.
Nefndin telur rjett að vekja
athygli á þessum atriðum,
enda þótt henni sje ljóst, að
stjórnarvöld bæjarins muni að
eins geta haft óbein áhrif á
gang þeirra mála.
j^mnmiiiinmiiiiiMiiiinnnniiiimnniiiuiiuuuiHw
1 NÝTT EINSÖNGSLAG I
VOR
jf eftir Pjetur Sigurðsson frá s
= Geirmundarstöðum, við S
3 kvæði eftir Friðrik Hansen, S
5 Sauðárkróki, er komið í s
= hljóðfæraverslanirnar. — S
£ Einar Sturluson söng lagið s
= í útvarp á mánudaginn. , |§
Útgefandi. s
líiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuilr
’*«*4«***Kh!m** O1***4***?
Ágæt jólagjöf
krosssaumspúði
eða stólaseta í stramma,
frá
Verslun Augustu 8vendsen
l
9
»*♦
|
♦
f
X
9
Ý
i
I
•:«
:
V
Ý
Y
v * v
ck**x**x**x**:*«>*>*>*>*>*k**x**x**!**x**k»^*!**k*<k*<»*:'^h**k**m**x**k**x**>
Gólf teppi
Stærðir: 3,40x4,40 og minni.
nokkur teppi óseld-
RUFF-gardínur.
HOLL-gardínur.
SMÁBORÐ nokkur sett af hinum margeft-
irspurðu smáborðum, 3 borð í setti.
Málverk. Myndir m. m- fl.
Hjeðinshöfði h.f.
Aðalstræti 6B. — Sími 4958.